Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 61 VEFSÍÐA VIKUNNAR: THESMOKINGGUN.COM» Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is ORÐATILTÆKIÐ „the smoking gun“ eða byssan rjúkandi er í enskumælandi löndum notað yfir óhrekjanleg sönnunargögn. Það er erfitt fyrir morðingjann að þræta fyrir glæpinn þegar rjúkandi byssa er dregin upp úr jakkavasa hans og það er af þessu orðtaki sem vefritið The Smoking Gun fær nafn sitt, þótt glæpirnir sem þar eru upplýstir séu léttvægari en morð. Komu upp um James Frey Sem dæmi um umfjöllunarefni blaðamanna The Smoking Gun má nefna að þeir urðu fyrstir til að tortryggja sjálfsævisagnaritarann James Fray, höfund metsölubók- arinnar Mölbrotinn, sem lýsti þar hræðilegri baráttu sinni við eit- urlyf. Í ljós kom að Frey hafði log- ið til um marga hluti í bókinni og blekkt forleggjara sína, lesendur og sjálfa Opruh Winfrey, en ekki aðstandendur The Smoking Gun. Nú síðast í vikunni komst vefsíð- an aftur í fréttir þegar hún afhjúp- aði að grein í The Los Angeles Times þar sem rapparinn Sean Combs var bendlaður við morðið á Tupac Shakur væri að öll- um líkindum byggð á upp- lýsingum frá óheiðarlegum heimildamanni, sem þaul- reyndur blaðamaður með Pulitzer-verðlaun á ar- inhillunni hefði látið plata sig. Í skjóli laganna Stofnendur síðunnar, þeir William Bastone og Daniel Green, afla stærsta hluta efnisins á síðuna í skjóli laga um frjálst að- gengi að upplýsingum. Lögin fela meðal annars í sér að almenningur skuli hafa aðgang að gögnum frá lögreglu og dómstólum og það hafa þeir Bastone og Green til dæmis nýtt sér til þess að fá myndir af frægu fólki sem kemst í kast við lögin. Þegar fólk er handtekið er tekin mynd af því við komuna á lögreglustöð og þessar myndir vekja mikla eftirtekt þegar um er að ræða stjörnur á borð við Paris Hilton eða Mel Gibson. Önnur sérgrein vefritsins er að birta lista yfir kröfur tónlistarfólks og annarra skemmtikrafta um að- búnað í búningsherbergjum. Þar má meðal annars sjá að Janet Jackson spilar ekki á tónleikum nema tónleikahaldari útvegi stóra blómaskreytingu með rósum, lilj- um, gardeníum og túlípönum. Þó að umfjöllunarefni The Smoking Gun sé nánast eingöngu frægt fólk og þá sérstaklega hverskonar hneykslissögur þá er því ekki að neita að vefritið veitir hefðbundnum fjölmiðlum í Banda- ríkjunum visst aðhald. Það gerir það bæði með því að birta ýmsar upplýsingar sem almenningur hef- ur áhuga á, og á lögum samkvæmt rétt á að hafa aðgang að, og ekki síður með því að hafa vakandi auga á tortryggilegum fréttum sem smjúga fram hjá vökulum augum hæfustu ritstjóra. Gómuð Meðal þeirra sem hafa fengið andlits- mynd af sér úr safni lögreglunnar birta á The Smoking Gun eru þau Yasmine Bleeth, Nick Nolte, Robert Downey Jr. og Paris Hilton. Gripin glóðvolg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.