Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 2
ÍSLEIFUR Jónsson, verkfræð- ingur og fyrrum stjórnandi Jarð- borana ríkisins, segir í grein í Morgunblaðinu í dag að besta lausnin í málefnum Sundabraut- ar sé að hætta við lagningu henn- ar og breikka þess í stað Vest- urlandsveginn í þrjár til fjórar akreinar. Ef Sundabraut sé nauð- synleg þá sé skynsamlegast að leggja hana ofan sjávar. Í grein sinni bendir Ísleifur á að Esjan sé syðsta fjallið úr gamla berginu, sem sé miklu eldra og þéttara en bergið á Suðvestur- og Suðurlandi. Sunnlenska bergið leki líka miklu meira og því sé mjög hæpið að skynsamlegt sé að grafa jarðgöng undir sjávarmáli á svæðinu. „Ég legg því til að engin jarðgöng undir sjávarmáli verði leyfð á svæðinu frá Kjalarnesi að Vatnajökli næstu milljón árin að minnsta kosti,“ skrifar Ísleifur og áréttar skoðun sína: „Bönnum öll jarðgöng undir sjó frá Kjalarnesi að Vatna- jökli.“ | 34-35 Varar við Sundabraut 2 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is SÉ raunin sú að óprúttnir spákaup- menn reyni vísvitandi að þrýsta niður gengi krónunnar og íslenskra hlutabréfa er hugsanlegt að hægt sé að leggja fyrir slíka kóna gildru, að sögn blaðamanns Financial Tim- es að því er fram kemur í grein sem birt er í blaðinu. David Ibison var árið 1998 fréttastjóri viðskiptafrétta blaðsins South China Morning Post, sem gefið var út á ensku í Hong Kong. Svæðið hafði þá nýlega horfið und- an breskri stjórn og undir kín- verska. Í kjölfarið sætti gjaldmiðill Hong Kong, dollarinn, árásum spá- kaupmanna og hlutabréfamarkaður landsins sömuleiðis. Gengi Hong Kong-dollarans var tengt við gengi Bandaríkjadals og Segir hann að eftirmarkaður með skuldabréf íslensku viðskiptabank- anna sé lítill og velta með bréfin ekki mikil. Við slíkar aðstæður sé hægt að þrýsta skuldatryggingará- laginu á bréfin upp og veikja þar með trú fjárfesta á bönkunum sjálf- um. Segir hann að tryggingarálagið nú sé miklu hærra en fjárhagsleg staða bankanna gefi ástæðu til og geti það bent til þess að markaðs- misnotkun sé um að kenna. Spá- kaupmennirnir geti með öðrum orðum notað eftirmarkaðinn til að þrýsta hlutabréfaverði bankanna niður og græða á því að skortselja hlutabréfin. Veltir hann því upp þeirri spurn- ingu hvort hægt sé að leggja fyrir spákaupmennina gildru líkt og gert var í Hong Kong fyrir áratug með kaupum yfirvalda á hlutabréfum í kauphöll. Kong stórtöpuðu þegar gjaldmið- ilinn og hlutabréfin hækkuðu og fljótlega hættu árásir spákaup- mannanna. Markaðsmisnotkun Ibison segir að þótt aðstæður í Hong Kong árið 1998 og á Íslandi nú séu ekki þær sömu séu til staðar möguleikar fyrir spákaupmenn að græða á því að leika á markaðinn. höfðu spákaupmennirnir uppgötvað leiðir til að misnota þessa tengingu til að þrýsta niður gengi bæði Hong Kong-dollarans og þarlendra hlutabréfa. Græddu spákaupmenn- irnir á því að veðja á lækkun hluta- bréfanna, sem á viðskiptamáli kall- ast að skortselja. Telur Ibison Seðlabanka Íslands geta lært af því hvernig seðlabanki Hong Kong tók á þessum vanda. Bankinn gerði á skömmum tíma stórinnkaup á þarlendum hluta- bréfum, að andvirði um 8% af heildarvirði félaga í kauphöllinni í Hong Kong, og þrýsti þar með verði hlutabréfa upp. Samtímis greip bankinn inn í gjaldeyrismark- aðinn með svipuðum afleiðingum og gerði lýðum ljóst að hann væri reiðubúinn að gera slíkt aftur. Þeir spákaupmenn sem höfðu skortselt dollarann eða hlutabréf í Hong Seðlabankinn leggi gildru fyrir spákaupmennina? FT segir Íslendinga geta lært af viðbrögðum seðlabanka Hong Kong við atlögum Í HNOTSKURN »David Ibison var fréttastjóriviðskiptafrétta South China Morning Post 1998 sem gefið var út á ensku í Hong Kong. »Hann skrifar grein í FinancialTimes og telur Seðlabanka Ís- lands geta lært af viðbrögðum seðlabanka Hong Kong. LÖGREGLAN í Borgarnesi stöðv- aði akstur ungs manns á fjórða tím- anum aðfaranótt laugardags vegna gruns um ölvunarakstur. Það væri vart í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að um kvöldmatarleytið á föstudag var sami maður stöðv- aður, þá fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni hefur maðurinn alls verið kærður fimm sinnum frá áramótum fyrir akstur undir áhrifum lyfja. Hann hefur þó ekki verið sviptur ökuréttindum, sökum þess að mál hans er enn á leið gegnum dóms- kerfið, en sinn tíma tekur að rann- saka blóðsýni. Tekinn fimm sinnum frá áramótum AÐFARANÓTT laugardags var „hefðbundin“, að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu. Drykkjulæti og slags- mál, bæði við veitingahús í mið- borg Reykjavíkur og í heima- húsum – engar alvarlegar líkamsárásir þó. Þá þurfti lögregla að hafa afskipti af fimm ökumönn- um vegna gruns um ölvun við akstur. Á Akureyri var framið innbrot á sjöunda tímanum í gærmorgun. Karlmaður á þrítugsaldri braust inn í þjónustukjarna fyrir geðfatl- aða en hafði ekki erindi sem erf- iði. Með erfiði sínu tókst honum þó að vinna töluverðar skemmdir. Lögregla hafði hendur í hári mannsins skömmu eftir innbrotið. „Hefðbundið“ hjá lögreglu KULDINN hefur eflaust bitið í kinnar hlaup- aranna sem tóku þátt í árlegu vormaraþoni Fé- lags maraþonhlaupara í gærmorgun. Hlaupið var ræst við rafveitustokkinn í Elliða- árdal og leyndi ákafinn sér ekki í svip hlaup- aranna er þeir lögðu af stað í langa ferð. Leiðin lá um Fossvoginn og Ægisíðuna eins og venja hefur verið undanfarin ár. Í ár var á annan tug keppenda skráður til þátt- töku í heilu maraþoni, sem er rúmir 42 kílómetr- ar, en á sjöunda tug keppenda var skráður í hálft maraþon. Morgunblaðið/G.Rúnar Maraþonhlauparar við rásmarkið „VIÐ ERUM rétt að fara af stað og ákváðum m.a. að skoða ákveðin mál, s.s. almenna launaþróun. Annars er helst frá því að segja að við leggjum áherslu á sömu atriði, þ.e. við og ríkið. Hvort við finnum svo sömu leiðir er annað mál,“ segir Signý Jó- hannsdóttir, sviðsstjóri opinberra starfsmanna hjá Starfsgreinasam- bandi Íslands, um fund með samn- inganefnd ríkisins sl. föstudag, en kjarasamningur starfsmanna hjá ríkinu innan aðildarfélaga SGS er laus á morgun. Signý segir ljóst að mjög erfitt sé að semja við núverandi aðstæður í efnahagslífinu og er samninga- nefndin í annarri stöðu en sú er samdi við Samtök atvinnulífsins 17. febrúar sl. „Við höfum tekið ákvörð- un um að fara rólega af stað og sjá hvernig framvindan verður. Ef þetta er viðvarandi ástand erum við í allt annarri stöðu.“ Næsti samningafundur er fyrir- hugaður 10. apríl næstkomandi. Vaktavinna slítandi Líkt og komið hefur fram er lögð áhersla á að hækka lægstu laun sér- staklega og vinna að auknum kaup- mætti. Auk þess þarf heildarend- urskoðun á vinnufyrirkomulagi vaktavinnufólks, enda hafi það sýnt sig að vaktavinna sé fremur slítandi en annað fyrirkomulag. Þá telur SGS nauðsynlegt að efla starfs- menntun enn frekar og það nám sem nýtist í starf. Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, segir of snemmt að segja til um framgang viðræðna. Hann er þó sammála Sig- nýju hvað varðar áherslurnar og segir þær ekki svo ólíkar. „Það get- ur í sjálfu sér gefið fyrirheit um að hægt sé að ná saman á þokkalega raunsæjum nótum.“ Staðan allt önnur en í samningum ASÍ og SA SGS fundaði með samninganefnd ríkisins fyrir helgi BÁSAFJÓSUM hefur fækkað mikið á undanförnum árum og hefur í staðinn fjósum með legubása, þ.e.a.s. fjósum þar sem kýrnar ganga um lausar, fjölgað mikið. Þetta kemur fram í skýrslu sem Landbúnaðarháskóli Íslands hefur unnið fyrir Landssamband kúa- bænda, en á síðustu fjórum árum hefur básafjósum fækkað úr 86% í 70%. Einnig kemur fram að legubása- fjós með mjaltaþjónum eru að jafn- aði með hæstu meðalnytina og er það breyting frá árinu 2005 þegar básafjós með mjaltabás voru afurðamestu bú landsins. Þau eru einnig stærst með 60 kýr. Básafjósum fækkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.