Morgunblaðið - 30.03.2008, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 19
Leikstjórinn öskraði á Collins að þar
sem hún væri 30 árum yngri en
gamla skarið ætti henni ekki að verða
skotaskuld úr því að grípa fast um
ökkla hennar og reima skóna. „Bros-
viprur fóru um andlit Bette á meðan
ég var niðurlægð fyrir framan alla,“
segir Collins sem eftir snuprurnar
beit á jaxlinn, tók þéttingsfast um fót
Davis og lauk verkinu með sóma og
sann. Upp frá þessu lét Davis hana í
friði.
Ég og aðeins ég
„Ég lærði margar lexíur af að
vinna með Davis. Ég lærði að það er
mikilvægt að vera alltaf vingjarnleg
og kurteis við yngri leikara, sem oft
eru hræddir og óöruggir, sérstaklega
kringum stórar stjörnur. Sem fag-
manneskja kannaði ég aðferðir Davis
og veitti athygli hversu snilldarlega
hún tók yfir sviðið. Stundum þurfti
hún ekki einu sinni að hreyfa vöðva,
aðeins lygna þessum undraverðu
augum sínum. Hún gat túlkað tilfinn-
ingar með því einu að depla auga eða
draga andann lítillega,“ segir Collins
og leynir ekki aðdáun sinni.
Ein setning Elísabetar I. í Mey-
drottningunni er henni sérstaklega
minnisstæð, enda speglar hún að
hennar mati jafnt líf hinnar látnu
leikkonu sem drottningarinnar, sem
hún túlkaði með svo eftirminnilegum
hætti: „Það er ég sem set reglurnar í
þessu herbergi, ég og aðeins ég,“
sagði Davis í hlutverki Elísabetar I.
„Bette setti reglurnar í hverju her-
bergi og hvar sem hún fór,“ segir
Collins.
Mörgum árum síðar lágu leiðir
Bette Davis og Joan Collins aftur
saman á Nótt 100 stjarna-hátíðinni í
New York. Þegar þar var komið sögu
naut Collins töluverðrar velgengni og
virðingar fyrir leik sinn í Dynasty og
var því boðið að deila búningsherbergi
með goðsögnunum Jane Russel, Gin-
ger Rogers, Lillian Gish og síðast en
ekki síst: Bette Davis.
Löng frásögn af lítilli flík
Eins og alla jafna af viðlíka tilefni
var Collins í afar skjóllitlum kjól,
hönnuðum af Nolan Miller, sérlegum
fatahönnuði Dynasty-þáttanna. Í
minningargreininni lýsir hún sam-
skiptum þeirra Davis í búnings-
herberginu þetta kvöld. „Bette, sem
var klædd eins og gömul amma, sat í
hægindastól, keðjureykti og mældi
mig út frá toppi til táar þar sem ég
puntaði mig fyrir framan spegilinn.
Síðan sagði hún háðslega í þessum
furðulega klemmda tón: „Þú ert næst-
um því í kjól.“
„Já, og það þarf að laga aðeins pils-
ið, viltu toga faldinn aðeins niður,
Bette mín?“ [sagði Collins].
Prímadonnan stórfenglega stóð
virðulega á fætur með logandi sígar-
ettuna í munnvikinu og rykkti örlítið í
faldinn. Næsta morgun hringdi hún í
hönnuðinn til að kvarta: „Hvernig
gastu látið Collins-stelpuna vera í
svona svívirðilega afhjúpandi flík-
um?“ spurði Bette.““
Atburðurinn er augljóslega greypt-
ur í minni Collins sem af tæfuskap
sínum hefur líkast til haft gaman af að
vera sjálf svona mikil skutla þegar
farið var að halla undan fæti hjá Davis
og hún orðin „ömmuleg“, eins og Coll-
ins lýsir henni. Stundum segja minn-
ingargreinar meira um höfund þeirra
en þann skrifað er um.
Fleygir frasar
Collins lofar leikhæfileika Davis í
bak og fyrir og rifjar upp ýmsa fleyga
frasa úr kvikmyndum hennar, sem
Davis sjálf hafði síðar gaman af að
endurtaka í ýmsum spjallþáttum. Til
að mynda þegar hún sem Madge,
kynhungruð dóttir plantekrueiganda í
Kofanum á baðmullarakrinum (Cabin
in the Cotton) mælir líkama Richards
Barthelmess út með velþóknun og
segir ósvífnislega: „Ég myndi alveg
vilja kyssa þig en ég var bara að þvo á
mér hárið.“
„Því að biðja um tunglið, Jerry,
þegar við höfum stjörnurnar,“ er
setning sem mörgum er minnisstæð
úr Núna, sæfari (Now Voyager) og
Davis beinir til Pauls Henreid þar
sem þau reykja saman makindalega
og rómantísk.
Tveir Óskarar
Collins var við Óskarsverðlaunaaf-
hendinguna 1956 og kveðst hafa
fundið til með Bette Davis þegar hún
afhenti Marlon Brando Óskarinn fyr-
ir besta leik í karlhlutverki. Þrátt fyr-
ir 11 tilnefningar, vann Davis verð-
launin aðeins tvisvar sinnum, fyrir
Hættuleg (Dangerous) 1936 og Jeze-
bel 1939. Eflaust eru margir sama
sinnis og Collins, sem finnst til
skammar að Óskarsakademían hafi
aldrei veitt Davis heiðursverðlaun
fyrir ævistarf sitt.
„Kannski var of mikill töggur í
henni fyrir Hollywood þar sem kon-
urnar áttu að vera þægar og auð-
sveipar,“ gerir Collins sér í hug-
arlund og heldur áfram: „Hún var
líka oft upp á kant við stórlaxana og
hafnaði reglulega hlutverkum sem
henni fannst ekki hæfa sér. Ég hef
mikið stúderað kvikmyndir hennar
og reynt að ljá sumum persónunum
sem ég túlka þá einbeitni og þann
styrk sem Davis náði alltaf fram,“
segir Collins.
Tæfur fyrr og síðar
Fyrsta hugsun hennar þegar hún
fékk hlutverk Alexis í Dynasty var
hvernig Davis hefði nálgast per-
sónuna. „Umboðsmaðurinn minn
lýsti henni sem „virkilega safaríkri
tæfu“, af þeirri gerð sem Bette Davis
hefði leikið á hátindi ferils síns.“
Og Collins líkir Alexis við fjölda
persóna sem Davis túlkaði; kvenna
sem voru slóttugar og stjórnsamar
en heillandi og beittu kyntöfrum sín-
um óspart til að ná sínu fram. Sumir
kalla þær tæfur. Tæfur Joan Collins
hafa þó varla komist með tærnar þar
sem sumar tæfur Bette Davis höfðu
hælana.
stuðningsmannaklúbbur landsliðs-
ins beitti sér af krafti í málinu. Það
var þó ekki fyrr en forseti landsins
sjálfur, Željko Komšić, lét til sín
taka að skriður komst á það.
Í upphafi þessa árs fékk Pjanić
vegabréf sitt loksins í hendur. Í sam-
tali við bosnískt dagblað lýsti hann
því yfir að það væri stærsti dagur
lífs síns til þessa. Einn skugga bar
þó á, hann gæti ekki leikið við hlið
átrúnaðargoða sinna, Sergej Barba-
rez og Hasan Salihamidžić, en þeir
eru báðir hættir að leika með lands-
liðinu.
Pjanić hefur verið á mála hjá Metz
frá árinu 2003. Hann þreytti frum-
raun sína með aðalliði félagsins í
upphafi tímabilsins og hefur gert níu
mörk í 21 leik. Hann hefur verið ljós-
ið í myrkrinu en Metz hefur verið
geirneglt við botn deildarinnar í all-
an vetur. Er nú þrettán stigum á eft-
ir Toulouse sem er næstneðst.
Líkt við Platini og Zidane
Pjanić hefur leikið fyrir aftan mið-
herja Metz en hann er sagður kunna
vel við sig á vængjunum líka. Hann
er skytta góð með báðum fótum og
einstaklega teknískur í þokkabót.
Pjanić er meðalmaður á hæð en
heldur léttur enn sem komið er, að-
eins 68 kg, og í því er helsti veikleiki
hans fólginn. En hann er ungur að
árum og nægur tími til að bæta kjöti
á beinin.
Það er tíska að líkja ungstirnum
við eldri og sigldari leikmenn og Pja-
nić er þar engin undantekning.
Frökkum þykir þeir eiga heilmikið í
honum og hafa meira að segja gerst
svo djarfir að máta hann við erki-
sparkendur sína, Michel Platini og
Zinedine Zidane, þegar þeir voru
ungir enda hefur hann svipað hlut-
verk á vellinum. Algengast er þó að
menn beri Pjanić saman við núver-
andi skrautfjöður franska landsliðs-
ins, Franck Ribéry. Það er ekki leið-
um að líkjast. Síðan kemur Joe Cole
óhjákvæmilega upp í hugann, þó
ekki sé nema útlitsins vegna.
Listi yfir ríkustu félög heims var
birtur í Morgunblaðinu í vikunni og
svei mér ef þau tíu efstu hafa ekki öll
verið að fylgjast með Pjanić – svo
vitað sé. Oftast eru Real Madrid, AC
Milan, Bayern München, Liverpool
og nú síðast Arsenal nefnd í þessu
sambandi. Á bosnískri heimasíðu
kappans, miralem-pjanic.com, eru
aðdáendur hans spurðir hvert þeir
vilji helst að hann fari. Flestir nefna
þar Arsenal (32,9%) en næst á eftir
koma Bæjarar með 16,3%.
Knattspyrnan aðalatriðið
Staðfest er að Olympique Mar-
seille bar víurnar í Pjanić í jan-
úarglugganum en ekki varð af þeim
vistaskiptum. Af því tilefni upplýsti
leikmaðurinn að honum hugnuðust
franska og spænska knattspyrnan
best en „aðalatriðið er að leika
knattspyrnu. Peningarnir koma síð-
ar.“
Pjanić skrifaði undir þriggja ára
samning við Metz í nóvember í fyrra
og sagði við það tækifæri að hlut-
irnir hefðu gerst hratt. „Félagið gaf
mér tækifæri til að sýna hvað í mig
er spunnið og það skiptir mestu
máli. Það er ein ástæðan fyrir því að
ég ákvað að vera um kyrrt hjá
Metz.“
Faðir Pjanić bætti við að ekki
væri tímabært fyrir hann að færa sig
um set til stærra félags að sinni enda
yrði hann að líkindum aðallega lát-
inn verma varamannabekkinn þar.
Ætli þeim snúist hugur þegar
Metz tekur sæti í annarri deild í
sumar?
Efnilegur Miralem Pjanić.
» Frökkum þykir þeir
eiga heilmikið í hon-
um og hafa meira að
segja gerst svo djarfir
að máta hann við erki-
sparkendur sína, Michel
Platini og Zinedine Zid-
ane, þegar þeir voru
ungir enda hefur hann
svipað hlutverk á vell-
inum.
»Ruth Elizabeth Davis fæddist5. apríl 1908 í Lowell í
Massachusetts í Bandaríkjunum.
»Foreldrar hennar voru mót-mælendatrúar af enskum,
frönskum og velskum uppruna.
»Davis lék í fjölda kvikmynda,þeirri fyrstu, The Bad Sister,
árið 1931.
»Hún var ellefu sinnum til-nefnd til Óskarsverðlauna og
vann þau tvisvar, árið 1935 fyrir
Hættuleg (Dangerous) og 1938
fyrir Jezebel.
»Bette Davis var fjórgift.
»Hún lést 6. október 1989 íFrakklandi.
»Frímerki með mynd af henni íseríunni Goðsagnir Holly-
wood verður gefið út í tilefni af að
100 ár eru frá fæðingu hennar.
BETTE DAVIS
»Joan Henrietta Collins fædd-ist 23. maí 1933 í London.
»Faðir hennar var umboðs-maður, sem m.a. hafði The
Beatles og Tom Jones á sínum
snærum um skeið.
»Joan Collins á fjögur hjóna-bönd að baki og er nú gift
Percy Gibson, sem er 32 árum
yngri en hún.
»Fyrsta myndin sem hún lék ívar Ég trúi á þig (I believe in
you) 1952.
»Á áttunda áratugnum lék húní myndum, byggðum á bókum
systur hennar Jackie.
»Á níunda áratugnum fékk húnhlutverk Alexis í framhalds-
þáttunum Dynasty og hefur síðan
leikið í mörgum sjónvarpsseríum.
Einnig hefur hún skrifað nokkrar
bækur.
JOAN COLLINS
Útflutningsráð Íslands og Háskólinn í Reykjavík bjóða til morgunverðarfundar
um markaðslegan ávinning fyrirtækja af samfélagslegri ábyrgð,
miðvikudaginn 2. apríl 2008 á Grand Hótel kl. 08.30-10.00.
Fundurinn er öllum opinn en skráning fer fram í s. 511 4000 eða með
tölvupósti á netfangið utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Nánari upplýsingar um fundinn gefur Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði,
inga@utflutningsrad.is.
FYRIRTÆKI OG FRAMTÍÐIN
Ávinningur af samfélagslega ábyrgum viðskiptum
Dagskrá:
Opnun - Hvað er samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja (CSR)?
Páll Ásgeir Davíðsson, sérfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík.
Corporate Responsibility – from challenges to opportunities.
Elin Myrmel-Johansen, framkvæmdastjóri , Storebrand, Noregi.
Can CSR and commercial opportunities go hand in hand?
Henrik Marstrand, framkvæmdastjóri, Mater a/s, Danmörku.
Vinningshafi Wallpaper tímaritsins í Bretlandi - "Best Debut
Design Brand 2007."
Nordic Business Outreach.
Ragna Sara Jónsdóttir, sérfræðingur hjá utanríkisráðuneytinu /
UNDP.
Fundarstjóri:
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. PIP
A
R
•
S
ÍA
•
8
0
6
2
9