Morgunblaðið - 30.03.2008, Síða 26

Morgunblaðið - 30.03.2008, Síða 26
rannsóknir 26 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ É g safnaði saman öllum fréttum sem tengdust erfðavísindum í helstu ljósvaka- og prent- miðlum á Íslandi árin 2000 og 2004, samtals 1531 fréttum og greinum. Þetta voru Morg- unblaðið, Fréttablaðið, DV, Við- skiptablaðið, Dagur, Stöð 2, Skjár 1 og RÚV,“ segir Stefán Hjörleifsson, læknir og heimspekingur . Hann hefur um 17 ára skeið búið og starf- að í Noregi þar sem hann lærði læknisfræði. Stefán byrjaði reyndar í læknisnámi í Háskóla Íslands en hætti fljótlega aftur þrátt fyrir að hafa orðið efstur í klásus. Hann við- urkennir að mörgum hafi þótt það óvenjulegt. „En ég var ekki nægi- lega vel undir það búinn hvað þetta var mikill páfagaukalærdómur og satt best að segja ómanneskjulegt nám. Ég fór því í heimspekinám við Háskóla Íslands sem ég hafði bæði gagn og gaman af. Áhuginn á að læra læknisfræði blundaði samt allt- af í mér og að lokum fór ég til Björg- vinjar og lærði hana þar og hef starfað sem heimilislæknir síðan í Norður-Noregi og í Björgvin og kennt við heimilislækningaskor Há- skólans í Björgvin. Heimilislæknar eru vel metnir í Noregi og í grun- námi lækna við norska háskóla er heimilislækningum gert jafn hátt undir höfði og lyflækningum og handlækningum. En heimspekin og læknisfræðin skarast víða og ný tækni eins og notuð er til dæmis við hjartarannsóknir, ómskoðun á með- göngu og beinþéttnimælingar vekja fjölmargar siðferðilegar spurn- ingar,“ segir Stefán. „Við heimilislæknarnir erum oft í því hlutverki að aðstoða fólk við að átta sig á möguleikum og takmörk- unum ýmiss konar tæknilegra að- gerða. Þar sem erfðafræðin er ein þeirra greina sem menn binda sterkar vonir við að muni bæta heilsufar almennings fannst mér forvitnilegt að skoða umræðu í fjöl- miðlum á Íslandi varðandi þetta efni. Umfjöllun um erfðavísindi hef- ur verið geysimikil í íslenskum fjöl- miðlum vegna fyrirtækisins Ís- lenskrar erfðagreiningar, en ég velti því fyrir mér hvað hefði einkennt þessa umræðu að undanskildum há- vaðanum sem varð í gagnagrunns- málinu svonefnda. Ég var svo lánsamur að forsvars- menn Íslenskrar erfðagreiningar veittu mér aðgang að safni fyrirtæk- isins þar sem allri umfjöllun ís- lenskra fréttamiðla um fyrirtækið hefur verið haldið til haga. Í fyrstu flokkaði ég allt efni frá árunum 2000 og 2004 gróflega og komst að því að umfjöllun um fyrirtækið var miklu oftar á jákvæðum nótum (49% til- vika árið 2000 en 53% árið 2004) eða hlutlaus (41% tilvika) heldur en nei- kvæð (11% tilvika árið 2000 en 6% árið 2004). Í öðru lagi var umfjöllun um viðskiptahliðar á starfsemi Ís- lenskrar erfðagreiningar mjög áber- andi í fréttaflutningi og jókst veru- lega frá árinu 2000 (51% tilvika) til 2004 (72% tilvika). Í framhaldi af þessu skoðaði ég síðan rækilega hvaða sjónarmið gagnvart erfða- rannsóknum og afurðum þeirra komu fram í fjölmiðlum, hvort fjöl- miðlar leituðust við að gera mismun- andi sjónarmiðum jafn hátt undir höfði og þar fram eftir götunum.“ Lítil gagnrýni á erfðarann- sóknir og erfðavísindi Ein af aðalniðurstöðum Stefáns er sú að eftir að meginumfjöllun um miðlægan gagnagrunn á heilbrigð- issviði lýkur er sama og engin gagn- rýni á erfðarannsóknir eða erfðavís- indi í íslenskum fjölmiðlum. ,,Auðvitað eru uppi raddir, en þær eru stakar og birtast frekar sem lítil atriði í fréttum eða í lesendabréfum og aðsendum greinum. Gagnrýnin umfjöllun um erfðavísindi verður sjaldnast að meginþema í frétt, aldr- ei rauður þráður. Jákvæðar vænt- ingar til erfðavísinda og fréttir á já- kvæðum nótum eru gegnumgang- andi.“ Stefán segir þetta koma skýrast fram í þeim hluta fréttaflutningsins sem byggist mjög eindregið á frétta- tilkynningum og kynningum á veg- um Íslenskrar erfðagreiningar. ,,Ég hafði aðgang að öllum fréttatilkynn- ingum þeirra og gat rakið slóðina í fjölmiðlum daginn sem tiltekin fréttatilkynning var gefin út og næstu daga. Slíkt efni birtist nærri undantekningarlaust án mikillar vinnslu, bæði í ljósvaka- og prent- miðlum, yfirleitt með mynd af Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar eða myndum af fundum þar sem Kári og fleiri sátu fyrir svörum. Þá var iðulega vitnað í orð hans eða annarra eða tekið orð- rétt upp úr fréttatilkynningum þeg- ar fjallað var um efni tilkynning- anna, en önnur sjónarmið eða gagnrýnar spurningar sjást ekki. Það er augljóst að fjölmiðlar láta matreiða efnið ofan í sig. Að mínum dómi er hins vegar ekki fyrst og fremst við Íslenska erfðagreiningu að sakast. Þeir eru vitaskuld aðeins að koma fréttum af sinni starfsemi á framfæri. Það eru hins vegar fjöl- miðlar sem bera ábyrgð á því að bera þetta á borð eins og það er matreitt og spyrja ekki gagnrýninna spurninga.“ – Setja fjölmiðlar efnið fram eins og þeir hafi sjálfir aflað upplýsing- anna? ,,Stundum þótti mér fulllangt gengið í því að nota texta frá Ís- lenskri erfðagreiningu. Það sem hins vegar er aðalatriðið er að þeir spyrja ekki gagnrýninna spurninga, halda ekki á lofti öðrum sjón- armiðum og fjalla ekki sérstaklega um varnagla sem Íslensk erfða- greining setur fram um rannsóknir sínar. Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, slær býsna oft varnagla í viðtölum sínum við fjölmiðla eins og: ,,Við vitum ekki hve langan tíma það tekur ..., það er ekki hægt að treysta því að úr þessu verði lyf, ...að þetta lyf muni komast á markað“. Frétta- og blaðamenn virðast aldrei hnjóta um þetta og spyrja nánar út í það. Það verður aldrei til sjálfstæð umfjöllun um þessa óvissu, hún er alltaf eins og aukaatriði.“ Stolt og vísanir í sögu íslensku þjóðarinnar og sérkenni – Má greina einhvers konar þjóð- ernisstolt í þessum skrifum þar sem þetta er íslenskt fyrirtæki, skráð á erlendum verðbréfamarkaði? ,,Það er auðvitað hluti af því og það hafa aðrir sýnt fram á það á undan mér. Arnar Árnason hefur birt fræðigrein ásamt breskum sam- starfsmanni sínum þar sem þeir sýna fram á að þegar mismunandi sjónarmið tókust á varðandi áætl- anir ÍE um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði hafi vísanir í sögu ís- lensku þjóðarinnar, sérkenni hennar og menningararfleifð gegnt veru- legu hlutverki. Sjálfum þykir mér ekki nema eðlilegt að menn séu stoltir yfir því að verið sé að hagnýta íslenska þekkingu og ættfræðiupp- lýsingar, en líka almennt íslenskt hugvit. Það virtist hafa sérstöðu í huga fólks og fólk er stolt yfir því. Á hinn bóginn má vera að slíkt stolt hafi ekki beinlínis stuðlað að gagn- rýninni og málefnalegri umræðu um ÍE.“ – Getur verið að að íslenskt fjöl- miðlafólk vilji ómeðvitað ekki leggja stein í götu fyrirtækisins þar sem miklir fjármunir hafa verið lagðir í það og miklir fjárhagsmunir í húfi? „Vitaskuld gerir fjölmiðlafólk sér grein fyrir því og það kemur stöðugt fram í umfjölluninni að starfsemi fyrirtækis á borð við Íslenska erfða- greiningu fylgir fjárhagsleg áhætta. Mun fyrirtækinu takast að rannsaka og þróa lyf og setja á markað áður en sjóðir þess tæmast? Spenna og stolt helst þarna í hendur, gróða- vonin getur verið geysileg. Frétt- irnar daginn sem fyrirtækið var skráð á verðbréfamarkað í Banda- ríkjunum árið 2000 eru gott dæmi um þetta. Það er eitthvað í orðræð- unni, hvort sem maður á að kalla stolt eða keppnisskap, sem yfir- gnæfir aðrar raddir. Fólk vonar innilega að þarna takist að ,,breyta vísindalegri þekkingu í viðskiptaleg tækifæri“, eins og það er orðað. Það gerir sér grein fyrir að það sé ein- hver óvissa en sú óvissa sem kemur fram í fjölmiðlum er nánast ein- Morgunblaðið/ÞÖK Einhæf umfjöllun Stefán Hjörleifsson heimilislæknir og heimspekingur rannsakaði umfjöllun um erfðavísindi. Bregðast íslenskir fjölmiðlar í umfjöllun um erfðavísindi? Stefán Hjörleifsson, læknir og heimspekingur, hefur í doktorsritgerð sinni rannsakað umfjöllun íslenskra fjöl- miðla um erfðavísindi árin 2000 og 2004. Í viðtali við Unni H. Jóhannsdóttur segir hann umfjöllun fjölmiðla um erfðavísindi hér á landi þessi ár aðallega byggjast á fréttatilkynningum frá fyrirtækinu Íslenskri erfða- greiningu sem og fréttum af fjárhag fyrirtækisins eða arðsemisvæntingum. Öðrum sjónarmiðum eins og sið- ferðilegum á þessu sviði sé hins vegar minni gaumur gefinn í sjálfstæðri fréttamennsku. »Hversu góð vísindi eru þetta – og eru þetta þau vísindi sem best eru til þess fallin að bæta heilsufar jarð- arbúa? En það er bara ekkert í umræðunni hjá íslenskum fjölmiðlum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.