Morgunblaðið - 30.03.2008, Qupperneq 28
matur og hönnun
28 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að var margt um manninn
þegar Listaháskóli Ís-
lands kynnti vöruteg-
undir sem þróaðar hafa
verið að undanförnu með
það að markmiði að setja þær á al-
mennan markað.
„Nemendur vöruhönnunardeildar
skólans fengu það verkefni að vinna
með bændum í heimaframleiðslu og
samtökin Beint frá býli hjálpuðu til að
finna bændur sem til voru í að taka
þátt í þessu verkefni,“ segir Brynhild-
ur Pálsdóttir, annar kennari áfangans
Stefnumót hönnuða og bænda. Hinn
kennarinn er Guðfinna Mjöll Magn-
úsdóttir.
„Við þróuðum þennan áfanga í
samvinnu við Sigríði Sigurjónsdóttur
deildarstjóra vöruhönnunardeildar,“
segir Brynhildur.
En það hlýtur að hafa verið erfitt
að velja úr þeim fjórum vöruteg-
undum sem á boðstólum voru á mat-
armarkaðinum úti á Grandavegi 8
fyrir hálfum mánuði.
Mikill vandi var að velja úr
Þar gat að líta karamellur úr rabb-
arbara og saft úr þessari harðgerðu
jurt, afurðir úr sölvum og kartöflum,
rófuálegg og svo stórmerkilega slát-
urtertu í þremur lögum, skreytta með
rófustöppu. Fólk ranglaði um og
smakkaði á herlegheitunum og nú ligg-
ur fyrir val dómnefndar á því hvað af
þessum vörum fer í frekari þróun.
En hvernig fór fólk að því að velja?
spyr ég Sigríði Sigurjónsdóttur pró-
fessor í vöruhönnun sem hefur átt
strangan dag í þessu valferli.
„Ég hef sjaldan lent í jafn erfiðu
verkefni og að velja þessar tvær af-
urðir til áframhaldandi þróunar. Okk-
ur langaði að halda áfram með allt
saman. En helstu ástæðurnar fyrir
því að við völdum sláturtertuna er að
um er að ræða vöru sem er á und-
anhaldi hjá yngri kynslóðinni. Okkur
fannst takast frábærlega að gæða
slátrið nýju lífi og miklir möguleikar
felast í þessari afurð, ekki síst í að
þróa vöruna sjálfa, bragðið, nota ís-
lenskt krydd. Við sjáum fyrir okkur
að sumarið verði til að þróa slát-
urtertuna áfram, ekki síst að vinna í
uppskriftinni og mögulega gera þetta
að meiri gæðavöru en við eigum að
venjast hvað slátur snertir.
Tvímenningarnir unnu að þessu
verkefni með bóndahjónum, Vilhjálmi
Vernharðssyni og Elísabetu Krist-
jánssdóttur, sem kalla fyrirtæki sitt
Fjalladýrð. Þau hjón hafa framleitt
framúrskarandi kjötvörur sem biðlisti
er eftir. Það var því erfitt verkefni
fyrir Brynjar og Maríu, nemendur
Listaháskólans, að finna eitthvað nýtt
og þau ákváðu að vinna með innmat-
inn, sem hefur ekki verið nýttur, á
nýjan hátt á skipulegan máta. Þetta
var á vissan hátt erfiðasta verkefnið
að vinna með. Vinna þarf áfram að
uppskriftinni og leggja frekar lín-
urnar að útliti sláturtertunnar áður
en hún fer hugsanlega á almennan
markað.
Hitt verkefnið sem við völdum var
afurð úr rabbarbara, framleidd af
sunnlenskum bændum á Löngumýri,
þeim Kjartani H. Ágústssyni og Do-
rothee Lubeci.
Við féllum fyrir rabbarbara-
karamellunni. Nemendurnir Sabrina,
Arna og Kristín þróuðu uppskriftina
og markmiðið hjá þeim var að vekja
upp endurminningar frá æskudögum
þegar maður tók rabbarbara og stakk í
sykurkar og át af bestu lyst. Það mark-
mið tókst sannarlega og margir minnt-
ust á þessa tilfinningu þegar þeir fengu
sér bita af karamellunni. Ein ágæt
kona sagði: „Mér líður eins og ég sé
orðin 8 ára með fléttur og á hjóli.“
Þarna var líka sérstaklega vel leyst
merki fyrir vöruna og umbúðir. Meðal
annars var pappírinn utan á flösku af
rabbarbarasafa unninn úr hrati af
rabbarbara sem búið var að sjóða saf-
ann úr og á flöskuna. Pappírinn hefur
þá virkni auk þess að hlífa innihaldinu
fyrir birtu.“
Samstarfið við bændur gott
Verða þær vörur úr kartöflum, róf-
um og sölvum, sem ekki voru valdar,
ekki þróaðar neitt meira?
„Við ætlum að reyna að koma þeim
eitthvað áfram síðar. Þær voru líka
frábærar.“
En hvernig hefur samstarfið við
bændurna gengið?
„Það hefur gengið mjög vel og sýn-
ir að mjög margir möguleikar eru fyr-
ir hendi í þeim efnum,“ segir Sigríður.
„Allir nemendurnir fóru heim til
bændanna og kynntust aðstæðum og
afurðum þeirra,“ bætir Brynhildur við.
En hverjir réðu ferðinni í samstarf-
inu?
„Við Guðfinna Mjöll og Kristján
Björn Þórðarson, grafískur leiðbein-
andi verkefnisins, hittum nemendurna
oftast a.m.k. tvisvar í viku og þá var
farið yfir hugmyndir og stefnan tekin.
Svo var ein yfirferð í fyrri hluta nám-
skeiðsins þar sem fengnir voru leið-
beinendur í heimsókn frá Bretlandi,
frá Central Saint Martins hönn-
unarskólanum, sem komu með sína
sýn á verkefnið. Fyrir þeim kynnti
hver hópur nokkrar hugmyndir og síð-
an var valið úr og stefnan tekin.
Þess má geta að í fyrra vorum við
líka með svona verkefni með frábær-
um hugmyndum. En þá höfðum við
hvorki fjármagn né tækifæri til að
þróa þær áfram. Við ákváðum því að
sækja um styrk til Tækniþróunarsjóðs
til næstu þriggja ára. Í framhaldi af því
verður námskeiðið Stefnumót hönnuða
við bændur haldið árlega og í fram-
haldi af því matarmarkaður þar sem
hverju sinni verða valdar úr tvær
vörur til áframhaldandi þróunar. Með
styrknum getum við greitt laun og
rannsóknir á vörunum, sem og höfum
við peninga til að framleiða takmarkað
magn af fullunnum vörum tilbúnum á
markaðinn til kynningar. Í haust verða
sláturtertan og rabbarbaravörurnar
kynntar almenningi. Á næsta ári hefst
svo starf fjögurra nýrra bænda og
nemenda sem endar á sama hátt
haustið þar á eftir.“
En hvað segja bændur um sam-
starfið við listaháskólafólkið?
„Við segjum allt ljómandi gott um
þetta samstarf,“ segir Vilhjálmur
Vernharðsson sem rekur ásamt konu
sinni Elísabetu Kristjánsdóttur fyr-
irtækið Fjalladýrð.
Komu þeim þessar hugmyndir um
innmatinn á óvart?
„Þegar listaháskólafólkið heimsótti
okkur voru fyrst allt aðrar hugmyndir
í gangi áður en hugmyndin að slát-
urtertunni kom upp. Okkur leist strax
vel á hana. Það er ekki erfitt að búa
hana til en við verðum áfram í að þróa
uppskriftina og útfærslu á tertunni.
Við teljum okkur geta framleitt nægi-
legt magn af þessari vöru til kynn-
ingar og sölu í haust.“
Er þetta samstarf gott fyrir bænd-
ur?
„Já, það koma upp nýjar og
skemmtilegar hugmyndir, það mæt-
ast óneitanlega ólík sjónarmið. Við
búum á Möðrudal á Fjöllum svo það
er gaman að fá þessa gesti að sunn-
an.“
Lystilegar afurðir
Í samstarfi samtakanna
Beint frá býli og Lista-
háskóla Íslands hefur að
undanförnu farið fram
tilraunastarf í vöruþró-
un. Guðrún Guðlaugs-
dóttir fór á matarmark-
að sem þessir aðilar
stóðu að og skoðaði fjór-
ar vörutegundir, tvær
þeirra hafa verið valdar
til frekari þróunar.
Morgunblaðið/Eggert
Lykilmanneskjur. F.v. Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Brynhildur Pálsdóttir kennarar og Sigríður Sigurjónsdóttir,
prófessor í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands. Þær hafa unnið mikið og gott starf með nemendum og bændum.
Girnilegt Sláturtertan vakti sannarlega verðskuldaða og mikla athygli
enda var hún valin til frekari þróunar.
Umbúðahrat Utan um rabbarbara-
safann eru sérstaklega sniðugar
umbúðir, framleiddar úr hrati af
safanum. Þær varna því að birta
komist að innihaldinu.
Söl Vörur úr sölvum voru líka á
matarmarkaðinum og listahá-
skólafólk langar að koma þeim síð-
ar í þróun ef möguleiki skapast.
Auglýsingaskilti Þarna má sjá myndir af því sem var á matarsýningunni.
Kartöflukeðja Þessi stúlka sem
hjálpaði til á matarsýningunni á
Grandavegi skartaði þessari
skemmtilegu kartöflukeðju.
Sláturtertan enn Úr íslensku sauð-
kindinni er hluti efniviðarins í slát-
urtertuna sérstöku sem valin hefur
verið til áframhaldandi þróunar.
Rabbarbarakaramellan Hún á að
vekja hjá fólki ljúfsárar minningar
um æskudagana þegar það át rabb-
arbara með sykri án þess að hugsa
sig um - hvað þá meir!
Svalandi Safinn úr rabbarbaranum
er girnilegur kominn í glös.