Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 35
ganganna. Þeir eru gerðir fyrir borun í þurru, þéttu bergi og þola lítinn vatnsaga. Þetta sýnir reynsl- an frá Kára- hnjúkum. Þar hef- ur lekt bergsins valdið miklum vandræðum hátt uppi í fjöllum. Hér má eiga von á miklu opnara bergi og meiri leka. Við verðum að nota gömlu að- ferðina, að þétta bergið og sprengja svo. Þverskurður ganganna er 66,5 fermetrar, tvenn göng. Hvalfjarð- argöngin eru 66. Ég ætla nú að reyna að lýsa að- ferðinni við að gera göngin. Ég hef áður lagt áherslu á að við erum að vinna í mjög leku bergi, undir sjávarmáli. Þetta veldur því að áður en hægt er að sprengja þarf að þétta bergið, til að tryggja að ekki opnist sprunga fyrir vatnið inn í göngin þegar sprengt er. Ég held að eðli- legt sé að þétta helmingi þykkari kafla, en ætlunin er að sprengja næst. Hér þarf því að bora 5-10 m djúp- ar holur til að dæla steypu í bergið til að þétta það. Við köllum þetta grautun á bor- unum (grauting á ensku). Þegar bú- ið er að þétta þarf að bora holur fyrir dýnamithleðslur. E.t.v. má nota sömu holurnar að hluta og bæta svo við eftir þörfum. Hve margar holur þarf, ráða sérfræð- ingar, ég veit það ekki. Ég held að í hvert sinn, sem sprengt er sé hætta á að sprunga myndist, sem opnar fyrir innrennsli á vatni. Í Morgunblaðinu er sagt að göngin verði á 70 m dýpi, svo að vatnið er með 7 kg þrýstingi og þarf því ekki stóra sprungu til að gefa mikið rennsli. Hvað hefðu göngin við Ísafjörð verið lengi að fyllast ef þau hefðu verið á 70 m dýpi undir hafi, en ekki uppi í fjalli, þar sem halli ganganna var þannig, að vatnið rann út um opið. Hér eru opin ofar en göngin, svo að allt vatn sem inn kemur safn- ast í göngin, en rennur ekki í burtu, því opin eru ofar en göngin sjálf. Í Morgunblaðinu 30. janúar er viðtal við Árna Hjart- arson jarðfræðing og haft eftir honum að nið- urstöður rannsókna gefi „grænt ljós“ bergið virðist allþétt. Hvað sem það nú merkir. Hann segir að boraðar hafi verið 13 kjarnaholur og þar af ein úti í sjó. Við athugun sést að helmingur ganganna er undir byggðinni í Klepps- holtinu alla leið að Laug- arnesi og þar út í sjó. Það þarf fyllingu við Kirkjusand fyrir aðkeyrslu að göngunum, það er ekki pláss í landi. Þarna gleymist allt umtalið um álit sérfræðinganna um hækkun sjávarborðs í úthöfunum! Gangaop- in við Laugarnes færu í kaf og göngin fylltust af sjó. Göngin eru sögð vera um 10 km löng þar af eru 2x 1,5=3 km undir sjó. Telur jarðfræðingurinn virkilega að ein hola nægi þarna á 1,5 km kafla? Ég fullyrði, að fáir jarðfræð- ingar, sem ég þekki, mundu sam- þykkja það. Ég tel þörf á miklu nákvæmari könnun á jarðlögunum undir vog- inum. Að lokum nokkur orð um loft- ræstingu ganganna. Ég á von á að þrætumál komi upp milli íbúanna í Laugarnesi og þeirra sem búa í Gufunesi um það hvert á að blása rykinu úr göngunum. Það verður að gera ráð fyrir að hlaðnir vörubílar fari um göngin, til hvers væru þau annars? Það þarf marga blásara til að halda sæmilega hreinu lofti í göngunum. Ég spái því að ekki liði á löngu, eftir að þau kæmu í gagnið, að kvartað yrði undan sviða í augum í göngunum. Hvað er þá til ráða? Það sem gæfi bestan árangur væri að banna umferð vörubíla um göngin, en þá væri til lítils barist, því er ekki tilgangurinn að losna við vöru- bílana af Vesturlandsveginum? Þarna er komin sjálfhelda sem vandleyst er nema skynsemin komi til hjálpar. Besta lausnin er að hætta við göngin, breikka Vesturlandsveginn í 3 eða 4 akreinar hvora leið. Þetta nægir milljónaborgum erlendis, og hlýtur að duga hér. Ef Sundabraut er nauðsynleg þá leggið hana ofan sjávar, það er skynsamlegast. Og að endingu: Bönnum öll jarð- göng undir sjó frá Kjalarnesi að Vatnajökli í eitt skipti fyrir öll. Ísleifur Jónsson Höfundur er verkfræðingur og fyrrum stjórnandi Jarðborana ríkisins. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 35 FASTEIGNAMI‹STÖ‹IN Stofnsett 1958 jardir.is 550 3000 Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Sími 588 4477 Opið hús í dag á milli 15 og 16 Berjarimi 24 - íb. 0107 m. bílskýli. LAUS Í einkasölu flott 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu húsi í Grafar- vogi. Stæði í góðu bílskýli fylgir. Parket, vand. innrétt. útg. úr stofu á afgirta góða verönd. V. 23,9 m. Kristján og Díana taka á móti áhugasömum í dag sunnudag frá kl. 15-16. Til afh. strax ! Opið hús í dag á milli 16 og 17 Unnarbraut 4 - Seltjarnarnesi efri sérh. - 230 fm m.tvöf.bílskúr Skipti möguleg á ódýrari eign eign. Í einkasölu falleg og velskipul. 164 fm efri sérh., ásamt tveimur 33 fm bílsk, eða alls um 230 fm, á fráb. stað á sunnanv. Seltj.nesi. Sérinng, bílaplan tilh. eigninni. 4-5 svefnherb., stórar suðv.sv. m. fallegu útsýni. Nýl. eldh. góðar stofur og fl. V. 58 m./tilboð. Opið hús verður í dag sunnudag frá kl.16-17 Opið hús í dag á milli 16 og 17 Galtalind 9 – íbúð 0401 Glæsileg 176,5 fm endaíbúð í vönduðu fjölbýli. Íbúðin er fullbúin á mjög vandaðan hátt með parketi og flísum á gólfum. Íbúðin er á 2 hæðum og heitur pottur á svölum. Á neðri hæð eru forstofa með skáp, eldhús með glæsilegri innréttingu. Tvö herbergi með skáp- um, glæsilegt baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, stofa og borðstofa með útgengi á suðursvalir (með heitum potti). Gott sjónvarpshol sem má stúka af sem fimmta herbergið. Á efri hæð eru tvö herb og opið rými. Baðherbergi flísalagt með sturtuklefa og innrétting. Glæsilegt útsýni af efri hæð og hún með óvenjulega mikilli lofthæð og stórum gluggum. Verð 44milj. Opið hús verður í dag sunnudag frá kl.16-17 Opið hús í dag á milli 16 og 17 Tunguvegur 66 - Smáíbúðahverfi Fallegt 133 fm raðhús við Tunguveg. Fyrsta hæðin hefur öll verið opnuð þannig að opið er milli eldhús stofu og borðstofu. Úr stofu er gengið út á sólpall sem snýr í suður. Uppi eru 3 herbergi og baðherbergi. Niðri er opið sjónvarpsrými með glugga, þvottarhús með glugga og nýtt rúmgott herbergi með glugga, gegnheilu eik- arparketi og hita í gólfi. Að sögn eigenda er búið að endurnýja rafmagn að hluta. Fráveitulagnir og drenlagnir endurnýjaðar. Húsið er nýlega málað og búið að geravið gafl en verið er að mála hann. Þetta er í heild sinni gott hús sem búið er að endurnýja og breyta mikið. Íbúðin er laus við kaupsamning. V. 34,9 m. Opið hús verður í dag sunnudag frá kl.16-17 HRAUNBÆR 98 - OPIÐ HÚS Falleg og rúmgóð 4ra herb. íbúð á 2. hæð með aukaherbergi í kjallara alls 106,7 fm. Stofa rúmgóð og björt. Rúmgóð svefnherbergi. Stutt er í leik- og grunnskóla, heilsugæslu, verslanir og f.l. LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Verð 23,9 millj. Opið hús að Hraunbæ 98, 110 Reykjavík frá kl. 15.00 – 16.00, bjalla merkt Ársæll og Ásta. Þverholt 14 l 105 Reykjavík l Sími 595 9000 l holl@holl.is l www.holl.is Björn Daníelsson Löggildur fasteignasali Gsm: 849 4477 GNOÐAVOGUR 26 - OPIÐ HÚS Mjög góð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýli alls 74,7 fm. Stór og björt stofa. Rúmgóð svefnherbergi. Stutt er í alla almenna þjónustu. Eign á góðum stað sem vert er að skoða. Verð 20,9 millj. Opið hús að Gnoðarvogi 26, 104 Reykjavík frá kl. 15.00 – 16.00, bjalla merkt Þormar og Sigrún. Sími 551 3010 Hárgreiðslustofan mbl.is smáauglýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.