Morgunblaðið - 30.03.2008, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Einbýlishús - Arnarhraun
Einstaklega vel staðsett einbýlishús í hjarta Hafnarfjarðar. Húsið sem er
á tveimur hæðum er með stórum suðurgarði og um 50 m2 suðurverönd.
í húsinu er m.a. 5 svefnherbergi, bjartar stofur og mjög rúmgott eldhús.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigfús í
símum 566-8818 og 893-3003. Netfang: jon@vidskiptahusid.is
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími 566 8800 •
www.vidskiptahusid.is • Jón Sigfús Sigurjónsson Hdl & Löggiltur FFS
M
bl
9
57
80
9
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Langabrekka 18, Kóp. - laus strax
Mjög björt og vel skipulögð 125,9 fm efri
sérhæð ásamt 24,5 fm bílskúr, samtals
150,4 fm í fallegu og vel viðhöldnu tvíbýli.
HÆÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUN-
NUDAG FRÁ 15.30-16.00. V. 38,9 m.
7359
Nóatún 24, 1. hæð - gott skipulag
Mjög góð og vel skipulögð, mikið
uppgerð, 4ra herbergja, 82,2 fm íbúð á 1.
hæð. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, baðher-
bergi, tvær stofur og tvö svefnherbergi.
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUN-
NUDAG FRÁ KL 14.00-15.00. V. 23,5 m.
7320
Sigtún 35, efri hæð - laus strax
Glæsileg 120,3 fm, 5 herbergja íbúð á
annarri hæð í fjögurra íbúða húsi, ásamt
30,6 fm fullbúnum bílskúr með rafmagni,
hita og vatni. Samtals heildarstærð eignar-
innar er 150,9 fm. V. 36,9 m. 7418
Hofteigur - laus fljótlega Falleg og
mikið endurgerð ca 92 fm, 4ra herb. íbúð
í risi í litlu fjölbýli á rólegum og grónum stað
í Reykjavík. Eignin skiptist í m.a. í þrjú
svefnherb., stofu, eldh., og baðh. Óskráð
geymsluris er yfir íbúðinni. Í kjallara er
sameiginlegt þvottahús. V. 21,9 m. 7392
Arnarás, Garðabæ - sér inng. Vorum
fá að sölu glæsilega, 3ja herb., 92 fm íbúð
á 1. hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin skiptist m.a. í
stofu, sjónvarpshol og tvö rúmgóð herber-
gi. Þvottahús inn í íbúðinni. V. 28,4 m.
7415
Skólagerði, Kóp. - laus strax Falleg
efri,159,9 fm (þ.a. bílsk 29,8 fm) sérhæð í
tvíbýli með sérinngangi. Eignin skiptist í 4
svefnh., stóra stofu, eldh., bítibúr og baðh.
Að ytra byrði eignarinnar er nýtt járn á þaki
og nýir gluggar. Að innan er eignin að
mestu upprunaleg. V. 32,0 m. 7424
Tjarnarból - laus strax Mjög rúmgóð
og björt, 127 fm, 5-6 herb. á 2. hæð í fjöl-
býli. Íbúðin skiptist í 4 svefnherbergi,
stórar stofur, baðherbergi. eldhús og búr. Í
kjallara er sameiginlegt þvottahús,
sérgeymsla og sameiginleg hjóla og
vagnageymsla. V. 28 m. 7422
Boðagrandi - sjávarútsýni Einkar
glæsileg, 100,9 fm, 3ja herb íbúð á 4. hæð
á vinsælum og eftirsóttum stað.
Innréttingar eru sérhannaðar, teiknaðar af
Rut Káradóttur. Eignin skitpist m.a. í
svefnh., stórar stofur, 2 svalir, baðh., þvot-
tah., Sérstæði er í bílageymslu. V. 40,0 m.
7426
Dalsbyggð, Gbæ - laus strax Mjög fal-
legt og vel skipulagt, 217,7 fm einbýli á
tveimur hæðum. Eignin skiptist m.a. í
stofu, borðstofu og fimm herbergi.
Tvöfaldur bílskúr. Garður við húsið er ein-
staklega vel gróinn og fallegur. Lóðin er
samtals 1.034,0 fm. Falleg eign á eftirsót-
tum stað í Garðabæ. V. 63,0 m.
Fáfnisnes - Skerjafjörður Mjög góð og
skemmtileg, 106,3 fm, 3ja herbergja íbúð
með bílskúr á góðum stað í
Skerjafirðinum. Íbúðin er 87,5 fm og bíl-
skúr 18,8 fm samtals 106,3 fm. Íbúðin
skiptist í forstofu, 2 rúmgóð herbergi,
baðherbergi og opna stofu og eldhús. V.
34 m. 7408
Álfkonuhvarf - m/bílskýli Glæsileg og
fullbúin, 3ja herbergja, 99 fm íbúð á 3.
hæð í vönduðu lyftuhúsi ásamt sérgeym-
slu á jarðhæð og stæði í bílageymslu.
Íbúðin skiptist í forstofu, þvottahús, tvö
rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, stóra
stofu og eldhús. V. 26,3 m. 7423
Gullsmári - laus strax Falleg og vel
skipulögð, 3ja herb., 88,7 fm íbúð á 7. h.
með glæsilegu útsýni í lyftuhúsi á eftirsót-
tum stað í Kópavogi .Eignin skiptist m.a. í
2 svefnh., stofu, baðh., þvottah., og eldh.
V. 25,5 m. 7429
Um er að ræða einstaka, fullbúna, 139,2 fm íbúð í
hinu nýja Skuggahverfi. Íbúðin er staðsett á 5. hæð
og er með stórkostlegu útsýni. Íbúðinni fylgir stæði
í bílageymslu. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar úr
hvíttaðri Eik og öll gólfefni eru sérvalin. Íbúðin er
mjög björt með hærri lofthæð en almennt gerist.
V. 65 m. 7413
LINDARGATA - GLÆSILEG ÍBÚÐ
OPIÐ
HÚS
OPIÐ
HÚS
Til leigu er 513,0 fm. skrifstofuhúsnæði á 1. hæð auk u.þ.b. 125 fm sem er
hlutdeild í sameign sem er m.a. kaffiaðstaða auk mötuneytis og samkomu-
salar á efstu hæð. Skrifstofuhúsnæðið er í nýlegu og stórglæsilegu skrif-
stofuhúsnæði á þessum frábæra stað. Í húsinu er meðal annars Endur-
skoðendafyrirtækið Pricewaterhouse Coopers hf.
TIL LEIGU Í SKÓGARHLÍÐ
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
ÞAÐ fór varla fram hjá neinum
að í síðasta mánuði voru kosningar
til Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Eftir margra vikna þrotlausa vinnu
frambjóðenda við að koma mál-
efnum fylkinganna tveggja, Vöku og
Röskvu, á framfæri kusu stúdentar
6. og 7. febrúar sl. og voru úrslit
kunngjörð aðfaranótt 8. febrúar.
Vaka hlaut 1.686 atkvæði og Röskva
1.692 og hélt Röskva því naumlega
meirihluta sínum í stúdentaráði.
Spurningar vöknuðu meðal stúd-
enta og þá sérstaklega meðal full-
trúa og stuðningsmanna Vöku um
það hvernig skipta ætti störfum
stúdentaráðs. Með tilliti til lítils
munar milli fylkinga skiptist skólinn
nánast hnífjafnt og væri því eðlilegt
að stúdentar fengju að sjá þá full-
trúa sem þeir kusu taka virkan þátt
og hafa áhrif innan stúdentaráðs.
Vökuliðar biðu spenntir eftir
fréttum frá Röskvu og vonuðu að
þeir myndu fá umsjón með ein-
hverjum nefndum til að koma sínum
málefnum í framkvæmd. Stað-
reyndin er sú að Röskva hafði ekki
samband við Vöku fyrir skiptafund-
inn heldur varð oddviti Vöku að
hafa samband við Röskvu daginn
fyrir til að athuga með skiptingu í
nefndir. Fengust þá þær upplýs-
ingar að skipting nefnda yrði með
svipuðum hætti og starfsárið 2007-
2008. Niðurstaðan var því sú að
Röskva fengi meiri-
hluta (þrjá af fimm
fulltrúum) auk for-
manns í öllum sjö
nefndum stúd-
entaráðs. Einkennileg
túlkun á lýðræðinu og
lítill skilningur á vilja
stúdenta er óhætt að
segja.
Þetta stoppaði ekki
okkur í Vöku, við
höfðum unnið ötullega
í kosningunum að
smíði sterkrar mál-
efnaskrár sem við
vildum hrinda í framkvæmd og sótt-
umst því eftir ýmsum trúnaðar- og
ábyrgðarstöðum innan stúdentaráðs
til að auðvelda okkur að koma á
framfæri þeim málefnum sem
49,91% stúdenta kusu. Kristján
Freyr Kristjánsson, oddviti Vöku,
bauð sig fram til formanns stúd-
entaráðs en Röskvuliðar kusu það
strax niður án nokkurrar umræðu
um hæfni hans eða getu til að gegna
starfinu. Ingólfur Birgir Sig-
urgeirsson stúdentaráðsliði bauð sig
fram sem fulltrúi stúdenta í stjórn
LÍN en það var einnig kosið niður
án minnstu umræðu og loks sóttist
Anna Sigríður Hafliðadóttir eftir því
að verða formaður alþjóðanefndar
og var það einnig kosið niður.
Nýtt stúdentaráð tók formlega
við 21. febrúar sl. og er því ekki
mánuður síðan ráðið tók til starfa en
strax er augljóst að yfirlýsingar af
hálfu meirihlutans um samstarf
fylkinganna í stúdentaráði eru ein-
ungis í orði en ekki á borði.
Það má þó segja að meirihluti
Röskvu hafi farið yfir öll mörk þeg-
ar kom að því að ráða fram-
kvæmdastjóra stúdentaráðs. Sam-
kvæmt 57. og 64. gr. laga
stúdentaráðs skal sú ráðning vera
byggð á faglegum grunni. Tveir
sóttu um stöðuna, Atli Bjarnason,
Vöku, og fulltrúi af framboðslista
Röskvu. Það fór ekkert á milli mála
þegar umsóknir þessara tveggja að-
ila voru lesnar yfir að Atli Bjarna-
son væri með mun betri grunn og
reynslu til að gegna stöðu fram-
kvæmdastjóra en mótframbjóðandi
hans. Atli Bjarnason er á þriðja ári í
viðskiptafræði og rak sitt eigið fyr-
irtæki á Akureyri í fjögur ár sam-
hliða námi við Menntaskólann á Ak-
ureyri, þar sem hann tók einnig
virkan þátt í félagslífi skólans og sat
meðal annars í stjórn nemenda-
félagsins. Reynsla hans af stjórnun,
bæði hvað varðar fjármál og einnig
mannauðsstjórnun, skipar honum
stalli ofar en mótframbjóðanda
hans. Það skal þó tekið fram að ekki
er verið að gera lítið úr hæfni fram-
bjóðanda Röskvu heldur viljum við
benda á að með tilliti til starfs-
reynslu, forms umsóknar og mennt-
unar teljum við að ekki hafi verið
ráðið í þessa stöðu á faglegum
grunni eins og lög gera ráð fyrir.
Undirrituð vonast til þess að að-
stæður í stúdentaráði þróist í þá átt
að raunverulegt samstarf geti átt
sér stað, enda annað óeðlilegt gagn-
vart stúdentum þar sem einungis
0,18% munur er á fylgi fylkinganna.
Stúdentaráð er skipað 20 fulltrúum
beggja fylkinga, en ekki einungis 11
fulltrúum meirihluta Röskvu. Sand-
kassaleikur og framapot sem
fulltrúar Röskvu hafa ásakað Vöku
um, og nú síðast í fjölmiðlum á loka-
spretti kosningabaráttunnar, er nú í
hámarki, og lýðræðið innan stúd-
entapólitíkurinnar er fótum troðið.
Þegar það virðist vera skilyrði að
vera bundinn Röskvuböndum til að
fá að gegna trúnaðarstörfum í hags-
munabaráttu stúdenta er gert lítið
úr lýðræðinu og pólitískar ráðn-
ingar virðast eiga að koma
ákveðnum vinveittum einstaklingum
á framabraut.
Lýðræðið virt
að vettugi
Ingólfur Birgir Sigurgeirsson
og Sigrún Ingibjörg Gísladóttir
skrifa um stúdentapólitíkina
» Strax er augljóst að
yfirlýsingar af hálfu
meirihlutans um sam-
starf fylkinganna í stúd-
entaráði eru einungis í
orði en ekki á borði.
Ingólfur Birgir
Sigurgeirsson
Höfundar sitja í stúdentaráði fyrir
Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúd-
enta.
Sigrún Ingibjörg
Gísladóttir