Morgunblaðið - 30.03.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 39
UMRÆÐAN
Mjög vandað einbýlishús á eftirsóttum stað í Seljahverfinu. Húsið er á tveim-
ur hæðum og er 241 fm með innbyggðum bílskúr. Auk þess er risloft. Húsið
skiptist m.a. í stofur með arni, 5-6 herbergi og tvö baðherbergi. Glæsilegt
nýstandsett eldhús. Timburverönd til suðurs. Mjög fjölskylduvænt hús.
Verð 69,8 millj. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Helgi í s. 824-9097.
HÆÐARSEL - MIKIÐ ENDURNÝJAÐ
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Perlan - 105 Rvk
Til leigu Gullfallegt 208 fm einbýlishús á frábærum
stað í fossvoginum. Langtímaleiga. Laust strax.
Uppl í síma: 863-3328/846-0408
eða í tölvupósti nada@centrum.is.
MISSKILNINGS gætir í grein
sem Jónas Guðmundsson skrifar í
Morgunblaðið í vikunni um ým-
islegt sem tengist skipulagsmálum
á Álftanesi. Ég hef áður leiðrétt
svipaðar missagnir en
vil þó ítreka nokkur
atriði.
Bæjaryfirvöld hafa
unnið ýmsar breyt-
ingar á auglýstum
skipulagstillögum á
miðsvæði sveitarfé-
lagsins í framhaldi af
athugasemdum frá
íbúum. Sumar þess-
ara breytinga hafa
þegar verið sam-
þykktar í bæjarstjórn
en aðrar eru í
vinnslu. Í yfirskrift
greinar Jónasar er sagt að meiri-
hlutinn á Álftanesi sé rúinn
trausti og í greininni látið liggja
að því að ekki verði tekið mark á
athugasemdum. Þetta er misskiln-
ingur eins og ég hef sagt hér að
framan. Bæjarfulltrúar Á-lista
fagna áhuga íbúanna á skipulags-
málum og munu koma til móts við
sjónarmið þeirra, enda vonast þeir
til að hafa áfram víðtækt traust
meðal íbúanna.
Minnt skal á að þegar unnið var
við skipulag miðsvæðisins 2005-
2006 af fyrri bæjarstjórn var ekki
tekið neitt mark á athugasemdum
meirihluta kosningabærra íbúa og
umdeilt skipulag lögfest skömmu
fyrir kosningar vorið 2006. Í kosn-
ingunum kom þá í ljós að sá meiri-
hluti D-listans var rúinn trausti og
féll hann í kosningunum, yfirskrift
Jónasar hefði átt vel við um þær
aðstæður.
Vönduð vinna við
skipulagsmál á mið-
svæðinu hefur ein-
kennt vinnuferlið frá
kosningum og hafa
ýmsar sérfræði-
skýrslur verið unnar
sem ekki var talin
ástæða til í fyrra ferli
2005-2006, s.s. skýrsla
um umferðarmál,
hljóðvist, skuggavarp
og umhverfismál.
Eins hefur samráð við
íbúa verið mikið og
almennir kynningarfundir teknir
upp og verið aðgengilegir á heima-
síðu sveitarfélagsins eins og önnur
gögn í skipulagsferlinu.
Í fyrra gildandi skipulagi mið-
svæðisins sem D-listinn lögfesti
2006 var gert ráð fyrir stórum
bílastæðum austan við lóðir skóla
og leikskóla sem nú er ekki gert
ráð fyrir. Eins er nú áformað að
bílastæði á skólasvæðinu víki að
mestu fyrir nýju leiksvæði skóla-
barna. Við hönnun umferðamann-
virkja hefur sérstaklega verið
hugað að gangandi umferð og ör-
yggismálum og fylgt ráðgjöf sér-
fræðinga.
Helsta markmið bæjarstjórnar
með uppbyggingu miðsvæðis er að
byggja þjónustustofnanir fyrir
stækkandi bæjarfélag og hefur
verið samstaða um það markmið í
bæjarstjórn. Þessi þjónusta verð-
ur sniðin að þörfum okkar litla
samfélags. Byggðin er að jafnaði
lágreist, 1-3 hæðir, og færri
þriggja hæða hús en í gildandi
deiliskipulagi og landnýting minni.
Þrátt fyrir þessa uppbyggingu eru
það markmið bæjarstjórnar að
varðveita einkenni byggðarinnar
og halda opnum og óbyggðum
stórum svæðum og huga sér-
staklega að friðun strandsvæða.
Það verður því enn friðsælt og
gott að búa á Álftanesi en fögur
náttúra, ríkulegt fuglalíf og ein-
stök strandsvæði eru búsetukostir
sem íbúar á Álftnesi vilja varð-
veita.
Álftanesið, einstök náttúra
og grænn miðbær
Sigurður Magnússon svarar
grein Jónasar Guðmundssonar » Bæjarfulltrúar Á-
lista fagna áhuga
íbúanna á skipulags-
málum og munu koma
til móts við sjónarmið
þeirra.
Sigurður Magnússon
Höfundur er bæjarstjóri á Álftanesi.