Morgunblaðið - 30.03.2008, Side 42
42 SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% ✝
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
HAUKUR KRISTJÁNSSON,
Hlíðarvegi 34,
Siglufirði,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar
miðvikudaginn 26. mars.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
5. apríl kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hugborg Friðgeirsdóttir,
V. Ingi Hauksson, Anna Jóhannsdóttir,
Sigurlaug J. Hauksdóttir, Hörður Júlíusson,
Guðný S. Hauksdóttir, Jóhann Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐJÓN SVERRIR SIGURÐSSON,
áður til heimilis í Grímshaga 7,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu
laugardaginn 22. mars, verður jarðsunginn frá
Neskirkju mánudaginn 31. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans
er góðfúslega bent á hjúkrunarheimilið Hrafnistu.
Valdís S. Daníelsdóttir,
Bragi Guðjónsson, Ingibjörg Júlíusdóttir,
Herdís Guðjónsdóttir, Bjarni M. Jóhannesson,
Sigríður B. Guðjónsdóttir, Guðmundur Gíslason,
afabörn og langafabörn.
✝ Svava SæunnGuðbergsdóttir
fæddist í Neðri-
Hjarðardal í Dýra-
firði 28. apríl 1923.
Hún lést á Landspít-
alanum, deild 11E,
10. mars síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Svan-
hildur Árnadóttir, f.
10. desember 1889,
d. 1985, og Guð-
bergur Davíðsson, f.
21. apríl 1896, d.
1980. Systkini
Svövu eru Vilborg (látin), Jó-
hanna, Davíð, Jóna, Kristín og
Agnes Þórunn (hálfsystir sam-
feðra).
Börn Svövu eru: 1) Davíð Vil-
hjálmsson, sonur
hans er Elmar Jens,
2) Svanhildur Vil-
hjálmsdóttir, börn
hennar eru Svava
Magnea, Vilhjálmur
Þór, Sólborg og
Matthías, 3) Gunn-
laugur Vilhjálmsson
(látinn), 4) Sæunn
Guðjónsdóttir, dótt-
ir hennar er Harpa
Lind, og 5) Hanna
Guðjónsdóttir, börn
hennar eru Jóna og
Daníel.
Svava flutti að Höfða í Dýrafirði
árið 1930 og til Reykjavíkur 1946.
Útför Svövu var gerð frá Foss-
vogskapellu 25. mars, í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann
gaf son sinn eingetinn til þess að hver
sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi
eilíft líf.
(Jóh.3.16.)
Mamma og pabbi hófu búskap á
Leifsgötu. Þar eignuðust þau mig
og tvo bræður mína. Strax sem barn
varð ég vör við veikindi mömmu, og
hafði það áhrif á uppeldi okkar
barnanna, en hún var þunglynd og
oft þurfti ég að ganga systkinum
mínum í móður stað.
Þegar foreldrar mínir skildu tóku
við erfiðir tímar hjá mömmu. Hún
þvoði þvotta fyrir fólk til þess að
eiga fyrir húsaleigunni en það var
mikil fátækt á þessum árum. Sumt
fólk bjó í bröggum.
Ég man þegar braggi brann.
Fjölskyldan missti aleigu sína. Þá
sagði mamma: Hvernig getum við
hjálpað þessu fólki? Svona var hún
mamma.
Lífið snerist um að eiga mat til
næsta dags. Eitt sinn fann bróðir
minn 50 krónur og gaf mömmu.
Hún minntist oft á þetta atvik og
talaði um, að þetta hefði verið eins
og sending af himnum.
Mamma giftist Guðjóni og eign-
aðist Sæunni og Hönnu. Mamma
hafði gaman af fallegu umhverfi,
hún hafði mikið yndi af blómum, og
sáði sjálf fyrir sumarblómum og
voru morgunfrúr í miklu uppáhaldi.
Mamma fékk vinnu hjá Þóru í
Vernd. Þóra helgaði lif sitt því að
hjálpa þeim sem áttu erfitt. Hún var
á þessum árum ásamt Bjarka Elías-
syni að beita sér fyrir að opnaður
yrði gististaður fyrir alkóhólista
sem voru á götunni. Gistiskýlið varð
að veruleika og hóf mamma störf
þar.
Mamma átti auðvelt með að setja
sig í spor þeirra sem höfðu orðið
undir í lífsbáráttunni. Gistiskýlið
varð eins og mitt annað heimili. Ég
fékk að kynnast því fórnfúsa starfi
sem þar er unnið og leysti ég
mömmu af inn á milli, þegar ég var
orðin eldri.
Það var mikið áfall fyrir mömmu
þegar pabbi minn og Gulli bróðir
dóu.
Ég sá mömmu hamingjusama í
fyrsta skipti þegar hún kynntist
Helga. Hún geislaði af gleði en þau
nutu lífsins í ferðalögum og dansi.
En hamingjan stóð stutt því Helgi
lést skyndilega.
Mamma hugsaði vel um leiðin í
kirkjugarðinum,.
Mamma leitaði til miðla. Hafði
hún trú á því, að hún gæti haft sam-
band við látna ástvini sína. Svo kom
að því, að leiðir okkur mömmu skildi
um tíma, hún flutti á Hrafnistu.
Mamma fór í skjaldkirtilsaðgerð
fyrir stuttu, ekki var vitað hvort
hún mundi lifa aðgerðina af. Beðið
var fyrir henni en eftir aðgerðina
þurfti hún engin verkjalyf. Lækn-
arnir skildu ekki hvað mamma var
hress og virtist þetta vera bæna-
svar.
Ég var mjög glöð yfir að verða
vitni að því að mamma tók á móti
frelsaranum Jesú Kristi með því að
játa syndir sínar og leggja allt í
hans hendur rétt áður en hún dó.
Ég veit, að ég fæ að sjá hana á
himnum hjá Guði.
Þegar ég kvaddi hana var hún
orðin sátt, það var mikill friður yfir
henni. Ég sagði við hana, að hún
þyrfti engu að kvíða, því Guð elskaði
hana – eins og hann elskar alla.
Himneski faðir, sýndu mér ef ég á
eitthvað ófyrirgefið gagnvart móður
minni.
Ég þakka þér fyrir þá reynslu
sem ég fór í gegnum með mömmu.
Þessi reynsla hefur mótað líf mitt.
Nú þegar ég kveð hana sé ég hve
mikil áhrif hún hefur haft á líf mitt.
Svanhildur Vilhjálmsdóttir.
Svava Sæunn
Guðbergsdóttir
Þær eru nú flestar
gengnar út af sviðinu
þessar eftirminnilegu
forystukempur úr
stéttabaráttunni um miðja síðustu öld
og næstu áratugi þar á eftir. Margrét
Auðunsdóttir – Magga Auðuns, for-
maður „starfsstúlknafélagsins“
Sóknar eins og það hét þá – er meðal
þeirra síðustu, enda á hundraðasta og
þriðja ári þegar hún lést.
Margrét Auðunsdóttir
✝ Margrét Auð-unsdóttir fæddist
í Eystri-Dalbæ í
Landbroti í Vestur-
Skaftafellssýslu 20.
júní 1906. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Grund 17. mars síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá Foss-
vogskirkju 27. mars.
Leiðir okkar lágu
saman á þeim árum,
sem ég var skrif-
stofustjóri Alþýðu-
sambandsins 1970-
77, en Magga for-
maður Sóknar og
miðstjórnarmaður í
ASÍ. Þrátt fyrir ald-
ursmun tókst með
okkur góður kunn-
ingsskapur og vin-
átta, sem hefur hald-
ist alla tíð síðan, án
þess að skugga bæri
á.
Magga var dæmigerður fulltrúi
þeirra, sem hófu sig úr sárri fátækt í
afskekktri sveit á bernskuárum til
bjargálna á fullorðinsárum eftir því
sem líða tók á öldina. Hún var Vestur-
Skaftfellingur, fædd og uppalin á
Eystri-Dalbæ í Landbroti. Þegar ég
spurði hana á aldarafmælinu hverju
hún þakkaði að hafa náð þessum háa
aldri taldi hún helst fram krækiberin
sem hún úðaði í sig meðan hún sat yf-
ir kvíaánum og svo vatnið, sem sótt
var út í
mýri og innihélt bæði járn og leir,
en var reyndar ekki bragðgott, svo
sem gjarnan er um þann mat sem
bráðhollur er og heilsusamlegur.
Á þeim árum þurftu ungar stúlkur
bæði kjark og áræði til þess að rífa sig
upp úr sveitinni og afla sér mennt-
unar. En 17 ára gömul er Magga
komin til náms í hússtjórnardeild
Kvennaskólans undir stjórn Ingi-
bjargar H. Bjarnason, sem hafði
reyndar verið kjörin á þing árið áður
af sérstökum kvennalista. Þá tóku við
nokkur ár við heimilishjálp og hús-
störf, en 1927 fór hún til starfa hjá
þeim þá landskunna manni Fúsa vert
á Hótelinu í Borgarnesi. Um þessar
mundir tók Framsóknarflokkurinn
völdin í landstjórninni með Jónas frá
Hriflu í fararbroddi og aukin harka
að færast í pólitíkina. Borgarnes var✝
Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn og frændi,
ÞÓR WILLEMOES PETERSEN,
Arnarhrauni 40,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 1. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minning-
arsjóð sem stofnaður verður af vinum í samvinnu
við Liverpoolklúbbinn á Íslandi, kt. 131155 3369,
reikn. no 140 - 26 - 9140.
Sigrid Foss, Guðmundur Jónsson,
Per Willemoes,
Laufey, Steinunn Ruth, Jón
og Gobeline Willemoes,
Þóra Antonsdóttir, Friðþjófur Sigurðsson,
Tormod Willemoes,
Kristín Erla Þorgeirsdóttir.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, teng-
damóður, ömmu og langömmu
FRÍÐU GUÐBJARTSDÓTTUR
Kjartansgötu 15,
Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilis
aldraðra, Borgarnesi og heimahjúkrunar Borgarness.
Valur Thoroddsen,
Haukur Valsson, Kristín Einarsdóttir,
Hildur Valsdóttir,
Snædís Valsdóttir,Ólafur Sigurðsson,
Anna Valsdóttir, Árni Magnússon,
Magnús Valsson, Guðrún Ásgeirsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ERLENDUR J. JÓNSSON
bifreiðasmíðameistari,
frá Norðurgarði í Mýrdal,
síðast til heimilis í Álfheimum 54,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, miðviku-
daginn 26. mars.
Útför hans verður frá Fossvogskirkju, föstudaginn 11. apríl kl. 13.00.
Sesselja Þórðardóttir,
Guðrún Erlendsdóttir, Davíð Janis,
Valgerður Erlendsdóttir,Stephen J. Carter,
Ólafur Þór Erlendsson, Hildur Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.