Morgunblaðið - 30.03.2008, Side 43

Morgunblaðið - 30.03.2008, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 43 Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU ÓSKARSDÓTTUR frá Hábæ, Þykkvabæ, lengst af búsett í Hjarðartúni 12, Ólafsvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugastaða og göngudeildar 11 E fyrir góða umönnun. Unnsteinn Tómasson, Ingibjörg Högnadóttir, Guðmundur Tómasson, Hjördís Harðardóttir, Ágústa Tómasdóttir, Tryggvi K. Eiríksson, Óskar Tómasson, Sesselja Tómasdóttir, Bárður H. Tryggvason, Þórhildur Tómasdóttir, Steinunn Tómasdóttir, Þröstur Leósson, Njörður Tómasson, Gunnhildur L. Marteinsdóttir, Goði Tómasson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför hjartkærs sambýlismanns míns, elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, REYNIS KRISTINSSONAR bifreiðastjóra, Þórðarsveig 6, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Sérstakar þakkir sendum við einstöku starfsfólki líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Björg Stefánsdóttir, Elín Reynisdóttir, Bárður Smárason, Vilborg Reynisdóttir, Jónas Karl Harðarson, Kristín Reynisdóttir, Jakob Holm, Erna Reynisdóttir, Herbert E. Pedersen, afabörn og langafabörn. ✝ Við sendum innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts elsku föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JENS PÉTURSSONAR, Grettisgötu 72, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks A-6 Landspítala Fossvogi. Þröstur Jensson, Hanna Kr. Hallgrímsdóttir, Stefanía Jensdóttir, Geir Garðarsson, Gíslína Jensdóttir, Sigurður Einarsson, Svava Jensdóttir, Kristófer Pálsson, Höskuldur Jensson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum innilega öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts og útfarar fósturmóður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR ÞÓRODDSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Skjóli. Jafnframt sendum við starfsfólki þriðju hæðar á Skjóli bestu þakkir fyrir umönnunina. Jóhanna Gunnþórsdóttir, Brynjólfur Lárentsíusson, Sveinmar Gunnþórsson, Kristín Pálsdóttir, Þórey Skúladóttir, Jón V. Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, PETREU AÐALHEIÐAR RÖGNVALDSDÓTTUR, (Háaskála), Ólafsfirði. Ásta Axelsdóttir, Valgeir Ásbjörnsson, Sveinbjörn Axelsson, Sæunn Axelsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lára Axelsdóttir, Ómar Þórisson, Hanna Brynja Axelsdóttir, Jón Þór Björnsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, J. SIGURÐAR GUNNSTEINSSONAR fyrrverandi starfsmanns Loftleiða/Flugleiða, Vogatungu 45, Kópavogi. Margrét Anna Jónsdóttir, Gunnsteinn Sigurðsson, Dýrleif Egilsdóttir, Þorgerður Ester Sigurðardóttir, Einar Ólafsson, Jón Grétar Sigurðsson, Sveinbjörg Eggertsdóttir, Anna Sigríður Sigurðardóttir, Guðni Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Látin er Jónína S. Gísladóttir. Hún var um margra ára skeið einn mesti stuðnings- og velgjörð- armaður hjartadeilda Landspítal- ans. Með stofnun öflugs gjafa- og styrktarsjóðs vildi hún styrkja og efla hjartalækningar við spítalann. Hún þekkti vel til og vissi að til þess að unnt væri að beita nýjustu lækn- ingaaðferðum yrðu að vera til full- komin lækningatæki á Íslandi. Sjóð- ur hennar hefur styrkt kaup á margvíslegum slíkum tækjum og munar þar mest um hjartaþræðing- artæki, sem keypt voru fyrir fé úr sjóðnum fyrir sjö árum. Þegar nú Jónína Sigríður Gísladóttir ✝ Jónína SigríðurGísladóttir fæddist 8. desember 1921. Hún andaðist á St. Jósefs- spítalanum í Hafn- arfirði 18. mars síð- astliðinn. Útför Jónínu fór fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 27. mars sl. liggur fyrir að endur- nýja þarf hjartaþræð- ingartækin er enn horft til sjóðsins enda kosta slík tæki mikla fjármuni. Auk þessa vildi Jónína að þjónusta við hjartasjúklinga yrði bætt og velferð þeirra þannig aukin og lagði hún sitt af mörkum til þess. Með afgerandi stuðningi sínum sýndi hún framsýni og djúp- an skilning á þörfum sjúkradeilda fyrir tækjabúnað og aðstöðu. Jónína var hógvær kona, sem var lítið fyrir að auglýsa sjálfa sig en lét fremur verkin tala. Við sem höfum átt samskipti við hana til margra ára minnumst hennar með miklu þakklæti fyrir þá ræktarsemi og velvilja, sem hún sýndi hjartadeild- unum á Landspítalanum fyrr og síð- ar. Við vottum börnum hennar og öðrum aðstandendum samúð okkar. Blessuð sé minning hennar. Gestur Þorgeirsson. miðdepill samgangna vestur og norð- ur um land og þar héldu stjórnmála- menn gjarnan fundi og réðu ráðum sínum. Þarna kynntist hún vel klækjapólitík, baktjaldamakki og undirferli þess tíma, „en líka hitt,“ sagði hún, „að maður á að þegja.“ Og við það stóð hún og fór með í gröfina mörg vel varðveitt pólitísk leyndar- mál, sem gaman hefði verið að fá vitn- eskju um frá glöggum sjónar- og heyrnarvotti. Svo liðu nokkur ár sem Magga stjórnaði mötuneytum, í Reykholti á veturna og Laugarvatni á sumrin. Það er til marks um það í hve miklum metum hún var hjá yfirboðurum sín- um, að þegar gjaldkerinn spurði Bjarna á Laugarvatni, hvað ráðskon- an ætti að fá í kaup, svaraði hann á þá leið að best væri að hún réði því sjálf, og var þó Bjarni þekktur að öðru en að afsala sér boðvaldi því sem hann hafði yfir sínu starfsfólki og sínum stofnunum. Möggu fannst mikið til um það úrvalsfólk, sem hún kynntist í gegnum starf sitt á þessum stofnun- um og fannst hún læra þar margt, sem kom sér vel síðar. Um miðja öldina logaði þjóðfélagið upp úr og niðrúr í hörðum átökum stétta og pólitískra flokka. Verkalýðs- hreyfingunni hafði vaxið fiskur um hrygg á veltiárum stríðsins en öllum voru atvinnuleysi og bág kjör kreppu- áranna í fersku minni. Þegar harðnaði á dalnum í kjölfar stríðsins vörðust verkalýðsfélög af mikilli hörku og gerðu kröfur um fulla atvinnu og bætt kjör. Jafnframt hófu stjórnmálaflokk- arnir harða baráttu um yfirráð yfir verkalýðshreyfingunni, „svo að segja mátti að barist væri um hvern þuml- ung í öllum stéttarfélögum í Reykja- vík“, sagði Magga í viðtali við mig á aldarafmæli sínu. Inn í þessa baráttu sogaðist hún þegar hún skipulagði að- gerðir starfsfólks á Kleppi gegn kjaralækkun fyrir jólin 1952 og það vannst fullnaðarsigur. Þetta varð til þess að um hana myndaðist stuðn- ingshópur og hún var kosin formaður Sóknar 1956 og gegndi því starfi í 16 ár, ólaunað í fyrstu en í hálfu launuðu starfi síðustu þrjú árin. Fyrstu árin hélt hún áfram sem matráðskona á Landspítalanum á talsvert betri laun- um en Sóknartaxtarnir gáfu, en til þess að fá rýmri tíma til að sinna fé- lagsmálunum færði hún sig um set í þvottahúsið á miklu lægri launum. Slík fórnarlund var ekki óalgeng með- al frumherjanna í árdaga verkalýðs- hreyfingarinnar. Á þessum árum var Magga iðulega í eldlínu baráttunnar. Umönnunarstéttirnar áttu þá sem nú erfitt um vik með að beita beittasta vopni verkalýðsins, verkfallsvopninu, sér til framdráttar í kjarabaráttu sinni. Oft fannst henni lítið fara fyrir samábyrgð alls verkafólks og sitt fólk verða út undan við lausn þeirra miklu átaka um kjaramál, sem þá skóku þjóðfélagið með skömmu millibili og þeir best stæðu hrifsa til sín stærri hluta af kökunni en þeim bar á loka- stigum baráttunnar. Þá lét hún sam- herjana heyra sína skoðun og skóf ekki utan af hlutunum, háðsk og tunguhvöss svo að oft sveið undan. Þótt mörgu hafi miðað til betri vegar síðan Magga hætti að láta til sín heyra á þeim vettvangi veitti sennilega ekki af að ráðamenn þjóðfélagsins fengju að heyra tæpitungulaust hvað má til betri vegar fara í þeim efnum. Magga átti því láni að fagna að vera heilsuhraust alla sína löngu ævi, en hefur þó sennilega orðið hvíldinni feg- in eftir viðburðaríka og stormasama ævi. Ég kveð mína kæru vinkonu með söknuði. Ólafur Hannibalsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.