Morgunblaðið - 30.03.2008, Síða 49

Morgunblaðið - 30.03.2008, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MARS 2008 49 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif- stofan í Gullsmára 9 er opin á mánu- dögum og miðvikudögum kl. 10-11.30, sími: 554-1226. Skrifstofan í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 15-16, sími: 554-3438. Félagsvist í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og föstudögum kl. 20.30 og í Gullsmára á mánudög- um kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur sunnudagskvöld kl. 21, ath. breyttur tími, Klassík leikur fyrir dansi Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá, m.a. opnar vinnustofur og spilasalur, dans, kór- starf o.fl. Postulínsnámskeið hefst þriðjud. 8. apríl kl. 13, kennari Sig- urbjörg Sigurjónsd. Þriðjud. og föstud. er létt ganga. Mánu- og miðvikudaga kl. 9.50 eru vatnsleikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Hæðargarður 31 | Müllersæfingarnar kl. 9.15, Bör Börsson kl. 11 í Baðstof- unni þriðjudögum. Bókmenntafólk er minnt á Akureyrarferð 14.-16. maí, kíktu við í morgunkaffi í Betri stofunni og kynntu þér dagskrána, uppl. í Ráða- gerði s. 568-3132. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús- inu á mánu- og miðvikud. kl. 9.30, hringdansar í Kópavogsskóla á þriðjud. kl. 14.20, ringó í Smáranum á miðvikud. kl. 12 og í Snælandsskóla á laugard. kl. 9.30. Línudans í Húnabúð, Skeifunni á miðvikud. kl. 17, uppl. í síma: 564-1490. Íþróttafélagið Glóð | Kynning á ringó í Snælandsskóla kl. 19-20, miðvikudag- inn 2. apríl., uppl. í síma: 564-1490. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, mánudag kl. 9.30, er ganga frá Egils- höll. Kvenfélag Garðabæjar | Félagsfundur verður 1. apríl í Garðaholti kl. 20, kaffi- nefnd kvöldsins skipa hverfi 2, 4, 13 og 20, kaffinefnd mætir kl. 19. Stjórn- in.www.kvengb.is Kvenfélag Kópavogs | Félagsfundur verður haldinn í sal félagsins að Hamraborg 10 2.h. 9. apríl, hefst kl.20. Auk hefðbundinna fundarstsarfa verð- ur námsskeið í skyndihjálp á vegum Rauða krossins Kirkjustarf Bústaðakirkja | Starf eldri borgara er í kirkjunni á miðvikudögum kl. 13-16. Spilað, föndrað, handavinna og óvænt uppákoma. Hafið samband við kirkju- vörð í síma 553-8500 ef bílaþjónustu er óskað. Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11 fyrir alla krakka, kennsla, söngur, leikir o.fl. Almenn samkoma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir prédikar. Á samkomunni verður lofgjörð, barna- starf og fyrirbænir, í lokin verður kaffi og samfélag, verslun kirkjunnar opin. Kolaportið | Helgihald er í Kolaportinu kl. 14. Fyrirbænum er safnað frá kl. 13.30, á meðan Þorvaldur Halldórsson leikur sálma og ýmis lög, sín eigin og annarra. Sr. Bjarni Karlsson prédikar. Prestar, djáknar og sjálfboðaliðar leiða stundina. Miðborgarstarfið. Morgunblaðið/Ómar Hallgrímskirkja Hlutavelta | Þessar ungu dömur færðu Rauða krossinum 5.400 krónur sem þær höfðu safnað ásamt vinkonu sinni. Þær heita: Sigrún Harpa Bald- ursdóttir, Dagný Hlín Rafnsdóttir og Valgerður Haraldsdóttir en hana vantar á myndina. Söfnun | Þrjár frænkur söfnuðu til styrktar blóðskilunardeild LSH. Þær voru að styrkja þessa deild þar sem amma þeirra er búin að vera í blóð- skilun í 9 ár og var að fá nýra núna í janúar. Þær perluðu og seldu perl- urnar og fengu þrettán þúsund krónur fyrir sem þær gáfu deildinni. Þær heita Hildur Anna, Hulda Ýr og Íris Ósk. Myndin er tekin þegar þær voru að gefa peninginn og er amma þeirra með á myndinni. dagbók Í dag er sunnudagur 30. mars, 90. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? (Sl.. 27, 1.) Rannsóknarsetur í barna ogfjölskylduvernd heldur mál-stofu næstkomandi þriðju-dag í samstarfi við fé- lagsráðgjafarskor HÍ. Málstofan fer fram í stofu 101 í Odda, kl. 12 til 13, en þar ætlar dr Marianne Skytte frá háskólanum í Ála- borg að flytja erindið Félagsráðgjöf í fjölmenningarsamfélagi (e. Dilemmas around ethnicity in social work) Edda Ólafsdóttir félagsráðgjafi hjá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er fundarstjóri á málstofunni: „Mikill fengur er af komu Marianne hingað til lands, en hún er stödd hér á landi í stuttan tíma sem gestakennari í nýju diplómanámi í fjölmenningarfélags- ráðgjöf við HÍ,“ segir Edda en Mari- anne hefur stundað rannsóknir og skrifað bækur um vinnu félagsráðgjaf- ans með fjölskyldum af erlendum upp- runa. „Breytingar á íslensku samfélagi eru þess valdandi að nýir not- endahópar fólks af öðrum menning- arsvæðum leita eftir þjónustu víða í kerfinu,“ segir Edda. „Þessar breyt- ingar eru svo nýtilkomnar að enn hef- ur frekar lítil sérþekking myndast meðal fagfólks á þörfum þeirra, en í Danmörku er mun meiri reynsla af þjónustu við þessa hópa, og hefur fag- fólk almennt sérhæft sig meira í a að koma til móts við þessa skjólstæðinga. Ætlar Marianne m.a. að miðla okkur af þessari reynslu.“ Að sögn Eddu er mikilvægt að kunna að veita fólki frá öðrum menn- ingarsamfélögum sem besta þjónustu: „Þó að flestir nái að spjara sig mjög vel þurfa aðfluttir stundum á sérstakri að- stoð að halda. Þeir fara í gegnum ákveðið breytingarferli og þurfa að takast á við ýmis ný verkefni eins og að læra nýtt tungumál, kynnast nýju samfélagi o.fl. Félagsráðgjafar og ann- að fagfólk standa frammi fyrir þeirra áskorun að móta viðeigandi úrræði sem auðvelda gagnkvæma aðlögun innfæddra og innflytjenda segir Edda. Auk fyrirlestrarins á þriðjudag ætl- ar Marianne að flytja erindi hjá Barna- verndarstofu á mánudag Barnavernd- arstarf með fjölskyldum af erlendum uppruna, frá kl. 12.15 til 13.15. Samfélag | Fyrirlestur um þarfir fólks frá ólíkum menningarheimum Félagsráðgjöf og fjölmenning  Edda Ólafs- dóttir fæddist í Reykjavík 1955. Hún lauk prófi í fé- lagsráðgjöf frá Háskólanum í Ósló 1981 og á að baki framhaldsnám í fjölskyldumeðferð, barnavernd- arvinnu með minnihlutahópum, verk- efnastjórnun o.fl. Edda hefur starfað sem félagsráðgjafi, m.a. sem for- stöðumaður Útideildarinnar og hjá Unglingaathvarfinu, Unglingadeild- inni, á Starfsþjálfunarstaðnum Örva og hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík. Hún starfar nú sem félagsráðgjafi í Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða og er stundakennari í HÍ. Edda á þrjú börn og tvö barnabörn. Tónlist Hallgrímskirkja | Tónleikar Camerarctica ásamt Mörtu G. Halldórsdóttur sópran verða hjá Listvinafélaginu í Hallgrímskirkju í dag kl. 17. Frumflutt verður nýtt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, „Allir verði eitt“, Sálmar á atómöld eftir Elínu Gunnlaugs- dóttur og Klarínettukvintett Max Regers sem var hans síðasta verk. Reykholtskirkja | Kammerkór Hafn- arfjarðar heldur tónleika í Reykholtskirkju í dag kl. 16. Á tónleikunum verða flutt kirkju- leg kórverk frá Íslandi og Skandinavíu. Stofnandi og stjórnandi kórsins er Helgi Bragason. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og rennur til Reykholtskirkju. Myndlist Norræna húsið | „Norrænar hugrenningar frá Mexíkó“ er heiti sýningar dönsku text- íllistakonunnar Trine Ellitsgaard. Sýningin stendur til 6. apríl. Listakonan hefur verið búsett í Mexíkó sl. tuttugu ár og bera verk- in á sýningunni það með sér. Nánari upp- lýsingar á www.nordice.is. Kvikmyndir Skriðuklaustur | Skriðuklaustur er annað árið í röð í samstarfi við 700IS hreindýra- land og Menningarmiðstöð Fljótsdalshér- aðs. Sýndar verða myndir í dag og frá síð- asta degi hátíðarinnar 5. apríl. Sjá nánar á www.700.is. Fyrirlestrar og fundir Askja – Náttúrufræðihús HÍ, stofa 132 | Í næsta fræðsluerindi HÍN mun Arnór Sig- fússon, líffræðingur hjá verkfræðistofu VST, flytja erindi sem hann nefnir „Af gæs- um“. Miklar breytingar hafa orðið á stofn- um gæsa á norðurhveli jarðar frá því um miðja síðustu öld og hafa íslensku stofn- arnir ekki farið varhluta af þeim. Í fyr- irlestrinum verður fjallað um þessar breyt- ingar og rannsóknir og vöktun á íslensku gæsastofnunum sem ætlað er að mæla þær. Aðgangur er ókeypis. Frístundir og námskeið Mímir símenntun ehf. | Ensku- og spænsk- unámskeið hefjast hjá Mími símenntun í byrjun apríl. Skráning í síma 580 1808 og á www.mimir.is. TÍSKUVIKA er haldin tvisvar á ári í Moskvu og stendur nú yfir. Þar gefst rússneskum fatahönn- uðum tækifæri til að koma sér á framfæri á sama tíma og rússneskt tískuáhugafólk kynnir sér það sem er að gerast utan landsteinnanna. Þessar fyrirsætur sýndu sköpunarverk rússneska hönnuðarins Igor Chap- urin, en ef til vill dregur hárgreiðslan sem þær skarta frekar að sér aug- að en fatnaðurinn. Rússnesk hönnun Reuters 40 ára afmæli. Í dag,30. mars, er Sindri Einarsson fertugur. Hann fer til útlanda á af- mælisdaginn en áætlar að halda veislu síðar. DAVE Rutledge, prófessor við Calif- ornia Institute of Technology (Cal- tech) flytur opinn fyrirlestur um orku- og loftslagsmál mánudaginn 31. mars kl. 15 í Hátíðasal Háskóla Íslands, aðalbyggingu. Fyrirlesturinn er í boði rektors Háskóla Íslands og nefnist ,,Hub- bert’s Peak, the Coal Question, and Climate Change. „Mikil umræða hefur verið um ol- íu-, gas- eða kolaauðlindir jarðarinn- ar og hversu lengi þær muni endast. Á sama tíma hefur mikil áhersla ver- ið lögð á að vinna spár um loftslags- breytingar sem tengjast notkun jarðefnaeldsneytis. Það kemur hins- vegar á óvart að lítið hefur verið reynt að tengja þessa tvo þætti,“ segir í fundarboði. David Rutledge er sviðsforseti verkfræði og hagnýtra vísinda hjá California Institute of Technology (Caltech). Caltech er einn fremsti rann- sóknaháskóli veraldar og meðal starfsfólks Caltech hafa verið 23 Nóbelsverðlaunahafar, segir í til- kynningu. Háskóli Íslands og Cal- tech hafa nýlega gengið frá sam- komulagi um nemendaskipti og rannsóknasamstarf. Fyrirlestur um eldsneyti og loftslagsbreytingar ÍBÚASAMTÖK um lágreista byggð í Bygggörðum, austan Gróttu, hafa sent frá sér eftirfarandi áskorun: „Skipulags- og mannvirkjanefnd Seltjarnarness hélt hinn 25. mars kynningarfund fyrir húseigendur við tvær götur í bænum til að kynna þeim framkomnar deiliskipulagstil- lögur Þyrpingar hf. fyrir nýja íbúð- arbyggð á Bygggarðasvæðinu austan Gróttu. Við aðra þessara gatna er sjálft iðnaðarsvæðið en við hina, Sef- garða, er íbúðabyggð. Húseigendur við Sefgarða mættu til fundarins með undirritaða sameiginlega afstöðu til þess hverjar skuli vera helstu for- sendur deiliskipulags á Bygggarða- svæðinu. Höfðu nánast allir íbúar við götuna skrifað undir og voru forsend- urnar fjórar: Að nýbyggingar á svæðinu verði ekki hærri en tvær hæðir, að þær verði einbýlishús, par- hús og raðhús, að á austanverðum og vestanverðum jaðri svæðisins verði einnar hæðar einbýlishús og að að- koma að safnasvæðinu í Nesi verði samsíða Sefgörðum en liggi ekki eftir Sefgörðum. Það urðu mikil vonbrigði fyrir íbúana að komast að því á fundinum að þær tillögur sem Þyrping hf. kynnti komu ekki til móts við neina af þessum forsendum. Íbúasamtök um lágreista byggð í Bygggörðum, austan Gróttu, telja að skipulagsmál í jaðri eins mikilvæg- asta útivistarsvæðis á höfuðborgar- svæðinu varði hagsmuni allra Sel- tirninga og vilja afstýra því umhverfisslysi sem nú stefnir í. Hafa íbúasamtökin óskað eftir því við bæj- aryfirvöld að fá að taka þátt í form- legu samráðsferli við mótun nýrra skipulagstillagna fyrir svæðið en ekki fengið svar. Þá hafa íbúasam- tökin óskað eftir því að íbúar Sel- tjarnarness fái að kjósa milli skipu- lagskosta fyrir Bygggarðasvæðið, í sambærilegri íbúakosningu og fram fór á síðasta kjörtímabili þegar skipulag Hrólfskálamels og svæðis- ins sunnan Valhúsaskóla var í deigl- unni. Við þessu hafa heldur engin svör borist frá bæjaryfirvöldum. Fyrirliggjandi tillaga sem kynnt var framangreindum húseigendum í fyrradag gerir ráð fyrir sex þriggja hæða blokkum auk raðhúsa og nokk- urra einbýlishúsa. Hún innifelur 130 íbúðir sem væntanlega munu hýsa yfir 370 manns og ljóst er að svo um- fangsmikil byggð mun auka verulega umferðarþunga á Seltjarnarnesi. Samkvæmt tillögunni er nýtingar- hlutfall svæðisins tæplega 0,7 en það er tæplega 0,3 í aðliggjandi byggð þannig að tillagan er í engu samræmi við þá stefnu aðalskipulags bæjar- inns að hin nýja íbúðarbyggð skuli vera í samræmi við byggðamynstur nærliggjandi svæða og aðlöguð að þeirri byggð sem fyrir er. Íbúasamtök um lágreista byggð í Bygggörðum, austan Gróttu, gera skýlausa kröfu um að bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi standi fyrir borgara- fundi um skipulag Bygggarða hið fyrsta og áður en fyrirliggjandi skipulagstillaga verður sett í auglýs- ingu. Einnig ítreka íbúasamtökin sérstaklega að ekki verði byggð hús hærri en tvær hæðir á svæðinu.“ Vilja borgarafund um skipulag Bygggarða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.