Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 54
Hann hefur gaman
af því að láta per-
sónurnar blaðra alveg
endalaust …58
»
reykjavíkreykjavík
Donald Sutherland er greinilegaekki maður sem liggur á skoð-unum sínum. Áður en viðtaliðhefst stendur blaðamaður inni í
hótelherbergi leikarans á meðan leikarinn
stikar um gólf og les reiðilega upp úr út-
prentuðum tölvupósti sem honum barst ný-
verið. Sendingin átti að vera grín, ferilskrá
George W. Bush sem hann gæti flaggað við
umsókn á nýju starfi. En Sutherland er
ekki skemmt, og er greinilega ekki á eitt
sáttur með stjórnarhætti Bush og félaga.
„Þessir hlutir eru þér greinilega hug-
leiknir … ,“ byrja ég varlega.
„Já, það er ekki hægt að láta sér standa
á sama,“ svarar Sutherland að bragði.
Er mikill munur á andstöðu þinni við
Íraksstríðið nú og Víetnamstríðið á sínum
tíma?
„Já, mér finnst það. Þá hafði maður trú á
að í vændum væru breytingar til hins betra.
Núna er allt þetta stríðsbrölt ekki til neins
og bara hörmung frá upphafi til enda … ,“
segir Sutherland niðurlútur og starir
skyndilega niður á gólfteppið í þungum
þönkum.
Þá er ráð að ræða um sjónvarpsþáttinn
nýja og reyna að rífa upp stemninguna að-
eins.
„Já ég fékk handrit þáttanna sent þegar
ég var við tökur á kvikmyndinni Fools Gold
í Ástralíu og leist strax vel á,“ segir Suther-
land. „Ég fékk reyndar skömmu síðar sent
annað handrit þar sem búið var að gera
talsverðar breytingar en þá neitaði ég al-
farið að taka þátt í þessu, bætir hann við og
er greinilega ekki maður málamyndana.
„Þá var búið að breyta öllum þeim einkenn-
um Tripper Darling sem mér fannst gera
hann mannlegan og áhugaverðan. Þegar
fallist var á að breyta handritinu aftur til
baka féllst ég á að vera með.
Rauðir og grænir peningar
Peningar, völd, ástir og örlög eru allsráð-
andi í þáttunum Dirty Sexy Money og sem
höfuð fjölskyldunnar fer Tripper Darling
ekki varhluta af neinum þessara þátta.
Þrátt fyrir allt segir Sutherland téðan Dar-
ling þó vera eina þá viðkunnalegustu per-
sónu sem hann hafi leikið á ferlinum.
En skyldu peningar og völd skipta Sut-
herland sjálfan máli í hinu daglega lífi.
„Fyrir sumum eru peningar grænir en
fyrir mér eru þeir rauðir,“ segir Sutherland
og útskýrir að með því eigi hann við að stór
hluti fjármuna hans fari í að borga upp lán
og fjárfestingar sem hann sé skráður fyrir.
„Peningar eru reyndar til góðs ef að þeir
eru notaðir rétt. Að nota peninga til að
bjarga tiltekinni dýrategund frá útrýming-
arhættu finnst mér til dæmis fallegt og
virðingarvert. Annars hugsa ég ekki mikið
um peninga en reyndar hafa allir þeir
náungar sem ég hef leikið að undanförnu
verið afar loðnir um lófana,“ bætir hann við
og fer í kjölfarið að segja frá ævintýrum
sínum í Ástralíu þar sem hann var nýverið
við tökur í hlutverki enn eins auðkýfings-
ins.
„Ég fór á köfunarnámkeið þarna suður
frá því ég þurfti á því að halda fyrir mynd-
ina. Í stuttu fríi frá tökum þurfti ég að fara
til læknis vegna verkja fyrir brjósti. Við
myndatökur kom í ljós þykkildi í öðru lung-
anu og þá var ég sannfærður um að ég
væri kominn með lungnakrabbamein.
Læknirinn bað mig að framlengja fríið
vegna þessa en ég vildi ekki heyra á það
minnst, ég hafði engan tíma þá til að fara
að leggjast inn á spítala. Læknirinn kallaði
því út sérfræðing sem féllst á að koma sam-
dægurs og skoða mig og þá kom í ljós að
þetta var blóðköggull sem mér var sagt að
gæti myndast hjá fólki yfir fimmtugt sem
tekur upp á því að fara að kafa, segir hinn
72 ára Sutherland og er greinilega mikið
niðri fyrir.
„Ég varð alveg brjálaður út í þennan fé-
laga sem hafði séð um köfunarkennsluna í
Ástralíu, hann er gamalreyndur í faginu og
hefði átt að segja mér þetta. Þar sem ég
var enn í Bandaríkjunum lét ég mér nægja
að hvæsa á aumingjans þjón sem var að
vinna á veitingastað sem við hjónin fórum á
um kvöldið. En það fyrsta sem ég gerði
þegar ég kom aftur til Ástralíu var að hafa
uppi á honum og hella mér yfir hann!“
Já það er ekki gott að ýfa fjaðrirnar á
Donald Sutherland, það er á hreinu. En at-
hygli vekur að hann sagðist ólmur vilja
fara aftur til vinnu þó hann héldi sig vera
kominn með krabbamein, skyldi hann ekki
óttast heilsuleysi?
„Nei alls ekki, ég dó einu sinni og sá ljós-
ið og eftir það óttast ég ekkert slíkt þó það
sé auðvitað betra að hafa heilsuna í lagi,“
segir Sutherland og á þarna við atvik sem
gerðist fyrir um 30 árum síðan þegar
læknar voru taldir hafa vakið hann upp frá
dauðum þegar hann þjáðist að heilahimnu-
bólgu.
Hræðilegt verkfall
Þáttaröðin Dirty Sexy Money var ein
þeirra sem verkfall handritshöfunda hafði
áhrif á og þættirnur urðu aðeins 11 talsins.
„Þetta var hræðilegur tími,“ rifjar Sut-
herland upp. „Það hefur sjaldan verið rætt
um hversu víðtæk áhrif þetta hafði á allt og
alla í Hollywood. Starfsfólk í fatahreins-
unum, veitingastöðum, búningahönnuðir og
fleiri og fleiri, þetta hafði lamandi áhrif á
alla,“ bætir hann við og verður sorgmædd-
ur á svip. En svo hýrnar yfir honum.
„Já þú ert frá Íslandi ekki satt?“ segir
hann skyndilega. „Kiefer er einmitt búinn
að segja mér svo mikið um landið, hann
varð svo rosalega hrifinn þegar hann kom í
heimsókn til ykkar.“
Þá var aðeins tími fyrir eina spurningu
að lokum og þá langaði mig að vita hvaða
hlutverk Donald langaði mest að reyna fyr-
ir sér í af þeim sem Kiefer sonur hans hef-
ur leikið.
„Hmm, þetta er áhugaverð spurning,“
segir Sutherland, hallar sér aftur og hugsar
sig vel um. Á meðan stendur hæstráðandi
hjá Disney inni á gólfi og sveiflar klukk-
unni og gefur til kynna með látbragði að
viðtalstíminn sé liðinn. Sutherland þykist
ekki sjá hann og svarar svo: „Veistu, ég
held að ég geti ekki svarað þessu. Ég hef
aldrei hugsað um hlutverkin hans þannig.
Ég hef oft séð aðra leikara í hlutverkum
sem ég hefði gjarnan viljað fá að spreyta
mig á sjálfur en ég sé son minn aldrei sem
keppinaut. Mér finnst bara verst að við höf-
um aldrei fengið að leika almennilega sam-
an,“ segir leikarinn að lokum áður en
blaðamanni er vinsamlegast mokað út af
hótelherberginu svo hægt sé að hleypa öðr-
um að.
Þegar Donald Sutherland dó
Fyrsti þáttur sjónvarpsþátta-
raðarinnar Dirty Sexy Money
(Fé og freistingar) var frum-
sýndur í Sjónvarpinu síðastlið-
inn fimmtudag en þar fer Don-
ald Sutherland með hlutverk
hins valdamikla og auðuga
Tripper Darling. Birta Björns-
dóttir hitti leikarann í London
á dögunum og ræddi við hann
um Tripper, soninn Keith
og ævintýri í Ástralíu.
Stórleikarinn Peningar, völd, ástir og örlög eru allsráðandi í þáttunum Dirty Sexy Money en
þar leikur Donald Sutherland Tripper Darling, höfuð Darling-fjölskyldunnar.
» [É]g sé son minn aldrei semkeppinaut. Mér finnst bara
verst að við höfum aldrei feng-
ið að leika almennilega saman.
Dirty Sexy Money eru sýndir í Sjónvarpinu á
fimmtudagskvöldum.
birta@mbl.is
Stjörnubjart Fjölmargir þekktir leikarar
leika í þáttunum ásamt Donald Sutherland og
má meðal annars nefna Blair Underwood og
William Baldwin.