Morgunblaðið - 30.03.2008, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 30. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2008
Heitast -0° C | Kaldast -7° C
Norðan og norðaust-
an 10-18 m/s, snjó-
koma norðaustanlands
en skýjað suðvestan-
lands. » 8
ÞETTA HELST»
Gullfaxi kemur
Náðst hefur samkomulag við nú-
verandi eigendur Gullfaxa, fyrstu
þotu Íslendinga, um kaup á fremsta
hluta vélarinnar. Verður stjórnklef-
inn fluttur í heilu lagi til landsins til
varðveislu á flugminjasafninu og
standa vonir til að hann verði kom-
inn til landsins í júní. Kaupverðið er
3,1 millj. » 4
Hong Kong gildran
Sé raunin sú að óprúttnir spá-
kaupmenn reyni vísvitandi að þrýsta
niður gengi krónunnar og íslenskra
hlutabréfa er hugsanlegt að hægt sé
að leggja fyrir slíka kóna gildru, að
sögn blaðamanns Financial Times,
en hann starfaði í Hong Kong þegar
spákaupmenn gerðu áhlaup þar. » 2
Treysta læknum
Íslendingar hafa almennt ekki
sérstakar óskir varðandi takmörkun
meðferðar þegar nær dregur lífs-
lokum og treysta í þeim efnum dóm-
greind lækna sinna. » Forsíða
Fundur um samninga
Starfsgreinasambandi Íslands
fundaði með samninganefnd ríkisins
á föstudag, en kjarasamningur
starfsmanna hjá ríkinu innan aðild-
arfélaga SGS er laus nú í lok mán-
aðarins. Önnur staða er uppi nú en
þegar samið var við SA að sögn for-
svarsmanna SGS. » 2
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Vinirnir, bækurnar og
sjónvarpið
Staksteinar: Hvað gerir sjónvarpið?
Forystugrein: Þolinmæði og þanþol
almennings á þrotum
UMRÆÐAN»
Óvissa í byggingariðnaði
Vilja ekki fylgja ASÍ
300 ker gangsett
60 störf fyrir verksmiðjufólk
Að réttlæta stríðsglæpi
Landflótti unga fólksins
Úrræðaleysi borgaryfirvalda við
neyð heimilislausra útigangsmanna
ATVINNA»
FÓLK»
Johnny Depp leikstýrði
eiginkonunni. » 56
Þræðir Erykuh
Badu liggja um þver
og endilöng Banda-
ríkin og hún hefur
náð að höfða til
ólíkra hópa. » 60
TÓNLIST»
Þvers og
kruss
TÓNLIST»
Íslensk bönd í upphit-
unarhlutverki. » 55
MYNDLIST»
Tvíeykið Riceboy Sleeps
vinnur tvist og bast. » 59
Vefsíðan The Smok-
ing Gun kemur upp
um lygalaupa og
birtir óþægilegar
myndir af stjörn-
unum. » 61
Lýsa inn í
skúmaskot
VEFSÍÐA»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Árekstur við minningarathöfn
2. Reynt að brjóta fjármálakerfið
3. Þungaður karlmaður
4. Hræddari við löggur en þjóf
STEFÁN Hjörleifsson, heimspekingur og lækn-
ir, rannsakaði í doktorsritgerð sinni umfjöllun
íslenskra fjölmiðla um erfðavísindi árin 2000 og
2004 og er þetta sennilega viðamesta rannsókn
á einstöku umfjöllunarefni fjölmiðla hérlendis.
Umfjöllun um Íslenska erfðagreiningu hefur
verið mikil og flokkaði Stefán allt efni sem
tengdist fyrirtækinu frá árunum 2000 og 2004
og komst að því að umfjöllun um fyrirtækið var
miklu oftar á jákvæðum nótum bæði árin.
Mest áhersla í umfjöllun fjölmiðla var lögð á
viðskiptalegar hliðar á starfsemi Íslenskar
erfðagreiningar.
Aldrei rauður þráður í umfjöllun
Ein af meginniðurstöðum Stefáns er sú að eft-
ir að umfjöllun um miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði lýkur er sama og engin gagnrýni á
erfðarannsóknir eða erfðavísindi í íslenskum
fjölmiðlum. „Auðvitað eru uppi raddir, en þær
eru stakar og birtast frekar sem lítil atriðið í
fréttum eða lesendabréfum eða aðsendum
greinum. Gagnrýnin umfjöllun um erfðavísindi
verður sjaldnast að meginþema í frétt, aldrei
rauður þráður. Jákvæðar væntingar til erfðavís-
inda og fréttir á jákvæðum nótum eru gegn-
umgangandi.
Stefán tók viðtöl við bæði vísindamenn Ís-
lenskrar erfðagreiningar og þátttakendur í
rannsóknum þeirra og báðir hóparnir höfðu
ýmsar áhyggjur af hagnýtingu þeirrar þekk-
ingar sem erfðavísindin gætu fært samfélaginu.
„Þeir lýsa í raun eftir umræðu um hana og
hvernig samfélagið eigi að búa sig undir að
höndla þessa þekkingu.“
Hann segir niðurstöður þessarar íslensku
rannsóknar ekkert einsdæmi, svipaðar niður-
stöður hafi komið út úr kanadískri rannsókn.
,,Þekkingargeirinn á Íslandi er lítill og þá er ég
alls ekki bara að tala um blaðamannastéttina
heldur jafnframt þá aðila sem hún getur sótt
stuðning og þekkingu til. Álitsgjafarnir eru ekki
margir í vísindageiranum. Hæfir álitsgjafar
liggja ekki á lausu og í þessum geira störfuðu
þeir mjög margir hjá Íslenskri erfðagreiningu
eða áttu í samstarfi við fyrirtækið.“ Hann segir
að af þessum sökum geti verið að fjölmiðlafólk
hafi ekki fengið nægilega mikinn stuðning frá
þekkingarsamfélaginu. | 26
Vilhallir ÍE í umfjöllun
Gagnrýnin umfjöllun um erfðavísindi verður sjaldnast að meginþema í frétt
Fjölmiðlafólk fær ekki nægilega mikinn stuðning frá þekkingarsamfélaginu
Í HNOTSKURN
»Stefán Hjörleifsson rannsakaði í dokt-orsritgerð sinni umfjöllun íslenskra fjöl-
miðla um erfðavísindi árin 2000 og 2004.
»Hann flokkaði allt efni sem tengdist Ís-lenskri erfðagreiningu 2000 til 2004 og
komst að því að mest áhersla í umfjöllun fjöl-
miðla var lögð á viðskiptalegar hliðar á starf-
semi Íslenskrar erfðagreiningar.
»Vísindamenn ÍE og þátttakendur í rann-sóknum hafa áhyggjur af hagnýtingu
þekkingar sem erfðavísindin gætu fært sam-
félaginu.
KYNNTAR voru fyrir nokkru á
matarmarkaði á Grandavegi 8 tvær
vörutegundir sem á að þróa áfram,
sláturterta,
rabarbara-
karamellur og
rabarbarasaft.
Þessar vörur
eru hluti af
verkefnum sem
unnin hafa verið
í samstarfi nem-
enda vöruhönn-
unardeildar
Listaháskóla Ís-
lands og fjög-
urra bænda.
Samtökin Beint
frá býli – félag heimavinnsluaðila og
bændasamtökin áttu þátt í að nefna
til bændur í þetta samstarf.
Sláturtertan útvalda er glæsileg
að sjá, skreytt rófustöppu og auðvit-
að afar holl. Hún mun nú fá enn frek-
ari útfærslu í sumar, sem og rabar-
barakaramellur og rabarbarasaft
sem einnig var valið til að þróa
áfram. Þessar afurðir verða svo
kynntar í veitingahúsum og fyrir
neytendum í haust. Þetta er hluti af
þriggja ára verkefni sem styrkt er af
Tækniþróunarsjóði. Á næsta ári
hefst starf fjögurra nýrra bænda og
nemenda sem endar á sama hátt með
matarsýningu næsta vor og vali á
nýjum vörutegundum. | 28
Slátur-
terta og
rabarbari
Vöruhönnun Slát-
urterta, rabarbara-
karamellur og -saft
var valið til frekari
vöruþróunar fyrir
skömmu.
HEILLANDI heimur fyrir unglinga
sem komið hafa höndum yfir úða-
brúsa. Skjól gegn veðri og vindum
fyrir útigangsfólk sem hvergi hefur
höfði sínu að halla. Þó varla. Nær
allar rúður brotnar og ökkladjúpt
vatn á öllum hæðum. Grýlukerti
hanga úr loftunum og glerbrot
þekja gólfin. Í húsunum við Hverf-
isgötu 32-34, sem staðið hafa auð
lengi og valdið miklum deildum,
eru þó merki um jafnrétti og einnig
örlar á kærleika uppi undir rjáfri.
101 Reykjavík
Morgunblaðið/Ómar
Innlit í yfirgefnu húsin við Hverfisgötu 32 og 34
Eyðibýli í miðborginni | 24