Morgunblaðið - 17.04.2008, Page 1
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
FÉLAGSFUNDUR Flugfreyju-
félagsins samþykkti í gærkvöldi að
samninganefnd félagsins hæfi und-
irbúning að boðun verkfalls hjá
flugfreyjum og -þjónum Icelandair.
Viðræður hafa staðið yfir síðan í
nóvember án árangurs þrátt fyrir
aðkomu ríkissáttasemjara. Sigrún
Jónsdóttir, formaður félagsins,
segir biðlund félagsmanna á þrot-
um.
Í yfirlýsingu frá FFÍ eru fé-
lagsmenn eindregið hvattir til „að
virða kjarasamningana í verki og
njóta frídaganna í faðmi fjölskyld-
unnar“. Sigrún segir tilgang skila-
boðanna að minna félagsmenn á að
veita það vinnuframlag sem þeim
ber að sinna, í samræmi við vinnu-
skrár sem gefnar eru út um hver
mánaðamót.
Flugmenn vilja semja stutt
Fulltrúar Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna funduðu með
fulltrúum Icelandair hjá ríkissátta-
semjara í gærmorgun.
Að sögn Örnólfs Jónssonar, for-
manns samninganefndar flug-
manna, var fundurinn stuttur en
annar fundur verður í dag.
Segir Örnólfur að flugmenn hafi
beðið með að boða verkfall þangað
til Icelandair svarar þeim ein-
dregnu tilmælum sáttasemjara að
samið verði til skamms tíma, aðeins
til eins árs.
Undirbúa verkfall
Formaður Flugfreyjufélags Íslands segir þolinmæðina á þrotum Félags-
menn hvattir til að „njóta frídaganna“ Flugmenn vilja gera stuttan samning
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
LJÓST virðist að vinni Hillary Clinton
ekki öruggan sigur í forkosningum á þriðju-
dag í Pennsylvaníu, með sína 158 landsfund-
arfulltrúa, geti hún pakkað saman.
Clinton hefur lengi staðið betur í könn-
unum í ríkinu og gerir sér vonir um þátta-
skil ef hún vinnur með yfirburðum. Þá
munu óákveðnir telja að hún sé líklegri en
Obama til að sigra í haust, hún nái til hóps
sem muni ráða úrslitum: hvítra karla í
verkalýðsstétt. En síðustu kannanir hafa
reyndar sýnt að Obama hefur saxað á for-
skot hennar. Og ritið The Economist bendir
á að þótt Clinton hafi víða gengið mun betur
en keppinautnum meðal hvítra verkamanna
sé ekki víst að staða hennar sé nú jafn sterk
og margir halda. Vissulega séu margir
dæmigerðir, hvítir verkamenn í „ryðbelt-
inu“ svonefnda, t.d. í Pittsburgh þar sem
eitt sinn var blómleg stóriðja. En í stærstu
borg ríkisins, hinni fornfrægu Philadelphiu,
séu nýir atvinnuvegir í menntun og ýmissi
þjónustu að ryðja út því gamla. Þar séu
kjósendur mun móttækilegri fyrir boðskap
ræðuskörungsins Obama.
Hann sagði nýlega að margir hvítir menn
úr verkalýðsstétt væru nú svo örvænting-
arfullir yfir efnahagsástandinu að þeir höll-
uðu sér að hefðbundnum gildum eins og trú,
áherslu á rétt til byssueignar og sýndu einn-
ig „andúð á öllum sem eru öðruvísi en þeir“.
Menn bentu menntamanninum Obama á að
trú og byssudýrkun hefðu lengi verið þessu
fólki hugleikin, hvort sem vel áraði eða illa.
Eins og Justin Webb, fréttamaður BBC
vestra, orðaði það væru þessar vangaveltur
Obama í sjálfu sér eðlilegar ef um erindi fé-
lagsfræðings hefði verið að ræða. En for-
setaefni talar ekki niður til kjósendahópa.
Obama hefur að undanförnu gert sér far
um að þvo af sér yfirstéttarstimpilinn; full-
yrt hefur verið að hann höfði einkum til efn-
aðra demókrata sem elski rauðvín en Clin-
ton til fátækari bjórþambara. Hefur Obama
jafnvel reynt fyrir sér í alþýðlegu keiluspili
(mistókst herfilega) og skellt sér á bjórkrá.
Brátt kemur í ljós hvort nýja ímyndin hjálp-
ar, einnig hvort hann hefur haft betur en
Clinton í sjónvarpskappræðum sem fram
áttu að fara í nótt, fyrstu kappræðum þeirra
í tvo mánuði.
Keila og
bjór í „ryð-
beltinu“
Harður slagur demó-
krata í Pennsylvaníu
HANN er ekki lítil aflakló, Pétur Pétursson, skipstjóri á Bárði SH 81. Á
rétt rúmum þremur mánuðum hefur hann veitt yfir 500 tonn á þennan
20 tonna plastbát, mest þorsk. Á myndinni skera þeir sér kökusneið til
að fagna góðri veiði, skipverjarnir á Bárði: Ingi A. Pálsson, bróðir Pét-
urs, Magnús Árni Gunnlaugsson, sem var að leysa af son Péturs og al-
nafna, og til hægri sjálfur skipstjórinn.
Pétur segist ekki beita neinum leynibrögðum við fiskiríið og þakkar
hina miklu veiði því að stíft hafi verið sótt, frá Arnarstapa og Ólafsvík,
eftir því hvernig vindar hafa blásið. „Þetta er bara eins og hver önnur
vinna: ef þú stundar hana vel þá nærðu yfirleitt árangri,“ segir hann og
bætir við að mikið sé af fiski í sjónum: „Meira en þeir hjá Hafró halda
nokkurn tíma fram, það er alveg ljóst,“ bætir hann við, en á minni mynd-
inni sýnir Ingi þann akfeita þorsk sem stundum kemur í netin.
Fagna góðri veiði
Morgunblaðið/Alfons
„ÞETTA er hluti af því rugli sem hef-
ur viðgengist í fjármálageiranum,“
segir Þorsteinn Már Baldvinsson,
stjórnarformaður Glitnis, í tilefni af
fréttum í gær um að Norðmaðurinn
Frank O. Reite, sem var einn af fram-
kvæmdastjórum Glitnis í þrjú ár, fékk
34 milljónir norskra króna, eða um
510 milljónir ísl. kr. er hann hætti
störfum sl. haust. „Þetta lýsir þeirri
ofurtrú sem einstaklingar í fjármála-
geiranum hafa haft á sjálfum sér.
Ég lýsti því hins vegar yfir þegar
ég tók við sem stjórnarformaður
Glitnis að ég myndi leggja mitt af
mörkum til að þessu yrði breytt hjá
Glitni.“| Viðskipti
Hluti af
ruglinu
DANSKA þjóðin
er slegin óhug
eftir að þrír menn
ruddust að móður
og fimm ára
gömlum syni
hennar þar sem
þau voru fyrir
framan leikskóla í
Virum, norður af
Kaupmannahöfn,
í gær. Móðir drengsins, sem heitir
Oliver, var skelfingu lostin og lá
blóðug eftir með áverka í andliti.
Lögreglan lýsti eftir svörtum skutbíl
og náðist hluti númersins. Mann-
anna var enn leitað í gærkvöldi. | 14
Mannanna
enn leitað
Oliver litli
♦♦♦
SAFÍRBLÁA HAFIÐ
ÞURÍÐUR MAGNÚSÍNA BJÖRNSDÓTTIR ÁTTI
DÝRÐARDAGA Í DÓMINÍSKA LÝÐVELDINU >> 17
Così fan tutte
>> 45
Magnaðar stundir í leikhúsinu
Leikhúsin í landinu
STOFNAÐ 1913 104. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is