Morgunblaðið - 17.04.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
„STEMNINGIN í bænum er nátt-
úrlega ekkert nema frábær,“ segir
Katrín Pálsdóttir, formaður æsku-
lýðs- og íþróttanefndar Stykk-
ishólmsbæjar, en á mánudagskvöld
komst körfuknattleikslið bæjarsins,
Snæfell, í úrslit Íslandsmótsins í
körfuknattleik. Er það í þriðja
skipti í sögu félagsins.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Katrínu var hún enn hálfraddlaus
eftir sigur liðsins í undanúrslitum
gegn Grindavík, og sagði eins farið
með flesta bæjarbúa. „Leikirnir eru
afskaplega vel sóttir og hér standa
allir með sínum mönnum. Það hef-
ur heldur ekki verið rætt um annað
en körfubolta og hvað þeir voru
einstaklega seigir að ná þessu upp í
restina,“ segir Katrín en Snæfell
var nítján stigum undir í upphafi
fjórða leikhluta. Með góðum leik
tryggði liðið sér hins vegar fram-
lengingu og vann í henni sigur.
Vellirnir þétt setnir
Snæfell hefur tvívegis áður kom-
ist í úrslit Íslandsmótsins, árin 2004
og 2005, en í bæði skiptin tapað fyr-
ir Keflvíkingum. Katrín segir ljóst
að í ár verði breyting á. „Nú kemur
þetta og þrennan verður tekin.“
Snæfell hefur þegar unnið Lýsing-
arbikarinn og Poweradebikarinn.
Rúmlega 1.100 manns búa í
Stykkishólmi sem hefur löngum
verið þekktur sem körfuknatt-
leiksbær. Katrín segir gríðarlegan
fjölda barna í bænum leggja stund
á íþróttina og körfuknattleiksvellir
séu oftast nær þétt setnir. Auk þess
sæki nánast öll börn leiki Snæfell-
inga. Hún segir ljóst að „Hólm-
arar“ muni styðja sína menn dyggi-
lega í úrslitunum og öruggt að
fjölmennt verði í hópferðum á úti-
leikina.
Íbúar í Hólminum ræða ekki
um annað en körfubolta
Eru afar stoltir af
liði sínu sem er
komið í úrslit
Íslandsmótsins í
körfuknattleik
Ljósmynd/Gunnlaugur Árnason
Körfuboltafár Fátt annað kemst að í Stykkishólmi þessa dagana en körfu-
bolti. Iðkendur íþróttarinnar eru margir og framtíðin tryggð.
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Grágæs, sem ber ein-
kennisstafina SLN og var fyrst
merkt á Blönduósi í júlí 2000, hefur
skilað sér á varpstöðvarnar á
Blönduósi í níunda sinn ásamt
maka. Gæsin SLN er fyrsta merkta
gæsin sem sést á þessu vori á
Blönduósi og til hennar sást á laug-
ardag á túninu við Héraðshælið. Í
fyrra varð hennar fyrst vart á sama
stað og nánast upp á sama dag.
Upphaflega voru um 120 gæsir
merktar á Blönduósi en í gegnum
tíðina hefur þeim farið fækkandi
sem skila sér heim. Ferðir þessarar
gæsar hafa verið skráðar frá því
hún var merkt og fer hún að því er
virðist sunnar á Bretlandseyjar en
margar Blönduósgæsirnar gera og
velur sér dvalarstað rétt sunnan við
landamæri Skotlands, nánar til-
tekið í Newton Pool í Norðymbra-
landi. Fyrstu gæsirnar á þessu vori
fóru að skila sér heim í lok mars og
síðan hefur þeim farið ört fjölg-
andi. Hettumávurinn kom í gær
eins og hendi væri veifað og skóg-
arþrösturinn, sem er óvenju seint á
ferðinni, er loksins kominn og byrj-
aður að syngja fyrir Blönduósinga.
Gæsirnar skila sér til Blönduóss
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Heima Grágæsin SLN er komin á heimaslóð í a.m.k. níunda sinn.
SLN kemur heim
níunda árið í röð
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Nýtt Revelation
Láttu húð þína líta betur út, líða betur og hjálpaðu henni að vinna bug á fyrstu merkjum öldrunar. Rakakrem
sem gerir húðina bjartari og hamlar gegn öldrun
Nú geturðu hrakið á brott fyrstu einkenni öldrunar húðarinnar - ójafnari lit og dauflega áferð, þurrklínur,
smáhrukkur, með þessu yndislega og endurnærandi rakakremi. Á augabragði ljær það húðinni létta blæju
geislandi fullkomnunar og með tímanum stuðlar það að áferðarfallegri, jafnlitri húð fyrir tilstilli sérstakrar
efnahvatatækni sem gerir hana bjartari (Skin Clarifying Enzyme Technology).
Samstillt C-vítamín blandan magnar áhrifin og hjálpar til við að hægja á smáhrukkumyndun. Húðin öðlast
heilbrigðara og þróttmeira yfirbragð, geislar af lífsorku.
Ath. Tilboðið gildir í
Lyf og heilsu Kringlunni og Lyf og heilsu Eiðistorgi
Gjöfin þín
Ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 3.900 eða meira í Lyf & heilsu
Kringlunni eða Lyf & heilsu Eiðistorgi dagana 17. – 23. apríl, færðu
Signature varalit, nýjasta litinn í fullri stærð og Pure Color augnskugga
tvennu. 10 daga skammt af Magnascopic maskara. Þá færðu 10 daga
skammt af Advanced Night Repair viðgerðardropum og Resilience Lift
Extreme krem fyrir andlit. Einnig Advanced Night repair augnkrem og
Estée lauder pleasures ilminn.
Allt þetta fyrir þig ásamt fallegri snyrtitösku.
Verðgildi gjafarinnar er um kr. 11.000.
*meðan birgðir endast
Við mælum með:
Kringlukast
25% afsláttur
af Gardeur
buxum
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680