Morgunblaðið - 17.04.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 13
FRÉTTIR
AFLAVERÐMÆTI íslenskra skipa
nam 4,7 milljörðum króna í janúar
2008 samanborið við 5,8 milljarða í
janúar 2007. Aflaverðmæti hefur
dregist saman um 1,1 milljarð eða
18,3% milli ára, samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofu Íslands.
Aflaverðmæti botnfisks var 3,7
milljarðar en var 4,6 milljarðar í jan-
úar 2007 og er samdrátturinn því
18,7%. Verðmæti þorskafla var 1,9
milljarðar og var það samdráttur
um 25,1%. Aflaverðmæti ýsu nam
1,1 milljarði, sem er 11,9% aukning,
og ufsaaflinn jókst að verðmæti um
9,6%, í 247 milljónir.
Verðmæti flatfiskafla dróst saman
um 10,1%, nam 220 milljónum. Afla-
verðmæti uppsjávarafla dróst sam-
an um 18,2% og nam 796 milljónum.
Munar þar mestu um verðmæti
loðnu sem nam 321 milljón. Verð-
mæti afla sem seldur er í beinni sölu
útgerða til vinnslu var 1,8 milljarðar
króna. Verðmæti afla sem keyptur
er á markaði til vinnslu innanlands
nam 1 milljarði. Aflaverðmæti sjó-
frystingar var rúmur milljarður og
verðmæti afla sem fluttur er út
óunninn nam 758 milljónum.
Minni fiskafli
Skýringar á miklum samdrætti
aflaverðmætis liggja fyrst og fremst
í minni afla. Í janúar í fyrra var
heildaraflinn tæp 82.000 tonn en
73.400 tonn nú. Það er um 10% sam-
dráttur en samdrátturinn í verð-
mætum nú er um 18%. Það bendir til
þess að fiskverð hafi verið lægra í
janúar nú en í fyrra. Samdrátturinn
er ennfremur mestur í þorskinum,
verðmestu tegundinni, og skýrist
það af þriðjungs niðurskurði á
kvóta.
Samdráttur víðast hvar
Sé litið á einstök landsvæði kemur
í ljós verulegur samdráttur víðast
hvar. Það er aðeins á Vesturlandi og
Norðurlandi eystra sem verðmæti
landaðs afla eykst. Reyndar er
aukningin aðeins ríflega 1%. Það
bendir annað hvort til að meira af
verðmætari tegundum hafi verið
landað þar í janúar nú eða að meiri
afli hafi komið þar á land.
Mesta aflaverðmæti skilar sér á
land á Suðurnesjum eins og alla-
jafna, 936 milljónir króna. Það er
samdráttur um 21,5%. Á höfuðborg-
arsvæðinu var aflaverðmætið 742
milljónir króna sem er samdráttur
um 27,1%. Á Norðurlandi eystra var
verðmætið 680 milljónir og jókst það
um 1,2%. Aflaverðmæti á Austur-
landi var 580 milljónir og þar var
samdrátturinn 19%. Á Vesturlandi
var landað afla að verðmæti 357
milljónum króna og þar jókst verð-
mætið um 1,3%. Á Vestfjörðum var
aflaverðmæti 235 milljónir króna,
sem er 46,6% samdráttur og á Norð-
urlandi vestra var landað afla að
verðmæti 162 milljónum króna. Það
er 47,6% samdráttur.
Aflaverðmæti í janúar
dregst saman um 18%
2
"
"
3
#$$1 #$$%
4
3
#$$1 #$$%
56
6
7 8
9:
;
<<
=
2
-$!>
#/
>10-
#%
$/
0 1!1
##$1
1>-#
$
$-
Í HNOTSKURN
»Verðmæti þorskafla var 1,9milljarðar og var það sam-
dráttur um 25,1%. Aflaverðmæti
ýsu nam 1,1 milljarði, sem er
11,9% aukning, og ufsaaflinn
jókst að verðmæti um 9,6%, í 247
milljónir.
»Aflaverðmæti uppsjávarafladróst saman um 18,2% og
nam 796 milljónum. Munar þar
mestu um verðmæti loðnu sem
nam 321 milljón.
»Mesta aflaverðmæti skilarsér á land á Suðurnesjum.
VERK og vit 2008, sem er stórsýn-
ing á því sem varðar bygging-
arstarfsemi, skipulagsmál, mann-
virkjagerð, menntun á því sviði og
margt fleira, verður opnuð formlega
kl. 16 í dag í Laugardalshöllinni.
Sýningin Verk og vit er nú haldin
í annað sinn. Margit Elva Ein-
arsdóttir, framkvæmdastjóri sýn-
ingarinnar, sagði í gær að mikið líf
og fjör hefði verið í Laugardalshöll
frá því á sunnudaginn var við und-
irbúning. „Það er mikið lagt í þessa
sýningu. Hún verður stórglæsileg,“
sagði Margit. Sýnendur eru um eitt
hundrað talsins að þessu sinni og
þótt sýningin sé haldin í sama hús-
næði og 2006 taldi Margit að sýn-
ingin í ár væri heldur umfangsmeiri
og mikið lagt í sýningarbása.
Menntun verður talsvert áberandi
á sýningunni og munu Iðnskólinn í
Reykjavík og Fjöltækniskóli Ís-
lands, sem sameinast 1. júlí næst-
komandi, vera með áberandi kynn-
ingu. M.a. verður tilkynnt nýtt nafn
hins sameinaða skóla í dag. Einnig
verða bæði Háskóli Íslands og Há-
skólinn í Reykjavík með kynningar
á menntunarframboði sínu svo
nokkuð sé nefnt.
Þá er mikið sýnt af vélum, tækj-
um og búnaði til byggingarstarf-
semi, byggingarefni kynnt og marg-
háttuð þjónusta á sviði
mannvirkjagerðar. Einnig er kynnt
heilsuvernd, hugbúnaður og margt
fleira. Margit sagði að sýningin yrði
mjög fjölbreytt og spannaði vítt
svið.
„Í heildina er það frábært sem
verið er að kynna og spennandi fyrir
fagaðila og almenning,“ sagði Mar-
git. Þótt heldur hafi dregið fyrir sólu
í efnahagslífinu sagði Margit að
bjart væri yfir sýningaraðilum.
„Flestir voru auðvitað löngu búnir
að ákveða að vera með í þessari sýn-
ingu og héldu sínu striki. Auðvitað
hefur maður heyrt að fólk ætli ekki
að vera eins stórtækt og áður, en ég
get ekki séð það hér. Það er allt á
fullu. Ég heyri líka að það er mikil
eftirvænting hjá fólki að koma og
skoða sýninguna. Þegar fer að
harðna í ári er þetta einmitt rétti
staðurinn fyrir fólk að kynna hvað
það hefur fram að færa. Þá er rétt
að nýta svona sýningu til að koma
sér á framfæri,“ sagði Margit.
Sýningin Verk og vit 2008 verður
opin fagaðilum kl. 17-20 í kvöld og
11-19 á morgun. Opið verður fyrir
almenning næstkomandi laugardag
kl. 12-18 og á sunnudag kl. 12-17.
Miði fyrir almenning kostar 1.200
kr. en frítt er fyrir börn undir 12 ára
í fylgd með fullorðnum. Aðgangs-
eyrir námsmanna, eftirlaunaþega og
öryrkja er 900 krónur.
Líf og fjör í Laugardals-
höll við undirbúninginn
Sýningin Verk og
vit 2008 verður
opnuð í dag
Morgunblaðið/Frikki
Stórsýning Um 100 aðilar sýna vörur, þjónustu og annað á sýningunni
Verki og viti 2008 sem verður opnuð í Laugardalshöll í dag.
ÚR VERINU