Morgunblaðið - 17.04.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.04.2008, Qupperneq 22
- kemur þér við Vantar 200 strætóskýli í Reykjavík Vilja fimmfalda kornrækt á Íslandi Vestfirðir seldir sælkerum Í vorskapi: Hjólið og hlaupaskórnir SigríðurVíðis skrifar um vélknúnar úlpur Svavar í Istorrent blankur og atvinnulaus Hvað ætlar þú að lesa í dag? daglegt líf 22 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Hjónin Óli G. Jóhannsson listmálari og Lilja Sigurðardóttir opna í dag listhúsið Festarklett í gömlu kart- öflugeymslunni við Kaupvangs- stræti. Þar hefst sýning á verkum Óla og svo skemmtilega vill til að í dag verður líka opnuð sýning á verk- um hans í Singapúr.    Alveg var dásamlegt að hlýða á Þursaflokkinn um síðustu helgi á Græna hattinum hér í höfuðstað hins fagra norðurs. Mér brá þegar Egill yfirþurs Ólafsson sagði að sveitin hefði ekki leikið á Akureyri í 28 ár; fannst eins og tónleikarnir í Möðru- vallakjallara MA hefðu verið í fyrra- dag …    Þursarnir fóru á kostum á Græna hattinum. Egill þóttist sjá eitthvað af sömu andlitunum í salnum og síðast og ég efa ekki að það var rétt hjá honum. Sjálfsagt mikið til sömu kennitölurnar mættar og þá og lík- lega enginn elst neitt að ráði. Og þeir Egill hafa engu gleymt.    Egill sagði viðstöddum að staður eins og Græni hatturinn væri ekki til á Reykjavíkursvæðinu og hvatti yfir- völd bæjarins til þess að styðja við starfsemina. Hér ættu að vera stórir tónleikar einu sinni í mánuði, ýmiss konar músík – og smærri tónleikar aðrar helgar, sagði Egill við góðar undirtektir.    Sigrún bæjarstjóri var á fyrstu Þursatónleikunum, á föstudags- kvöldið. Hún á næsta leik!    Ekki er annað hægt en nefna, skrif- andi um Græna hattinn, að bannað var að reykja þar inni frá fyrsta degi, sem var löngu áður en bann við því var sett í lög. Staðurinn fær stóran plús fyrir það.    Sigrúnu bæjarstjóra barst á dög- unum bréf frá manni sem var í breska hernum og kom til Akureyrar í ágúst 1940 með herdeild sinni. Með bréfinu fylgdi mynd af Harris þar sem hann ekur litlu farartæki upp Torfunefsbryggjuna með vagn í eftirdragi og á vagninum eru fjórir akureyrskir piltar. Bæjaryfirvöld langar að reyna að komast að því hverjir eru á myndinni og biður fólk að hafa samband ef það kannast við sjálft sig eða aðra. Frá þessu var sagt í gær á heimasíðu bæjarins, – slóðin er www.akureyri.is – og þar má sjá myndina.    Siglingamenn í Nökkva hefur lengi dreymt um betri aðstöðu en lítið þok- ast í þeim efnum. Þeim mun nýlega hafa verið gefið það ráð, sjálfsagt meira í gamni en alvöru, að reyna að tengja starfsemina nýja menningar- húsinu, Hofi. Nægir peningar séu í það verkefni, auk þess sem húsið standi við sjóinn þannig að auðvelt yrði að gera þar bryggju. Og þeir gætu örugglega fengið einhvers staðar herbergi fyrir félagsaðstöðu...    Fimmtíu ár voru í febrúar frá því stofnuð var körfuknattleiksdeild inn- an íþróttafélagsins og af því til tilefni heldur deildin styrktartónleika á sunnudaginn. Þeir verða í Gler- árkirkju kl. 16.00 og fram koma Álftagerðisbræður ásamt „Konn- urunum“ og syngja ýmsar perlur.    Álftagerðisbræður eru Sigfús, Gísli, Óskar og Pétur Péturssynir frá Álftagerði í Skagafirði og undirleik- ari þeirra er Stefán R. Gíslason. Konnararnir eru: Jóhann Már og Svavar Hákon Jóhannssynir og bræðurnir Örn Viðar og Stefán Birg- issynir. Undirleikari þeirra er Helga Bryndís Magnúsdóttir. Aðgangs- eyrir er 2.500 krónur og miðar seldir í Pennanum Eymundson og Hamri, félagsheimili Þórs.    Óhætt er að mæla með sýningu Sveinbjargar Hallgrímsdóttur grafíklistakonu, en myndir hennar hanga nú uppi á bókasafni Háskól- ans á Akureyri. Enginn verður svik- inn af því að líta þar við.    Ekki er síður gaman að líta við í Gall- erí Jónasar Viðar í Listagilinu. Þar er nú til sýnis stórglæsilegur upp- stoppaður lax, sem veiddur var í Laxá í Aðaldal. Það er Haraldur Ólafsson hamskeri sem stoppaði lax- inn upp, en Halli – sem er fyrrver- andi Norðurlandameistari í lyft- ingum – hefur náð frábærum árangri á þessum vettvangi á síðustu árum. Laxinn gerði hann fyrir heimsmeist- aramótið í hamskurði sem haldið var í Salzurg í Austurríki í febrúar, þar keppti Haraldur í meistaraflokki og fékk fyrstu einkunn, heil 90 stig af 100 mögulegum. AKUREYRI Skapti Hallgrímsson Morgunblaðið/Skapti Fallegt Sveinbjörg Hallgrímsdóttir við eitt verkanna í Háskólanum. Morgunblaðið/Skapti Frábærir Þórður, Rúnar og hinir Þursarnir f́óru á kostum á Græna hattinum um síðustu helgi. Harðir á strippinu“ varfyrirsögn á forsíðu 24 stunda í fyrradag, en fréttin var um karlakvöld hestamannafélags þar sem nektardans var meðal atriða. Kristján Bersi Ólafsson orti: Hestamenn harðir á strippinu hugsa einlægt með typpinu. Í reiðskjóta spá og reyna að ná tökum á vakrasta trippinu. Í Hrunamannahreppi er gefið út fréttablað sem nefnist Pési og er sveitarstjórinn Ísólfur Gylfi Pálmason ritstjóri og ábyrgðarmaður. Í nýjasta Pésa er sagt frá því að minkur sást undir sólpallinum hjá sveitarstjóranum. Síðan segir orðrétt: „Gárungarnir töldu þó að vel færi á því að vera með mink undir sólpallinum og pólitískan ref í húsinu.“ Jóhannesi frá Syðra-Langholti kom í hug vorstemning á Flúðum: Í Flúðaþorpi ríkir ró og friður úr runnum heyrist lágvær þrastakliður. Minkur undir sólpallinum sefur, situr uppi pólitískur refur. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af refum og nektardansi verslunum eða á veit- ingastöðum. Stundum er engu líkara en Vík- verji sé að trufla fólk þegar hann spyr spurn- inga eða vill aðstoð við eitthvað tengt rekstri viðkomandi. Víkverji er því alltaf mjög þakklátur þegar hann fær góða þjónustu og það átti við þegar hann skellti sér á nýja mexíkóska veitingastað- inn á Laugaveginum um daginn. Maturinn er ódýr og innréttingar all- ar hinar notalegustu. Matarskammturinn sem Víkverji fékk var þó í minna lagi og hefði mátt bjarga með örlítið meira af hrísgrjónum en hann fyrirgef það strax enda var þjónustan stór- skemmtileg og mikil alúð lögð í allt á staðnum. x x x Víkverji þreytist seint á að dásamaverkfæraverslunina Brynju á Laugaveginum. Víkverja finnst stundum að þar geti hann fengið svör við öllu sem honum dettur í hug og hefur satt best að segja gengið dálítið langt í að leggja undarlegar spurn- ingar fyrir afgreiðslumennina. Þeir taka Víkverja þó alltaf vel og reyna að leiðbeina honum annað ef það á við. Þegar Víkverji steigá reiðfák sinn í gær og hjólaði hress út úr húsi leið honum allt í einu eins og hann væri ekki staddur í Reykja- vík heldur í einhverri stórborg í þróun- arlandi. Ástæðan var ekki sú að óvanalega mannmargt væri í borginni heldur var það loftið sem Víkverji neyddist til að fylla lungun af sem minnti á stórborgirnar. Mikið ryk var í loftinu og Vík- verji, sem annars var tandurhreinn eins og oftast, varð skítugur á 10 mínútna hjólatúr og hóstaði fram eftir degi. Vindurinn virðist hafa þeytt öllu framkvæmdaryki borgarinnar út um allt og ekki skánar það þegar næstum allir notast við einkabílinn til að kom- ast leiða sinna. Víkverji þráir fátt heit- ara en öflugri almenningssamgöngur og að fleiri notist við eigin orku til að fara milli staða. Víkverji þekkir það af eigin raun hversu miklu betri hann er til líkamlegu og andlegu heilsunnar þegar hann hjólar eða labbar og óskar sem flestum þess sama. x x x Víkverja finnst hann alltof oft fá lé-lega þjónustu, hvort sem er í    víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.