Morgunblaðið - 17.04.2008, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 25
INNFLYTJENDUM hefur
fjölgað mjög á Íslandi í kjölfar
EES og ásóknar vinnuveitenda í
erlent vinnuafl sem ýtt hefur undir
góðærið hjá okkur á síðustu miss-
erum. Margir hafa
áhyggjur af því að
vaxandi straumur út-
lendinga muni fyrr
eða síðar leiða til auk-
inna afbrota og að
samfélagið breytist til
hins verra. Fremja
innflytjendur fleiri
glæpi en Íslendingar?
Hvað segja rann-
sóknir um tengsl inn-
flytjenda og afbrota?
Er útlendingum mis-
munað í fjölmiðla-
umræðunni? Leitast
verður við að svara þessum spurn-
ingum og fleirum á ráðstefnu um
fjölmiðla, innflytjendur og afbrot
föstudaginn 18. apríl í Salnum,
Kópavogi kl. 13.
Afbrot og
minnihlutahópar
Hver er reynsla vestrænna
þjóða? Minnihlutahópar, hvort sem
er eftir þjóðerni eða kynþætti, eru
víðast hvar handteknir, dæmdir og
fangelsaðir í ríkari mæli en aðrir
fyrir ofbeldi, auðgunarbrot og
fíkniefnabrot. Þetta er þó ekki al-
gilt og hefur ekki komið fram með
sama hætti hér á landi. Indverskir
og pakistanskir innflytjendur í
Englandi eru einnig með lægri
tíðni glæpa en þekkist meðal ann-
arra íbúa landsins. Sömuleiðis eru
íbúar af asískum uppruna með
lægri tíðni en aðrir í Bandaríkj-
unum - sambandið er
því ekki náttúrulögmál.
Rannsóknir erlendis
hafa sýnt að minni-
hlutahópar hljóta að
jafnaði þyngri dóma en
aðrir fyrir sams konar
brot. Margvísleg rétt-
arfarsúrræði til að
draga úr þyngd dóma
hafa heldur ekki verið
nýtt á sama hátt í mál-
um innflytjenda og
gerist með aðra í sam-
félaginu. Ýmsar vís-
bendingar sýna að
fyrsta kynslóð innflytjenda hefur
stundum ekki hærri tíðni glæpa en
aðrir en áhættan vex með annarri
kynslóðinni. Hvers vegna er þróun-
in svona óhagstæð innflytjendum?
Brýnt er að hafa í huga að lítill
eðlismunur er á afbrotum innflytj-
enda og annarra. Lykilatriði er
hvernig einstaklingurinn tengist
samfélaginu og hvernig samfélagið
tengist einstaklingnum. Ef tengslin
eru veik og lausbeisluð eykst hætta
á frávikum og afbrotahegðan – um
þetta vitnar fjöldi rannsókna. Ef
einstaklingurinn finnur ekki traust
skjól í stofnunum samfélagsins,
fjölskyldu, skóla, frístundum eða
vinnumarkaði og samfélagið nær
ekki að tengja hann inn í faðm sinn
erum við um leið að plægja jarð-
veginn fyrir vanda af ýmsu tagi
m.a. afbrot. Minnihlutahópar inn-
flytjenda og kynþátta með háa tíðni
glæpa og fangelsana á Vest-
urlöndum eru að jafnaði lakar
tengdir samfélaginu en aðrir – ekki
síst ólöglegir innflytjendur. Ábyrgð
á tengslaleysi á ekki bara við um
innflytjendur heldur ekki síður
okkur sjálf og stofnanir samfélags-
ins.
Fordómar í garð innflytjenda?
Athyglisvert er að rannsóknir
sem styðjast við aðrar aðferðir en
opinber gögn sýna oft aðra mynd
en þá að minnihlutahópar brjóti í
ríkari mæli af sér en aðrir. Þegar
borgararnir eru spurðir út í eigin
afbrotahegðun, þ.e. hvort þeir hafi
brotið eitthvað af sér á tilteknu
tímabili, á munurinn til að hverfa
milli innflytjenda og annarra.
Óneitanlega vakna því spurningar
um mismunun og stimplun sem
innflytjendur verða fyrir sem ýti
undir opinber afskipti. Nýjar rann-
sóknir frá Danmörku sýna að inn-
flytjendur eru í ríkari mæli hand-
teknir en aðrir en þegar útkoma
mála þeirra fyrir dómstólum er
skoðuð snýst dæmið við. Þegar til
kastanna kemur eru mál þeirra
ekki eins alvarleg og leit út fyrir í
fyrstu. Viðbrögð löggæsluaðila eru
því oft ekki í samræmi við ætluð
brot þeirra. Ýtir framsetning fjöl-
miðla um afbrot þar sem innflytj-
endur koma við sögu undir for-
dóma í garð þeirra sem ná einnig
til löggæslunnar? Er nauðsynlegt
að tiltaka ríkisfang í fyrirsögnum
frétta?
Opinber stefnumótun
Stefnumótun í málefnum innflytj-
enda verður að taka tillit til þess að
fólk sem hingað kemur hefur mis-
munandi bakgrunn og tilgang með
búsetu sinni hérlendis. Margir eru í
tímabundinni vinnu og aðrir vilja
setjast að til langframa. Rétt eins
og Íslendingar í útrás sinni og bú-
setu erlendis. Nauðsynlegt er að
forðast alhæfingar og staðalmyndir
um minnihlutahópa og kynþætti og
hlutverk fjölmiðla er afar mik-
ilvægt í þeirri umræðu. Und-
antekningar eru fjölmargar og ein-
staklingar ólíkir innan hópa.
Reynsla annarra þjóða á hiklaust
að vera vegvísir okkar Íslendinga í
framtíðinni, í samfélagi sem örugg-
lega verður menningarlega fjöl-
breyttara og auðugra en það sam-
félag sem við búum við í dag.
Innflytjendur eru mannauður fyrir
Ísland en ekki byrði. Nánari upp-
lýsingar um ráðstefnuna og að-
standendur hennar er að finna á
heimasíðu Alþjóðahúss, www.a-
hus.is.
Hinn grunaði
er útlendingur
Helgi Gunnlaugsson fjallar
um málefni innflytjenda
Helgi Gunnlaugsson
» Fjallað er um afbrot,
innflytjendur og
staðalmyndir. Fremja
innflytjendur fleiri
glæpi en aðrir? Hvaða
mynd er dregin af inn-
flytjendum í fjölmiðl-
um?
Höfundur er prófessor í félagsfræði
við Háskóla Íslands.
Dagskrá:
1. Matthias Ludwig: Kirkjurýmið og nýting þess
2. Gunnar Kristjánsson: Kirkjurýmið í breytilegum táknheimi
3. Þorsteinn Gunnarsson: Sjónarmið húsafriðunar á 21. öld
Hlé:
Gengið um Keflavíkurkirkju í fylgd byggingarnefndar Keflavíkurkirkju:
Ágrip af byggingarsögu Keflavíkurkirkju: Myndasýning á göngum safnaðarheimilis
Klassísk „Rögnvaldarkirkja“
Tvær viðbyggingar (kór og forkirkja)
Innréttingar frá 7. áratugnum
Verðlaunahönnun á safnaðarheimili
4. Ólöf Nordal: Fuglar himinsins – hugleiðing um tilurð, framkvæmd og
táknfræði altarisverksins Fuglar himinsins í Ísafjarðarkirkju
5. Hákon Leifsson: Litúrgían í kirkurýminu
6. Árni Sigfússon: Hlutverk kirkju í bæjarfélagi: Andleg miðstöð, kennslustaður,
griðarstaður og athvarf
7. Erla Guðmundsdóttir: Hver er í salnum? Barnastarfið í kirkjuskipinu
8. Sigurjón Pétursson: Endurbygging Hafnarfjarðarkirkju: Aðdragandi,
framkvæmdir, verklag, fjármál, ljósmyndir
Fundarstjóri: Skúli S. Ólafsson
Þá þú gengur
í guðshús inn
Málþing um varðveislu og breytingar á kirkjum í Keflavíkurkirkju
laugardaginn 19. apríl frá kl. 10.00 – 13.00
Til sölu glæsilegt heilsárshús
við Meðalfellsvatn
Húsið er 117 m2 + 22 m2
svalir og er byggt úr 18x18
cm límtré á steyptum sökkli +
plötu með gólfhita. Náttúru-
steinn á neðri hæð og gólf-
borð á efri hæð, 80 m2 pallur.
Húsið er tilbúið undir innrétt-
ingar (sjón er sögu ríkari).
Pantið skoðun í s. 661-7709
husogbjalkar.is
Í MORGUNBLAÐINU mánu-
daginn 14. apríl sl. er fjallað um
mótmæli vegna fyrirhugaðrar
ferjuleiðar milli Vestmannaeyja og
Landeyjahafnar við Bakkafjöru.
Af því tilefni var rætt við nokkra
þingmenn Suðurkjördæmis. Í við-
tali við Árna Johnsen alþing-
ismann sakar þingmaðurinn Vega-
gerðina og þá sérstaklega
aðstoðarvegamálastjóra um vond
og ófagleg vinnubrögð við und-
irbúning að ákvarðanatöku vegna
hafnar í Bakkafjöru. Vegna þess-
ara ómaklegu og óskiljanlegu um-
mæla um starfsmann Vegagerð-
arinnar og vegna aðkomu okkar
undirritaðra að undirbúningi ferju-
hafnar við Bakkafjöru teljum við
rétt og skylt að taka eftirfarandi
fram. Árið 2004 skipaði ég und-
irritaður þáverandi samgöngu-
ráðherra starfshóp til að fjalla um
samgöngur við Vestmannaeyjar í
samráði við þingmenn Suður-
kjördæmis. Í hópnum, sem skilaði
lokaskýrslu 2006, áttu sæti und-
irritaður Páll Sigurjónsson verk-
fræðingur sem jafnframt var for-
maður hópsins, Bergur Elías
Ágústsson, þáverandi bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, Ingi Sigurðs-
son, fyrrverandi bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, Páll Zóphonías-
son, fyrrverandi bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, Gunnar Gunn-
arsson, aðstoðarvegamálastjóri og
Jón E. Malmquist, lögfræðingur í
samgönguráðuneytinu.
Starfshópnum var falið að kanna
og meta eftirfarandi þrjá meg-
inkosti til þess að bæta samgöngur
við Vestmannaeyjar: 1. End-
urbættar ferjusiglingar með Herj-
ólfi milli Vestmannaeyja og Þor-
lákshafnar auk flugsamgangna. 2.
Byggingu ferjuhafnar og rekstur
ferju á siglingaleiðinni milli Bakka-
fjöru og Eyja. 3. Gerð jarðganga
milli lands og Vestmannaeyja. Að
þessu verkefni voru kallaðir sér-
fræðingar og ráðgjafar, ekki síst
hvað varðaði jarðgangakostinn.
Það var sameiginleg niðurstaða
starfshópsins að gera það að til-
lögu sinni að skoðuð yrði nánar sú
lausn að byggja ferjuhöfn í Bakka-
fjöru.
Með vísun til framanritaðs
hörmum við undirritaðir tilefn-
islaus og ómakleg ummæli um
Vegagerðina og aðstoðarvega-
málastjóra.
Sturla Böðvarsson
Páll Sigurjónsson
Yfirlýsing vegna
umræðu um Land-
eyjahöfn
Sturla er forseti Alþingis.
Páll er verkfræðingur.
Fréttir á SMS