Morgunblaðið - 17.04.2008, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 47
SANDUR og sorg er heimild-
armynd sem er gerð til að hrista
upp í fólki vegna þjóðarmorðanna í
Darfur í Súdan. Hún á að fá fólk til
að mótmæla sinnuleysi stjórnvalda,
aðallega í Bandaríkjunum, og mátt-
leysi alþjóðasamfélagsins. Ég veit
ekki hvað íslenskir fjölmiðlar, eða
stjórnvöld, sögðu þegar átökin hóf-
ust í Darfur 2003. Þá bjó ég í Bret-
landi og Channel 4 News var strax
vakandi fyrir hvað var að gerast.
Ég fór því á þessa mynd með já-
kvæðu hugarfari. Allt sem reynir að
benda á að ekki hefur tekist að
binda enda á þennan óhugnað
ennþá hlýtur að teljast spor í rétta
átt.
Gefum okkur að þessi mynd sé
góðra gjalda verð. Ég ætla samt að
leyfa mér að efast um gildi hennar,
m.a. vegna þess að hún nær líklega
eingöngu til þeirra sem vilja hlusta.
Ég vissi um Darfur áður en ég fékk
mér sæti og það að hrella mig með
illa leiknum líkum með reglulegu
millibili hvetur mig ekki til að
ganga í The Save Darfur Coalition.
Það fékk mig reyndar meira til að
hugsa um hvar væri virðingin fyrir
látnu fólki. Þarf fólk að sjá 400.000
fórnarlömb þjóðarmorðs til að trúa
að það hafi átt sér stað? Kannski í
Bandaríkjunum. Annað sem sló mig
var þegar hæversk kona fór að
gráta í flóttamannabúðunum og
kvikmyndatökumaðurinn færði sig
og nánast tróð myndavélinni í and-
litið á henni til að festa tárin á
filmu. Blessuð manneskjan, átti hún
engan rétt lengur? Svona vinnu-
brögð hjálpa ekki málstað sem þarf
virkilega á stuðningi að halda.
Myndin er allt í lagi sem sam-
anþjöppuð sögukennsla og margir
drífandi persónuleikar koma þarna
fram, sumir fullir eldmóð. Það er
samt einfaldlega ekki nóg. Fram-
leiðendur hefðu átt að tala meira við
Darfur-búa sjálfa og kynnast þeim
betur. Síðan hefði verið merkileg
viðbót ef þeir hefðu fengið fulltrúa
úr ríkisstjórn Bush til að sitja fyrir
svörum.
Þurrt Ung stúlka leitar vatns í Darfur.
Dauðagildra í Darfur
KVIKMYND
Regnboginn – Bíódagar Græna
ljóssins
Leikstjóri: Paul Freedman. Þulur: George
Clooney. Fram koma: John Predergrast,
Minni Minawi, Eric Reeves, Samantha
Power, Ahmed Ali, Ahmed Ibrahim Ondo-
ua, Barack Obama, o.fl. 92 mín. Banda-
ríkin. 2007.
Sandur og sorg – Sand and Sorrow
bbbnn
Anna Sveinbjarnardóttir
TVÆR heimildarmyndir hollenska
kvikmyndaleikstjórans Johns Appel
verða sýndar í Hafnarhúsinu í kvöld
kl. 20 að viðstöddum leikstjóranum.
Myndirnar kallast The Last Victory
og The Promised Land. The Last
Victory fjallar um árlegar kapp-
reiðar sem kallast Palio og fara
fram á miðbæjartorginu í Siena á
Ítalíu. Kappreiðarnar hafa verið
stundaðar síðan á miðöldum og end-
urspegla hugmyndir um samstöðu í
hinum ólíku hverfum Siena. Hvert
hverfi á sitt eigið tákn og skjald-
armerki með tilheyrandi búningum
og fylgihlutum. Í The Promised
Land er spurt að því hver beri
ábyrgð á því þegar einhver liggur
látinn heima hjá sér í lengri tíma án
þess að nokkur gefi því gaum? Ná-
grannar, ættingjar, samfélagið eða
enginn? Eftir að hafa lesið dagblaðs-
grein um látinn einstakling í heima-
húsi ákveður leikstjórinn að
grennslast fyrir um viðkomandi.
Smám saman kemur í ljós heillandi
ævisaga hins látna.
Fyrr um daginn, eða klukkan 12,
mun Appel halda opinn fyrirlestur í
Hafnarhúsinu um gerð handrita fyr-
ir heimildarmyndir. Báðir viðburð-
irnir eru öllum opnir og aðgangur
ókeypis.
Á laugardaginn mun John Appel
svo stýra námskeiði í handritagerð
fyrir heimildarmyndir sem sér-
staklega er sniðið að fagfólki í geir-
anum. Skráningu í námskeiðið er
lokið.
Þeir sem standa fyrir sýningu
myndanna og komu leikstjórans eru
Reykjavik Documentary Workshop
og Félag kvikmyndagerðarmanna í
samstarfi við Íslensku kvikmynda-
miðstöðina og hollenska sendiráðið,
en viðburðurinn er unninn í sam-
vinnu við Listasafn Reykjavíkur.
Heimildarmyndir í öndvegi
Hollenskur leik-
stjóri miðlar af
reynslu sinni
Sjónarspil Palio-veðreiðarnar eru haldnar tvisvar ári, í júlí og ágúst. Þar
mætast hestar og knapar 17 hverfa Siena-borgar.
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
J E S S I C A A L B A
ÞAÐ GETUR VERIÐ SKELFILEGT AÐ SJÁ
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
„Vel gerð ævintýra-
og fjölskyldumynd.
Með betri slíkum
undanfarin misseri.”
- VJV, Topp5.is/FBL
eeee
Sýnd kl. 10:15 Sýnd kl. 6
- H.J., MBL
eeee
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6 m/ísl. tali
l
ATH:
Á UNDAN MYNDINNI
VERÐUR FRUMSÝNT
FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ
(TRAILER)
ÚR ICE AGE 3!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15Sýnd kl. 8 og 10:15 POWERSÝNING
DAGSKRÁ OG MIÐASALA
Á MIDI.IS
ALLAR UPPLÝSINGAR
Á GRAENALJOSID.IS
Sala á 12 mynda pössum
hafin á Miði.is
og í Regnboganum.
BÍÓDAGARREGNBOGINN11.-30. APRÍL
GRÆNA LJÓSSINS
10:15
-bara lúxus
Sími 553 2075
FALLEG
- S.V., MBL
- S.V., MBL
eee
- H.J., MBL
- V.J.V.,
TOPP5.IS/FBL
“Tryllingslegt hnefahögg
í andlitið!”
- S.V., MBL
- K.H.G., DV
Tropa de Elite enskur texti kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
King of Kong íslenskur texti kl. 8 Leyfð
The Band’s Visit enskur texti kl. 8 Leyfð
Caramel enskur texti kl. 6 Leyfð
Beufort enskur texti kl. 5:40 B.i. 14 ára
Bella enskur texti kl. 6 Leyfð
The Age og Ignorance enskur texti kl. 6 Leyfð
Surfwise sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 8 Leyfð
Lake of Fire sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 10 B.i. 14 ára
War/Dance sýnd á myndvarpa - ótextuð, enskt tal kl. 10 Leyfð
Sand and Sorrow ótextuð, enskt tal kl. 10 B.i. 16 ára
- A.S., MBL
- H.J., MBL
- A.S., MBL
CARAMEL
- S.V., MBL
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
endurgreitt
í Regnboganum