Morgunblaðið - 24.04.2008, Page 3
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Borgartúni 10-12 ı 105 Reykjavík. Sími þjónustuvers er 411 1111. www.reykjavik.is/fer
Vorin eru mikill annatími hjá þeim sem sinna hreinsun borgarinnar. Nýliðinn vetur var snjóþungur og sjaldan gafst tækifæri til að
sópa og ryksuga. Framundan eru næg verkefni og má til dæmis nefna hreinsun á umferðarmerkjum, hreinsun opinna svæða og
sérstakt átak er í gangi til að fjarlægja veggjakrot. Vorhreinsun gatna og göngustíga er hafin og henni lýkur fyrir mánaðamót.
Um leið og Framkvæmda- og eignasvið setur aukinn kraft í hreinsun borgarinnar hvetjum við íbúa og fyrirtæki til að taka til
hendinni á eigin lóðum og sameiginlegum reitum til að gera borgina enn fallegri. Alla næstu viku verða starfsmenn hverfastöðva
á ferðinni og fjarlægja greinar og garðaúrgang sem settur hefur verið við lóðamörk.
Samtakamáttur í hverfum birtist oft í tiltektardögum og þar hafa hverfastöðvarnar lagt íbúum lið. Árvekni íbúa er lofsverð og til að
opna henni farveg höfum við tekið til í boðleiðum okkar. Við vekjum sérstaka athygli á 1, 2 og Reykjavík sem er að finna á vef
Reykjavíkurborgar - www.reykjavik.is. Einnig er nú hægt að ná sambandi við allar hverfastöðvar í einu símanúmeri: 411 11 11.
Um leið og við óskum Reykvíkingum gleðilegs sumars þökkum við fyrir hvatningu, stuðning og ábendingar.
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar fer með ábyrgð á verklegum framkvæmdum borgarinnar og annast samskipti vegna þeirra.
Bygging, rekstur og viðhald mannvirkja í eigu borgarinnar er kjarni starfsins. Undir Framkvæmda- og eignasvið heyrir eignasjóður en í honum
eru allar eignir Reykjavíkurborgar.
Framkvæmda- og eignasvið er öflug stoð fyrir fagsvið Reykjavíkurborgar og starfsumhverfi þess mun líkjast því að um sjálfstætt fyrirtæki sé að
ræða. Með þessu nýja fyrirkomulagi er stefnt að auknu gegnsæi í kostnaði og að kostnaðarvitund innan borgarkerfisins muni aukast.
Nú hreinsum við borgina eftir veturinn!
Gleðilegt
hreint sumar!
Nýtt Framkvæmda- og eignasvið
Hreinsun
gangstíga
Tiltekt íbúa
Götuþvottur
Þrif
umferðarmerkja
Hirðing
trjágreina
Hverfahreinsun
Hreinsun
veggjakrots
Tyrfing
Endurbætur
gatnakerfis
Sláttur
FR
A
04
08
-0
4
hr