Morgunblaðið - 24.04.2008, Síða 14
Eftir Ólaf Bernódusson
Skagaströnd | Pálsfiskur
(Zenopsis conchifera) kom í
trollið hjá Arnari HU 1 í síð-
asta túr. Fiskurinn, sem
veiddist á Grindavíkurdýpi,
er um 30 sm langur og því
ungur fiskur þar sem full-
vaxnir geta pálsfiskar orðið
80 cm langir.
Pálsfiskur er afar sjald-
gæfur við Íslandsstrendur enda
þótt hann veiðist á strandsvæðum
við Atlantshaf og sé einnig í Ind-
landshafi og við Ástralíu. Fiskur-
inn er silfurlitur, með dökka bletti
á flötum búk og með harða geisla í
uggunum. Þá er röð af horntönn-
um meðfram bakugga og rauf-
arugga beggja vegna á fiskinum.
Hann er miðsjávar- og botnfiskur á
heimaslóðum sínum þar sem hann
veiðist töluvert.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Pálsfiskur í trollið hjá Arnari
Furðufiskur Pálsfiskur er þunn-
vaxinn og höfuðstór.
14 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Eftir Líneyju Sigurðardóttur
Þórshöfn | Lífið á Þórshöfn á
Langanesi snýst núna um gráslepp-
una og höfnin iðar af lífi flesta daga.
Blíðviðri hefur verið undanfarið,
stillur og skínandi vorsól.
Grásleppukarlar eru þokkalega
ánægðir með veiðina það sem af er
vertíð. Átta grásleppubátar eru
gerðir út frá Þórshöfn þetta vorið.
Lítið fer fyrir annarri veiði því
hrygningarstopp er í tvær vikur inn-
an þriggja mílnanna á meðan þorsk-
urinn er í sínu árlega fæðingarorlofi.
Á vegum Hafrannsóknarstofn-
unarinnar er svo einn bátur á neta-
ralli í Þistilfirðinum í nokkra daga.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Bryggjuspjall Það er fjörugt við höfnina þegar bátarnir koma að, sjómenn
og landkrabbar ræða landsins gagn og nauðsynjar í vorblíðunni.
Höfnin iðar af lífi á
grásleppuvertíðinni
Sjávarútvegssýningarnar European
Seafood Exposition (ESE) og Sea-
food Processing Europe (SPE) hóf-
ust í Brussel í byrjun vikunnar en
þessar sýningar eru vettvangur alls
hins besta og framsæknasta sem
sjávarútvegsfyrirtæki heimsins og
fyrirtækja sem þjónusta sjávarút-
veginn hafa upp á að bjóða.
,,Sjávarútvegssýningin í Brussel
er sú langstærsta sem haldin er í
heiminum í dag og þangað koma
kaupendur frá öllum heimshornum.
Aðrar sýningar komast ekki í hálf-
kvisti við Brussel-sýninguna og
reynsla okkar af þátttöku er mjög
góð,“ segir Svavar Svavarsson,
markaðsstjóri HB Granda, á heima-
síðu félagsins. Svavar stendur vakt-
ina í Brussel ásamt fleiri starfs-
mönnum fyrirtækisins.
Ánægðir með árangurinn
Að sögn Svavars er Brussel mik-
ilvægur vettvangur til að kynna HB
Granda sem öflugan útflytjanda og
birgi fyrir sjávarafurðir. Ekki er
svo langt síðan að HB Grandi tók
alfarið yfir markaðssetningu afurða
sinna, sem ýmis sölusamtök sáu um
áður, og segir Svavar að það hafi
eðlilega tekið nokkurn tíma að
vinna fyrirtækinu sess á erlendum
mörkuðum sem sjálfstæður útflytj-
andi sjávarafurða. ,,Við erum
ánægðir með árangurinn og okkar
starf nú felst að hluta til í að við-
halda og styrkja tengslin við við-
skiptavini okkar á mörkuðum nær
og fjær auk þess sem við sækjum
fram á nýjum markaðssvæðum.
Sýningin í Brussel er góður vett-
vangur til þess. Við höfum áður
stofnað til nýrra viðskiptasambanda
í Brussel eða í kjölfar sýningarinnar
þar og væntum þess að svo verði
einnig að þessu sinni, segir Svavar
Svavarsson.
Ráðherra í heimsókn
HB Grandi tekur nú þátt í ESE í
fjórða skipti og meðal þeirra sem
heimsóttu sýningarbás fyrirtækis-
ins var Einar K. Guðfinnsson, land-
búnaðar- og sjávarútvegsráðherra.
Fjölmenni var við opnun sjávarút-
vegssýninganna en þær draga að
árlega sýnendur og kaupendur alls
staðar að úr heiminum. Þátt í ESE-
sýningunni taka rúmlega 1.600 fyr-
irtæki frá 87 þjóðlöndum og sýn-
endur á SPE-sýningunni, sem er
vettvangur véla- og tækjaframleið-
enda, eru um 200 talsins frá 22
löndum. Fjöldi íslenzkra fyrirtækja
tekur þátt í sýningunum báðum.
Ánægðir með árang-
urinn af sýningunni
HB Grandi eitt fjölmargra fyrirtækja sem sýna í Brussel
Sýningar Grandamennirnir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB
Granda, og Svavar Svavarsson markaðsstjóri með sjávarútvegsráðherra,
Einari Kristni Guðfinnssyni, á evrópsku sjávarútvegssýningunni í Brussel.
Hertz Car Rental
Flugvallarvegi
101 Reykjavik, Iceland
hertz@hertz.is
Tel. +354 522 44 00
Fax. +354 522 44 01 www.hertz.is
Taktu tvöfalda
vildarpunkta
með þér í fríið
1000
Vildarpunktar
Bókaðu bílinn fyrir 1. maí á
www.hertz.is og fáðu 1000 vildarpunkta
hjá Vildarklúbbi Icelandair.
Tilboðið gildir til 1. maí.
Hertz hefur yfir 7600 afgreiðslustaði í 146 löndum.
Morgunblaðið, í samstarfi við
Heimsferðir, býður áskrifendum
sínum frábært tilboð á vikuferð til
Montreal í Kanada 23. maí eða
6. júní. Einnig frábært tilboð á
vikuferð til hins einstaka sumar-
leyfisstaðar Mont Tremblant í
nágrenni borgarinnar. Sumarið er
frábær tími í Montreal og nágrenni,
svæðið allt í blóma og skartar sínu
fegursta. Vert er að benda á að
8. júní er Formúla 1 kappakstur í
Montreal og sérstaklega mikið um
að vera í borginni á þeim tíma.
Áskrifendum býðst nú einstakt
tækifæri til að kynnast þessum
slóðum. Í boði eru góðir gististaðir
og spennandi kynnisferðir um
borgina með fararstjórum Heims-
ferða.
23. maí eða 6. júní
Kanada
frá aðeins kr. 29.990*
Montreal eða Mont Tremblant
Þú spa
rar all
t að
kr. 30
.042
á man
n
Þú mætir með miðann sem fylgdi Morgunblaðinu 19. apríl til Heimsferða,
Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra.
Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is
Frábært sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
Montreal - Verðdæmi – VIKUFERÐ 23. maí eða 6. júní
(nánar á www.heimsferdir.is)
Áskr. verð frá Alm. verð Þú sparar allt að
23. maí
Flugsæti(netverð m/sköttum) 29.990 40.635 10.645
Hotel Travelodge **+ 49.990 73.890 23.900
Hotel Les Suites Labelle *** 54.990 84.290 29.300
** Hotel Delta Centre de Ville **** 69.990 90.264 20.274
Innifalið í verði pakka: Flug, skattar, gisting í 7 nætur og íslensk fararstjórn, vikuferð 23. maí. Athugið að ferð 6. júní kostar
kr. 20.000 aukalega (verð gistingar eru mun hærri vegna Forrmúlu 1 á þessum tíma). Verð er netverð á mann í tvíbýli.
Ath. morgunverður er ekki innifalinn í verði á Hotel Delta Centre de Ville.
Mont Tremblant - Verðdæmi – VIKUFERÐ 6. júní
(nánar á www.heimsferdir.is)
Hotel La Tour des Voyageurs **** 48.745 78.787 30.042
Innifalið í verði pakka: Flug, skattar og gisting í 7 nætur. Verð er netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára,
í herbergi í viku, 6.-13. júní.
*) Ath aðeins fyrstu 50 sætin á hvorri dagsetningu.
**) Hotel Delta Centre de Ville er ekki í boði í ferð 6. júní.
• Glæsilegir skemmtigarðar
• Fjörugt næturlíf
• Frábært að versla
• Himnaríki sælkerans
• Einstakt loftslag
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
3
22
1