Morgunblaðið - 24.04.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 24.04.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 17 STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári 2008-2009. Veittur er styrkur að upphæð kr. 600 000. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 1. júní nk. til formanns sjóðsins: Arnar Jóhannssonar, pósthólf 8620, 128 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands voru að vissu leyti há- tíðartónleikar þar sem farsælt sam- starf hins 60 ára gamla Tónlistar- skóla á Akureyri og fimmtánda ári hljómsveitarinnar var fagnað með „gígjum og bumbum“ á veglegan og glaðbeittan hátt. Raunar markaði Tónlistarskólinn sér snemma þá stefnu að hlúa sem best að hljómsveitarstarfi. Það var mikið lán að framsýnir kennarar og góðir hljóðfæraleikarar studdu við bakið á sínum nemendum með því að leika með þeim og leiða þá í hljómsveitarspili. Kammersveit Akureyrar sem for- veri Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands var skipuð að stórum hluta af kennurum Tónlistarskólans og enn eru það kennarar skólans og þeir nemendur sem lengst eru komnir í námi sem mynda kjarna hennar. Þegar rætt er um árangur af námi í tónlistarskólunum miðað við kostnaðinn, sem mörgum þykir óheyrilegur, gleymist oft að öflugt starf tónlistarmanna vítt um land í leik og kennslu er ekki síst árangri þessara skóla að þakka. Mér telst svo til að hátt í hundrað starfandi tónlistarmenn í landinu hafi stund- að nám við Tónlistarskólann á Ak- ureyri. Þrjátíu nemenda liðsauki barst Sinfóníuhljómsveit Norðurlands úr tónlistarskólum beggja vegna Tröllaskagans að þessu sinni og var mér einkar kært að heyra hve mik- ill hljómur og góður bættist við þegar hersingin var öll saman kom- in. Efnisskráin var við alþýðuhæfi og verkin flest á hita(hit)-lista sí- gildrar tónlistar. Áhrifamest á þessum tónleikum fannst mér túlkun Vilhjálms Inga vera á einleikshlutverki í hinum fræga trompetkonsert eftir Hay- den. Breiður og mjúkur tónn hans var mikið eyrnakonfekt. Tækni hans, hvort sem var á hröðum sköl- um eða á löngum og veikum tónum, var óskeikul. Öryggi hans og túlkun var svo sem best verður á kosið. Það er hvetjandi fyrir starfsemi Tónlistarskólans á Akureyri að geta státað af því að hafa ýtt slíkum manni af stað út í tónlistarheiminn. Mér fannst hljómsveitin vera of dauf í svörun sinni við þessum líf- lega leik. Raunar fannst mér einnig að Pulcinella-svítuna skorti þann blóðhita og ögrun sem gerir verkið spennandi. Carmen-svítan fékk verulega blóðgjöf og var oft með fínum sprettum. Ef til vill hefðu þættirnir sem minna eru þekktir þarfnast meiri æfinga hjá þeim sem ekki eru komnir í gír atvinnu- manna. Mikill og einlægur fögnuður ríkti í lokin og þakkaði hljómsveitin með því að endurtaka Sverðdansinn glæsilega á enn glaðbeittari hátt. Bravúr trompetleikur TÓNLIST Tónleikar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt nemendum úr tónlistarskólum Akureyrar, Dalvíkur, Eyjafjarðar og Skagafjarðar. Á efnisskrá: Forleikur að Nabucco eftir Verdi, Þrjú norsk þjóðlög op. 17 eftir Grieg, Ungverskur dans nr. 5 eftir Brahms, Sverðdansinn eftir Khachat- urian, Trompetkonsert Haydens. Pulc- inella-svítan eftir Stravinsky og Carmen- svíta nr. 1 og 2 eftir Bizet. Einleikari á trompet: Vilhjálmur Ingi Sigurðsson. Konsertmeistari. Martin Lazarz. Hljóm- sveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunn- arsson. Sunnudaginn 20. apríl kl. 16. Sinfónískir tónleikar í íþróttasal Gler- árskóla á Akureyri bbbbn Jón Hlöðver Áskelsson Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stórgóðir tónleikar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á æfingu í fyrra. EIRÍKUR Örn Norðdahl hlaut í gær Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir þýðingu sína á bókinni Móð- urlaus Brooklyn. Verðlaunin voru afhent á Gljúfrasteini, á afmæli Halldórs Laxness. Ekki náðist í Ei- rík í gær áður en blaðið fór í prent- un. Í umfjöllun sinni um þýðingu Ei- ríks í Lesbók Morgunblaðsins síð- asta laugardag sagði Hjörvar Pét- ursson meðal annars: „Honum ferst verkið hér vel úr hendi, íslenski textinn er kankvís og strákslegur og á það til að hlaupa út undan sér, rétt eins og sögumaður sjálfur. Sér- staklega er gaman að sjá Eirík sleppa fram af sér beislinu þegar málfarskækir Lionels fara á flug. Þá fær merkingin í þýðingunni oft að fjúka og í staðinn er lögð áhersla á að ná réttri fónetík og hrynjandi, jafnvel svo að þýðandinn grípur fastataki hvað sem hendi er næst til að fanga það áráttukennda hugs- anaflæði sem vellur út úr frumtext- anum, meira að segja brjóstin á sjálfu tálkvendinu eru toguð út í flauminn: „Screwtony! Nertscrony! Screwtsony! Tootscrewny!“ verður að „Skíttmeðtony! Nýttmeðskóný! Skíttíróní! Túttugóní!““. Tilnefnd voru auk Eiríks þau Friðrik Rafnsson fyrir Brandarann eftir Milan Kundera, Jón Kalman Stefánsson fyrir Loftskeytamann- inn eftir Knut Hamsun, Sigrún Kr. Magnúsdóttir fyrir Módelið eftir Lars Saabye Christensen og Sig- urður Pálsson fyrir Skíðaferðina eftir Emmanuel Carrère. Í dóm- nefnd voru Silja Aðalsteinsdóttir, Fríða Björk Ingvarsdóttir og Árni Matthíasson. Þýðingarverðlaunin til Eiríks Arnar Morgunblaðið/hag Á Gljúfrasteini Herdís Hubner, móðir Eiríks, tók við verðlaununum fyrir hans hönd á Gljúfrasteini í gær, úr hendi forseta Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.