Morgunblaðið - 24.04.2008, Side 18

Morgunblaðið - 24.04.2008, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGIN REISUGILDI var haldið í menning- arhúsinu Hofi í gær og sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, m.a. við það tækifæri, að þegar væru farnar að berast pantanir um ráð- stefnur og fundi í húsinu allt fram til haustsins 2010. Kvaðst hún eiga von á að húsið yrði vinsælt til slíks brúks. „Það er að vissu leyti undarleg til- finning að standa hér í dag í Hofinu okkar sem risið hefur hægt og bít- andi, jafnt og þétt, upp úr jörðinni og hefur nú gjörbreytt ásýnd Akureyr- ar, er strax orðið eitt af kennileitum bæjarins. Þessi kastali – þessi höll sumarlandsins – sem við trúum að muni einnig gjörbreyta öllu mannlífi í höfuðborg hins bjarta norðurs. Er full ástæða til að óska okkur öllum til hamingju með það hvernig til hefur tekist,“ sagði Sigrún Björk þegar hún ávarpaði viðstadda. Það var árið 1999 sem ríkisstjórn- in ákvað að veita stofnstyrki til upp- byggingar menningarhúsa utan höf- uðborgarsvæðisins. Í febrúar 2003 samþykkti ríkisstjórnin að veita ein- um milljarði kr. til byggingar menn- ingarhúsa á Akureyri og í Vest- mannaeyjum og samningur Akureyrarbæjar og menntamála- ráðuneytisins var undirritaður í apríl sama ár. Þá var skipuð verkefnis- stjórn, sem ætlað var að gera tillögu um starfsemi í fyrirhuguðu menn- ingarhúsi og gera rýmisáætlun og tímaáætlun um framkvæmdina í heild sinni. Að tillögu verkefnis- stjórnarinnar var farið í hönnunar- samkeppni um húsið og skipuð dóm- nefnd með aðilum bæði frá ríki og bæ. Alls bárust 33 tillögur að húsinu sem í tóku þátt arkitektar í níu lönd- um. „Ákveðið var að við mat á tillögum yrði höfuðáhersla lögð á byggingar- list, innra fyrirkomulag, hagkvæmni í rekstri, byggingarkostnað, aðgeng- is- og öryggismál, fyrikomulag á lóð og umhverfisþætti. Tilgangur sam- keppninnar var að fá snjallar og raunhæfar tillögur að fallegri bygg- ingu sem fellur vel að umhverfi sínu,“ sagði Sigrún Björk í gær. Niðurstaða samkeppninnar var að nota og útfæra tillögu arkitektastof- anna Arkþings og Arkitema í Dan- mörku. Við hönnun tók húsið verulegum breytingum frá því sem upphaflega var áætlað, stækkaði t.d. úr 3500 fm í 7000 fm; bætt var við einni hæð og ákveðið flytja starfsemi Tónlistar- skóla Akureyrar í húsið. Þá var bætt við kjallara. Við athöfnina í gær lék hluti Sin- fóníuhljómsveitar Norðurlands tvö lög undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarsson, en hljómsveitin verður með aðsetur í húsinu. „Í Hofinu okk- ar kemur til með að verða mjög fjöl- breytt starfsemi,“ sagði bæjarstjór- inn í gær. „Hér verður tónlistar- skólinn á efstu hæðunum en í öðrum rýmum verður meðal annars að finna veitingastað, upplýsingamiðstöð ferðamanna og Akureyrarstofu. Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands og Leikfélagið verða hér með sína við- burði og ég á von á að húsið verði vinsælt til ráðstefnu og fundarhalda. Nú þegar eru farnar að berast pant- anir fyrir ráðstefnuhald í Hofi allt fram til haustsins 2010 – í þessum geira er ekki ráð nema í tíma sé tek- ið.“ Kristján Þór Júlíusson, fyrrver- andi bæjarstjóri, hvatti bæjarbúa í gær til að vera stolta af verkinu og hætta tali um að það væri of dýrt. „Þetta er verkefni sem á eftir að margfaldast í virði fyrir bæjarbúa á komandi árum og það er ákaflega góð innspýting í það öfluga menning- arlíf sem hér er. Ég er sannfærður um að þessar raddir þagna mjög fljótt, og verkefnið verður prísað og lofað þegar það fer að bera þann ávöxt sem tíð ætlumst til.“ „Hof gjörbreytir ásýnd Akureyrar“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Höll sumarlandsins Hof mun gjörbreyta öllu mannlífi í höfuðborg hins bjarta norðurs, sagði bæjarstjórinn. Morgunblaðið/Skapti Sá stóri Séð ofan af „svölum“ aðalsalarins, sem taka mun 500 manns í sæti. Í HNOTSKURN »Í samkeppni sem haldin var íársbyrjun 2007 bárust 338 til- lögur að 241 nafni. Tveir stungu upp á nafninu Hof, þau Aðal- björg Sigmarsdóttir og Heimir Kristinsson, og var það einróma álit nefndar sem skipuð var, að leggja til að það yrði notað. Pantanir hafa borist um ráðstefn- ur haustið 2010 AKUREYRI Reykjavík Vesturbær: Fjölskyldudagskrá á vegum Vesturbæj- arlaugar og sunddeildar KR kl. 10-12, frítt í sundlaugina meðan á dagskrá stendur. Helgistund í Neskirkju kl. 13. Skrúðganga frá Melaskóla kl. 13.30. Fjölskylduskemmtun við Frostaskjól kl. 14-15.30. www.frosta- skjol.is Austurbær: Sameiginleg fjölskylduhátíð Tónabæjar og Þróttheima í Tónabæ kl. 13-15. Fjölskylduhátíð í Víkinni kl. 14-16. Grill við Grímsbæ kl. 12-13, skrúðganga kl. 13.15 frá Grímsbæ í Bústaðakirkju og þaðan haldið í Víkina. www.tonabaer.is Breiðholt: Fjölskylduskemmtun í Miðbergi kl. 14. Skrúðganga frá Fjölbrautaskólanum í Breið- holti kl. 13 með viðkomu í Fella- og Hóla- kirkju. Fjölskylduskemmtun í Hólmaseli kl. 14. Skrúðganga frá Þinni verslun kl. 13 með við- komu í Seljakirkju. www.midberg.is Árbær: Ásinn í Árbænum (við Bónus, bókasafnið og banka). Fjölskylduskemmtun kl. 14-16. Skrúðganga frá Árbæjarsafni kl. 12.15 með viðkomu í Árbæjarkirkju. www.arsel.is Grafarvogur: Fjölskylduskemmtun við Rimaskóla í Grafarvogi kl. 13.30. Skrúðganga frá Spöng og Íþróttamiðstöð Grafarvogs kl. 13. Frí- stundaheimilin í Grafarvogi opin, uppskeru- hátíð og andlitsmálun kl. 10.30-12 30. Fólk- vangur á Kjalarnesi: Fjölskylduskemmtun kl. 13-17. Frítt í sundlaugina. www.gufunes.is. Kópavogur Að gömlum og góðum sið verður sumri fagnað með skátamessu í Digraneskirkju kl. 11, skrúðgöngu sem leggur af stað kl. 13.30 frá Digraneskirkju og hátíðahöldum í Smár- anum fyrir alla fjölskylduna sem hefjast kl. 14. Kynnar verða trúðarnir Búri og Bína. Sumardagurinn fyrsti er skátadagur og hefur skátafélagið Kópar veg og vanda að því sem í boði verður. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.kopavogur.is. Garðabær Dagskrá sumardagsins fyrsta er að vanda í umsjá skátafélagsins Vífils. Sumardagurinn er um leið afmælisdagur félagsins og er þetta sá fertugasti og fyrsti. Dagskráin hefst með skátaguðsþjónustu í Vídalínskirkju kl. 13. Þar endurnýja skátar skátaheitið og veittar eru viðurkenningar fyr- ir vel unnin störf. Skrúðgangan hefst kl. 14 og verður gengið frá Vídalínskirkju að Hofsstaðaskóla. Skáta- foringjar úr Vífli munu sjá um fánaborg í skrúðgöngunni og sér Blásarasveit Garða- bæjar um göngutaktinn og hressan undirleik. Við Hofsstaðaskóla mun lúðrasveitin leika nokkur lög og að því loknu hefst skemmti- dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi, t.d. þrautabraut, leiktæki, söngur og skemmtiatriði. Trúðarnir Binni og Bína kíkja í heimsókn auk söngatriðis. Hofsstaðaskóli verður opinn og skátatertu- hlaðborð Vífils. Kaffisalan verður í sam- komusal skólans. Hægt er að kynna sér dag- skrána á www.gardabaer.is. Hafnarfjörður Á sumardaginn fyrsta mun bærinn klæðast hátíðarbúningi í tilefni af 100 ára kaupstað- arafmæli sínu. Afmælisfánar verða dregnir að húni og sett verða upp ný og glæsileg bæj- armarkaskilti. Ferðaþjónustuaðilar munu einnig skarta sínu besta og bjóða upp á skemmtilega dagskrá. Frítt verður í Sundhöll Hafnarfjarðar (opin frá kl. 8 til 12) og Suðurbæjarlaug (opin frá kl. 8 til 17.30) allan daginn. Allir Hafnfirðingar og aðrir gestir eru hvattir til þess að skella sér í sund og taka léttklæddir á móti sumrinu. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá verður í boði þennan dag og má þar helst nefna: Fjöl- skyldudagskrá á Thorsplani (miðbæ Hafn- arfjarðar) í umsjá Hraunbúa, skátafélags Hafnarfjarðar, smalakeppni hjá Íshestum, víkingabardaga á Fjörukránni, hið árlega víðavangshlaup, tónleika með Bubba Morth- ens og margt fleira. Gestir eru hvattir til að heimsækja Þjónustuver Hafnarfjarðar og kynna sér afþreyingu og dagskrá. Hafnfirðingar eru höfðingjar heim að sækja og bjóða öllum að koma til Hafnarfjarðar og taka á móti sumrinu í góðum félagsskap. Hægt er að kynna sér dagskrána á www.hafnarfjordur.is. Mosfellsbær Dagskrá sumardagsins fyrsta fer að mestu fram við Lágafellsskóla. Skrúðganga leggur af stað frá Bæjarleik- húsinu kl. 13. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tekur á móti göngunni við Lágafellsskóla. Sjoppa – tívolí – hoppkastali – gullkista – spákona – og margt fleira Kaffisala og skemmtun í matsal Lágafells- skóla. Sr. Kjartan Jónsson flytur blessunar- orð. Greta Salóme Stefánsdóttir og Hákon Bjarnason spila á fiðlu og píanó. Leikfélag Mosfellsbæjar. Sigurvegari söngvakeppni Samfés, Stefanía Svavarsdóttir, syngur sig- urlagið. Frá hæfileikakeppni Bólsins: Eyrún og Harpa, sirkus- og dansatriði. Agnes Eir og Telma Rut, dansatriði. Fjöldasöngur. Leikfélag Mosfellsbæjar í Bæjarleikhúsinu. Kl. 15 verður haldin barnaskemmtun í Bæj- arleikhúsinu. M.a. á dagskrá er Þorri og Þura, Naglasúpan, Amma segir sögur, Nýju fötin keisarans og Bakkabræður. Miðaverð er 500 kr. Miðapantanir í síma 566-7788. Hægt er að kynna sér dagskrána á www.mosfellsbaer.is. Seltjarnarnes Ferðalangur á sumardaginn fyrsta, kaffi- veitingar í Gróttu milli kl. 13 og 15. Ferðalöngum er boðið inn í kaffi og kleinur. Þá verður einnig opið upp í vitann þar sem hægt er að líta útsýnið yfir Seltjarnarnesið, Reykjavíkina, Skagann, fjöllin og sjóinn svo langt sem augað eygir og veðurskilyrði leyfa. Frítt fyrir alla; börn, konur og karla. Grótta, Seltjarnarnesi. Nánari upplýsingar á vefsíð- unni www.ferdalangur.is. Fjölbreytt hátíðahöld á sumardaginn fyrsta Morgunblaðið/hag Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur í hverfum borgarinnar fimmtudaginn 24. apríl. Hér að neðan má sjá dag- skrána í grófum dráttum en nánari upplýsingar er að finna á viðkomandi heimasíðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.