Morgunblaðið - 24.04.2008, Qupperneq 48
FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 115. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Átök við Suðurlandsveg
Fimm meiddust í átökum lögreglu
og atvinnubílstjóra á Suðurlands-
vegi í gær, þar af fjórir úr röðum
mótmælenda og einn lögreglumað-
ur. Lögreglan beitti piparúða gegn
mönnunum. Yfir 20 voru teknir
höndum og lagt hald á 16 bíla.
»Forsíða
Fleiri á vinnualdri
Hlutfall fólks á aldrinum 20-64
meðal landsmanna, þ. e. fólks á
vinnualdri, hefur aldrei verið hærra,
59,9%. Skýringin er fjölmennir ár-
gangar frá sjötta og sjöunda ára-
tugnum og fjölgun útlendinga sem
eru flestir á umræddum aldri. »4
Dæmt fyrir kynferðisbrot
Hæstiréttur hefur dæmt karl-
mann á fimmtugsaldri til fjögurra
ára fangelsisvistar fyrir kynferð-
isbrot gegn sex ungum stúlkum, þar
af þrem frænkum mannsins. »2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Óskiljanlegur
hringlandaháttur
Forystugreinar: Úr böndum |
Þjóðarsjóður
Ljósvaki: Ljúfir tónar um allt land
UMRÆÐAN»
Þjónusta Rvk. við geðfatlaða …
Ótrúverðugt upphlaup minnihluta …
Steingrímur stal senunni
Að bregða undir sig betri fætinum
Skuldaaflausn skilar árangri í Afríku
Skipulag snýst um lífsgæði
Indland á suðupunkti
Svipmynd af Jenný Rut í Noregi
VIÐSKIPTI»
3 3 3
3 3 3 3
3
4 ' !5#$
/
#+
!
6
##"#
1# 3 3 3 3 3
3 3 3
- 7
)1 $
3 3
3 3
3
3 3 3
89::;<=
$>?<:=@6$AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@$7#7<D@;
@9<$7#7<D@;
$E@$7#7<D@;
$2=$$@"#F<;@7=
G;A;@$7>#G?@
$8<
?2<;
6?@6=$2+$=>;:;
Heitast 13 °C | Kaldast 5 °C
A 5-10 m/s en hægara
á N- og A-landi. Skýjað
með köflum f. norðan
og þokuloft við strönd-
ina, smáskúrir syðra. » 10
Patreksfjörður er
verulega sjarm-
erandi staður fyrir
kvikmyndahátíð á
borð við Skjaldborg
2008. »42
AF LISTUM»
Menning á
norðurhjara
KVIKMYNDIR»
Gamlir refir verða með á
Cannes. »41
Fatahönnunarfélag
Íslands sýnir þver-
skurð af hönnun
sinni í Hafnarhúsinu
á morgun og laug-
ardag. »40
HÖNNUN»
Hugrakkir
hönnuðir
FÓLK»
Býsna vegleg afmælis-
veisla Suri. »47
TÓNLIST»
Dillandi djass í Garðabæ
um helgina. »45
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Lögreglumaður á slysadeild
2. Lögregla beitir táragasi
3. Eggjakast og nasistabúningar
4. Mótmælin virtust stjórnlaus
Íslenska krónan styrktist um 1%
FJÓRMENNINGARNIR í Sigur Rós eru
þessa dagana staddir í hinu fornfræga hljóðveri
Abbey Road Studios í London ásamt upp-
tökustjóranum Flood. Þar vinna þeir að upp-
tökum á fimmtu breiðskífu sveitarinnar sem
mun vera komin langt á leið. Þegar Morg-
unblaðið hafði samband við Orra Pál Dýrason,
trommuleikara sveitarinnar, í gær stóðu yfir
upptökur á strengjasveit og barnakór í Hljóð-
veri 1 en það mun vera sérhannað fyrir stórar
hljómsveita- og kóraupptökur. Það var hins
vegar í Hljóðveri 2 sem Bítlarnir unnu á ár-
unum 1992-1970. Orri segir að það hafi sann-
arlega verið áhrifaríkt að stíga þar inn fæti og
snerta á sömu hljóðfærum og Bítlarnir notuðu
við sínar tónsmíðar.
Opinber útgáfudagur plötunnar hefur ekki
verið ákveðinn en gera má ráð fyrir að hún komi
út í sumar. Hljómur hennar mun vera töluvert
frábrugðinn fyrri breiðskífum Sigur Rósar auk
þess sem von er á að söngtextar laganna verði
almenningi auðskiljanlegri en á fyrri plötum.
Sigur Rós í
Abbey Road
ACTAVIS og Róbert Wess-
man forstjóri voru í fyrradag
viðfangsefni svonefnds
greiningardæmis (e. Case
Study) við Harvard Business
School. Eftir því sem næst
verður komist er þetta í
fyrsta skipti sem íslenskur
stjórnandi er sérstakt við-
fangsefni slíks greining-
ardæmis við Harvard.
Róbert var viðstaddur þegar kennarinn,
dr. David Isenberg, fjallaði um Actavis í
kennslustund og tók þátt í umræðum um fyr-
irtækið og svaraði spurningum frá nem-
endum sem voru um 110 talsins. Hann segir
þetta hafa verið mjög ánægjulega reynslu. Is-
enberg segir að Róbert og Actavis séu gott
dæmi til að læra af. | Viðskipti
Róbert
Wessman
Róbert Wessman og
Actavis í Harvard
KOMU sumarsins er fagnað í dag. Sumir kjósa að
fara í skrúðgöngu í tilefni dagsins, en aðrir fá sér
ís. Enn öðrum dettur kannski í hug að taka Helgu
Björgu Þorsteinsdóttur sér til fyrirmyndar og
blása sápukúlur í tilefni sumarkomunnar.
Vafalaust velta margir því fyrir sér hvort frost
hafi verið í nótt, því íslensk þjóðtrú segir að ef
sumar og vetur frjósi saman boði það gott sumar,
en með því er átt við að hiti fari niður fyrir frost-
mark aðfaranótt sumardagsins fyrsta.
Gleðilegt sumar
Sumardeginum fyrsta fagnað með sápukúlum
Morgunblaðið/hag
SIR Willard White syngur reglulega í stærstu
óperuhúsum heims og er með þekktari bassa-
barítónum heimsins í dag. White heldur tónleika í Ís-
lensku óperunni á þriðjudaginn sem bera yfirskrift-
ina „Kvöldstund með Willard White – til heiðurs
Paul Robeson“. Robeson var bandarískur söngvari
og leikari en auk þess ötull baráttumaður fyrir
mannréttindum snemma á 20. öldinni. Þekktastur
varð hann fyrir að syngja svokallaða negrasálma.
White söng hlutverk Porgy í Porgy og Bess á
plötu sem hlaut Grammy-verðlaun árið 1977. Hann
var aðlaður af Elísabetu Englandsdrottningu árið
2004 og hlaut æðstu heiðursorðu Jamaíku árið 2000
en hann er fæddur og uppalinn í höfuðborginni
Kingston. Tónleikar White til heiðurs Robeson hafa
farið sigurför um heiminn en á þeim er m.a. boðið
upp á negrasálma, rússnesk lög, þjóðlög frá Bret-
landseyjum og gömul djasslög. | 16
Sungið til heiðurs bar-
áttumanninum Robeson
Hinn heimskunni bassabarítón sir Willard White
heldur tónleika í Íslensku óperunni 29. apríl
Bassabarítón Sir Willard White hlakkar til að
koma til Íslands þó svo að dvölin verði stutt.
♦♦♦
„MÉR finnst ég ekki skera
mig jafnmikið úr í Sambíu
og á Íslandi,“ segir Erna
Kanema Mashinkila sem er
ósköp venjuleg tíu ára
stelpa sem gengur í Háteigs-
skóla, spilar á þverflautu og
finnst gaman að dansa.
Stundum finnur hún þó að
það er meira horft á hana en
aðra. Erna er enda ríkari en
margur því hún á tvö föð-
urlönd, mamma hennar er íslensk og pabbi
hennar frá Sambíu. Erna segir margt ólíkt
með löndunum, t.d sé fólkið í Sambíu mun
vinalegra og fjörugra.
Í kvöld ber til tíðinda hjá Ernu því þá verður
sýnd í sjónvarpinu heimildarmynd um aðra
heimsókn hennar til föðurfólksins í Afríku,
mynd sem mamma hennar, Anna Þóra Stein-
þórsdóttir, gerði. | 20
Fjörugra fólk í
litríku föðurlandi
10 Erna er sögu-
maður í myndinni.