Morgunblaðið - 16.05.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.05.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landssamband sjálfstæðiskvenna stendur fyrir laugardagsfundi í Duus-húsum í Reykjanesbæ, 17. maí 2008 kl.14.00. Sjálfstæðiskonur á ferð um landið -Tækifæri kvenna - Allir velkomnir! Umræður úr sal að lokinni framsögu Fundarstjóri: Drífa Hjartardóttir formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna Með framsögu verða: Ásta Möller, alþingismaður Björk Guðjónsdóttir, alþingismaður Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is HÆKKANDI olíuverð og gengis- hrun krónunnar ógnar smærri mal- bikunarfyrirtækjum verulega og ljóst er að þau verða að fá verk- kaupa að samningaborðinu til að breyta samningum svo þau fari hreinlega ekki á hausinn að mati Sigþórs Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra malbikunarfyrir- tæksins Hlaðbæjar Colas. Verk- kaupar þurfa að hlusta á kröfur fyrirtækjanna um að fá 20-30% meira borgað en reiknað var með í samningum sem gerðir voru fyrir gengishrunið og olíuverðshækkan- irnar. Þessa dagana er Hlaðbær Colas í þeim sporum gagnvart sumum verkefnum sínum – en alls ekki öllum. „Tvö langstærstu verkefni okkar í sumar eru malbikun Akureyrar- flugvallar og Reykjanesbrautar til Keflavíkur,“ segir Sigþór. Um er að ræða verkefni upp á samtals 1 milljarð króna og 70 þúsund tonn af malbiki fara í þau. Þessi tvö verk eru helmingur alls umfangs Hlað- bæjar á árinu. Um þessi verkefni var nýlega samið þannig að geng- ishrun og olíuhverðshækkun koma ekki eins og rýtingar í bakið á Hlaðbæ. Þess ber að geta að Hlað- bær var 10% yfir kostnaðaráætlun í tilboði sínu fyrir Akureyrarflug- völl, verkefni upp á 700 milljónir kr. „Þegar við förum inn í svona stórt verk læsum við inni bæði gjaldmiðla og hrávöru á föstu verði framvirkt, til að forðast að lenda í stórtjóni ef þessar vörur halda áfram að hækka,“ bendir hann á. „Að sama skapi fáum við ekki óvæntan glaðning ef þessir hlutir taka upp á því að lækka í verði.“ Að þessu leyti eru Hlaðbæjar- menn því brattir. En áhyggjurnar snúa hins vegar að þeim verkefnum sem löngu var búið að semja um en lentu síðan á bálkesti hækkana og gengishruns. Eina lausnin er að fá verkkaupa til að endurskoða samningana. „Við þurfum að fara fram á 20-30% hækkanir enda eru forsendur samninga brostnar.“ Stórt tap fyrirsjáanlegt Meðal stórra verkkaupa eru Vegagerðin, ríkiskaup, Reykjavík- urborg og fleiri sveitarfélög. Sig- þór nefnir dæmi um verk sem boð- in voru út í janúar sl. á föstu einingaverði út árið. „Verktakar sem fengu þau verk, sjá fram á tuga og hundraða milljóna króna tap ef þeir þurfa að standa við þetta einingaverð.“ Sigþór segist ekki viss hvort hægt verði að fá samningum breytt. „Þetta er allt á viðræðu- stigi. Um þessar mundir eru menn að kalla verkkaupa að samninga- borðinu og leggja fram kröfur sín- ar. Við smærri verktökum blasir gjaldþrot ef ekki verður hægt að endursemja, enda eru það þeir sem eru viðkvæmastir fyrir þessum breytingum.“ Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Malbik Vinnuflokkar á malbikunarvélum eru algeng sjón á sumrin en blikur eru á lofti vegna ytri aðstæðna. Gjaldþrot blasir við malbikunarfyrirtækjum Verðhækkanir og gengishrun kalla á nýja verksamninga Í HNOTSKURN »Verkkaupar þurfa að hlustaá kröfur fyrirtækjanna um að fá 20-30% meira borgað en reiknað var með í samningum sem gerðir voru fyrir geng- ishrunið og olíuverðshækk- anirnar, að mati Sigþórs Sig- urðssonar. »Verktakar sem fengu þauverk, sjá fram á tuga og hundraða milljóna króna tap ef þeir þurfa að standa við umsamið einingaverð. Smæstu verktak- arnir eru viðkæmastir fyrir gengis- og verðbreytingum. RÓBERT Árni Hreiðarsson, fyrr- verandi héraðsdómslögmaður, var í Hæstarétti í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum á aldrinum 14–15 ára. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hann nýtti sér yfirburði aldurs og reynslu gagnvart stúlkun- um sem hann vissi að stóðu höllum fæti. Brot hans voru ítrekuð og al- varleg og brotaviljinn var einbeittur. Auk fangelsisrefsingar var Róbert Árni sviptur réttindum til að starfa sem héraðsdómslögmaður og dæmd- ur til að greiða stúlkunum 300.000 til eina milljón í bætur. Upplýsingar ekki afmáðar Róbert Árni var sakfelldur fyrir að tæla stúlkurnar til samræðis eða annarra kynferðismaka, með blekk- ingum, gjöfum eða á annan hátt eða með því að greiða fyrir kynferðis- mökin. Fangelsisrefsing er sú sama og ákveðin var af Héraðsdómi Reykja- víkur. Þeim dómi áfrýjaði Róbert Árni og krafðist sýknu og setti, eins og vani er til, einnig fram varakröf- ur. Þar krafðist hann m.a. að refs- ingin yrði lækkuð og kröfu um svipt- ingu atvinnuréttinda yrði vísað frá dómi. Hann krafðist þess einnig að dómur Hæstaréttar „ásamt héraðs- dómi verði ekki birtur á Internetinu en til vara að allar persónuupplýs- ingar verði afmáðar, jafnt í Hæsta- réttar- sem og í héraðsdómi, þ.m.t. nöfn, gælunöfn, fyrirtækjaheiti, heimilisföng, bílnúmer, símanúmer og annað sem tengir ákærða og fjöl- skyldu hans við málið,“ eins og sagði í áfrýjunarstefnu. Þessari kröfu, eins og flestum öðrum, hafnaði Hæsti- réttur og er dómurinn því aðgengi- legur á vef dómstólsins. Róbert Árni var á hinn bóginn sýknaður fyrir vörslu á barnaklámi. Í öðru tilfellinu var um að ræða spól- ur með kínverskum áletrunum sem ekki var hægt að horfa á í öllum teg- undum myndbandstækja. Í hinu til- fellinu var um að ræða ljósmyndir sem hafði verið eytt en lögreglu tókst að endurheimta skrárnar. Í dómi Hæstarétttar segir að skýrsla og framburður lögreglu hafi verið óskýr og var miðað við að myndirnar hefðu ekki verið aðgengi- legar þegar hald var lagt á tölvuna. Héraðsdómur hafði sakfellt hann fyrir vörslu á barnaklámi og gert tvær tölvur upptækar en þar sem Hæstiréttur sýknaði hann af ákæru um vörslu barnakláms heldur hann tölvunum. Brotin ítrekuð og alvarleg Kynferðisbrotamaðurinn vildi ekki að dómurinn yrði birtur á netinu „FÓLK verður bara að leggja saman tvo og tvo í því,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda (LS), um þá túlkun að ein ástæða þess að Landsamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) vilji afnema lögboðin félagsgjöld, innan laga um greiðslumiðlun sjávarút- vegsins, sé sú að með því skerðist tekjustofn LS. „Þeir tala ekki fyrir okkar munn í því máli. Með því að afnema fé- lagsgjöldin yrði Landssambandi smábátaeigenda gert mjög erfitt um vik að reka öfluga hagsmunagæslu fyrir trillukarla,“ segir Örn, spurður hvort LS vilji fella gjaldið niður. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í vikunni vill LÍÚ fella niður svonefnt iðnaðarmálagjald, með þeim skýringum að eðlilegra sé að innheimta félagsgjöld beint frá fé- lagsmönnum, en ekki með lögum, eins og þau sem gjaldið hvílir á. Aðspurður um hversu miklu máli lögboðin félagsgjöld skipti í rekstri LS segir Örn það standa undir starf- semi sambandsins. Þegar afla sé landað beri að greiða 8,4% aflaverð- mætisins, upphæð sem skiptist í þrennt á milli lífeyrissjóðsiðgjalda (37,5%), greiðslu trygginga (56,5%) og afgangurinn (6%) til LS í formi fé- lagsgjalds. Alls jafngildi félags- gjaldið því 0,5% af aflaverðmæti. Hefur heildarupphæðin hæst farið í 40 milljónir og er upphæðin misjöfn eftir því hvað aflaverðmætið er. Að sögn Arnar rennur tíundi hluti upphæðarinnar sem sambandinu berst til reksturs svæðisfélaganna um landið, sem séu 15 að tölu. Fólk verður að leggja saman tvo og tvo AKSTUR vegna dreifingar á Morgunblaðinu og 24 stundum á höfuðborgarsvæðinu og á Suð- urnesjum verður kolefnisjafnaður samkvæmt samningi sem undirrit- aður var í gær á milli Árvakurs, Farms og Kolviðar. Til að jafna út aksturinn þarf að gróðursetja 2.115 tré á ári og verður þeim plantað á Geitasandi, milli Hellu og Hvols- vallar. Farmur sér um dreifingu blað- anna til blaðbera á höfuðborgar- svæðinu og Suðurnesjunum. Við þann akstur blása bílarnir út um 225 tonnum af koltvísýringi á ári, jafnmikið og 2.115 tré binda af efn- inu. Einar Sigurðsson, forstjóri Ár- vakurs, sagði að samningurinn væri liður í umhverfisstefnu fyrirtæk- isins en Árvakur hefði náð miklum árangri við að gera framleiðsluna eins umhverfisvæna og kostur er. Hrólfur Sumarliðason, forstjóri Farms, fagnaði samningnum og benti á að hjá fyrirtækinu væri lögð mikil áhersla á að bílstjórar ækju þannig að bílarnir eyddu sem minnstu eldsneyti. Soffía Waag Árnadóttir, framkvæmdastjóri Kol- viðar, sagði ávinninginn þrefaldan; útblásturinn yrði jafnaður, skógur ræktaður og örfoka land grætt upp. Morgunblaðið/Kristinn Grænar hendur Hrólfur Sumarliðason, Einar Sigurðsson og Soffía Waag Árnadóttir skrifuðu undir samning um gróðursetningu 2.115 trjáplantna. Dreifingin kolefnisjöfnuð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.