Morgunblaðið - 16.05.2008, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.05.2008, Blaðsíða 42
…ekki er ég með myndir af mér í öllum mögulegum blöðum frá öllum mögulegum sjónar- hornum… 49 » reykjavíkreykjavík  Regína Ósk segir í viðtali við Evróvisjónvefinn að örlögin hafi ráðið því að hún hafi lotið í lægra haldi fyrir Silvíu Nótt í forkeppninni í fyrra. Henni hafi þó fundist Silvía Nótt standa sig vel en því miður hafi Evrópa ekki skilið brandarann. Í viðtalinu kemur einnig fram að Regína er með okkar reyndustu Evróvisjón- fötum. Hún söng bakraddir fyrir Two Tricky í Kaupmannahöfn, með Birgittu í Riga og með Selmu í Kiev og segir hún að keppnin í Parken með Two Tricky hafi verið einna minnisstæðust. Þá segir Regína Ósk að for- keppnin hér heima hafi verið alltof löng og að hún geti ekki ímyndað sér að notast verði við sama fyrir- komulag í næstu forkeppni Sjón- varpsins. Aðspurð hvort hún hafi heyrt önnur lög í keppninni í ár svarar Regína Ósk því til að þau séu öll mjög ólík en hennar uppáhald í ár sé framlag Svisslendinga. Forkeppni Söngva- keppninnar alltof löng  Nú þegar tveir þættir hafa verið sýndir af Alla leið furða margir sig á því hvers vegna Páll Óskar er ekki með fast starf hjá einhverri sjónvarpsstöðinni, þvílík er útgeisl- unin og öryggið fyrir framan myndavélina - eiginleiki sem er fæstum íslenskum sjónvarpsþátta- stjórnendum gefinn. Þátturinn færi auk þess gott áhorf og er um þessar mundir vinsælasti þátturinn í ís- lensku sjónvarpi. Hins vegar má benda á að Íslendingar á aldrinum 12 - 49 ára horfðu á fleiri mínútur af dagskrárefni Stöðvar 2 en á dag- skrárefni Sjónvarpsins í síðustu viku. Hvað skyldi ráða því? Stöð 2 í sókn Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA gerðist alveg ótrúlega hratt,“ segir söngkonan Hafdís Huld Þrastardóttir um að- draganda þess að hún var fengin til þess að leika og syngja í stórri auglýsingu fyrir þýsk- bandaríska bílarisann Mercedes-Benz, en aug- lýsingin var frumsýnd í Þýskalandi á mánudag- inn. „Ég var með hljómsveitinni minni að vinna efni fyrir nýju plötuna mína. Við vorum í Lake District sem er afskekktur og fallegur staður í norðvesturhluta Englands. Þar var ekkert net- samband og það næst varla í farsíma. Svo þeg- ar ég fór í næsta bæ fékk ég fullt af skilaboðum frá vinum og kunningjum um að það væri ein- hver þýskur maður að leita að mér. Það kom í ljós að þetta var leikstjóri sem hafði keypt fyrstu plötuna mína, Dirty Paper Cup, og vildi fá mig til þess að leika og syngja í þessari aug- lýsingu. Þeir voru búnir að prufa einhverjar leikkonur og módel í fimm löndum en af því að það er söngur í auglýsingunni vildi hann endi- lega fá mig.“ Lágvaxinn ökumaður Hafdís fór í prufur bæði í London og Berlín og var í kjölfarið ráðin til verksins. „Innan við viku eftir að ég hafði verið úti í sveit að semja var ég bara komin til Madrídar með einhverja 100 aukaleikara í kringum mig, áhættuökumann og „hand double“. Þannig að þetta gerðist allt rosalega hratt,“ segir Hafdís, en ákveðið var að taka auglýsinguna upp á Spáni því Benz-menn gerðu kröfu um sól og sumar. Hafdís segir auglýsinguna hafa verið mjög stóra í sniðum, og greinilegt að hún hefur kost- að skildinginn. „Allt í einu var til dæmis kona að hlaupa og sækja frappucino fyrir mann. Það voru líka ein- hverjir 100 aukaleikarar þarna allan daginn en maður sér þeim varla bregða fyrir í auglýsing- unni. Það var líka stelpa þarna heilan dag sem var svona „hand double“ því hún var með svo langar neglur að ef það átti að sýna hendurnar á mér voru þær notaðar. Svo tók það þá líka svolítið langan tíma að finna áhættuökumann sem var ekki nema 1,57 á hæð,“ segir Hafdís og hlær. „En svo kom allt í einu stelpa í nákvæm- lega eins fötum og ég, og það var búið að búa til hárkollu á hana sem var alveg eins og hárið á mér. Það var líka farið með mig í einhverjar fatabúðir með ítölskum hönnuði. Þar var ég lát- in máta kjóla sem kostuðu meira en allur fata- skápurinn minn.“ Vel borgað Í umræddri auglýsingu er ný umhverfisvæn tækni í Benz-bifreiðum kynnt, en hún felur það meðal annars í sér að bíllinn drepur á sér þegar hann er stöðvaður. Það er því vel við hæfi að Hafdís syngur gamla Sam Brown-slagarann „Stop!“ á meðan hún keyrir um götur Madríd- ar. Auglýsingin verður sýnd um allan heim á næstu vikum og mánuðum, og Hafdís vonast því til þess að hún muni vekja athygli á sér og tón- list sinni. „Sérstaklega af því að ég er að syngja í henni. Þeir vildu líka að ég gerði mína eigin út- gáfu af laginu þannig að ég fór í hljóðver í London og tók upp mína útgáfu af því. Það er ansi ólíkt upprunalegu „80’s“-útgáfunni,“ segir söngkonan sem hefur nú þegar fengið nokkur viðbrögð vegna auglýsingarinnar. „Umboðs- skrifstofan mín er strax farin að fá fyrirspurnir hvort þetta hafi verið ég í auglýsingunni. Þann- ig að við erum strax að fá góðar móttökur.“ Hafdís skellihlær þegar hún er spurð að því hvort hún hafi ekki fengið Benz fyrir leik sinn í auglýsingunni. „Nei, ég fékk engan Benz. Finnst þér það ekki ósanngjarnt? Ég held að þetta hljóti að vera einhver misskilningur,“ segir hún en bætir því þó við í fúlustu alvöru að vissulega hafi hún fengið nokkuð vel borgað. „Þegar maður er tónlistarmaður eru svona verkefni mjög vel þegin, þetta hjálpar til við að borga upptökur og uppihald næstu mánuðina.“ Flytur upp í sveit Annars er það að frétta af Hafdísi að hún er með nýja plötu í smíðum sem hún gerir ráð fyr- ir að komi út í byrjun næsta árs. Hafdís er væntanleg í stutta heimsókn hingað til lands eftir helgi en svo heldur hún í stutt tónleika- ferðalag til Danmerkur, Frakklands og Tékk- lands. Þá stendur Hafdís í stórræðum, en hún er að flytja sig um set innan Englands. Undanfarið hefur hún búið ásamt kærasta sínum í London, en þau eru að flytja til smábæjarins Kettering sem er í um eins og hálfs tíma akstursfjarlægð frá höfuðborginni. „Það er passlegt því þá get ég alltaf farið til London í stúdíó og til að halda tónleika. Ég vildi hins vegar finna mér rólegan stað til þess að vinna í tónlistinni, taka upp og svona. Það eru endalaus læti, sírenur og þannig í London, þannig að ef maður ætlar að taka upp er betra að komast aðeins út fyrir,“ segir Hafdís að lok- um. Fékk engan Benz Hafdís Huld er í aðalhlutverki í alþjóðlegri auglýsingu fyrir Mercedes-Benz Ökuþór Hafdís segir að nokkur tími hafi farið í að finna áhættuökumann sem var ekki nema 1,57 á hæð – eða jafnháan og hana sjálfa. Umhverfisvænt Í auglýsingunni er ný tækni kynnt, en hún miðar að því að spara eldsneyti. Sjá má auglýsinguna á MySpace-svæði Hafdísar, myspace.com/hafdishuld - eða á YouTube.  Fyrsta sóló- plata Bryndísar Jakobsdóttur (Dísu) kemur út í dag. Platan sem telur ellefu lög inniheldur meðal annars lögin „Anniversary“ og „Temptation“ sem útvarpshlust- endur ættu að vera farnir að þekkja. Platan er að mestu unnin með upptökustjóranum Sam Frank en einnig kemur Barði Jóhannsson og tónlistarkonan Shelly að einu lagi. Þá má einnig segja frá því að síðasta lag plötunnar er gamla dægurlagaperlan „Heyr mína bæn“ sem Bryndís syngur a capella. Plat- an var unnin í heimastúdíói Dísu og tók um sex mánuði að fullvinna hana. Dísu kemur fram á tveimur tónlistarhátíðum á næstunni, Svendborg Festival sem fram fer í lok maí í Svendborg og Spot festival sem fram fer í byrjun júní í Aarhus. Fyrsta plata Dísu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.