Morgunblaðið - 16.05.2008, Side 16

Morgunblaðið - 16.05.2008, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SÓTT hefur verið um einkaleyfi á nýrri tækni til að smala fiski á sjó. Tilgangurinn er að minnka orku- notkun við togveiðar og draga úr losun koltvísýrings. Nýsköpun í veiðarfærum var meðal verkefna sem sagt var frá á ársfundi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í gær. Halla Jónsdóttir, verkefnisstjóri í efnis-, líftækni og orkudeild á Nýsköpunarmiðstöð, kynnti þá vinnu sem fram hefur farið á vegum nokkurra stofnana og fyrirtækja. Verkefnið spratt upp úr vinnu á vegum Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins og Iðntæknistofnunar við að meta umhverfisáhrif fisk- afurða. Skoðað var ferlið frá því frystitogari lætur úr höfn og þar til afurðin er komin á disk neyt- anda í Bretlandi. Í ljós kom að orkunotkunin við veiðarnar hefur afgerandi mest áhrif á umhverfið. Sótt um einkaleyfi „Þau veiðarfæri sem við þekkj- um hafa lengi verið notuð og langt er síðan gerðar hafa verið breyt- ingar á grunnbyggingu þeirra. Okkur langaði til að athuga hvort hægt væri að hugsa veiðarnar upp á nýtt í ljósi umhverfisvænnar hönnunar,“ segir Halla. Tilgang- urinn er að draga úr orkunotkun. Þá er talið æskilegt að auka val- virkni veiðarfæranna og draga úr snertingu þeirra við botn. Fjórir aðilar tóku höndum saman um að vinna að þessu, Hafrannsókna- stofnunin á Ísafirði, Hraðfrysti- húsið Gunnvör, Fjarðanet og Ný- sköpunarmiðstöð Íslands sem leiðir verkefnið. Fengist hafa styrkir úr Tækniþróunarsjóði, AVS – rann- sóknarsjóði í sjávarútvegi og Átaki til atvinnusköpunar. Tilraunaveiðar hafa farið fram á sjó og sótt hefur verið um einka- leyfi á nýrri tækni til að smala fiski. Halla segir að þar sem verk- efnið sé í einkaleyfisferli sé ekki hægt að upplýsa út á hvað þessar nýju aðferðir gangi. Dregur úr umhverfisáhrifum Fram kom í kynningu Höllu á ársfundinum í gær að ef verkefnið heppnaðist að öllu leyti gæti það leitt til 35-40% orkusparnaðar sem svarar til 30 milljóna kr. á hvern togara á ári. Viðhaldsþörf botn- vörpu gæti minnkað sem og botn- ryk. Þetta gæti leitt til þess að los- un koltvísýrings á Íslandi minnkaði um 4-5%. Þá yrði til þekking og nýtt fyrirtæki í fram- leiðslu og sölu sem gæti skapað at- vinnutækifæri. „Við erum enn að prófa okkur áfram, erum komin fyrstu skrefin af mörgum á þessari leið,“ segir Halla þegar hún er spurð um ár- angurinn. Hún segir þetta mjög áhugavert verkefni og sjóðir séu tilbúnir að styrkja áframhaldandi vinnu við það. Verkefni um nýsköpun í veiðarfærum Fiskinum smalað áður en veiðar- færi er beitt Morgunblaðið/Golli Nýsköpun Svafa Grönfelt, rektor Háskólans í Reykjavík, var fundarstjóri á fyrsta ársfundi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. ERLENT AP ÞESSAR konur, önnur burka-klædd, eru að kynna sér nýjustu tískuna í fataverslun í Kandahar í Afganistan og ekki vantar, að falleg er hún, litskrúðug og vafa- laust hin mesta listasmíð. Það fylgir ekki fréttinni hvað svona klæðnaður kostar en víst er, að gínurnar, sem bera hann, eru ekki af innlendu bergi brotnar. Nýjasta tískan í Kandahar NORSKA ríkisstjórnin hefur sam- þykkt að auka álögur á bensín og dísilolíu. Í endurskoðaðri fjárhags- áætlun er gert ráð fyrir, að 1. júlí næstkomandi hækki skattur á hvern bensínlítra um fimm aura norska, 78 aura ísl., og um eina nkr. á hvern dísillítra, 1,57 ísl. kr. Þessar auknu álögur eru í sam- ræmi við samkomulag á milli stjórn- arflokkanna og þriggja stjórnarand- stöðuflokka um aðgerðir í loftslags- málum. Verði af fyrirhugaðri skattahækk- un munu álögur á hvern lítra af blý- lausu bensíni verða 4,33 nkr. eða 68 kr. ísl. Á dísilolíu verða þær 53,40 ísl. kr. Þetta þýðir, að verð á hverjum dísilolíulítra mun fara í 214,60 ísl. kr. miðað við heimsmarkaðsverðið eins og það var í fyrradag. Verð á hverj- um bensínlítra fer úr 205 kr. nú í rúmlega 206 ísl. kr. á sömu for- sendum. 47% til íslenska ríkisins Til samanburðar má geta þess, að hér á landi felast opinberar álögur á bensín í bensíngjaldi, sem er 32,85 kr.; í vörugjaldi, sem er 9,28 kr. og í flutningsjöfnunargjaldi, 0,36 kr. Samtals 42,49 kr., sem er föst krónu- tala, en síðan kemur til virðisauka- skattur, sem breytist með olíuverð- inu. Samkvæmt upplýsingum frá FÍB, Félagi íslenskra bifreiðaeig- enda, var hlutur ríkisins í bensín- verðinu 47% til jafnaðar í maí. Á dísilolíu er lagt olíugjald, 41 kr., og flutningsjöfnunargjald, 0,72 kr., fastar krónutölur, og síðan virðis- aukaskattur. Norðmenn ætla að auka skatta á bensíni og olíu Reuters Dýr dropi Verð á bensíni er líklega hvergi hærra en í olíuríkinu Noregi. Bensínið fer í 206 ísl. kr. að óbreyttu markaðsverði STJÓRNVÖLD í Búrma hafa rekið þúsundir fórnarlamba náttúruham- faranna burt úr skólum og klaustr- um, þar sem fólkið hafði leitað hælis, og komið þeim fyrir í sérstökum búð- um. Er það haft eftir búddamunkum, sem segja, að herforingjarnir óttist, að munkarnir hafi óæskileg áhrif á fólkið en þeir hafa lengi verið í far- arbroddi fyrir andófi gegn einræðis- stjórninni. Háttsettur, breskur embættismaður sagði í gær, að fram- koma herforingjaklíkunnar í Búrma væri hneyksli og mesta skömm, sem sögur færu af. „Hvar vilja þeir hola okkur niður?“ sagði einn þeirra, sem reknir voru úr klaustrunum, og annar sagði, að margt af fólkinu væri sjúkt. „Við höf- um litla sem enga aðstoð fengið, tvisvar sinnum dálítið af skemmdum hrísgrjónum og fúlu kexi. Við átum það og urðum öll veik.“ Mark Malloch Brown, háttsettur starfsmaður bresku utanríkisþjón- ustunnar, sagði í Bangkok í Taílandi í gær, að framkoma herforingjaklík- unnar við fórnarlömb náttúruham- faranna, sína eigin þegna, væri mesta skömm, sem sögur færu af. Herfor- ingjarnir segja, að nærri 40.000 manns hafa týnt lífi en alþjóðlegar hjálparstofnanir telja, að jafnvel allt að 130.000 manns hafi farist. Talið er, að allt að 2,5 millj. manna þurfi á taf- arlausri aðstoð að halda en hingað til hefur hún aðeins náð til 270.000 manna. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í gær, að Sam- einuðu þjóðirnar ætluðu að efna til neyðarfundar um Búrma með fulltrúum nágrannaríkja þess í Suð- ur- og Suðaustur-Asíu. Allslaust og sjúkt fólk rekið úr klaustrunum Framkoma herforingjanna „mesta skömm sem sögur fara af“ AP Skjólshús Fólk, sem leitað hafði ásjár munka í búddaklaustri í Yangon. Nú hefur það verið rekið burt og komið fyrir í sérstökum búðum. SKIP HB Granda hafa veitt um 25 þúsund tonn af kolmunna á þessu ári. Svarar það til liðlega helmings af kolmunnakvóta fyrirtækisins. HB Grandi hefur yfir að ráða um 48 þúsund tonnum af kolmunna á þessu ári. Tvö skip HB Granda, Faxi RE og Lundey NS, eru á kolmunna- veiðum um þessar mundir, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins. Þriðja skipið, Ingunn AK, er úr leik vegna þess að togvíratromla gaf sig. Skipið er á Vopnafirði. Verið er að smíða nýja tromlu í Noregi og verður hún tilbúin síðar í mánuðinum. Þegar tromlan verð- ur komin á sinn stað fer Ingunn til kolmunnaveiða á nýjan leik. Haft er eftir Vilhjálmi Vilhjálmssyni, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, að slæmt sé að missa Ing- unni úr veiðunum nú þar sem veið- in hafi verið góð. Faxi RE og Lundey NS lönduðu hjá verksmiðju fyrirtækisins á Vopnafirði í vikunni. Bæði skipin voru með fullfermi af kolmunna, samtals rúmlega þrjú þúsund tonn. Að undanförnu hefur kolmunna- veiðisvæðið verið á svokölluðu gráu svæði á milli Færeyja og Skotlands. Þegar dró úr aflanum flutti flotinn sig um set og var vestur af Suðurey í Færeyjum. Þar eru mörg skip á veiðum, flest rúss- nesk og færeysk, auk þeirra ís- lensku. Á síld í lok júní Fréttir hafa borist af göngum norsk-íslensku síldarinnar inn í ís- lensku landhelgina, eins og síðustu ár. HB Grandi reiknar með að sinna ýmsu viðhaldi á uppsjávar- veiðiskipunum í júnímánuði og stefnt er að því að senda þau til síldveiða í lok júní. HB Grandi á enn eftir helming kolmunnakvótans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.