Morgunblaðið - 16.05.2008, Síða 32

Morgunblaðið - 16.05.2008, Síða 32
✝ Óskar Jónsson,blikksmíða- meistari, fæddist í Reykjavík 16. des- ember 1959. Hann lést á heimili sínu hinn 5. maí sl. Foreldrar hans eru Jón Óskarsson, f. 30.1. 1929, og Katrín Marteins- dóttir, f. 12.6. 1930. Óskar var næst- yngstur fjögurra systkina. Þau eru: 1) Lilja, f. 19.6. 1953, gift Ragnari D. Stef- ánssyni, f. 26.1. 1952. Synir þeirra eru: Tómas Axel, Rík- arður Örn og Ragnar Jón. 2) Marteinn, f. 22.11. 1955, kvæntur Þórunni Ásmundardóttur, f. 19.2. 1957. Börn þeirra eru: Ásmundur Jón, Katrín Inga og Guðlaugur Ingi. 3) Kristján, f. 8.6. 1964, kvæntur Kristínu Ólöfu Jansen, f. 22.2. 1965. Börn þeirra eru: Elm- fjögurra ára aldurs ólst Óskar upp í Laugarnesinu eða þar til fjölskyldan flutti á Seltjarnarnes árið 1963. Þar gekk hann í Mýr- arhúsaskóla og svo Valhúsaskóla. Eftir grunnskólann lærði Óskar blikksmíði í Iðnskólanum og í Blikksmiðjunni hf. og tók sveins- próf í þeirri grein árið 1982 og hlaut meistararéttindi árið 1986. Óskar starfaði lengst af við iðn sína, með smáhléum þó er hann sinnti öðrum störfum, síðast hjá Frostverki ehf. eða þar til hann hætti störfum vegna veikinda ár- ið 2002. Óskar var félagi í JC Ís- land frá 1990 og forseti JC Borg- ar árið 1994. Óskar starfaði um tíma með Björgunarsveitinni Al- berti á Seltjarnarnesi. Síðastliðið ár starfaði Óskar með Klúbbnum Geysi. Óskar var síðast til heim- ilis í Krummahólum 6 í Reykja- vík. Útför Óskars verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag, 16. maí, kl. 13. ar Ingi og Elísa Eir. Sonur Kristjáns er Ólafur Páll, móðir hans er Ásta Guð- rún Pálsdóttir. Hinn 23. febrúar 1980 kvæntist Ósk- ar Fríði Birnu Stef- ánsdóttur, f. 4.10. 1960. Börn þeirra eru: Marteinn Örn, nemi, f. 10.12. 1979, unnusta hans er Guðlaug Jónsdóttir, f. 14.11. 1989, og Katrín Ýr, nemi, f. 30.9. 1981. Fríður Birna og Ósk- ar skildu árið 1988. Óskar var í sambúð með Svanfríði Önnu Lár- usdóttur, f. 24.5. 1963. Börn þeirra eru: Helga Lilja, f. 22.5. 1991, og Jón Bjarni, f. 4.8. 1995. Svanfríður Anna og Óskar slitu samvistir árið 1997. Frá árinu 2001 var Óskar í sambúð með Ósk Dagbjörtu Guðmundsdóttur, f. 13.1. 1951, d. 2.1. 2007. Til Óskar Jónsson mágur minn er fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Fjölskyldunni kynntist ég fyrir 34 árum þegar hann var einungis 15 ára unglingur. Hann var snyrti- legur, rólyndur og þægilegur í alla staði og tók mér strax býsna vel. Ég fylgdist með honum vaxa úr grasi og breytast úr unglingsstrák í fjölskylduföður. Hann lærði blikk- smíði og var afar vandvirkur og vel liðinn í sínu fagi, um hríð starfaði hann með JC-hreyfingunni og lét vel af. Það lýsir í raun vel hans innri manni að aldrei í öll þessi ár heyrði ég hann hallmæla nokkrum. Í raun lék allt í höndunum á hon- um og því fékk ég að njóta góðs af í haust sem leið þegar ég varð fyrir óhappi og sat uppi með hálfklár- aðan stiga. Óskar taldi það ekki eftir sér að koma dag eftir dag, pússa, lakka og klára verkið. Þá gafst oft góður tími til að ræða um lífið og tilveruna og gat ég gaukað að honum ýmsum heilræðum um sykursýkina sem hann hafði nýlega greinst með en ég þekki af eigin raun. Oft gerðum við grín að því þegar ég bauð upp á kaffipásu með blóðsykurmælingu. Nú stendur fjölskyldan hnípin eftir en sárastur er þó söknuðurinn hjá börnunum fjórum og öldruðum foreldrum. Guð blessi minningu hans. Þinn mágur, Ragnar. Við fjölskyldan kveðjum í dag góðan bróður, mág og frænda, Óskar Jónsson, en hann lést hinn 5. maí síðastliðinn langt fyrir aldur fram. Óskar fæddist 16. desember 1959 og var þriðji í röð fjögurra barna foreldra sinna, þeirra Katr- ínar Marteinsdóttur og Jóns Ósk- arssonar. Hin börnin eru Lilja, Marteinn og Kristján. Foreldrar okkar fluttu með okkur á Seltjarn- arnesið þegar Óskar var fjögurra ára. Seltjarnarnesið var á þessum tíma hálfgerð sveit og frjálsræði mikið. Vinahópurinn frá þessum árum er stór og samheldinn. Það finnum við nú. Óskar gekk í Mýr- arhúsa- og Valhúsaskóla og lauk þaðan grunnskólaprófi. Eftir það hóf hann nám í blikksmíði og lauk sveinsprófi 1982. Meistararéttindi hlaut hann tveimur árum seinna. Hann þótti duglegur og afburða- góður fagmaður, var eftirsóttur til vinnu. Við blikksmíðina starfaði hann mestallan sinn starfsaldur, síðast hjá Frostverki. Hann lét af störfum árið 2002 vegna veikinda. Óskar átti fjögur börn sem nú sjá á bak pabba sínum. Þau eru Marteinn Örn, fæddur 1979, Katrín Ýr, fædd 1981, Helga Lilja, fædd 1991, og Jón Bjarni, fæddur 1995. Börnin sín elskaði hann af öllu hjarta og var stoltur af þeim. Vildi þeim allt hið besta. Síðustu árin bjuggu þau saman hann og Ósk Dagbjört Guðmundsdóttir. Hún lést langt um aldur fram í janúar 2007, einungis um 56 ára gömul. Það var bróður mínum þungt högg og hann náði sér aldrei eftir það. Það sem einkenndi hann bróður minn helst var einlægni og góð- mennska. Öllum vildi hann vel og greiddi úr vanda fólks sem til hans leitaði af ljúfmennsku og velvild. Hann gekk þó ekki til verka þann- ig að allir tækju eftir því, vildi helst vera til hlés ef þess var ein- hver kostur. Margt var honum einnig til lista lagt utan síns fags. Matartilbúningur, smíðar, flísa- lagnir, svo fátt eitt sé nefnt. Lífshlaup hans var ekki alltaf dans á rósum. Í mörg ár háði hann baráttu við áfengið sem reyndist honum harður húsbóndi. Á síðari árum var þunglyndi einnig farið að gera vart við sig. Margir reyndust honum vel í baráttunni við þessa vágesti og ber að þakka fyrir það. Óskar átti þó góð ár inn á milli, lifði í sátt og samlyndi við allt og alla. Hann var alla tíð hlédrægur og feiminn, kaus oft einveru fram yfir félagsskap. Oft mátti hann í þessum þrautum sínum þola gagn- rýni fólks og það oft óvægna. Aldr- ei heyrðist hann þó tala illa um nokkurn mann. Sagði í mesta lagi brosandi að þeir sem gagnrýndu sig mest ættu að líta í eigin barm. Oft reyndist það rétt vera. Við fjöl- skyldan viljum að leiðarlokum þakka þér samfylgdina, kæri bróð- ir. Þótt stundum hafi blásið vindar í okkar samskiptum hafðir þú alltaf vit fyrir mér og fyrirgafst mér allt- af. Ég veit að þér líður vel núna. Þú átt væntumþykju mína og virð- ingu að eilífu. Góður Guð styrki börnin þín, mömmu, pabba og okk- ur öll í þessari miklu sorg. Far í friði, bróðir og mágur. Guð blessi þig. Þórunn og Marteinn bróðir. Það er morgunn og síminn hringir. Það er elsta dóttir mín sem tilkynnir mér að hann Óskar sé dáinn. Ungur maður, sonur, bróðir, faðir, vinur. Mig sundlar, hvernig má það vera, ungur mað- urinn? spyr ég sjálfa mig. Við ráð- um víst ekki sjálf hvað lífið ljær okkur. Ég er amma tveggja yngri barna hans og mig langar að kveðja hann með nokkrum orðum. Kynni okkar Óskars hófust þegar hann og dóttir mín hófu sambúð árið 1990. Óskar var þá fráskilinn og átti fyrir tvö börn af fyrra hjónabandi. Marteinn og Katrín Ýr dvöldu oft hjá Svönu og Óskari og reyndist Óskar þeim góður faðir þó að hann hefði ekki tök á því að hafa þau eins oft hjá sér og hann hefði kosið. Ég var svo lánsöm að kynnast Óskari nokkuð vel á þess- um árum og höfðum við mikil sam- skipti vegna yngri barnanna hans þar sem Svana dóttir mín var mik- ill JC-félagi á þessum tíma og þar af leiðandi mikið að heiman á fund- um og ráðstefnum. Þá reyndist Óskar góður faðir og skilaði því hlutverki með sóma, bæði í leik og starfi. Honum reyndist lítið mál að bregða sér í hlutverk kokksins og skúringakonunnar og hélt heimilið með sóma þegar Svana var fjarver- andi. Ég minnist líka yndislegu ferð- anna með þeim í Skorradal þar sem við vorum alltaf velkomin með og þess minnast líka börnin mín Jónas Elí og Kristín Ýr. Þau senda þér, Óskar minn, bestu þakkir fyrir góðar stundir. Óskar var hæglátur maður, fastur fyrir og ekki mikið fyrir að vera í sviðsljósinu eins og sagt er. Hann hafði þó alltaf frá mörgu að segja og þær voru ófáar stundirnar sem við sátum með kaffibollann í eldhúsinu og töluðum um andleg málefni en þar áttum við sameiginlegt áhugamál. Óskar hugsaði djúpt og velti fyrir sér líf- inu á marga vegu. Það er langt síð- an að mig grunaði að glíma hans við þann erfiða sjúkdóm sem þung- lyndið er tæki mikinn toll og væri honum þung í skauti. Fyrir fáum árum kynntist hann svo konu sem ég held að hann hafi fundið ham- ingju og stuðning með en vegir guðs eru órannsakanlegir, hún veiktist skyndilega og var kvödd á braut á stuttum tíma. Óskar stóð eins og klettur við hlið hennar og sýndi hvað hann hafði mikinn styrk þegar til þurfti. Óskar minn, ég þakka þér allar góðu samveru- stundirnar og minningarnar. Megi Guð styrkja og styðja börnin þín Martein Örn, Katrín Ýri, Helgu Lilju og Jón Bjarna, pabba þinn og mömmu, systkini og ættingja. Blessuð sé minning þín. Og þið munuð sjá og þið munuð heyra. Harmið þó ekki blindni ykkar. Og æðrist ekki vegna heyrnarleysis, því að á þeim degi skuluð þið finna hinn leynda tilgang allra hluta. Og þið munuð blessa myrkrið eins og þið blessið ljósið. (Kahlil Gibran, Spámaðurinn) Helga M. Kristjánsdóttir. Í dag kveðjum við elskulegan bróður og mág, Óskar Jónsson, er fallinn er frá langt fyrir aldur fram. Þar sem fimm ár eru á milli okk- ar bræðra voru áhugamálin misjöfn á æskuárunum. Sem ungir menn störfuðum við saman við björgun- arsveitarstörf á æskuslóðum á Sel- tjarnarnesi. Við þau störf efldust tengsl okkar bræðra og var sam- band okkar sterkt eftir það og sér- staklega náið síðustu árin. Hann heimsótti okkur hjónin gjarnan við mikla gleði barna og ferfætlinga, símtölin voru mörg og aðstoð veitt og þegin á báða bóga. Í hjónabandi Óskars og Fríðar Birnu var hann talinn einn af frum- kvöðlum karlmanna er voru heima- vinnandi og sáu um börn og bú. Þótti það þá þeim tíðindum sæta að Ríkisútvarpið sá ástæðu til að taka við hann viðtal. Þetta hlutverk átti vel við hann enda var hann var alla tíð áhugasamur og natinn varðandi heimili og matseld. Óskar var ætíð snyrtilegur í klæðaburði og lagði upp úr því að hafa umhverfi sitt notalegt og snyrtilegt. Blóm döfn- uðu vel í umsjá hans. Þessir eiginleikar hans og verk- lagni komu sér vel þegar hann, ásamt þáverandi sambýliskonu sinni Svanfríði, gegndi umsjónar- störfum á Gistiheimili Guðmundar Jónassonar í Borgartúni. Árið 2001 kynntist Óskar ynd- islegri konu, Ósk D. Guðmundsdótt- ur. Áttu þau gott líf saman og duld- ist engum að þau nutu samvista hvort annars. Þá reið yfir það áfall að Ósk féll frá eftir stutt veikindi hinn 2. janúar 2007. Þar missti bróðir minn sinn lífsförunaut og átti hann erfitt með að takast á við brotthvarf hennar og nýtt hlut- skipti í lífinu. Það varð honum til happs að hann komst í samband við Klúbbinn Geysi. Þar kynntist hann góðu fólki sem reyndist honum ákaflega vel og þar fékk hann ákveðna lífsfyllingu í því að sýsla í ýmsu sem tengdist klúbbsstarfseminni. Fyrir nokkrum vikum hóf hann svo störf við Fé- lagsmiðstöð aldraðra við Vitatorg og naut sín vel þar. Óskar var ákaflega góður verk- maður og handlaginn og var eft- irsóttur í vinnu sem blikksmiður er hann starfaði við þá iðn. Hann sýndi það og sannaði að nánast ekk- ert stóð í vegi hans við handverk er þau Ósk fengu afhenta íbúð í Sól- eyjarrima og standsetja þurfti hana. Parket- og flísalögn, palla- smíð og fleira lék í höndunum á honum en hann kallaði gjarnan á undirritaðan er tengja þurfti raf- magnsvíra og gantaðist hann gjarn- an með að rafmagn og hann væru ekki miklir vinir. Bílaviðgerðir fyrir sjálfan sig framkvæmdi hann af bestu getu en hringdi í litla bróður í Álmholti ef hann þurfti liðsinni og stóð honum ávallt bílskúrinn til boða ásamt sjálfsagðri aðstoð. Lífshlaup Óskars var ekki alltaf auðvelt. Inn á milli hvolfdist yfir hann svartnætti og á köflum háði hann glímu við Bakkus sem reynd- ist honum ekki alltaf létt. Óskar var í eðli sínu friðsamur maður, sem aldrei sagði styggðaryrði um nokk- urn mann né felldi dóma um aðra í okkar eyru. Hann mátti aftur á móti gjarnan þola harða dóma og ásakanir annarra. Engum manni vildi Óskar þó illt af ásettu ráði, svo mikið er víst. Hjá okkur lifir minningin um góðan mann og fjölskylduvin er sárt verður saknað. Við biðjum algóðan Guð að styðja og styrkja börnin hans, foreldra og aðra aðstandendur í þessari miklu sorg. Kristján bróðir og Kristín. Alla ævina hef ég verið að stilla hljóðfærið, en söngurinn sem ég vildi syngja verður aldrei sunginn. (R. Tagore) Enginn á sér tryggan morgun- dag, hvorki ungur né gamall, og nú er komið að hinstu kveðjustund. Í dag kveðja börnin mín pabba sinn og ég kveð barnsföður minn og góð- an félaga þrátt fyrir að stundum hafi borið í milli í samskiptum okk- ar síðustu ár eins og gengur og ger- ist hjá fólki þar sem leiðir hafa skil- ið. Óskar var ákaflega vænn drengur og vildi vera góður pabbi en oft komu veikindi hans í veg fyr- ir að honum tækist fyllilega að höndla lífið og tilveruna. Hann var stoltur af börnunum sínum fjórum og síðast þegar ég talaði við hann hringdi hann til að tilkynna mér að hann væri formlega orðinn tengda- faðir en Marteinn elsti sonur hans var að trúlofa sig. Öll fjögur eiga þau sínar minningar um pabba sinn sem oftar en ekki tengjast ferðalög- um eða bústaðnum uppi í Skorradal en þar þótti öllum gaman að vera þegar allt lék í lyndi. Öll börnin hans hafa tónlistarhæfileika, Mar- teinn Örn er kominn í nám til Kan- ada, Katrín Ýr í söngskóla í London og ljóst er að börnin mín erfa söng- röddina frá pabba sínum, því að sjálf er ég vitalaglaus eins og allir sem til þekkja vita. Þú gafst þeim alla þá ást sem þú varst megnugur að gefa, gjafir og hæfileika sem munu njóta sín, þau eru stolt þitt og ást á lífinu. Þau syngja sönginn þinn, Óskar, og bera kyndil þinn inn í framtíðina. Farðu heill, vinur minn. Dadý og Jón, Lilja, Matti, Krist- ján og fjölskyldur. Elsku Katrín og Marteinn og elsku litlu ungarnir mínir Helga Lilja og Jón Bjarni, megi æðri máttur styrkja ykkur öll í sorginni. Svanfríður A. Lárusdóttir. Ung og áhyggjulaus kynntumst við Óskari og Fífu á sólarströnd fyrir að manni finnst óendanlega mörgum árum. Þá áttum við lítið annað sameiginlegt en taumlausa lífsgleði þar sem ærslagangur og áhyggjuleysi einkenndi líf okkar. Óskar og Fífa voru búin að eignast börnin tvö og komin með aðrar og meiri skuldbindingar en við hin en voru þó hrókar alls fagnaðar – þá var endalaust hlegið og alltaf gam- an. Vinátta okkar hélt áfram þegar heim var komið og var alltaf ljúft að koma til þeirra á Kleppsveginn þar sem þau voru búin að búa sér notalegt heimili. Marteinn Örn og Katrín Ýr urðu fljótt vinir okkar og var sérstakt að sjá hvað Óskar var umhyggjusamur og yndislegur faðir enda sóttu þau í að kúra í fangi pabba síns og fylgjast með þegar við kíktum í heimsókn til þeirra. Eftir að leiðir þeirra Fífu skildi þá minnkaði sambandið við Óskar enda valdi hann sér annan lífsstíl sem gjörbreytti persónuleika hans og fasi. Síðast þegar við hittum Óskar vorum við á tónleikum þar sem Katrín Ýr söng síðastliðið haust og fylgdist hann stoltur með dóttur sinni. Ljóst var að heilsan var farin að gefa sig og kom því ótímabær dauði vinar okkar Óskars í sjálfu sér ekki mikið á óvart. Ljúfur drengur er fallinn en skil- ur eftir sig Martein Örn, Katrínu Ýri, Helgu Lilju og Jón Bjarna sem við Arnar sendum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur sem og for- eldrum hans og öðrum sem eiga um sárt að binda. Megi Guð vera með þeim. Heiða og Arnar. Fallinn er frá langt um aldur fram Óskar Jónsson blikksmíða- meistari. Óskar gerðist félagi í Klúbbnum Geysi á haustdögum 2007, er hann leitaði til klúbbsins vegna geðrænna erfiðleika sem hann hafði strítt við í nokkur ár. Óskar varð strax virkur og at- kvæðamikill félagi. Hann sá ný tækifæri opnast fyrir sig með þátt- töku í klúbbnum og nýja von um að brjótast út úr einsemd og einangr- un. Hann hafði fengið húsnæði eftir langa bið, auk þess sem hann var byrjaður að vinna í Ráðningu til reynslu, sem er atvinnutækifæri á vegum klúbbsins. En þó að veg- urinn sé varðaður góðum áformum og fyrirheitum verður ekki á allt kosið. Sú harmafregn barst í síð- ustu viku að Óskar hefði látist svip- lega. Alla sem höfðu kynnst honum í Geysi setti hljóða og efasemdir um gæsku heimsins leituðu á, en svo heldur lífið áfram með ný fyrirheit og áform um óljósa framtíð. Við þökkum gjöfula samfylgd við Óskar og vottum foreldrum, börnum og öðrum aðstandendum innilega sam- úð okkar. Félagar og starfsfólk Klúbbsins Geysis. Óskar Jónsson 32 FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ég aldrei hef lofað að brautin sé bein, né blómstígar gullskrýddir alla leið heim. Ég get ekki lofað þér gleði án sorgar, á göngu til himinsins helgu borgar. En ég hefi lofað þér aðstoð og styrk, og alltaf þér birtu þó leiðin sé myrk. Mitt ljúfasta barn ég lofað þér hef, að leiða þig sjálfur hvert einasta skref. (Staðf. Hjálmar Jónsson) Hvíl í friði elsku pabbi minn. Guð geymi þig. Katrín Ýr. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.