Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 6
6 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LAXÁ Á REFASVEIT
Það var að losna holl 21.-23. júlí
Eigum laust: 2 holl í júlí · 1 holl í ágúst · 4 holl í september
Upplýsingar veitir Stefán í síma 898-3440
K
annski hættir okkur öll-
um til að trúa skoð-
anakönnunum sem falla
okkur vel í geð. Í sam-
ræmi við það lagðist það
vel í mig þegar ég sá í Fréttablaðinu
í vikunni að 58,5% Reykvíkinga vildu
að flugvöllurinn yrði áfram í Vatns-
mýrinni. Þetta er athyglisvert í ljósi
þess, að glænýjar verðlaunatillögur
um skipulag svæðisins eru reistar á
því, að hann hverfi. Mér þykir ein-
sýnt, að borgarstjórn geti ekki látið
þessa skoðanakönnun sem vind um
eyrun þjóta.
Á dögum Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur í stóli borgarstjóra var
kosið um það, hvort flugvöllurinn
skyldi vera eða ekki vera og skýrt
tekið fram, að niðurstaðan yrði ekki
bindandi. Reykvíkingar sýndu kosn-
ingunni lítinn áhuga, sem er skilj-
anlegt í ljósi þess, að allt var í þoku
um hvað við tæki, ef flugvöllurinn
yrði lagður niður. Og ekki hefur birt
til síðan. Mér finnst ég þekkja Aust-
fjarðaþokuna eins og Sigurður Guð-
jónsson, bæjarfógeti á Ólafsfirði,
lýsti henni, þegar ég hugsa um Sam-
fylkinguna og flugvallarmálin hér í
Reykjavík. Það er ekki dagsbirtan
þar!
Rökin fyrir því að flugvöllurinn
verði lagður niður virðast mér af
tvennum toga. Annars vegar kvartar
fólk undan hávaða. Það get ég skilið
þó að ég fallist ekki á, að sú röksemd
dugi ein og sér. Hins vegar er mönn-
um tíðrætt um þéttingu byggðar og
að það kosti borgina ekki krónu að
leggja flugvöllinn niður, af því lóð-
irnar í Vatnsmýrinni verði svo dýrar.
Að asninn beri ekki það sem ég ber
eins og kerlingin sagði. Eða að Reyk-
víkingar séu ekki skattlagðir fyrir
því sem ríkið borgar.
Ekkert er fjær sanni en sú stað-
hæfing að byggðin á höfuðborg-
arsvæðinu þéttist við það að 20 þús-
und manna byggð rísi í Vatnsmýrinni
og önnur eins en minni þó á uppfyll-
ingum við Eiðisgranda og Örfirisey.
Gamla Reykjavík stendur á útnesi.
Þar eru allar lausnir í skipulags- og
umferðarmálum úr hófi dýrar, eins
og glöggt sést á því, að nú eru á
teikniborðinu jarðgöng frá gömlu
öskuhaugunum í Gufunesi til Hrafns
Gunnlaugssonar í Laugarnesi. Íbúa-
byggð í Vatnsmýrinni kallar á önnur
umferðarmannvirki og meiri. Kostn-
aðartölur verða áreiðanlega nær 20
milljörðum kr. en 10 milljörðum kr. í
fyrstu lotu. Og auðvitað efna menn
ekki til nýrrar flugvallargerðar.
Keflavíkurflugvöllur verður látinn
duga því litla innanlandsflugi sem
eftir verður. Enginn fjárhagslegur
grundvöllur er fyrir rafmagnslest
milli Reykjavíkur og Keflavíkur.
Tekjurnar munu ekki einu sinni
standa undir daglegum rekstri, en
stofnkostnaðurinn, sem hleypur á
milljörðum kr., falla á skattborg-
arana. Nei, nú er kominn tími til
þess fyrir okkur Íslendinga að vera
praktískir í lausnum okkar á dag-
legum þörfum. Síðustu vikur hafa
verið okkur þörf áminning í þeim
efnum.
Á þessum vordögum hef ég gengið
mér til skemmtunar um gömlu
Reykjavík, þar sem ég lék mér
drengur. Margt er á sínum stað, eins
og ég man það: Við Laugaveginn
Brynja og Herrafataverslun Guð-
steins. Jafnvel heilu götumyndirnar
hafa haldið sér eins og Grettisgatan,
þó að búið sé að rífa fjósið fyrir neð-
an Frakkastíg. En annað er breytt,
svo að ég þekki mig ekki fyrir ölk-
rám. En við því er ekkert að gera.
Tímans tönn vinnur sitt verk og ég
eldist. Og Reykjavík verður aldrei
söm og hún var. En tvennt var þó
það, sem ég gladdist yfir: Víðsýnið af
Hringbrautinni og úr Hljóm-
skálagarðinum til suðurs. Því vil ég
ekki glata fyrir fjölbýlishús og stór-
PISTILL »Mér finnst ég þekkjaAustfjarðaþokuna eins
og Sigurður Guðjónsson,
bæjarfógeti á Ólafsfirði,
lýsti henni, þegar ég
hugsa um Samfylkinguna
og flugvallarmálin hér í
Reykjavík.
Halldór
Blöndal
Flugvöllurinn fer ekki svo glatt
markaði. Og hreina loftið úti í Örfir-
isey. Það er skemmtilegt að rölta þar
og virða umsvifin fyrir sér, lítil þjón-
ustufyrirtæki í bland við verbúðir.
Og um nóg að spjalla. Gamla Ziem-
senhúsið stendur þar á grindum og
er flutt til og frá. Dagróðrabátar
liggja við bryggju. Glaðlegur sjómað-
ur ræddi við mig um pólitík og kvóta
og gaf mér rauðmaga í soðið. Og mér
fannst allt í einu að afi minn héldi í
höndina á mér og leiddi mig niður á
Skúlagötu.
Hljóðpistlar Morgunblaðsins,
Halldór Blöndal les pistilinn
HLJÓÐVARP mbl.is
STANGVEIÐI
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
VEIÐI hófst í Laxá í Þingeyjarsýslu, ofan virkjunar, á
þriðjudaginn í síðustu viku. Hafa aflabrögð að sögn veiði-
manna verið þokkaleg, þótt þeir hafi stundum veitt betur
þar nyrðra.
Að sögn Maríu Kristjánsdóttur í veiðihúsinu Rauðhól-
um í Laxárdal, þá eru sumir að fá fína veiði en frekar
dauft hjá öðrum. „Menn eru þó bjartsýnir – sumir segja
að áin sé ekki vöknuð eftir langan og kaldan vetur. Áin er
samt alls ekki köld núna, hún var ellefu gráður í gær.“
María segir svæðin í dalnum gefa mismikið en nokkrir
boltafiskar hafi þegar veiðst, fimm sex punda, og hafi hún
séð einhverja þeirra á myndum sem teknar voru áður en
þeim var sleppt aftur.
Í Mývatnssveitinni sögðu menn svipaða sögu, ein-
hverjir hafa lent í veislu en aðrir að taka einn og einn.
Á urriðasvæðunum í Laxá neðan virkjunar hófst veiðin
á föstudaginn fyrir rúmri viku. Samkvæmt fréttavef
SVFR hefur veiðin verið mjög góð. Meðal annars segir af
veiðimanni sem sá fisk taka flugur í yfirborðinu og beitti
þá þurrflugu. Setti hann þá í um 40 fiska, og suma væn-
um, á tveimur tímum.
Laxinn mættur
Urriðaveiðitímanum í efsta hluta Elliðaánna lauk nú
um helgina. Ágæt veiði var síðustu dagana og var algengt
að veiðimenn fengju þrjá til fimm fiska á vakt. Stærri
fiskar veiddust á seinni hluta tímabilsins, þar meðal einn
um sex pund, sem féll fyrir Peacock í Höfuðhyl.
Fyrstu laxarnir sáust í vikunni bæði við Laxfoss í
Norðurá og Laxfoss í Laxá í Kjós – áminning um að nú
fari laxveiðin að hefjast. Í fyrrasumar var opnun Norður-
ár færð frá 1. júní til 5. júní og verður sami háttur hafður
á í ár, veiðin hefst því á fimmtudaginn kemur.
Ágæt veiði á urriðasvæðum
Morgunblaðið/Einar Falur
Við strenginn Sigurbrandur Dagbjartsson þekkir urr-
iðasvæðið í Mývatnssveit betur en flestir. Hér hefur
hann landað einum fallegum.
Gögn úr Baugsmál-
inu birt opinberlega
„SEM EINN sakborninga í Baugs-
málinu hef ég lagalegan rétt – sem
ég hef nýtt mér – til að fá aðgang
að öllum málsskjölum og gögnum
málsins. Vegna fjölda áskorana hef
ég nú ákveðið að birta opinberlega
hluta af þessum gögnum þar sem
illskiljanlegt er hvernig íslenskir
dómstólar hafa tekið á Baugsmál-
inu að mínu mati.“ Svo segir Jón
Gerald Sullenberger í formála á
vefsvæði sínu, baugsmalid.is. Þar
er að finna málsskjöl og skýringar
Jóns Geralds á ýmsum þáttum.
Jón Gerald segist hafa sett vef-
svæðið upp til að opna augu Ís-
lendinga. „Þarna eru ekki nein
leiðindi í garð Baugsmanna. Þetta
eru bara gögnin og svo verður fólk
að lesa þau og kynna sér málið,“
segir Jón og bætir við að hugs-
anlega verði bætt við fleiri gögnum
síðar.
Gögnunum er raðað upp í kafla
og bera þeir heiti á borð við „Hvert
fóru allir peningarnir?“ og „Lög-
menn Baugs og sannleikurinn“. Í
þeim leitast Jón Gerald við að
skýra málið frá sinni hlið og notar
málsgögn því til stuðnings. Auk
þess dregur hann saman þær
spurningar sem hjá honum hafa
vaknað við lestur gagnanna. Spurð-
ur hvort vefsvæðið sé vísir að út-
gáfu bókar um Baugsmálið segir
Jón Gerald allt opið í þeim efnum.
„Það hefur einn ágætur maður
sent mér póst þar sem hann spyr
út í þau mál. Það er alveg klárt
mál að þetta er efni í bók.“
BJÖRN Bjarna-
son dóms- og
kirkjumálaráð-
herra hefur
skipað Þórólf
Halldórsson,
sýslumann á
Patreksfirði,
sem sýslumann í
Keflavík frá og
með 15. júlí
2008.
Guðgeir Eyjólfsson, sem skip-
aður hefur verið sýslumaður í
Kópavogi frá og með 1. júní 2008,
hefur jafnframt verið settur til að
gegna sýslumannsembættinu í
Keflavík til 15. júlí þegar Þórólfur
tekur við.
Alls bárust átta umsóknir um
sýslumannsembættið, samkvæmt
upplýsingum dómsmálaráðuneyt-
isins.
Skipaður
sýslumaður
Þórólfur
Halldórsson
VÍKIN – Sjóminjasafnið í Reykjavík var opnuð í gær-
morgun eftir gagngerar endurbætur. Ólafur Ragnar
Grímsson forseti Íslands tók safnið formlega í notkun.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður Hollvinasamtaka
varðskipsins Óðins, afhenti safninu skipið til varðveislu.
Þá afhenti Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður stjórnar
Faxaflóahafna, dráttarbátinn Magna til varðveislu í
safninu. Gestir gengu síðan um og skoðuðu sýningarnar.
Sjóminjasafnið verður opið í dag og aðgangur ókeypis í
tilefni af Hátíð hafsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víkin opnuð með viðhöfn
ELLIÐI Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, segir í samtali
við fréttavef Morgunblaðsins að
heimamenn þar hafi grunað það í
nokkurn tíma, að ekki yrði gengið
að tilboði þeirra um smíði og rekst-
ur nýrrar Vestmannaeyjaferju.
Hins vegar fagni Eyjamenn því, að
ríkisstjórnin ætli að tryggja að ný
ferja taki við siglingum milli Land-
eyjahafnar og Eyja fyrir 1. júlí
2010. Samgönguráðuneytið til-
kynnti á föstudag að ákveðið hefði
verið að falla frá hugmyndum um
smíði Vestmannaeyjaferju í einka-
framkvæmd. Í stað þess yrði smíði
ferju boðin út með hefðbundnum
hætti og í framhaldi af því yrði
rekstur hennar boðinn út sér-
staklega. Vinnslustöðin hf. og Vest-
mannaeyjabær lögðu fram tilboð í
smíði og rekstur ferju en nú hefur
því verið hafnað þar sem það sé 45%
yfir kostnaðaráætlun.
Segir Eyja-
menn fagna