Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 23
Síðumúla 3 · 108 Reykjavík · 553 7355
Opið 10-18 virka daga, 11-15 laugard.
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur · 555 7355
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugard.
Tvær verslanir – Frábært úrval
m
b
l
1
0
0
5
6
7
9
Lepel undirföt - sundföt - náttföt
Lejaby, Charnos, Elixir undirföt
N&N, Miraclesuit aðhaldsundirföt
Panache undirföt - sundföt
Peter Murray kvenfatnaður
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Hann fékk boltann á vítateigsjaðrinum.Fyrsta snertingin var ekki góð enmeð styrk sínum hélt hann valdi áhonum. Þá var ekkert annað í stöð-
unni en að snúa sér við og þruma boltanum yfir
bjarglausan markvörðinn. Þvílíkt mark. Flestir
hefðu talið þetta nóg í sínum fyrsta landsleik en
Bafé Gomis var ekki hættur. Seinna í leiknum
fékk hann sendingu frá hægri. Hún var ekki í
notalegri hæð, þar sem hann stóð fyrir miðju
marki í teignum. En hvað með það. Þá var bara
að hefja sig á loft og klippa tuðruna í bláhornið
niðri. Aumingja þulirnir fóru hér um bil í hjarta-
stopp. Hvers vegna hefur þessi maður ekki
klæðst franska landsliðsbúningnum fyrr?
Vináttuleikur Frakka og Ekvadora í vikunni
var ekki upp á marga fiska en verður eigi að síð-
ur lengi í minnum hafður vegna tilþrifa nýliðans
Bafés Gomis. Flestir framherjar væru full-
sæmdir af því að eiga tvö mörk af þessu tagi á
öllum sínum landsliðsferli – hvað þá í fyrsta
leiknum einum og sér.
Í öllum regnbogans litum
Þeim sem séð hafa Gomis í leik með liði sínu
St-Étienne var þó hvergi brugðið. Vita að hann
hefur getuna. Kappinn hefur skorað mörk í öll-
um regnbogans litum í frönsku deildinni í vetur
og enda þótt hann sé miðherji virðist hann
kunna ákaflega vel við sig fyrir utan teig. Þetta
eru ekki fyrstu fleygarnir sem hann rekur í net
andstæðingsins.
Ýmsir hnykluðu brýnnar þegar Raymond
Domenech landsliðsþjálfari valdi Gomis í 30-
manna æfingahóp sinn fyrir Evrópumótið í sum-
ar á kostnað gömlu hetjunnar Davids Trezegu-
ets sem var iðinn við kolann hjá Juventus í vetur.
En hann var viss í sinni sök og gegn Ekvador
sáu menn hvers vegna. „Ég vona að Gomis eigi
langan feril fyrir höndum með franska landslið-
inu,“ sagði Domenech eftir leikinn.
Daginn eftir lá fyrir að Gomis verður í 23-
manna hópnum sem ver heiður Frakklands á
Evrópumótinu sem senn hefst í Sviss og Aust-
urríki. Frammistaðan gegn Ekvador skaut hon-
um fram fyrir aumingja Djibril Cissé, miðherja
Marseille, sem missir þar með af enn einu stór-
mótinu.
Síðasti Frakkinn til að skora tvívegis í frum-
raun sinni með landsliðinu heitir Zinédine Zid-
ane og franska pressan var upptekin af þeirri
staðreynd í vikunni. „Það er nú heldur mikið af
því góða að bera mig saman við Zidane,“ sagði
Gomis auðmjúkur eftir leikinn. „Ég á margt
ólært og þarf að leggja hart að mér.“
Samanburður er siður í sparkheimum og eigi
endilega að bera Gomis saman við einhverja
stálpaða kempu kemur Didier Drogba fyrst upp
í hugann. Síðan Emmanuel Adebayor. Líkams-
burðir hans eru með þeim hætti, líka styrkurinn
og snerpan. Gomis ræðst af fullum þunga á
varnir og lætur fátt koma sér úr jafnvægi. Síðan
er bara látið vaða. Engin líknsemi.
Bafétimbi Gomis fæddist í La Seyne-sur-Mer
í Frakklandi 6. ágúst 1985. Hann er af sene-
gölsku foreldri og hefði því verið löglegur með
landsliði þjóðarinnar. Á það reyndi þó aldrei –
Frakkar völdu hann fyrst. Nokkrum dögum áð-
ur en Domenech hringdi í hann sagði Gomis:
„Franska landsliðið? Það væri heimtufrekja að
biðja um það en ég hef ekkert á móti því ágæta
liði.“
Hann hóf feril sinn hjá St-Étienne árið 2003,
gerði þá tvö mörk í 11 leikjum. Árið eftir var
hann lánaður til Troyes þar sem hann kom
knettinum sex sinnum í netið í 13 leikjum. Vet-
urinn 2005-06 olli Gomis hins vegar vonbrigðum,
gerði aðeins tvö mörk í 24 leikjum. Á þeim tíma-
punkti benti ekkert til þess að hér væri heims-
stjarna í mótun.
Eyjólfur hresstist veturinn 2006-07 en þá
gerði Gomis tíu mörk í 30 leikjum og á liðinni
sparktíð sprakk hann út. Skilaði knettinum 16
sinnum í markið í 34 leikjum. Aðeins leikmaður
ársins, Karim Benzema, Lyon, og Mamadou Ni-
ang, Marseille, skoruðu meira.
Gomis hefur ítrekað lýst því yfir að hann sé
ánægður hjá St-Étienne en nýverið viðurkenndi
hann að ekki væri víst að hann yrði þar áfram.
„Þjálfarinn lagði mikið á sig til að halda mér í
fyrra og hann hefur hjálpað mér að bæta mig
mikið. Mér líkar vel að hafa hann í brúnni og
verði hann áfram hjá félaginu gæti það haft
áhrif á mína framtíð,“ sagði hann nýverið en
knattspyrnustjóri St-Étienne er Laurent Rous-
sey.
Vitað er að Gomis hefur áhuga á því að leika á
Ítalíu en eigi að síður hefur hann aðallega verið
orðaður við bresk félög undanfarið, Bolton,
Rangers og einkum Newcastle United en Kevin
Keegan þekkir framherjana þegar hann sér þá.
Eftir afrek vikunnar er hins vegar spurning
hvort þetta séu réttu liðin fyrir Bafé Gomis. Með
fullri virðingu fyrir þeim.
Engin líknsemi
Reuters
Stormsveipur Nýliðinn Bafé Gomis skorar seinna mark sitt fyrir Frakkland gegn Ekvador á
Stade des Alpes í Grenoble í vikunni. Bæði mörkin voru einkar glæsileg.
Í HNOTSKURN
»Frakkar hafa verið óhemju duglegirað framleiða framherja á heims-
mælikvarða undanfarin misseri. Nú eru
Thierry Henry, Nicolas Anelka, Sidney
Govou og David Trezeguet að rétta næstu
kynslóð kyndilinn. Þar eru í fylking-
arbrjósti Karim Benzema og Bafé Gomis.
»Frakkar eru í dauðariðlinum á EM íSviss og Austurríki með Hollend-
ingum, Ítölum og Rúmenum.
KNATTSPYRNA»
Miðherjinn kraftmikli Bafé Gomis sló rækilega í gegn í sínum fyrsta landsleik fyrir Frakkland gegn
Ekvador Hann er í landsliðshópnum sem ver heiður Frakka á Evrópumótinu nú í júní