Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 43
SAGT hefur verið að trúar-
brögðin séu ópíum hinna trúuðu og
að vísindin séu ópíum hinna trú-
lausu. Margar fróðlegar greinar um
trú og trúleysi hafa birst að und-
anförnu og eins og svo oft á Íslandi
gætir nokkurs hroka í
garð andstæðra skoð-
ana. Þegar kemur að
sköpun heimsins er
einungis um tvo mögu-
leika að ræða. Annars
vegar; að baki sköp-
unarverkinu sé vits-
munavera, eða Guð,
sem sé höfundur
heimsins, hvort sem
litið er á heiminn ver-
andi í stöðugri þróun
eða fullskapaðan. Öll
trúarbrögðin hafa
þennan skilning á til-
urð heimsins, þótt ágreiningur sé
um ýmislegt, sem snýr að vits-
munaverunni sjálfri, Guði. Hins
vegar; að baki sköpuninni sé tilvilj-
unin ein. Þeir sem aðhyllast þessa
afstöðu kalla sig gjarnan trúleys-
ingja, og telja margir sína afstöðu
jafnvel vísindalega sannaða þeir
sem lengst ganga. Tilvist sköp-
unarverksins blasir við, en leiti
maður í auðmýkt skilnings á tilurð
þess vekja svör beggja aðila fleiri
spurningar en þau svara. Trú er
það, þegar maður ákveður að eitt-
hvað sé rétt, án þess að vita það
með vissu. Trúarbrögð eru hópur
manna, sem mótar samfélag um það
sem þeir trúa. Í þessum skilningi
hefur trúin á að tilviljun sé að baki
sköpuninni ýmis einkenni trúar-
bragða og vísindamenn eins konar
prestar/spámenn þeirra. Báðir að-
ilar telja sig leita sannleikans. Hinir
trúuðu leita sannleikans í trúar-
ritum, bænum og persónulegri leit
að sambandi við höfund sköpunar-
innar, eða treysta blint á svör trúar-
leiðtoga sinna. Hinir trúlausu
treysta gjarnan á aðferðir vís-
indanna við leit sannleikans, eða
treysta blint á svör vísindamanna.
Því miður hefur hvorugur aðilinn
höndlað allan sannleik-
ann og skortur á um-
burðarlyndi (oft bein-
línis óþol) gagnvart
trúarafstöðu annarra
gerir alla umræðu erf-
iða. Það hefur hægt á
þróun þekkingar í
þessum málum.
Hvað eigum við að
kenna börnunum
okkar?
Ýmsir hafa birt
áhyggjur sínar af því
að skólakerfið stundi
trúboð fyrir hina trúuðu og ekki síst
kristið trúboð. Sérstaklega skal það
vera varhugavert vegna blóðugs
ferils ýmissa kirkjunnar manna frá
fyrri tíð og þess hve margir hafa
verið drepnir og limlestir „í Guðs
nafni“ eins og sagan ber með sér.
Það er mikilvægt að geta gert
greinarmun á núverandi leiðtogum
trúarbragða á Íslandi og ýmsum ill-
mennum sögunnar, svipað og maður
ætlar ekki trúlausum að vera á
neinn hátt líkir trúlausum ill-
mennum sögunnar, s.s. Hitler, Stal-
ín og Maó svo nefndir séu frægir
trúleysingjar, sem boðuðu þjóðum
sínum trúleysi. Mikill meirihluti
heimsins trúir á tilvist vits-
munaveru, Guðs. Það er ekki hægt
að segja að börnin okkar séu vel
menntuð ef þau þekkja ekki vel
helstu trúarbrögð landsins og
heimsins. Jafnframt er ekki hægt
að kalla þau vel menntuð ef þau
þekkja ekki trú hinna trúlausu á
mátt tilviljunarinnar. Þekking er
eina vopnið gegn fordómum. Best
væri að börnin okkar þekktu trúa-
brögðin svo vel að þau gætu greint
á milli hefðbundinna trúarbragða og
öfgastefna. Jafnframt að þau virtu
sannleiksleit annarra og skildu að
þau ættu meira sameiginlegt með
öðrum en það sem greinir að. Eðli-
legast væri að börnin okkar lærðu
bænir allra trúarbragða og gætu
þannig fordómalaust tekið þátt í
siðum annarra þjóða ef þau kærðu
sig um. Jafnframt er mikilvægt að
vekja forvitni gagnvart heimssýn
annarra. Til að ná þessu markmiði
þyrfti að fá einlæga trúmenn og
trúleysingja, sem þekkja vel helstu
kenningar, sem þeir sjálfir hafa val-
ið að lifa eftir, til að kenna börn-
unum. Kennsla er ekki trúboð.
Hvaða kenningar börnin tileinka
sér að lokum verður svo þeirra að
ákveða, ekki trúaðra eða trúlausra
foreldra.
Holl áhrif bænarinnar
óháð trú
Þegar manneskja biður bæn er
hún ekki eingöngu að tala við Guð
sinn, heldur einnig við sitt eigið
sjálf. Hún leitar inn á við og kafar í
undirvitund sína, oft eins djúpt og
hún getur. Hún skoðar gjarnan sál-
arlíf sitt, þarfir, væntingar og
drauma á einlægari hátt en venju-
lega. Flestir vanda sig þegar þeir
biðja bænir og varast að biðja um
það sem þeir eru ekki vissir um að
þeir vilji að rætist, því Guð gæti
tekið upp á að bænheyra þá og þá
er of seint að skipta um skoðun.
Þess vegna er mikilvægt að skoða
hug sinn vel áður en bænin er
formuð. Flestir eyða of litlum tíma í
að skoða hvað þeir vilja raunveru-
lega í lífinu, láta reka á reiðanum
og enda margir á rangri hillu. Fyrir
þá sem ekki trúa á Guð, eða eru í
vafa, getur bænin gert gagn sem
leið til sjálfsskoðunar. Hér er auð-
vitað átt við persónulegar bænir,
sem viðkomandi biður með sjálfum
sér. Bænaþulur geta hins vegar
gert gagn fyrir þá sem upplifa
kvíðavekjandi aðstæður eða háska.
Við slíkar aðstæður getur bænin
hjálpað til að róa hugann og virkað
kvíðastillandi. Þess vegna er mik-
ilvægt að kenna börnum okkar já-
kvæðar bænir svo þau geti leitað
styrks í hugsun, sem dregur úr
kvíða og vekur von, þegar mikið
liggur við. Kennsla um Djöfulinn og
Helvíti ætti að vera bönnuð innan
18 ára vegna skaðlegra áhrifa á
barnssálina.
Trúleysi er ekki hlutleysi
Einar Guðmundsson skrifar um
trúmál og trúarbragðakennslu » Það er ekki hægt að
segja að börnin okk-
ar séu vel menntuð ef
þau þekkja ekki vel
helstu trúarbrögð
landsins og heimsins
Einar Guðmundsson
Höfundur er geðlæknir, með
hópsálgreiningu sem sérsvið.
Lögmannsstofunni hefur verið falið að finna leigjanda eða kaupanda að
skrifstofuhúsnæði við Suðurlandsbraut 22. Um er að ræða:
Skrifstofuhúsnæði á 2. hæð að gólffleti 372,7 fm
Skrifstofuhúsnæði á 3. hæð að gólffleti 409,3 fm
Skrifstofuhúsnæði á 5. hæð að gólffleti 242,9 fm
Skrifstofuhúsnæði í bakhúsi (samtengt 2. hæð) að gólffleti 268,7 fm
Húsnæðið er mjög vel staðsett og útsýni gott. Hæðirnar eru allar nýstandsettar og í mjög góðu ástandi.
Húsnæðið samanstendur af sjö eignarhlutum sem geta leigst eða selst saman eða í sitthvoru lagi.
Upplýsingar gefa: Ólafur í síma 551-1349 / 697-3379, netfang olafur@aaa.is eða Árni Ármann í síma 551-1348, netfang logmannsstofa-aaa@simnet.is
SUÐURLANDSBRAUT 22
TIL LEIGU EÐA SÖLU
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími 566 8800 •
www.vidskiptahusid.is • Jón Sigfús Sigurjónsson Hdl & Löggiltur FFS
M
bl
1
01
16
12
Skúlagata, 101 Reykjavík
Til leigu að Skúlagötu 17
Glæsilegt skrifstofuhúsnæði á jarðhæð í miðbænum, með frábæru útsýni. Húsnæðið er alls 12 herbergi,
1-3 manna og 1-2 fundarherbergi, glæsileg móttaka og kaffistofa. Í kjallara er líkamsræktaraðstaða með
heitum potti og sauna. Allar innréttingar og gólfefni mjög vandað, góð lofthæð.
Upplýsingar veitir Jóhann Ólafsson í 863-6323.