Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 47
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Borgartúni 22 • 105 Reykjavík • Fax 5 900 808
fasteign@fasteign.is • www.fasteign.is
5 900 800
OPIÐ HÚS Í DAG KL.15.30–16.00
ÁLFATÚN 37 – 3.H.H
M
b
l 993780
Björt og mikið endurnýjuð 80 fm 3ja herb. endaíbúð á besta stað
í litlu fjölbýli neðst í Fossvogsdal með einstöku útsýni. Íbúð skipt-
ist í: Gang/hol, 2 herb., rúmgott eldhús, nýtt baðherb., stofu/-
borðstofu, tvennar svalir suður/vestur, sérgeymsla. Mikil og góð
sameign og húseign í góðu ástandi.
V. 25,0 M.
Sveinn Eyland gsm: 6-900-820 frá fasteign.is á staðnum.
Tvær eignarlóð við Kóngsveg í Grímsnesi. Lóðirnar eru samtals 10.056
fm og er falleg tjörn með hólmum á lóðinni, mikið fuglalíf er við tjörnina.
Ca. 35-40 fm hús á steyptum grunni er á lóðinni ásamt tveimur gróður
reitum. Falleg eign á góðum stað. V 7,9 millj
Laugavegi 170, 2. hæð
Opið virka daga kl. 8-17
Sími 552 1400 • Fax 552 1405
www.fold.is • fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401
Sumarhúsalóð
Kóngsvegi Grímsnes
mb
l.
1
01
08
82
FOLD SELUR SUMARHÚSIN
VANTAR HÚS Á VERÐBILI 5- 15 MILLJ.
TIL SÖLU LÍTIÐ PARHÚS
Til sölu er 84 m2 parhús í Kópavogi. Stórt
svefnherbergi, stofa með garðskála og lítilli
verönd. Gott eldhús og nýuppgert baðherbergi.
Eignin er í góðu ástandi og sérlega hentug eldri
borgurum.
Upplýsingar í síma 660-2930.
BORGARTÚN LEIGA
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU I I I
GLÆSILEGT ATVINNUHÚSNÆÐI MEÐ STÓRKOSTLEGU ÚTSÝNII I I I
Sími 510-3800
Reynir Björnsson, lögg. fasteignasali
Elías Haraldsson, lögg. fasteignasali
Til leigu í Borgartúni annars vegar óvenju bjart og skemmtilegt
665 fm skrifstofuhúsnæði á jarðhæð með mikilli lofthæð,
gólfsíðum gluggum og góðu aðgengi. Hins vegar glæsilega
innréttað og vandað u.þ.b. 350 fm skrifstofuhúsnæði á 4. hæð í
sama húsi. Húsnæðið er frábærlega staðsett við sjávarsíðuna
við eina af mestu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins í þessu
ört vaxandi viðskiptahverfi borgarinnar. Auglýsingagildi hússins er
því mjög sterkt. Stórkostleg fjalla- og sjávarsýn er úr eigninni.
Þing
RE/MAX Þing - Háholt 13-15 - 270 Mosfellsbær - Sími: 4123300 - www.remax.is
Bergur
Steingrímsson
Lögg. Fsteignasali.
bergurst@remax.is
Fyrirtæki í ferðaþjónustu
til sölu
Er með hópferðabíla
í eigin húsnæði.
Til greina kemur að selja þetta í
sitthvoru lagi.
Ársvelta 2007 um 60 milljónir.
Uppl. hjá REMAX Þing
Garðar
Skarphéðinsson
Sölufulltrúi
893 0082
gs@remax.is
Óskum eftir 150-200 fm sérhæð eða sérbýli í vesturborginni.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson fasteignasali.
Sérhæð eða sérbýli
í vesturborginni óskast
M
bl
1
01
17
67
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
FRÁ þeim tíma sem Rimaskóli var
stofnaður árið 1993 hafa margar mik-
ilvægar breytingar orðið á skólakerf-
inu. Er þar helst að nefna flutning
grunnskólans yfir til sveitarfélaganna
árið 1996, einsetningu skólanna, boð-
ið er upp á heitan mat í hádeginu og
frístundaheimili fyrir yngstu börnin í
lok skóladags. Rimaskóla hefur geng-
ið vel að aðlagast þessum breytingum
og skólinn var meðal þeirra fyrstu
sem komu á einsetningu og mötu-
neyti fyrir nemendur.
Undirritaður hefur verið skóla-
stjóri Rimaskóla frá upphafi. Með
fyrstu verkum mínum var að láta
teikna merki skólans sem Guðni
Björnsson hannaði og fá skólanum
einkunnarorðin „Regla – metnaður –
sköpun“. Bæði merkið og einkunn-
arorðin standa ennþá vel fyrir sínu.
Við í Rimaskóla viljum að reglusemi
ríki og skólareglur gildi sem nem-
endur virði. Í skólanum skapist já-
kvæður metnaður fyrir öllu skóla-
starfi bæði varðandi námsárangur og
ekki síður með þátttöku í verkefnum
og keppnum. Sköpunargáfa og list-
fengi nemenda fær útrás í metn-
aðarfullri kennslu í list- og verk-
greinum. Þar hefur skólinn verið
heppinn með kennara og komið á fyr-
irmyndaraðstöðu í viðkomandi
kennslugreinum.
Rimaskóli hefur fylgt helstu
stefnumálum Reykjavíkurborgar í
menntamálum um einstaklingsmiðað
nám, náin tengsl skólans við grennd-
arsamfélagið og skóla án aðgrein-
ingar. Í því síðastnefnda hefur Rima-
skóla auðnast með frábæru
starfsfólki og vel útbúnum náms-
verum að koma til móts við nemendur
með mikla líkamlega fötlun eða sér-
tæka námsörðugleika að skapa þeim
tækifæri til náms sem foreldrar telja
betri kost frekar en formlega sér-
skóla.
Þau þrjú verkefni sem Rimaskóli
er þekktastur fyrir og hafa haldið
merki skólans mest á lofti hafa öll
fengið Hvatningarverðlaun mennta-
ráðs Reykjavíkur sem fyrirmynd
annarra skóla á þróunar-og ný-
breytnisviði. Þessi verkefni eru
Kokkakeppni Rimaskóla, Skák í
skólastarfi og Vísindadagur Rima-
skóla. Þetta eru markmiðsverkefni
sem fjölmiðlar hafa gert góð skil enda
mikil umræða nú um stundir um heill
og hamingju barna okkar í nánustu
framtíð. Kokkakeppni Rimaskóla
sem Áslaug Traustadóttir heim-
ilisfræðikennari skólans fékk „Fjör-
eggið“, verðlaun Matvæla- og nær-
ingafræðingafélags Íslands, fyrir
gengur út á að nemendur í grunn-
skóla fái sterka og samfellda heim-
ilisfræðikennslu frá yngsta bekk og
til loka skólaveru. Í kokkakeppninni
er lögð áhersla á spennandi upp-
skriftir að einföldum, hollum og fljót-
legum réttum. Þessi keppni og
kennsla ýtir undir áhuga og frum-
kvæði nemenda að elda hollan og góð-
an mat. Kokkakeppnin er ekki síður á
sviði lífsleikninnar því rannsóknir
sýna aukna meðalþyngd barna, ein-
hæfni skyndibitarétta og minni sam-
vistir fjölskyldunnar á matmáls-
tímum.
Nemendur Rimaskóla eru miklir
afreksmenn á sviði skáklistarinnar.
Skólinn vann Íslandsmeistaratitil
grunnskóla í skák 2008 og stúlknalið
skólans hefur unnið Íslandsmót
stúlknasveita síðustu sex árin sam-
fellt. „En skákin snýst ekki bara um
að búa til nýja stórmeistara í skák.
Hún ýtir undir rökfimi, skipulag,
frumkvæði og kennir að hugsa fram í
tímann“ eins og komist var að orði í
leiðara Morgunblaðsins þann 23. maí
sl.
Skákhefðin í Rimaskóla hefur ein-
mitt veitt nemendum skólans þetta
tækifæri. Skákin á sér sterkar rætur
hér á Íslandi og hefur verið ein af
þjóðaríþróttum landsins frá stofnun
lýðveldis. Foreldrar í Rimaskóla hafa
sýnt viðleitni skólans varðandi skák-
þjálfun mikinn áhuga og þakklæti.
Fjölmörg dæmi eru um nemendur í
skólanum þar sem skákiðkun hefur
haft grundvallaráhrif til bóta og betri
líðan varðandi ofvirkni, athyglisbrest,
einhverfu og einbeitingarleysi. Rima-
skóli hefur með aðstoð frábærra skák-
þjálfara náð athyglisverðum árangri
með slíka nemendur.
Loks ber að nefna Vísindadaginn
sem er afrakstur samstarfs á vett-
vangi Kómeníusarverkefnisins „Chalk
away“, eða krítina burt. Rimaskóli tók
þátt í verkefninu ásamt fleiri skólum í
Evrópu. Vísindaverkefnin hvetja
nemendur á öllum aldri til frekari vís-
indaafreka. Verkefnin tengjast öll
áfangamarkmiðum aðalnámskrár
grunnskóla. Nemendur stunda rann-
sóknir, mælingar og gerð líkana. Já-
kvæðar niðurstöður hvetja þá til að
halda áfram tilraunastarfsemi með
aðferðum sem koma að hversdagslíf-
inu. Jónína Ómarsdóttir kennari
Rimaskóla hefur náð einstökum ár-
angri í vísindakennslu innan Rima-
skóla og komið öllum kennurum og
starfsmönnum að vísindaverkefnum.
Þessi áhugaverðu verkefni Rima-
skóla hafa eins og áður segir vakið
mikla athygli og tengjast öll heill og
hamingju barna okkar inn í tækni og
menningarsamfélag 21. aldar.
Vonandi ber Rimaskóli gæfu til að
halda áfram á sömu braut.
HELGI ÁRNASON,
skólastjóri Rimaskóla.
Rimaskóli 15 ára
Frá Helga Árnasyni
Öflug Skáksveit Rimaskóla vann Íslandsmót grunnskóla 2008 og keppir á Evrópu- og Norðurlandamótum.