Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sesselja Krist-jana Guðbjarts- dóttir fæddist í Efrihúsum í Ön- undarfirði 31. maí 1935. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 16. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Petrína F. Ás- geirsdóttir, f. 6. júní 1904, d. 16. ágúst 1992, og Guðbjartur S. Guð- jónsson, f. 2. febr- úar 1904, d. 10. febrúar 1992. Systkini Sesselju eru Ásgerður J., f. 11. maí 1929, Sigríður H., f. 19. maí 1931, Guðrún M., f. 13. júní 1932, Helga E., f. 14. sept- Sesselja og Hreinn eignuðust sex börn, þau eru: 1) Pétur, f. 27. febrúar 1954, kvæntur Sigríði M. Jóhannesdóttur, þau eiga fimm börn. 2) Elínborg, f. 19. mars 1956, maki Magnús Jónsson, þau eiga fjögur börn. 3) Hreinn Ses- ar, f. 18 september 1958, kvænt- ur Láru Aðalsteinsdóttur, þau eiga tvær dætur. 4) Elfa Björt, f. 16. september 1962, gift Emil Gústafssyni, þau eiga fjögur börn. 5) Gunnhildur, f. 21. októ- ber 1963, gift Bjarna Benedikts- syni, þau eiga þrjá syni. 6) Ófeig- ur, f. 4. apríl 1972, kvæntur Lilju Dögg Gylfadóttur, þau eiga þrjá syni. Sesselja hefur unnið ýmis störf í gegnum tíðina. Má þar nefna störf í fiskvinnslu, í Hampiðj- unni, Múlakaffi og á Borgarspít- alanum. Áður en hún hætti störf- um vegna veikinda árið 1998 starfaði hún sem matselja í leik- skólanum Vinaminni í Breiðholti. Útför Sesselju fór fram í kyrr- þey að hennar ósk. ember 1933, Laufey, f. 5. ágúst 1936, Guðjón S., f. 26. október 1937, El- ísabet S., f. 18. júlí 1939, Konráð E., f. 7. október 1940, d. 17. mars 2004, Þor- steinn, f. 28. mars 1942, Árni H., f. 21. nóvember 1945, og Einar, f. 28. nóv- ember 1949. Sesselja giftist 31. desember 1957 Hreini Ófeigssyni, f. 10 maí 1934. Foreldrar hans voru Ófeigur Pétursson, f. 24. júlí 1915, d. 16. júlí 2007, og El- ínborg S. Bjarnadóttir, f. 3. febr- úar 1917, d. 22. desember 1985. Með örfáum orðum langar mig að minnast móður minnar sem kvaddi þennan heim alltof snöggt og alltof snemma eftir stutta, hetjulega bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Mamma var þolinmóðasta mann- eskja sem ég hef kynnst, svo einstak- lega hjartahlý og létt í lund. Hún kenndi mér mörg mikilvæg og góð gildi, þá sérstaklega jákvæðni, þraut- seigju, rósemi og samheldni fjölskyld- unnar. Minningarbrotin flæða um hugann; mamma að sauma rauða kjólinn minn þegar ég var 10 ára, mamma að aga mig þegar ég var ung- lingur í uppreisn, mamma að kenna mér að baða fyrsta barnið mitt og síð- an að bjarga því frá drukknun þegar ég tók við böðuninni. Mamma að kenna mér að sauma jólafötin á Atla og Adam. Mamma að baka jóla-lag- tertuna með Atla og Adam á kafi ofan í hrærivélarskálinni. Mamma að spila við okkur Skotta, leggja kapal, að leysa krossgáturnar. Mamma að spila við Emil Andra þar sem hún leyfði honum oft að vinna, mamma að syngja fyrir Lindu og kenna henni að leggja kapal. Mamma skellihlæjandi með tennurnar fastar á karamellusleikjónum, mamma að gantast með Emma. Mamma að dást að nýja kjólnum mínum eða nýju dragtinni, alltaf svo glöð þegar ég rak inn nefið. Mamma svo stolt af okkur systrunum. Mamma að syngja gömul dægurlög með systrum sínum. Mamma svo falleg og flott á sjötugs- afmælinu, mamma ljómandi með pabba á brúðkaupsafmælinu þegar þau áttu gullbrúðkaupið s.l. gamlárs- dag. Þegar eitthvað bjátaði á hjá mér fór ég gjarnan til mömmu og einhvern veginn án þess að ég þyrfti að segja neitt vissi hún hvernig mér leið og hjálpaði mér án orða í gegnum ýmsa erfiðleika. Elsku mamma mín, takk fyrir allt og allt, í hjarta mínu geymi ég fjár- sjóðinn, minningarnar um þig. Ég á áfram eftir að tala við þig í huganum um alla hluti. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar pabba og nú þegar þú ert komin í fang Guðs ætlum við systkinin að halda áfram að koma til pabba og hugsa vel um hann fyrir þig. Ég sakna þín svo óumræðilega mikið en veit að þú ert nú á besta stað sem til er, laus við sjúkdóma og þjáningar. Ég kveð þig nú, mamma mín, og bið kærlega að heilsa Jesú. Elfa Björt. Um hádegisbil hinn 16. maí síðast- liðinn er við gengum út frá Landspít- alanum við Hringbraut, fyllti vit okk- ar lyktin af sumrinu. Þetta var ilmur af öspunum sem voru að vakna eftir langan vetrardvalann. Ilmurinn minnti okkur á að lífið héldi áfram og að sumarið væri rétt handan við horn- ið þrátt fyrir að dagarnir á undan hefðu virst tímalausir. Atburðir síðastliðinna daga voru litaðir einkennilegri móðu í hugum okkar. Við reynum að átta okkur á hvernig lífið sjálft getur lent í slíkum ógnar- krafti sem verður einna helst hægt að líkja við hraðvirkt tívolítæki sem end- ar svo snögglega án þess að maður geti með nokkru móti spornað gegn því, hvað þá búið sig undir það. Þegar slíkur kraftur verður að raunveruleika í lífinu leita stórar spurningar á hugann, hvers vegna, hvað gerðist. Því miður er lítið um svör. Elskuleg móðir mín og tengdamóð- ir hafði látist um morguninn eftir mikla baráttu fyrir lífi sínu. Kannski var hennar tími komin, hver veit? Við gleðjumst yfir því að hún hafi ekki verið ein þegar hún kvaddi, jafnframt því að sakna hennar svo óskaplega mikið. Ekkert er erfiðara í lífinu en að missa frá sér einn úr hópnum. Mamma snart líf allra í fjölskyldu sinni svo blítt, svo fallega. Hún hlakk- aði til sumarsins og ætlaði að gera svo ótalmargt. Hún var góð móðir, eig- inkona, tengdamóðir og vinur. Hún tók virkan þátt í lífi fjölskyldu sinnar og var alltaf til staðar fyrir hana. Hún gekk með okkur í gegn um erfiðleika í lífinu og hvatti okkur áfram, hún tók á móti okkar fyrsta barni. Hún skilur eftir sig hafsjó yndislegra minninga sem við munum varðveita í hjörtum okkar og ylja okkur við. Við göngum út í sumarið fyrir þig, elsku mamma. Góða nótt, heillin mín, góða nótt. Fjölskylda Sesselju vill þakka starfsfólkinu á 12G (almenn skurð- deild) á Landspítalanum við Hring- braut fyrir góða umönnun og hlýhug í garð hennar og fjölskyldunnar á þess- um erfiða tíma. Gunnhildur og Bjarni. Elsku amma. Við munum sakna þín, hversu góð og hlý þú varst. Hlæjandi inni í eld- húsi að búa til slátur. Það var alltaf svo gaman að koma til þín í pönnukökur og mjólk. Við munum einnig minnast góðra stunda í sumarbústaðnum með þér og afa. Ævintýraferðir með þér niðrí fjöru þar sem við fundum krossfiska og ígulker. Færðum ykkur eitt sinn mar- glyttu, ykkur til lítillar gleði og svona mætti lengi telja. Í sumó var líka farið í ófáa göngu- túra, kartöflutínslu og berjamó. Há- tíðarnar verða aldrei eins án þín. Takk fyrir allar yndislegu stundirnar elsku amma. Takk fyrir að kenna okk- ur skotta, rakka og yatzy. Við munum varðveita minningarn- ar um þig að eilífu. Ástkær minning amma mín, í brosum þínum björtum. Ávallt lifir minning þín, í allra okkar hjörtum. Guð geymi þig, amma, þín barna- börn Gunnhildur, Jón Steinar, Lilja Ósk og Bjarki Hreinn. Elsku amma, við eigum eftir að sakna þín, hlátursins og góða skaps- ins þíns. Þú varst alltaf í svo góðu skapi. Við eigum eftir að sakna þess að spila við þig, hvort sem það er rakki, skotti eða jafnvel sequence. Þér fannst alltaf svo gaman að spila. Það var alltaf gaman í jólaboðunum á jóladag, þegar öll fjölskyldan kom saman og borðaði hangikjöt. Það var alltaf gaman þegar við vorum í pössun hjá þér, þegar við fórum út að labba og fórum út í búð og bakarí. Okkur fannst líka gaman upp í sumarbústað þegar við fórum og tíndum ber á haustin, fórum í fjöruna að skoða og tína skeljar og lékum okkur í rólunum og rennibrautinni. Við viljum að þú vitir að við söknum þín mjög mikið og að við gleymum þér aldrei. Úti er þetta ævintýr. Yfir skuggum kvöldið býr. Vorsins glóð á dagsins vöngum dvín. Þögnin verður þung og löng þeim, sem unnu glöðum söng og trúað hafa sumarlangt á sól og vín. Ó, hve heitt ég unni þér! Allt hið bezta í hjarta mér vaktir þú og vermdir þinni ást. Æskubjart um öll mín spor aftur glóði sól og vor, og traust þitt var það athvarf, sem mér aldrei brást. Óska ég þess að angur mitt aldrei snerti hjarta þitt. Til þess ertu alltof ljúf og góð. – En ég vil þú vitir það, vina mín, þó hausti að, að þú varst mín sumarþrá, mitt sólskinsljóð. Því er gott þú gleymir mér. – Gæfan mín svo brothætt er, og vonir mínar hrekjast stað úr stað. (Tómas Guðmundsson.) Sif og Svava. Föstudaginn 9. maí 2008 hringja foreldrar mínir í mig og tilkynna mér að þú sért veik, að þú hafir farið í að- gerð sem átti að hjálpa þér en hafi far- ið á annan veg og þú hafir veikst mik- Sesselja Kristjana Guðbjartsdóttir Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, EMIL RAGNARSSON, Seiðakvísl 29, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 30. maí. Hann verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 5. júní kl. 13.00. Birna Bergsdóttir, Kristín Emilsdóttir, Helgi G. Björnsson, Sólveig Berg Emilsdóttir, Guðmundur Árnason, Ragnar Emilsson, Hildur Hrólfsdóttir, Bergur Már Emilsson, Helena Dögg Hilmarsdóttir, Eva María Emilsdóttir, Karl West Karlsson, barnabörn, Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir, Brynja Ragnarsdóttir, Ragna Kristín Ragnarsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTHILDUR JÓNSDÓTTIR frá Sviðholti, Bessastaðahreppi, Vogatungu 31, Kópavogi, lést fimmtudaginn 29. maí. Geir Guðjónsson, Guðrún Ólína Geirsdóttir, Sigmundur Jónsson, Eyþór Sigmundsson, Hjalti Sigmundsson, Jón Ingvi Geirsson, Silja Stefánsdóttir. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN TRYGGVASON, Brekkugötu 15, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar miðvikudaginn 28. maí. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudag- inn 5. júní kl. 13.30. Alda Kristjánsdóttir, Gísli Ármannsson, Kristján Þór Gíslason, Íris Ósk Gísladóttir, Natalía Rós Friðriksdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG V. BERGSTAÐ, lést föstudaginn 23. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Valdimar Bergstað, Halldóra Baldvinsdóttir, Hjördís Bergstað, Guðný Bergstað, Þorleifur Þorkelsson, Elísabet Bergstað, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.