Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 55
Mitsubishi Carisma
árg. ‘99, sjálfskiptur. Ekinn 120 þús.
Selst með yfirtöku á láni kr. 270 þús
og 50 þús. í peningum.
Upplýsingar í síma 857 7094.
Mig vantar nýja fjölskyldu!
Fjölskyldan flytur erlendis og því er
Citroen Xsara Picasso til sölu. Ekinn
rúma 50.000 km, engin útborgun,
100% lán. Frábær fjölskyldubíll!
Upplýsingar í síma: 899 3625.
Ford árg. '07, ek. 15 þús. km
Ford F350 King Ranch, 09/2007,
6,4 diesel. S: 896 6800.
Bílar
Verktakar, Athafnamenn!
9 sæta Volkswagen Transporter árg.
2005 4x4 disel ekinn 108þkm.
O.K Varahlutir s 696-1050
okspares@simnet.is
Vegna brottflutnings erlendis!
Til sölu sem nýr Mitsubishi Pajero
Intense árg. 2008, ek. aðeins 7000
km. Selst með góðum afslætti, engin
lán áhvílandi,ath aðeins staðgreiðsla
kemur til greina. O.K Varahlutir
s: 696-1050 okspares@simnet.is
TOYOTA LANDCRUISER 90 GX
árgerð 1999, ekinn 245 þús., dísel,
góður bíll með þjónustubók, verð
1250 þús., ath. skipti.Upplýsingar í
síma 861 6131.
Til sölu Ford Transit Connect
árgerð 2005, ekinn 33 þús.
Upplýsingar í síma: 863 9774.
Suzuki XL-7 Luxury 2007
Nýja útgáfan! V6 3,6L, ek 20 þús. km,
sjálfsk., leðursæti + hiti, m. krók.
Hlaðinn aukabúnaði. Sjá nánar
www.suzuki.com, Tilboð 3.200 þús.
Sími: 823 7238.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Heima er bezt,
tímarit um fólkið, lífið og söguna.
Áskriftarsími 553 8200,
www.heimaerbezt.net
Til sölu
Fréttir í
tölvupósti
Úrslitin úr
enska boltanum
beint í
símann þinn
Smáauglýsingar
sími 569 1100
FRÉTTIR
BRAUTSKRÁNING stúdenta frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð fór fram laugardaginn
24. maí síðastiliðinn. Útskrifaðir voru 147 stúd-
entar, 94 konur og 53 karlar.
Af félagsfræðabrautum útskrifuðust 48 nem-
endur, 52 af náttúrufræðibraut, 29 af mála-
braut, 17 af IB-braut (alþjóðlegri braut), 4 ljúka
stúdentsprófi í framhaldi af starfsnámi og 3
nemendur ljúka námi af tveimur brautum.
Guðrún Björg Ingimundardóttir af málabraut
var dúx með meðaleinkunn 9,25. Semidúxar
voru Gunnhildur Helga Steinþórsdóttir sem
brautskráðist af náttúrufræðibraut og Rósa
Kristrún Jakobsdóttir af málabraut. Báðar með
yfir 9 í meðaleinkunn. Einingadúx er Inga Hlíf
Melvinsdóttir sem lýkur tæplega 200 einingum.
Verðlaun úr Minningarsjóði um Sverri S.
Einarsson rektor, sem veitt eru nemanda sem
nýtt hefur á framúrskarandi hátt möguleika
áfangakerfis skólans, hlaut Kolbrún Þóra Ei-
ríksdóttir.
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Brautskráning stúdenta frá MH
VIÐGERÐ stendur nú yfir á hringveginum við Bisk-
upsháls, rétt austan við Grímsstaði á Fjöllum. Vegurinn
rofnaði þar á um 200 m kafla af völdum ofsaflóðs 13.
maí sl. Vegagerðin náði að opna veginn fljótlega en eft-
ir stóð að talsverðra viðgerða var þörf. Þær eru nú
langt komnar.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Unnið að viðgerðum við Biskupsháls
ERIC W. Rothenbuhler, prófessor
við fjölmiðla- og boðskiptadeild Tex-
as A&M University, heldur opinber-
an fyrirlestur í boði félagsvís-
indadeildar Háskóla Íslands í stofu
101 í Odda á morgun, mánudaginn
2. júní, kl. 12.
Heiti fyrirlestursins, sem verður
fluttur á ensku, er „Merki um ver-
aldleg trúarbrögð: Táknræn óreiða
og úrbætur í kjölfar 11. september“
(„Signs of Secular Faith: Symbolic
Disorder and Repair after Witness-
ing 9/11“). Fyrirlesturinn er byggð-
ur á ljósmyndum, sem teknar voru í
New York 11. september 2001 og á
næstu vikum og mánuðum. Með
hjálp þessara ljósmynda leitast Eric
Rothenbuhler við að greina hrun
ríkjandi táknheims og sköpun ann-
ars táknheims í hans stað. Mynd-
irnar tók Jane Martin.
Eric Rothenbuhler er í fremstu
röð bandarískra fjölmiðlafræðinga.
Hann er staddur hér á landi í tilefni
af norrænu málþingi um fjölmiðla
og trúarbrögð, sem haldið er í sam-
starfi kennara við félagsvísindadeild
og guðfræðideild Háskóla Íslands.
Allir eru velkomnir og er aðgang-
ur ókeypis.
Hrun ríkjandi
táknheims og
sköpun annars
HRAFNHILDUR Lilja Jónsdóttir
ver meistararitgerð sína við heil-
brigðisdeild HA á morgun, mánu-
daginn 2. júní, kl. 12.05. Í henni er
fjallað um mat hjúkrunarfræðinga á
slysa- og bráðamóttöku á minnihátt-
ar ökkla- og fótaáverkum með að-
stoð Ottawa-gátlistans. Vörnin fer
fram í stofu L101 á Sólborg og eru
allir velkomnir.
Tilgangur rannsóknarinnar var
að skoða hvernig nýta megi mennt-
un, reynslu og þjálfun hjúkr-
unarfræðinga til hagsbóta fyrir
sjúklinga. Rannsóknarspurningar
lúta að sambærileika mats hjúkr-
unarfræðinga og unglækna á þörf
fyrir myndgreiningu hjá sjúklingum
með ökkla- og fótaáverka.
Rannsóknin var framsæ sam-
anburðarrannsókn sem fór fram á
fjögurra mánaða tímabili á slysa- og
bráðamóttöku FSA. Borið var sam-
an mat hjúkrunarfræðinga og ung-
lækna á þörf fyrir myndgreiningu
hjá sjúklingum sem komu á bráða-
móttöku með áverka á ökkla og fæti.
Við það studdust hjúkrunarfræð-
ingar við Ottawa-gátlistann, sem var
þróaður til að nota við skoðun á
ökkla- og fótaáverkum, en unglækn-
ar við hefðbundið mat.
Meistaravörn
í heilbrigð-
isdeild HA
MEISTARANEMAR í mannfræði við
Háskóla Íslands hafa víða leitað
fanga við gerð verkefna sinna, m.a.
á Hellissandi, Malaví og Reykjavík.
Það má því segja að þeir hafi aflað
þekkingar út um víðan völl. Á morg-
un, mánudaginn 2. júní, verða kynnt
sjö meistaraverkefni í mannfræði
við HÍ, m.a. um íslenska kjörfor-
eldra, val á fæðingarstað, fullorð-
insfræðsluverkefni í Malaví, götu-
börn í Windhoek, reynslu af því að
eiga foreldra af ólíkum uppruna og
sjóminjasafn á Hellissandi. Mál-
stofan sem verður í Háskólatorgi HT
101 hefst kl. 15 og er öllum opin.
Meistarar í
mannfræði út
um víðan völl
THORVALDSENSBAZARINN,
Austurstræti 4 í Reykjavík verður
107 ára í dag, sunnudaginn 1. júní,
og hefur verslunin verið á sama stað
allan þann tíma. Konur úr Thorvald-
sensfélaginu vinna þarna í sjálfboða-
vinnu og rennur allur ágóðinn til
góðgerðarmála. Í tilefni afmælisins
bjóða þær upp á kaffi og pönnukök-
ur kl. 10-14 á afmælisdaginn.
Thorvaldsens-
bazar 107 ára