Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 57
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsvist fellur niður í
Gjábakka til 6. júní vegna breytinga en verður haldin í Gull-
smára eftirfarandi daga: 2. júní kl. 20.30, 4. júní kl. 13 og 6.
júní kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansað í Stangarhyl 4, kl.
20. Caprí-tríó leikur.
Gerðuberg, félagsstarf | Alla virka da ga kl. 9-16.30 er
vinnustofur, spilasalur o.fl. opið. Miðvikud. 4. júní er
Kvennahlaup ÍSÍ, mæting í Gerðubergi kl. 12.30, Þorvaldur
Jónsson leikur á harmonikku o.fl. Ólöf Guðný Valdimars-
dóttir aðstoðarmaður borgarstjóra ræsir hlaupið kl. 13.
Skráning á staðnum og síma 575-7720.
Hæðargarður 31 | Opið kl. 9-16 virka daga. Fastir liðir eins
og venjulega. Mogginn og morgunkaffið, hádegisverður og
kaffi. Félagsvist alla mánudaga í sumar kl. 13.30. Uppl. í
síma 568-3132, asdis.skuladottir@reykjavik.is
Seljahlíð | Sýning á handverki heimilismanna verður í dag
og á morgun 2. júní kl. 13.30-17. Einnig verður kaffihlað-
borð, verð 1.000 kr.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Landnámssetrið í Borganesi
verður skoðað 5. júní kl. 13. Ekið um Hvalfjörð í Borgarnes.
Kaffiveitingar. Ekið til baka um göngin. skráning í síma 411-
9450.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Helgistund kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir, Inga Eydal syngur og leiðir söng.
Fríkirkjan Kefas | Almenn samkoma kl. 20. Helga R. Ár-
mannsdóttir prédikar, lofgjörð og fyrirbænir. Á eftir er kaffi
og samfélag. Skráning í síma 564-1124 í grillveislu 8. júní.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Brauðsbrotning kl. 11,
ræðumaður er Samúel Ingimarsson. Service for Engl-
ishspeaking at 12.30 – international church in the café-
teria. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson. Ekkert barnastarf er í sumar.
85ára afmæli. Í dag, sunnu-daginn 1. júní, er Helga
Kristinsdóttir, til heimilis að Mið-
leiti 7, Reykjavík, áttatíu og fimm
ára. Helga nýtur dagsins með fjöl-
skyldu og vinum í sveitasælunni í
bústaðnum fyrir austan fjall.
Hllutavelta | Pálmar
Vígmundsson hélt tom-
bólu við Glæsibæ og gaf
Rauða krossinum 15.000
kr. sem eru afrakstur af
tombólunni og peningar
sem hann fékk í 12 ára
afmælisgjöf nýlega.
Hlutavelta | Kristrún Kolbeins-
dóttir sem er á myndinni, og vin-
kona hennar Magnea Rós Bjarna-
dóttir söfnuðu 6.183 kr. fyrir
Rauða kross Íslands með tombólu
fyrir utan Bónus í Árbæ.
dagbók
Í dag er sunnudagur 1. júní, 153. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.)
Hagfræðideild Háskóla Ís-lands býður til málstofu ámorgun kl. 12 í stofu 101 áHáskólatorgi. Þar mun Arn-
ór Sighvatsson aðalhagfræðingur
Seðlabanka Íslands flytja erindið Ræð-
ur Seðlabankinn við verðbólguna?
Málstofan er ætluð almenningi og er
gert ráð fyrir spurningum og umræðum
að erindinu loknu.
„Árið 2001 var gengi krónunnar sett á
flot og Seðlabankanum gert að gæta
verðbólgumarkmiða,“ segir Arnór um
núverandi starfsumhverfi og skyldur
Seðlabankans. „Ég mun í fyrirlestrinum
greina frá og skýra út hvað leiddi til þess
að Seðlabankinn tók upp verðbólgumark-
mið. Síðan greini ég frá árangrinum, sem
auðvitað hefur verið ansi misjafn og verð-
bólga nú töluvert yfir því markmiði sem
Seðlabankanum var sett. Um leið reyni
ég að greina ástæður þess hvers vegna
verðbólgan hefur verið jafnmikil og raun
ber vitni, og draga af því lærdóma.“
Arnór segir óhagstæða þróun efna-
hagsmála á Íslandi síðasta hálft ár eða
svo hafa átt sér langan aðdraganda:
„Hinn undirliggjandi vandi er ofþensla
sem birtist meðal annars í gríðarlegum
viðskiptahalla árum saman. Þessi við-
skiptahalli þýddi að við urðum háð inn-
streymi fjármagns, þ.e. að við þurftum
að safna skulum erlendis. Það gerði
landið mjög viðkvæmt fyrir því þegar
áhættumat fjárfesta og áhættusækni
þeirra breyttist svo að fjármagnið varð
dýrara eða fékkst jafnvel ekki,“ segir
hann. „Ef ekki tekst að fjármagna við-
skiptahallann gerist það að gjaldmiðill-
inn fellur í verði, kaupmátturinn
minnkar og samdráttur verður í inn-
lendri eftirspurn svo hallinn minnkar
og hverfur að lokum.“
Arnór skoðar m.a. þá gagnrýni sem
komið hefur fram á aðferðir Seðlabank-
ans: „Það fer eftir því við hvern þú talar
í hverju gagnrýnin felst. Sumir gagn-
rýna bankann fyrir að hækka vexti of
mikið, og aðrir fyrir að hækka of lítið.
Það er líka deilt um það hvort stýri-
vaxtabreytingar bankans virki yfir höf-
uð, eða hafi a.m.k. mjög lítil áhrif, og
síðan eru þeir sem telja jafnvel að stýri-
vextirnir geti haft öfug áhrif og væri
stórkostlegur vandi ef rétt reyndist.“
Efnahagsmál | Málstofa um aðferðir Seðlabankans á tímum verðbólgu
Hvað getur Seðlabankinn?
Arnór Sig-
hvatsson fæddist á
Miðhúsum í Bisk-
upstungum 1956.
Hann lauk B.A. í
sögu og heimspeki
ásamt kennslurétt-
indanámi frá HÍ
árið 1980 og meist-
ara- og doktorsgráðu frá Norður-
Illinois háskóla árið 1990. Árnór hóf
störf hjá Seðlabanka Íslands 1990 sem
hagfræðingur. Hann starfaði hjá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington
1993-1995 en sneri síðan aftur í Seðla-
bankann þar sem hann hefur verið að-
alhagfræðingur frá 2004. Eiginkona
Arnórs er Edda Hrönn Atladóttir
fr.kv.stj. og eiga þau þrjú börn.
Tónlist
Akureyrarkirkja | Vortónleikar Stúlkna-
kórs Akureyrarkirkju verða kl. 16. Ein-
söngvari á tónleikunum er Sigrún Arna
Arngrímsdóttir. Aðgangur ókeypis.
Mannfagnaður
Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði | Sjó-
mannadagurinn verður haldinn hátíðlegur í
dag. Í tilefni dagsins er sýning og sala á
handverki heimilismanna. Einnig fer fram
kaffisala á heimilunum. Hvetjum við ætt-
ingja, aðstandendur og vini heimilismanna
til að líta inn.
Fréttir og tilkynningar
Thorvaldsensfélagið | Verslun félagsins
Thorvaldsensbazar er 107 ára í dag. Í tilefni
dagsins er boðið upp á kaffi og pönnukökur.
Allir velkomnir. Opið kl 10-15.
Þjótandi | Skoðunar- og fræðsluferð í landi
Þjótanda að fornminjauppgreftri á bakka
Þjórsár. Stutt ganga, mæting kl. 18 á gömlu
brúnni yfir Þjórsá.
Morgunblaðið /Arnaldur
Hrafnista í Reykjavík.
HERMENN flytja grjót og mold með handafli, handlanga efnið frá einum til annars, og reyna að styrkja bakka
Tangjiashan-vatns í Beichuan-sýslu í Kína. Um 200.000 íbúar hafa verið fluttir frá svæðinu neðan vatnsins, sem
hefur hækkað mikið vegna skriðna sem féllu í jarðskjálftanum í Sichuan-héraði á dögunum.
Mannleg færibönd í Kína
Reuters
• Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að góðu útgáfufyrirtæki í
stöðugum vexti. Ársvelta 200 mkr.
• Heildverslun með tæknivörur. Ársvelta 130 mkr.
• Rótgróin bílaleiga með 21 bíl. Auðveld kaup.
• Þekktur tölvuskóli. Ársvelta 80 mkr.
• Heildverslun með bílavörur. EBITDA 25 mkr.
• Sérverslun og heildverslun með tölvurekstrarvörur. Ársvelta 100 mkr.
EBITDA 10 mkr.
• Þekkt verslun með húsgögn og gjafavörur.
• Sérverslun með sportvörur. Ársvelta 120 mkr.
• Lítil heildverslun með hársnyrtivörur. Hentugt til sameiningar.
• Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli) sem selur í verslanir
um allt land. Ársvelta 160 mkr. EBITDA 15 mkr.
• Rótgróið þjónustufyrirtæki í ferðamannaiðnaði. Ársvelta 120 mkr.
EBITDA 25 mkr.
• Framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 300 mkr.
Góður rekstur í stöðugum vexti.
• Innflutningsfyrirtæki, að hluta með eigin framleiðslu erlendis.
Ársvelta 450 mkr.
• Réttingaverkstæði-sprautun í nágrenni Reykjavíkur. Gott húsnæði og
vel tækjum búið. Ársvelta 50 mkr. Góð afkoma.