Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 59
SUMARYOGA
Sér sumartilboð
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, símar 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar.
Líkamsæfingar, önurnaræfingar, slökun og hugleiðsla
Sértímar fyrir barnshafandi konur,
byrjendur og lengra komna.
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10 , 109 Reykjavík,
GSM : (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665 ,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
Á DÖGUNUM voru 26 konur útskrif-
aðar frá Brautargengi, fræðsluverk-
efni sem miðar að því að styrkja konur
sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í
framkvæmd. Nýsköpunarmiðstöð sér
um framkvæmd verkefnisins sem
styrkt er af sveitarfélögunum á höf-
uðborgarsvæðinu og SPRON.
Bjarnheiður Jónsdóttir verkefn-
isstjóri segir Brautargengi nú á sínu
10. starfsári: „Við höfum útskrifað
tvisvar á ári og hafa nú hátt í 800 kon-
ur lokið námi hjá Brautargengi,“ seg-
ir hún. „Námið fer þannig fram að
konurnar hittast vikulega í 15 vikur
og vinna að viðskiptaáætlun auk þess
sem þær njóta persónulegrar hand-
leiðslu leiðbeinanda.“
Bjarnheiður bendir á að aðeins
20% fyrirtækja séu í eigu kvenna og
rekin af þeim: „Reynslan hefur sýnt
að þátttaka í Brautargengi skiptir
sköpum. Milli 50-60% þeirra kvenna
sem hafa útskrifast hjá okkur eru í
dag í rekstri sem okkur reiknast til að
skapi þúsundir ársverka og tekjur
upp á a.m.k. fjóra milljarða árlega.“
Auk þess að halda námskeið á höf-
uðborgarsvæðinu eru einnig haldin
námskeið á Ísafirði, Hellu og Akur-
eyri og verður einnig útskrifað þaðan
á þessu vori.
Á myndinni eru útskriftarnemend-
ur ásamt borgarstjóra Reykjavíkur
og iðnaðarráðherra sem afhentu út-
skriftarskírteinin.
Brautargengi útskrifar
Í hnotskurn með frétt um tap bank-
anna af styrkingu krónunnar í
Morgunblaðinu í gær vantaði tvö
orð. Síðari hluti hnotskurnarinnar
átti að vera eftirfarandi: Fram til
þessa hefur Landsbankinn að mestu
leyti fært áhrif af gjaldeyrisjöfnuði
yfir rekstrarreikning þar sem erlend
dótturfélög bankans safna ekki eign-
um.
LEIÐRÉTT
Vantaði tvö orð
Í VETUR hafa dans-
pör frá Dansíþrótta-
félagi Hafnarfjarðar
(DÍH) verið að gera
það gott hér heima og
erlendis á dans-
keppnum. Pörin keppa
í samkvæmisdönsum,
standard-dönsum og
suður-amerískum
dönsum. Pörin sem
vinna hér heima Ís-
landsmeistaratitla í
samkvæmisdönsum
með frjálsri aðferð
vinna sér inn rétt á
HM og EM í flokkum
14 ára og eldri. Pörin
frá DÍH sem kepptu í
vetur fyrir Íslands
hönd á HM voru þau Aðalsteinn
Kjartansson og Rakel Guðmunds-
dóttir, Sigurður Már Atlason og
Sara Rós Jakobsdóttir og þriðja
parið er Björn Halldór Ýmisson
og Jóna Kristín Benediktsdóttir.
Aðalsteinn og Rakel kepptu
einnig á EM í flokki ungmenna
16-19 ára, þar lentu þau í 24.
sæti. Á HM í sama flokki lentu
þau í 52. sæti. Þau dansa ein-
göngu suður-ameríska dansa.
Sigurður Már og Sara Rós
kepptu á HM í 10 dönsum í flokki
ungmenna 16-19 ára og lentu í
20. sæti. Björn Halldór og Jóna
Kristín kepptu á HM nú fyrir
stuttu í aldursflokki 14-15 ára í
standard dönsum og lentu í 45.
sæti.
Einnig kepptu stórir hópar frá
DÍH í vetur á Copenhagen Open í
öllum aldursflokkum og í
Blackpool í barna- og unglinga-
flokkum.
Í byrjun maí á bikarmóti í sam-
kvæmisdansi með frjálsri aðferð
fékk DÍH gullið í öllum aldurs-
flokkum. Nú taka við strangar
sumaræfingar og einkatímar hjá
danspörunum hjá erlendum
gestakennurum sem heimsækja
Dansíþróttafélagið reglulega í
allt sumar, eins og fram kemur í
fréttatilkynningu.
Dansparið Sigurður Már Atlason og Sara Rós
Jakobsdóttir. Þau kepptu í 10 dönsum.
Danspör frá DÍH
gera það gott
FRÉTTIR