Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 63
„Pétur var harður. Ég þurfti að
taka á honum stóra mínum og stíga
mikið til baka. Pétur var fastur fyrir.
Við vorum að pæla eitthvað í Dylan
og vorum að spá í hljóminn á Bring
It All Back Home og Highway 61 …
þar sem menn fóru bara inn og
spiluðu. Vð reyndum að knýja þetta
fram en við vorum ekki nema nokkra
daga að klára plötuna. Söngurinn í
sumum lögunum er prufusöngur,
það átti að taka hann aftur upp en
svo vel tókst til í fyrstu atrennu að
hann var bara látinn standa. Við
fengum áfall fyrst, hljómurinn var
svo skítugur eitthvað. En svo fattaði
maður þetta og sagði með sjálfum
sér: „Vá … þetta er lifandi stöff.“
Bubbi segir þetta eina af ástæð-
unum fyrir því að hann sóttist eftir
samstarfi við Pétur.
„Einfaldasta leiðin til að deyja
sem listamaður er að loka sig af í
einhverju ákveðnu rými og stíga
ekki úr því. Þessi hætta ágerist með
aldrinum … nema þú sért vakandi,
leitandi og forvitnin sé að drepa
þig.“
Bundin saman
Bubbi heldur áfram með þessa
pælingu.
„Seinast þegar ég gerði plötur þá
gerði ég plötur sem eiga sér ekki
hliðstæðu í íslensku tónlistarlífi, þ.e.
skilnaðarplöturnar. Eftir þær hélt
ég áfram að semja en svo gerðist það
að þegar við fórum að vinna Fjóra
nagla fann ég sterkt fyrir því að ef
ég tæki ekki áhættu þá myndi ég
ekki nenna að vinna hana. Ég verð
að ögra mér og fara einhverja leið
sem ég hef ekki farið áður. Þar kem-
ur Pétur inn. Ég sá hann á tón-
leikum og hreifst af. Hann virkar svo
„sweet“ en svo er hann ekkert
„sweet“. Hann er töffari. Hörkutöff-
ari. Þetta skilaði sér í plötu sem ég
ber hiklaust saman við plötur eins og
Sögur af landi eða Nóttin langa,
plötur sem skipta mig miklu máli.“
Ég spyr Bubba hvort mikil tján-
ingar- og sköpunarþörf hafi verið að
byggjast upp innra með honum á
þessu þriggja ára tímabili. Hann
svarar snöggt.
„Nei. Ég sem svo mikið, ég á svo
mikið af efni alltaf. Ég er alltaf að
spila nýtt efni og þeir sem eru dug-
legir að sækja tónleika hjá mér hafa
verið að heyra sum af þessum lögum
reglubundið í tvö ár. Stór hluti plöt-
unnar hefur þannig verið til í kassa-
gítarútgáfum en lögin eru nú í nokk-
uð breyttri mynd. Maður á oft lög
sem maður vill gefa nýtt tækifæri.
Klæða þau í önnur föt. Eins og Dyl-
an, þegar hann rennir sér í „Blowin’
in the Wind“ og enginn veit hvað
hann er að spila (glottir með sjálfum
sér). Þetta er munurinn á listamanni
og skemmtikrafti.“
Bubbi talar um að platan sé bund-
in saman með nokkuð sérstöku sándi
og „atmósferi“.
„Ef menn skoða textana þá sjá
þeir að þetta er annaðhvort hrein-
asta helvíti eða bjartasta himnaríki.
Það er ekkert þarna á milli. Þetta
eru ákveðnar pælingar sem ég hef
verið að fara í gegnum. Ef við skoð-
um stöðu mannsins í nútímaþjóð-
félagi þá er búið að afguða þjóðfélag-
ið. Nýju guðirnir eru
peningarmennirnir og nýju engl-
arnir eru verðbréfadýrin. Og hvað
gerist svo þegar það verður hrun?
Það er enginn guð og hvað blasir þá
við? Jú, tómið eitt. Það er það sem
ég er m.a. að syngja um, að ef þú
hefur ekki heilbrigða sýn, einhvern
æðri mátt í lífi þínu, þá ertu í vond-
um málum. Ef þú ert búinn að stilla
peningum upp sem æðsta mætti og
þá þverr síðan allt í einu, hvað þá?
Ég syng líka nokkuð um tilvist-
arkreppur, um menn sem eru á
ákveðnum stað í lífinu sem ekki er
gott að vera á. Eins og í titillaginu.
Ég myndi samt ekki segja að það
væri þungt yfir plötunni en það eru
engar málamiðlanir. Ég fer ekki
auðveldustu leiðirnar og er í flestum
tilfellum að fjalla um frekar erfiða
hluti. Þessi einradda peningahugsun
sem fylgir þessu fjármálavafstri hef-
ur verið mér hugstæð. Ég hef hitt
mikið af þessu liði og þróunin í þessu
öllu hefur verið ömurleg. Einhverjir
guðir í Armanijakkafötum eru þeir
sem fólk lítur upp til; ekki læknirinn,
kennarinn eða hinn almenni maður
sem berst fyrir fjölskyldu sinni og
tilverurétti. Því um hvað snúast
hlutirnir í raun og veru? Snúast þeir
ekki um fjölskylduna, þína nánustu,
hvernig þú hagar þínu lífi og hvernig
þú mætir dauðastundinni er hún
rennur upp? Þegar hún kemur vil ég
hafa skilið eitthvað eftir mig, vitandi
það að ég hafi átt tíma með börn-
unum mínum.“
Bubbi segir að ástin, hrein og tær,
eigi samt sem áður pláss á plötunni.
„Það er ekki mikið verið að syngja
um ástina, en eitt lag, „Brúnu augun
þín“, er í þeim flokki. Ég samdi það í
hótelanddyri í New York. Það hefur
verið svo mikið af bláum augum í ís-
lenskri dægurtónlist og allar brú-
neygðu stelpurnar, þ.á m. hún
Hrafnhildur mín, áttu þetta lag
hreinlega inni.“
Plötunni er svo lokað með fallegu
lagi og hugljúfu sem nefnist „Fóta-
tak þitt“.
„Í því er ákveðin kyrrstaða,
ákveðið jafnvægi, ákveðin sátt … í
raun er það ort til Hrafnhildar og
um það að sofna sáttur. Ég sá í sjón-
varpinu um daginn frétt um hjón
sem voru hundrað ára og þau tiltóku
að lykillinn að sína farsæla hjóna-
bandi væri að sofna aldrei ósáttur.
Mér fannst þetta geggjað. Þetta er
eins og búddismi … alveg krist-
altært einhvern veginn. Ég er að
syngja um þetta í þessu lagi, og þar
er ég að skírskota til Procol Har-
um.“
Gróði
Á skilnaðarplötunum vann hann
með Barða „Bang Gang“ Jóhanns-
syni og nú aftur með sér miklu yngri
manni. Margir listamenn á svipuðu
reki og Bubbi myndu ekki voga sér
út í svona vinnu. Er hann ekkert
feiminn við þetta?
„Nei,“ segir hann, handviss í sinni
sök eins og áður. „Þetta er svo ein-
falt … ég græði á þessu. Ég hef ver-
ið mjög heppinn með þessa sam-
starfsmenn, Barða og Pétur, og ég
er alltaf jafn hissa á að menn í þeirra
stöðu vilji vinna með mér. Þeir tveir
eru eins líkir og þeir eru ólíkir. Pétur
kemur allt öðruvísi að þessu en báðir
búa þeir yfir miklum sköpunarmætti
og óvæntri sýn á hlutina. Þeir taka
mig yfir og leiða mig á staði sem ég
hefði ekki þorað að fara á eða hefði
einfaldlega labbað framhjá. Þetta er
eins og að vera með góðan „gæd“ í
laxveiðiá. En svo dynja áföllin óhjá-
kvæmilega á manni. Maður hlustar á
þessa menn og hugsar með sér efins:
„Nei … ég vildi nú ekki fara þangað
með þetta lag …“ En þá er líka mál-
ið: Til hvers var ég eiginlega að boða
þennan mann til samstarfs ef ég
ætla svo að fara að segja honum
hvernig þetta á að vera? Þá hefði ég
alveg eins getað gert þetta sjálfur.“
Bubbi verður hugsi.
„Ég var hvað eftir annað kominn í
þessa stöðu gagnvart Pétri. Efinn
sveiflaði mér til og frá. Svo dró ég
mig til baka, beit á jaxlinn og já …
lét mig bara hafa það. Hann vildi t.d.
strípa nokkur lög alveg niður. Eitt
lag, „Græna húsið“, byrjaði sem ró-
leg melódía um stelpu sem verið er
að misnota og laglínan vísaði í
„Tunglið, tunglið taktu mig“. Þá
kemur Pétur … (dæsir) … og
dúndrar þessu í níðþungt pön-
krokksform. Ég varð að breyta að-
eins textanum. En svo þegar hann
var búinn að lesa mér aðeins pist-
ilinn, eftir að hafa stigið ansi fast til
jarðar, hugsaði ég: „Já … brjálað …
æðislegt!“ Svona held ég mér lif-
andi.“
Bubbi er kominn á flug.
„Það er hægt að segja margt um
mig. Menn geta sagt að ég hafi selt
B&L sálu mína og ég hafi gert þetta
og ég hafi gert hitt. Sama er mér. En
það mun enginn nokkurn tíma geta
sagt að ég hafi ekki verið heið-
arlegur alla leið í gegn í tónlist
minni. Þar geri ég engar málamiðl-
anir. Engar. Þetta er það sem heitir
að vera listamaður. Ef þú ferð að
gera málamiðlanir þar þá er eins
gott að hætta þessu bara. Þess
vegna er ég að vinna með mönnum
eins og Pétri og Barða. Ég er að
draga sjálfan mig út að brún.“
Hvar er hjartað?
Fjórir naglar verður auk hefð-
bundinnar útgáfu gefin út á vínyl,
form sem virðist vera að treysta sig í
sessi á nýjan leik, upp að vissu marki
a.m.k. Það er kannski sönnun á því
að þetta er ekki bara einhver tísku-
bóla þegar jafn vel verseraður lista-
maður og Bubbi Morthens gengst
fyrir slíku.
„Ég er með einhverjar 2.000 plöt-
ur inni í bílskúr. Ég er að fara í það
að redda mér plötuspilara. Það er
allt í lagi að hlusta á geisladiska en
það er allt önnur tilfinning að hlusta
á vínyl.
Umslagið, textablaðið … það þarf
ekki smásjá til að sjá á það. Ég
sakna platnanna.“
Bubbi má eiga það skuldlaust að
maður veit aldrei hvað er að fara í
gang þegar maður setur nýja plötu
frá honum undir geislann. Hann er í
þeirri öfundsverðu stöðu að vera
ófyrirsjáanlegur. Bubbi hlær við og
segist hafa orðið jafn hissa og aðrir
þegar hann heyrði endanlegu út-
komuna á Fjórum nöglum. Og segist
hafa ferskast nokkuð upp við ferlið.
„Í hausnum var ég nefnilega kom-
inn eitthvað annað á tímabili,“ segir
hann. „En nú er eins og það sé orðið
gaman aftur að búa til tónlist. Tón-
list er einhver galdur og á ekki að
snúast í kringum gerilsneyddar
tölvuyfirhalningar. Það er eins og
hjartað sé farið úr svo mikilli tónlist í
dag, menn eru að búa til tónlist á
kolröngum forsendum. En sem bet-
ur fer er enn slatti af tónlist-
armönnum sem eru að gera þetta
hennar vegna. Ég ætla ekki að
ganga svo langt að segja að ég hafi
gengið í gegnum endurnýjun lífdag-
anna. En ég hef aftur fengið trú á
forminu, þ.e. að nálgast tónlistina
eins og ég hef oft gert; að leyfa henni
að flæða og vera ekkert að setja sig í
stellingar eða vera að rembast eitt-
hvað.“
arnart@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 63
Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30 til
20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða.
Stóra sviðið
Ástin er diskó - lífið er pönk
Fös 6/6 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 Lau 14/6 kl. 20:00
Ath. pönkað málfar
Gaukshreiðrið
Athyglisverðasta áhugasýningin 2007/2008
Kúlan
Skoppa og Skrítla í söngleik
Sun 1/6 kl. 11:00 U Sun 1/6 kl. 12:15 Ö Sun 1/6 kl. 14:00 Ö
síðasta sýn.
Síðustu sýningar!
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Dauðasyndirnar-guðdómlegur gleðileikur (Litla sviðið)
Sun 1/6 kl. 20:00 U
Fim 5/6 kl. 20:00 U
Fös 6/6 kl. 20:00 Ö
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 20:00
síðasta sýn.
Takamarkaður sýningarfjöldi
Gítarleikararnir (Litla sviðið)
Aukasýning 4.júní
LADDI 6-TUGUR (Stóra svið)
Sun 1/6 kl. 20:00 Mið 4/6 kl. 20:00
síðasta sýn.
Síðasta sýning 4.júní.
Sumarnámskeið Sönglistar
Mán 16/6 kl. 10:00
Mán 23/6 kl. 10:00
Mán 30/6 kl. 10:00
Mán 7/7 kl. 10:00
Mán 14/7 kl. 10:00
Mán 21/7 kl. 10:00
Hvert námskeið er ein vika
Útgáfu tónleikar Bubba Morthens (Stóra sviðið)
Leikfélag Akureyrar
460 0200 | midasala@leikfelag.is
Wake me up - LeikhópurinnBRAVÓ
(Samkomuhúsið)
Sun 1/6 aukas kl. 20:00 U
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Mammamamma (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Sun 1/6 kl. 20:00 Ö
síðasta sýn.
síðustu sýningar
Möguleikhúsið
5622669 / 8971813 |
moguleikhusid@moguleikhusid.is
Langafi prakkari (Möguleikhúsið/ferðasýning)
Sun 1/6 kl. 14:00 F
þingborg
Lau 7/6 kl. 14:30 F
Frú Norma
4711166 | norma@frunorma.is
Soffía mús á tímaflakki (Sláturhús -
Menningarsetur )
Lau 14/6 frums. kl. 16:00 F
Sun 15/6 kl. 16:00 F
Þri 17/6 kl. 16:00 F
Þri 17/6 kl. 18:00 F
Fim 19/6 kl. 18:00 F
Verkið er sýnt í Sláturhúsinu - Menningarsetur, við Kaupvang,
Egilsstöðum
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Þorkell Sigurbjörnsson - Afmælistónleikar
Mið 4/6 kl. 20:00
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Hvanndalsbræður Tónleikar
Fös 13/6 kl. 21:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Saga til næsta bæjar (Á Sögulofti)
Sun 1/6 kl. 20:00
draugasögur
Sun 8/6 kl. 20:00
lífsreynslusögur
Sun 15/6 kl. 20:00
gamansögur
Sun 22/6 kl. 20:00
úrslitakvöld
Landskeppni sagnamann
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 1/6 aukas. kl. 15:00
Fim 5/6 aukas. kl. 15:00
Fim 5/6 aukas. kl. 20:00
Fös 6/6 kl. 20:00
Lau 7/6 kl. 15:00
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 16:00
Lau 28/6 kl. 15:00
Lau 28/6 kl. 20:00
Þrjár tilnefningar til Grímunnar
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Lau 7/6 kl. 20:00 U
Sun 8/6 kl. 16:00 U
Lau 14/6 kl. 15:00 U
Lau 21/6 kl. 15:00 U
Lau 21/6 kl. 20:00 U
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Act alone á Ísafirði (Hamrar/Edinborgarhúsið)
Mið 2/7 kl. 20:00
steinn steinarr/búlúlala - öldin hans
steins
Fim 3/7 kl. 12:00
örvænting, það kostar ekkert að tala í
gsm hjá guði, álfar, tröll og ósköpin öll,
kínki skemmtikraftur að sunnan, lífið
hans leifs, englar í snjónum
Fös 4/7 kl. 12:00
munir og minjar, súsan baðar sig, ég
bið að heilsa, sinfóníuhljómsveit sex
strengja, fragile, aðventa
Lau 5/7 kl. 13:00
eldfærin, jói, langbrók, blúskonan
einleikinn blúsverkur, völuspá,
superhero
Sun 6/7 kl. 14:00
chick with a trick, vestfirskir einfarar,
aðrir sálmar
Leiklistarhátíð
Búlúlala - Öldin hans Steins (Tjöruhúsið
Ísafirði/Ferðasýning)
Lau 21/6 kl. 20:00 F
snjáfjallasetur
Forleikur (Hótel Ísafjörður/Ferðasýning)
Fös 6/6 kl. 21:00
einarshús bolungarvík
Lau 7/6 kl. 21:00
vagninn flateyri
Pétur og Einar (EinarshúsBolungarvík)
Sun 1/6 kl. 16:00
Lau 7/6 kl. 20:00
Fim 19/6 kl. 20:00
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Fim 5. júní kl. 19.30
Lady and Bird - Barði Jóhannsson
og Keren Ann Zeidel
Hljómsveitarstjóri: Daniel Kawka
Barði Jóhansson er ekki einhamur maður í tónsköpun sinni. Ein
birtingarmyndin er Lady and Bird, samstarfsverkefni hans og frönsku
tónlistarkonunnar Keren Ann Zeidel. Á tónleikunum flytja þau tónlist
Lady and Bird auk tónlistar sem þau semja hvort um sig, í hljóm-
sveitarbúningi Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík með
stuðningi Franska sendiráðsins.
■ Fös. 20. júní kl. 19.30
20 horn - og einn sólisti
Sinfóníuhljómsveitin lýkur starfsárinu með stæl og flytur hina
risavöxnu Alpasinfóníu Richard Stauss, og fleiri verk þessa meistara
litbrigðanna.