Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 64
64 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Do you want to study
Computer Science or IT?
Grundtvigs Allé 88
Sønderborg
Tlf. 45 7412 4141
www.sdes.dk
● Do you want to study in Denmark?
● Do you want to study in Denmark in an international environment?
● Are you looking for education which give good job possibility after
graduation?
● Are you interested in computers and IT?
● Are you looking for a short education at university level?
Do as Hrund Brynjólfsdóttir and other brave young students.
Every year The Academy for Business and Technical studies in Sønderborg
Denmark welcomes students from Iceland. Come and join us! Sønderborg
has an active "Íslendingafélag".
Visit our website www.sdes.dk to read more of your future in Denmark.
Hljómsveitarstjóri ::: Stefan Solyom
Einleikari ::: Radovan Vlatkovic
Richard Strauss ::: Alpasinfónía
Richard Strauss ::: Homkonsert nr. 2
Richard Strauss ::: Ævintýri Ugluspegils
FÖSTUDAGINN 20. JÚNÍ KL. 19.30
Það má búast við mögnuðum blæstri þegar saman
koma hornavirtúósinn Radovan Vlatkovic og 20
hornleikarar í mikilli Strauss-veislu. Tónleikarnir
eru í tilefni af alþjóðlegu hornaþingi í Reykjavík.
20 + 1 horn
tónleikar í háskólabíói
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
FIMMTUDAGINN 05. JÚNÍ KL. 19.30
Dúettinn Lady and Bird, sem þau Barði Jóhanns-
son og Keren Ann skipa, nýtur mikilla vinsælda
víða um heim. Lög þeirra hafa nú verið færð í
hljómsveitarbúning sérstaklega fyrir þetta tilefni.
Tónleikarnir njóta stuðnings franska sendiráðsins
og eru hluti af Listahátíð í Reykjavík.
tónleikar í háskólabíói
Lady and Bird
Hljómsveitarstjóri ::: Daniel Kawka
Einsöngvarar ::: Barði Jóhannsson og Keren Ann
Tónlist eftir Bang Gang, Keren Ann og Lady and Bird
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
Langar þig til að læra að spila eftir eyranu
eða eftir nótum - þú velur
Fjögurravikna námskeið að hefjast.
Hljómborð - Gítar - Bassi - Trommur.
50 mínútur einu sinni til tvisvar í viku, eða eftir samkomulagi.
Hljóðvinnsla - öll algengustu og bestu tónlistarforritin.
Pro Tools - Reason - Cubase
90 mínútur einu sinni til tvisvar í viku, eða eftir samkomulagi.
Allt einkatímar - Námskeiðið hefst 2. júní.
LITLI TÓNLISTARSKÓLINN
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík
Sendu okkur línu á litlitonlistarskolinn@gmail.com eða hslord@hive.is
Nánari upplýsingar í síma: 896 1114, Hilmar.
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
„STAÐAN er klárlega erfið þegar
aðsókn að tónleikum og þar með
tekjur bregðast með þessum
hætti, en eftir þessi blaðaskrif
velti ég því fyrir mér hvort það
hafi verið verra fyrir tónlist-
armennina að FÍH tók mál þeirra
að sér, því ég held að það sé mál-
inu alls ekki til framdráttar að
draga það fram með þessum hætti
í fjölmiðlum,“ segir Sigurður Kai-
ser, tónleikahaldari og eigandi við-
burðafyrirtækisins Ofurhetjur er
stóð að Bítlatónleikum í Há-
skólabíói í mars síðastliðnum. Að-
sókn að tónleik-
unum var langt
undir vænt-
ingum og tap af
þeim umtalsvert.
Björn Th. Árna-
son, fram-
kvæmdastjóri
FÍH, sem rekur
mál 38 hljóð-
færaleikara Sin-
fóníuhljómsveitarinnar sem ekki
fengu greitt fyrir vinnu sína, mót-
mælti í Morgunblaðinu í gær um-
mælum Sigurðar um að FÍH hefði
brugðist félagsmönnum í málinu.
„Mér finnst enginn sómi að
framkomu Björns Th. Árnasonar
sem hefur rokið upp með gíf-
uryrðum í minn garð. Ekki hefur
hann haft samband við mig fyrst
hann er að gera það að atriði
málsins, þó vorum við t.d. í ágæt-
um tölvupóstssamskiptum fyrir
tónleikana og hittumst á fundi.
Auk þess sendi ég honum grein-
argerð að loknum tónleikum þar
sem ég fór yfir málið og hann hef-
ur vísað til,“ segir Sigurður.
Menningarsjóður FÍH
„Eftir tónleikana heyrði ég frá
FÍH að ég ætti að leggja laun
hljóðfæraleikaranna inn á reikning
menningarsjóðs FÍH. Þetta var
auðvitað ekki rétt leið og ekki veit
ég hvernig þeir vilja réttlæta þá
beiðni, en auðvitað hefði hver og
einn hljóðfæraleikaranna þurft að
senda Ofurhetjum reikning fyrir
sinni vinnu þar sem samningur lá
ekki fyrir og því ekkert í bókhald-
inu vegna vinnu tónlistarmann-
anna.“
Í sama viðtali við Björn sagði
hann að Sigurður hefði í eigin per-
sónu komið til FÍH og að félagið
liti svo á að hann væri alfarið
ábyrgur en ekki fyrirtæki hans Of-
urhetjur. Sigurður hafnar þessu
alfarið: „Öll mín gögn og tölvu-
samskipti voru merkt Ofurhetjum.
Ekki dettur mér í hug að hann sé
á þessum fundum á eigin vegum,
heldur er hann þarna í forsvari
fyrir tónlistarmenn á Íslandi, þess
vegna leitaði ég til hans. Ég veit
ekki hvort hann heldur að auð-
veldara sé að sækja þetta á mig
persónulega en það er bara ekki
rétta leiðin og ekki sæmandi
manni í hans stöðu sem er í for-
svari fyrir stéttarfélag.“
Ábyrgð fjölmiðla
Sigurður segir þetta mál ekki
spurning um vilja, heldur getu, því
glaður vildi hann geta greitt tón-
listarmönnunum laun. Hann hafi
ekki reynt að fela það að fjármun-
irnir væru ekki til og ítrekar að
hann hyggist gera upp við tónlist-
armennina þótt síðar verði.
„En mér finnst það líka kald-
hæðni að fjölmiðlar skuli nú, þegar
tónleikunum er lokið og staðan er
þessi, hafa meiri áhuga á verkefn-
inu. Hefðu þeir sýnt viðburðinum
slíkan áhuga á sínum tíma hefði
þessi staða kannski ekki verið
uppi, áhorfendur hefðu skilað sér
og allir hefðu fengið greitt.“
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Bítl Þrátt fyrir stórar íslenskar stjörnur og eina merkustu plötu rokksögunnar var aðsókn langt undir væntingum.
„Enginn sómi að
framkomu FÍH“
Sigurður Kaiser gagnrýnir Félag íslenskra hljómlista-
manna fyrir að sækja mál gegn sér persónulega
Sigurður Kaiser
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111