Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 71 MasterCard Mundu ferðaávísunina! Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Glæsileg aðstaða • Allt innifalið • Loftkæling • Svalir/verönd • Glæsilegur garður • 3 sundlaugar • Líkamsrækt • Snyrtistofa • Barnaklúbbur (4-12 ára) • Barnaleiksvæði • Tennisvellir • 2 veitingastaðir • 2 barir • Skemmtidagskrá • Íþróttaaðstaða ... og fleira og fleira frá kr. 49.990 Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð 17. júní til Fuerteventura, sem slegið hefur í gegn hjá Íslendingum. Á þessari fögru eyju finnur þú einstaklega fallegar strendur, frábært loftslag og góða gististaði þar sem þú getur notið sumarleyfisins við hreint frábærar aðstæður. Bókaðu strax! Mjög tak markað magn í b oði á þessu verði! Glæsileg gisting! SUNRISE JANDIA RESORT – allt innifalið Sunrise hótelið stendur aðeins um 300 metra frá frábærri Jandia ströndinni og örstutt frá hinum skemmtilega bæ Morro Jable. Hótelið býður frábæran aðbúnað í fríinu í öruggu umhverfi, að því ógleymdu að allt er innifalið meðan á dvölinni stendur. Á hótelinu eru í boði herbergi, sem rúma tvo fullorðna, og íbúðir með einu svefnherbergi sem rúma allt að fjóra og eru frábær kostur fyrir fjölskyldur. Herbergi og íbúðir eru með loftkælingu, baðherbergi með hárþurrku, gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi og svölum eða verönd. Sundlaugargarðurinn er rúmgóður og fallegur en þar eru tvær sundlaugar auk sérstakrar barna- laugar og íþróttaaðstöðu. Á hótelinu er starfræktur barnaklúbbur fyrir börn frá 4-12 ára og góð leikaðstaða er fyrir börnin. Fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir börn og fullorðna er í boði. Tveir veitingastaðir eru á hótelinu og tveir barir. Allt innifalið „Allt innifalið“ felur í sér morgun-, hádegis og kvöldverðarhlaðborð á aðalveitingastað hótelsins. Með máltíðum er boðið upp á vín, vatn, gosdrykki og bjór (innlendir drykkir). Ath. áfengir drykkir eru ekki í boði með morgunverði. Ef hungurs eða þorsta verður vart á milli mála þá þá eru einnig fjölbreyttir kostir í boði. E N N E M M / S IA • N M 3 3 89 4 – með öllu inniföldu Ótrúlegt verð 1 eða 2 vikur Allt innifalið Kr. 49.990 – 1 vika Kr. 64.990 – 2 vikur Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu svefherbergi með öllu inniföldu í 1 eða 2 vikur, 17. júní. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja/íbúða í boði á þessu verði. Kr. 64.990 – 1 vika Kr. 84.990 – 2 vikur Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með öllu inniföldu í 1 eða 2 vikur, 17. júní. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja/íbúða í boði á þessu verði. Ótrúlegt sértilboð 17. júní Fuerteventura TÓNLIST Geisladiskur Dísa bbbbn Fyrsta sólóplata Bryndísar Jakobsdóttur. Á síðasta áratug nýliðinnar aldar var Emilíana Torrini efnilegasta tónlistarkona Íslands. Aldamóta- verk hennar og frumburður á er- lendum vettvangi, Love InThe Time Of Science, staðfesti og hæfi- leikana svo um munaði. Þá hætti Emí að vera bara efnileg. Hún var orðin verulega góð. Bryndís Jak- obsdóttir er rétt eins og Emilíana var, ung að árum og gríðarlega efnileg. Músíkalitetið drýpur af hverjum tóni sem hún syngur og tónsmíðahæfileikarnir eru auð- heyrilega umtalsverðir. Á frumburði Dísu má víða finna prýðileg dæmi um þetta. Upphafs- lagið „Temptation“ er til að mynda ljómandi lagrænn smellur sem Dísa samdi í félagi við Shelly Poole. Þá er hið dansvæna „Anni- versary“ einkar haglega samið af Dísu og helsta samstarfsmanni hennar á plötunni, Sam Frank. Enn betri er þó kompónering þeirra, „Excuses“, þótt áhrif frá áðurnefndri Emilíönu séu nánast óþægilega mikil í útfærslunni allri, einkum þó í söngblæbrigðum. Sömu áhrif eru og afgerandi í fleiri lögum, ekki síst í „Final Call“, sem hljómar raunar eins og afgangslag frá upptökuferlinu á Love In The Time Of Science. Annars er rétt að dvelja ekki of mikið við auðheyrileg áhrif Torrini á Dísu, þótt engum sé greiði gerð- ur með því að láta þeirra ógetið. Samanburðurinn er og engu minna til hróss en hnjóðs, því hér skal undirstrikað að Dísa er sennileg- ast okkar mesta efni síðan Emil- íana kom fram og verðskuldar því fyllilega að vera nefnd í sömu andrá. Besta lagið á frumburði Dísu er annars laust við augljós áhrif frá öðrum. „Sincerity“ nefnist sú þekkilega smíð og er afar smekk- lega útsett. Hún gæti og hæglega reynst stefnumótandi útgangs- punktur fyrir Dísu, á hinni löngu og hlykkjóttu leið sem framundan er á tónlistarbrautinni, þar sem öðru fremur er mikilvægt að marka sér ákveðna sérstöðu og stíl. Lagið syngur Dísa töfrandi veikt á djúpu tónunum og minnir þar hreint ótrúlega mikið á móður sína, Ragnhildi Gísladóttur. Dísa er annars gríðarlega fjölhæf söng- kona, með breitt raddsvið og óvenjulega ríkt næmi fyrir dýna- mík. Þannig syngur hún jöfnum höndum bjart og djúpt, sem og sterkt og veikt, algjörlega fyr- irhafnarlaust og ávallt af mikilli tilfinningu. Þetta er tvímælalaust helsti styrkur þessarar bráð- efnilegu tónlistarkonu. Hún er ein- faldlega framúrskarandi söngkona. Platan hefði að ósekju mátt vera styttri, eins og títt er með plötur sem gefnar eru út á þeim bagalega plássmikla miðli sem geisladisk- urinn er. Þannig eru „Alien Symp- hony“ og „Equation“ heldur rislitl- ar smíðar og óspennandi. Lögin á íslensku eru þó kærkomin, hin áhrifamiklu „Ljáðu mér eyra“ og „Heyr mína bæn“. Hið fyrrnefnda er úr kvikmyndinni Veðramót og frábærlega flutt af Dísu og með- reiðarsveinum hennar í hljómsveit- inni Shady. Smíðin er Dísu og góð, við texta Dóra DNA. Síðarnefnda lagið þekkja allir og skilar Dísa því angurvært og óaðfinnanlega í acapella, þótt áhrifshljóð í byrjun séu í besta falli kjánaleg. Frumburður Dísu er heilt yfir afar faglega unninn og fram- úrskarandi vel sunginn, þótt frá- leitt sé hann gallalaus. Orri Harðarson Áhrifaríkt upphaf TÓNLIST Geisladiskur Númer núll – Lykill að skírlífsbelti bbbnn ROKKSVEITIN Númer núll hef- ur verið starfandi í rúm fjögur ár og hefur verkað sitt rokk fram og til baka á þeim tíma með sæmilega reglulegu tónleikahaldi. Þessi fyrsta plata sveitarinnar hefur verið í smíðum í nokkuð drjúg- an tíma; var unnin í ígripavinnu eins og mönn- um er gjarn- an uppálagt hafi þeir ekki fulla atvinnu af tón- listinni. Innihaldinu væri best lýst sem einhvers konar nýbylgjuskotnu gítarrokki, en það er engu að síður harðsvíruð einföldun. Tónlist Númer núll er nefnilega þannig uppbyggð að hún hljómar af- skaplega sérkennilega … en um leið alls ekki. Það er eitthvað skringilegt við alla hljómaganga og kafla en um leið stinga lögin ekkert í eyru, heldur liggja þvert á móti ágætlega þægilega upp að þeim. Þannig er afskaplega erfitt að pinna hljóminn niður á eitthvað sem á undan hefur komið, helst að hin andans skylda Ég komi upp í hugann og einnig Ensími (söng- urinn). Það færi því eiginlega best á því að lýsa tónlistinni sem „ein- kennilega“ grípandi. Fyrstu tvö lögin, „Hér á allt að fá að flæða“ og „Nælon“, falla rækilega undir áðurnefnda skil- greiningu en gripkraftinum er misskipt, sum laganna spretta þannig upp með sinn innbyggða skringileika án þess þó að hreyfa sérstaklega við manni. Hljómur á þá til að vera full flatur og holur. Númer núll siglir keik sína eigin uppdiktuðu leið eins og sérstakt nafn sveitarinnar ber með sér. Tit- ill plötunnar, umslagshönnun, ljós- myndir og auðvitað lögin sjálf lúta sama lögmáli. Hér er allt á eina og einstaka bók lært. Þessi frumleiki, sem er helsti kostur plötunnar, skilar sér þó ekki nægilega oft í eftirminnilegum lagasmíðum. Nálgun Númer núll við rokkið er engu að síður forvitnileg og spenn- andi og það verður áhugavert að sjá hvað næsta atrenna ber með sér. Arnar Eggert Thoroddsen Allt á floti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.