Morgunblaðið - 10.11.2008, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
EINN stærsti rækjutogari Noregs,
Remøy-Viking, er fastur í flotkví hjá
Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafn-
arfirði þar sem hann var í viðgerð.
Vélsmiðjan neitar að afhenda skipið
fyrr en viðgerðarkostnaður hefur
verið greiddur.
Áhöfn Remøy-Viking, fjórtán
menn samtals, fór heim til Noregs
með flugi á laugardaginn, en áhöfnin
dvaldist hér meðan á viðgerð togar-
ans stóð.
Hefur aðeins greitt hluta
Í siglingalögum er sérstakt ákvæði
sem felur í sér að sá sem gerir við
skip á haldsrétt í því þangað til við-
gerðarkostnaður hefur verið greidd-
ur. „Eigandi skipsins hefur aðeins
greitt hluta viðgerðarkostnaðar,“
segir Eiríkur Ormur Víglundsson,
framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar.
Deilan snýst um bankatryggingu
sem vélsmiðjan samþykkir ekki sem
greiðslu. „Það er hægt að gefa út alls
kyns bankatryggingar en þessi sem
hann gaf út er ekki aðgengileg fyrir
okkur,“ segir Eiríkur. Hann segir að
málið sé nú í höndum lögmanna.
„Núna hefur hann greitt hluta og
vill greiða afganginn með banka-
tryggingu. Við höfum aldrei fengið
tryggingar af þessu tagi fyrir við-
gerðir. Þetta mál er líka aðeins öðru-
vísi þar sem þetta er útlendingur, það
er ekki eins og hann sé hérna við hlið-
ina á okkur þegar við þurfum að tala
við hann,“ segir Eiríkur. Hann segir
að öll erlend skip greiði fyrir við-
gerðir að fullu þegar þau fari og að
hið sama gildi um íslensk skip sem
gert er við í öðrum löndum.
Tryggingin ekki nægilega mikil
Jón Auðunn Jónsson, lögmaður
Vélsmiðjunnar, segir að ekki sé eðli-
legt að gefin sé út bankatrygging í
Noregi í norskum krónum sem um
gildi norsk lög vegna viðskipta hér á
landi.
„Hann er búinn að greiða 60% af
viðgerðarkostnaðinum og heldur 40%
eftir. Ef það er ágreiningur um reikn-
inginn þá geta menn sett tryggingu
fyrir því sem ágreiningur er um, en
hann hefur ekki sett fram neina
gagnrýni á upphaflegan reikning.
Auk þess er bankatryggingin ekki
nægilega mikil, jafnvel þótt norska
krónan sé reiknuð á genginu 20,“ seg-
ir Jón.
Morgunblaðið/Ómar
Norski togarinn Remøy-Viking, einn stærsti rækjutogari Noregs, er í flotkví hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði þar sem hann var í viðgerð.
Situr fastur í flotkvínni
Einn stærsti rækjutogari Noregs fastur í flotkví vegna deilu um greiðslu
Áhöfnin fór heim með flugi Vélsmiðjan samþykkir ekki tryggingu
„Þetta er algjörlega óskiljanlegt,“ segir Jack Remøy, eigandi togar-
ans, en hann segist virkilega óánægður með vinnubrögð Vélsmiðj-
unnar. „Ég lét þá fá bankatryggingu frá Nordea, sem í öllum venju-
legum viðskiptum ætti að duga, sem þeir taka ekki gilda. Þetta er
mjög undarlegt mál í alla staði og ég er mjög hissa á því að svona sé
málum háttað í viðskiptum á Íslandi,“ segir Remøy. Hann segir að
málið snúist ekki um upphæðir, viðgerðarkostnaðurinn sé aðeins lítill
hluti af andvirði skipsins. Nordea sé stærsti banki Noregs og njóti trú-
verðugleika eftir því, sem geri málið enn skrýtnara. Remøy hefur ráð-
ið íslenska lögmenn til þess að gæta hagsmuna sinna, en hann segist
aldrei hafa lent í svona löguðu áður. „Maður veltir því fyrir sér hvort
þeir hafi frekar viljað fá bankatryggingu frá íslenskum banka,“ segir
Remøy.
Algjörlega óskiljanlegt
BRESKA veðmálafyrirtækið Bet365
tekur ekki lengur við veðmálum með
greiðslukortum í íslenskum krónum.
Fyrirtækið upplýsti íslenska við-
skiptavini sína um þetta bréfleiðis í
gær en margir Íslendingar veðja um
íþróttir og spila póker og önnur fjár-
hættuspil á vef fyrirtækisins.
Ástæðan er sú að banki Bet365
heimilar ekki lengur kortafærslur í
íslenskum krónum. Er íslenskum
viðskiptavinum boðið að stofna nýja
reikninga þar sem kortafærslur
þeirra verða gjaldfærðar í öðrum
gjaldmiðli en krónu.
Talskona Bet365 segir að fyrir-
tækið taki við íslenskum krónum en
geti ekki tekið við kortafærslum í
krónum vegna ákvörðunar við-
skiptabanka fyrirtækisins. Hún
sagði málið því ekki í höndum Bet365
því þetta hefði verið ákvörðun bank-
ans. Ekki fengust upplýsingar um
hvaða viðskiptabanki þetta væri og á
hvaða forsendum slík ákvörðun hefði
verið tekin. thorbjorn@mbl.is
Hættir að
taka við
krónum
Engar kortafærslur í
krónum hjá Bet365
NOKKUÐ er um það að rjúpna-
veiðimenn fari á óskráðum fjór-
hjólum og torfæruhjólum til rjúpna-
veiða í Þingeyjarsýslum. Lögreglan
á Húsavík hefur fengið ábendingar
um þetta og jafnvel eru dæmi um að
menn skjóti af hjólunum sem ekki er
leyfilegt undir neinum kringum-
stæðum.
„Menn eiga ekki að vera að þvæl-
ast um á óskráðum tækjum, hvað þá
með vopn,“ sagði Aðalsteinn Júlíus-
son, varðstjóri hjá Lögreglunni á
Húsavík. Engin kæra hafði borist
um þetta þegar rætt var við hann en
nokkrar ábendingar. Lögreglan
reynir að hafa eftirlit með veiðunum.
Henni er þó nokkuð þröngur stakk-
ur skorinn til að fylgjast með á veiði-
svæðunum, að sögn Aðalsteins,
vegna þess að hún hefur ekki yfir að
ráða nógu öflugum bíl eins og er.
helgi@mbl.is
Við veiðar
á óskráðum
tækjum
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
GETUR verið að hljóðið torkenni-
lega sem plagar íbúa Richardshúss
á Hjalteyri við Eyjafjörð sé frá
rússneskum kafbáti? Eða eru fram-
liðnir þarna á ferð? Íbúum hússins
hefur borist fjöldi ábendinga og
hugmynda og eru margar þeirra
satt að segja býsna áhugaverðar.
„Ég get stundum ekki annað en
hlegið þótt ég eigi auðvitað ekki að
gera það. Þetta er ekkert hlægi-
legt,“ segir Erna Jóhannsdóttir,
einn íbúa hússins.
Nokkuð hefur verið um að fólk
hringi í íbúa hússins og lýsi þeirri
skoðun að dulrænar ástæður liggi
að baki hljóðinu. Ekki síst eftir þátt
Jóns Ársæls Þórðarsonar, Sjálf-
stætt fólk, á Stöð 2 fyrir stuttu en
þar var sýnt frá heimsókn hans í
Richardshús og voru miðlar með í
för. Reyndar var nokkuð um slíkar
hugmyndir fyrir þáttinn en þeim
fjölgaði í kjölfarið. Síðast á föstu-
daginn bankaði kona upp á í hús-
inu, seint um kvöldið, og vildi fá að
biðja fyrir hinum framliðnu. Tveir
miðlar nefna litla stúlku sem á að
hafa látist á Hjalteyri en þeim ber
ekki saman um hvenær hún hafi
verið á staðnum; annar segir það
hafa verið á meðan Thorsararnir
bjuggu þar en hinn miklu fyrr.
„Ég er viss um að hávaðinn er
ekki frá framliðnum. Það væri
skrýtið ef fólk léti allt í einu á sér
kræla eftir öll þessi ár!“ segir Erna.
„Það getur vel verið að hér sé fólk
en það hefur aldrei gert okkur
nokkurn skapaðan hlut og hér hef-
ur aldrei neinn verið hræddur, ekki
einu sinni börnin. Fólk má vera hér
í friði fyrir mér.“
Erna segir að skondnasta hug-
myndin hafi komið frá manni sem
hringdi eftir að hann heyrði hljóðið
í útvarpinu og sagði þetta sömu
tíðni og frá rússneskum kafbátum í
Múrmansk.
„Ég velti því fyrir mér í fram-
haldinu hvort hljóðið væri frá and-
arnefjunum sem syntu hér inn og út
Eyjafjörðinn í sumar! Nú eru þær
farnar en hljóðið ekki …“
Margir hafa nefnt sjónvarps-
loftnetið, síðast um helgina hringdi
maður sem lenti í samskonar
vandamáli og gaf Ernu góð ráð, en
hún hafði fyrir löngu gripið til þess.
Á meðan bíða íbúarnir.
Framliðnir að verki eða hljóðið frá kafbáti?
Fjöldi fólks hefur haft samband við íbúa Richardshúss á Hjalteyri og komið með margvíslegar
hugmyndir um ástæður hljóðsins torkennilega Margir trúa því að dulrænar ástæður búi að baki
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hljóð heyrist enn Richardshús á Hjalteyri. Margir hafa eitthvað til mál-
anna að leggja en íbúum hússins finnst ýmislegt af því heldur skondið.
Dulrænt? Málverk sem kona sendi
íbúum hússins og bað um að héngi á
ákveðnum vegg í stofunni í 10 daga.