Morgunblaðið - 10.11.2008, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 26. nóvember í 24
nætur á frábæru tilboði. Þú bókar
flugsæti og fjórum dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu
tækifærið og njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað í rúmar 3 vikur á
ótrúlegum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Stökktu til
Kanarí
26. nóvember
frá kr. 79.990
Verð kr. 79.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi /
studíó / íbúð í 24 nætur. Stökktu
tilboð 26. nóvember.
Frábær ferð - 24 nætur
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„FÓLK á að bíða, það er ekkert vit í að breyta
erlendum lánum núna yfir í verðtryggða ís-
lenska krónu,“ segir Ingólf-
ur H. Ingólfsson fjármála-
ráðgjafi aðspurður hvort
hann ráðleggi lántakendum
að breyta lánum í erlendri
mynt yfir í íslenskar krón-
ur.
Hann segir að slík breyt-
ing sé ekki ráðleg. Í fyrsta
lagi vegna þess að krónan
sé svo lágt verðlögð um
þessar mundir og í öðru
lagi vegna þess að gera
megi ráð fyrir gríðarlegri verðbólgu hér
næstu mánuði ef spár gangi eftir. Verðbólga
muni hækka höfuðstól lána enn meira.
„Það á að vera hægt að semja við lánafyr-
irtæki og banka varðandi erlendu lánin í fram-
haldi af tilmælum stjórnvalda,“ segir Ingólfur.
„Þá skiptir mestu máli að fá að frysta lánið í
einhverja mánuði, greiða eingöngu vexti tíma-
bundið eða í þriðja lagi að lengja eins mikið í
láninu og mögulegt er. Þetta lækkar afborg-
unarhlutann og prinsippið er að greiða eins lít-
ið af erlendu lánunum í augnablikinu og mögu-
legt er.“
Hann segir að framkvæmd lánafyrir-
greiðslu sé með ýmsum hætti hjá fyrirtækj-
unum og engin sameiginleg regla virðist vera
hjá þeim, hvorki lýsingarfyrirtækjum eða rík-
isbönkum. Fyrirtækin framkvæmi þetta hvert
með sínu nefi, en öll bjóði upp á einhvers kon-
ar frestun.
Hann segir að talsverðar annir séu hjá ráð-
gjafafyrirtæki hans og þangað leiti einkum
fólk sem vilji grípa til ráðstafana áður en það
lendi í erfiðleikum. Þeir sem lendi í verulegum
greiðsluerfiðleikum virðist frekar leita til Ráð-
gjafastofu um fjármál heimilanna, þar sem
veitt er ókeypis ráðgjöf.
Svo er það atvinnuleysið sem
setur allt úr skorðum hjá fólki
Hann segir að margir standi illa, greiðslu-
byrði af lánum hafi aukist gífurlega, kaup-
mátturinn minnkað og því sé minna aflögu til
að greiða af lánunum.
„Svo er það atvinnuleysið sem er alveg
skelfilegt og setur allt úr skorðum hjá fólki,“
segir Ingólfur. „Það á eftir að versna og þess
vegna hef ég lagt til að ríkisvaldið til að mynda
frysti verðbótaþáttinn. Það er engin hemja að
með þessu verðbótafyrirkomulagi, sem er ekk-
ert annað en vaxtavextir sem eru teknir af
láni, þá er eigið fé heimilanna að fuðra upp.
Ég hef heyrt félagsmálaráðherra nefna sem
andsvar að þar með myndi eigið fé Íbúða-
lánssjóðs þurrkast upp á skömmum tíma. Þá
er bara um tvennt að velja; að eigið fé þessa
opinbera fyrirtækis fuðri upp eða heimil-
anna.
Ráðherrann verður að taka afstöðu til þess
hvora leiðina hann vill fara,“ segir Ingólfur
Ingólfsson.
Erlent frekar en verðtryggt
Ekkert vit í að breyta erlendum lánum yfir í verðtryggða íslenska krónu, segir fjármálaráðgjafi
Ráðherra taki afstöðu til þess hvort hann vill að peningar heimilanna fuðri upp eða Íbúðalánsjóðs
Ingólfur H.
Ingólfsson
Í HNOTSKURN
»Verðbólga hækkar höfuðstól inn-lendra, verðtryggðra lána.
»„Prinsippið“ er að greiða eins lítið aferlendum lánum í augnablikinu og
mögulegt er.
»Lánafyrirtæki og bankar bjóða öllupp á einhvers konar frestun, en
framkvæmdin er breytileg.
Eftir Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður | Unnið hefur verið alla helgina
við síldarsöltun hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðs-
firði. Saltað hefur verið í tíu þúsund tunnur sem
afskipað hefur verið jöfnum höndum til kaup-
enda í Kanada og á Norðurlöndunum.
Síldin hefur verið veidd við Stykkishólm og er
því löng sigling á milli staða. Hoffell SU 80, sem
veitt hefur alla þá síld sem hér hefur verið unnin,
er búið að landa um 2600 tonnum, sem eru um
helmingur þess kvóta sem skipið hefur.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Saltað í tíu þúsund tunnur
HANNES Smárason, fyrrverandi
stjórnarformaður FL Group, vísar
alfarið á bug upplýsingum sem fram
komu í grein Agnesar Bragadóttur,
blaðamanns á Morgunblaðinu, í gær
um þriggja milljarða króna milli-
færslur stjórnarformannsins frá FL
sumarið 2005 vegna kaupa Pálma
Haraldssonar á Sterling og kallar
aðdróttanir.
„Engin lög voru brotin eins og gef-
ið er í skyn og er allur málflutningur
í fréttinni afar ósmekklegur,“ segir í
yfirlýsingu sem Hannes sendi frá sér
í gær. „FL Group lét gera óháða út-
tekt á þessu máli í aðdraganda aðal-
fundar félagsins 2006 og hefur ítrek-
að svarað þessum fullyrðingum. Í
þessu sambandi er rétt að rifja upp
aðalfund félagins frá árinu 2006 þar
sem þetta mál var til umræðu. Á
fundinum komu fram spurningar frá
Vilhjálmi Bjarnasyni um ólögmætar
millifærslur og svör í tengslum við
þessar meintu
millifærslur fé-
lagsins, lögmæti
þeirra og niður-
stöður sérstakrar
rannsóknar sem
stjórn félagsins
lét framkvæma.
Auðveldast er að
vitna hér til orða
Jóns S. Helga-
sonar endurskoðanda hjá KPMG um
þessi mál frá aðalfundinum 2006:
„Jón S. Helgason, löggiltur endur-
skoðandi hjá KPMG, tók því næst til
máls að beiðni stjórnarformanns.
Hann áréttaði að endurskoðendur
hefðu áritað síðasta uppgjör félags-
ins án athugasemda og þar kæmi
fram að þeir styddust við alþjóðlegar
reglur. Hann sagði að fram hefði far-
ið skoðun á stærri færslum hjá FL
Group á því tímabili (innskot: sum-
arið 2005 sérstaklega) sem Vilhjálm-
ur Bjarnason væri að spyrja um.
Málum væri þannig háttað að tölu-
verðir fjármunir væru í ávöxtun á
hverjum tíma, en skemmst væri frá
því að segja að allar útborganir fé-
lagsins hefðu skilað sér til baka með
eðlilegri ávöxtun innan mislangs
tíma og hann gæti staðfest að þar
væru engar slíkar greiðslur sem Vil-
hjálmur vísaði til.“
Þessi yfirlýsing var birt og und-
irrituð athugasemdalaust af fundar-
stjóra og fundaritara og var öllum
hluthöfum gefinn kostur á að lesa
hana yfir og koma með athugasemd-
ir sem engar bárust. Þá hafa hlut-
hafar og fjölmiðlar haft aðgang að
fundargerðinni eins og lög kveða á
um.
Einnig skal bent á að hluthafa-
fundur almenningshlutafélags er
æðsta vald félagsins og þar gefst öll-
um kostur á að koma fyrirspurnum
sínum á framfæri.“
Hafnar upplýsingum
um millifærslur
Hannes Smárason
MARGIR hafa undanfarið hringt í
Skinney Þinganes á Höfn í Horna-
firði til að vita hvort ekki sé þar
vinnu að fá. Fram kemur á vef
sveitarfélagsins að margir hafi
fengið vinnu í síldinni eða við önnur
störf hjá fyrirtækinu.
Skinney Þinganes hefur aðstöðu
fyrir aðkomufólk í gistiheimili við
Hvannabraut. Haft er eftir Sverri
Aðalsteinssyni að allt sé fullt af síld
og öðrum fiski. Skipin sækja síldina
vestur á Breiðafjörð. Þó að þetta sé
löng sigling sé jákvætt að þurfa
ekki að leita að síldinni um allan sjó
eins og oft hefur verið.
Margir
fá vinnu
í síldinni
EKIÐ var á eldri konu á Garðagrund
á Akranesi laust fyrir átta í gær-
kvöldi. Konan, sem er á níræðisaldri,
var flutt alvarlega slösuð til Reykja-
víkur til aðhlynningar á Landspítal-
anum í Fossvogi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Akranesi er
ökumaður bifreiðarinnar hvorki
grunaður um ölvun við akstur né
glæfraakstur. thorbjorn@mbl.is
Keyrt á eldri
konu á Akranesi