Morgunblaðið - 10.11.2008, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
Nú býður SKB upp á tvær gerðir af jólakortum sem
hönnuð eru af Braga Einarssyni og listakonunni Mæju
Gleðjið ættingja, vini, samstarfsmenn og viðskiptavini
með fallegri jólakveðju og styðjið um leið við
krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra
Boðið er upp
á sérvalda
innáprentun með
texta og/eða merki
fyrirtækja
Jólakortin eru
tvöföld og fylgir
hvítt umslag hverju
korti.
Stærð:115x165
mm.
Jólakort Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna
Tekið er við pöntunum á heimasíðu
félagsins www.skb.is eða í síma 588 7555
Jólakortin eru einnig seld á skrifstofu félagsins í
Hlíðasmára 14 í Kópavogi og þar eru þau seld 10
saman í pakka og kostar pakkinn 1.000 krónur.
TVEIR voru fluttir á slysadeild á laugardagskvöld þeg-
ar tveir fólksbílar og strætisvagn skullu saman á
Hringbraut, skammt frá Hljómskálagarðinum. Af þess-
um sökum var Hringbraut lokað um stundarsakir í
austurátt milli Njarðargötu og Suðurgötu. Annar hinna
slösuðu var útskrifaður af sjúkrahúsi í gær og hinn er
ekki á gjörgæslu.
Annar fólksbíllinn var kyrrstæður á götunni og var
ætlunin að fá rafstart frá hinum bílnum þegar stræt-
isvagninn kom aðvífandi með fyrrgreindum afleið-
ingum. Fólksbílarnir eru báðir gjörónýtir.
Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins voru 10-15 farþegar í vagninum þegar slys-
ið varð en slösuðust þeir ekki.
Morgunblaðið/Júlíus
Harður árekstur á Hringbraut
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
FJÓRIR hafa verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 28. nóvember í
tengslum við rannsókn á mannsláti í
sumarbústað í Árnessýslu. 38 ára
karlmaður fannst þar látinn á laug-
ardagsmorgun. Dánarorsök hans er
ekki þekkt.
Karlmaður var úrskurðaður í
gæsluvarðhald á laugardagskvöld og
í gærkvöldi bættust við tvær konur
og annar karlmaður. Fólkið er á
aldrinum 18-32 ára og er líkt og hinn
látni af erlendu bergi brotið. Það var
úrskurðað í varðhald í þágu rann-
sóknarhagsmuna og vegna gruns um
aðild að málinu.
Voru fjögur í sumarbústað
Á laugardagsmorgun barst lög-
reglunni á Selfossi tilkynning frá
manni sem kvaðst hafa komið að fé-
laga sínum látnum í sumarbústað
sem þeir tveir, ásamt tveimur kon-
um, gistu í. Sjúkralið og lögregla
fóru rakleiðis á vettvang og stað-
festu að maðurinn væri látinn. Hann
var fæddur árið 1970 og búsettur í
Reykjavík. Í kjölfarið handtók lög-
reglan karlmanninn og konurnar
tvær. Annar karlmaður var svo
handtekinn í Reykjavík í gær. Eins
og fyrr sagði hafa þau nú öll verið úr-
skurðuð í gæsluvarðhald.
Niðurstöður úr krufningu eru
væntanlegar í dag og þá ætti bana-
mein mannsins að koma í ljós. Slíkt
mun hafa áhrif á í hvaða farveg rann-
sókn málsins verður beint.
Lögregla rann-
sakar mannslát
í sumarbústað
Banamein mannsins ekki þekkt
Fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald
Í HNOTSKURN
»Lögreglunni á Selfossibarst tilkynning á laug-
ardags-
morgun
þess efnis
að maður
væri lát-
inn í sum-
arbústað í Árnessýslu.
»Mað-urinn hafði verið í sum-
arbústað þar ásamt öðrum
karlmanni og tveimur konum.
»Fjórir einstaklingar, tværkonur og tveir karlmenn,
hafa nú verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald vegna málsins.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
FORYSTUMENN í atvinnulífinu
hafa miklar áhyggjur af stöðu fyr-
irtækjanna í núverandi efnahags-
árferði. „Því var varpað fram í um-
ræðum á fundi viðskiptanefndar
Alþingis að líklega mætti ætla að 60-
80% allra fyrirtækja í landinu væru
tæknilega gjaldþrota,“ segir Jón
Steindór Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Í Morgunblaðinu á föstudag kom
fram að aðilar vinnumarkaðarins
hefðu verið nokkuð svartsýnir á
fundi viðskiptanefndar Alþingis.
Eigið fé hefur brunnið
„Það sem er verið að vísa til er
fyrst og fremst að eigið fé mjög
margra fyrirtækja hefur brunnið í
ljósi utanaðkomandi atriða eins og
verðtryggingar og gengisskrán-
ingar. Skuldir hafa vaxið gríðarlega
því mörg fyrirtæki eru með lán í er-
lendri mynt,“ segir Jón Steindór.
Hann segir að þetta hlutfall, 60-
80%, byggi meira á tilfinningu en
tölfræðilegum staðreyndum. At-
vinnulífið í heild sé mjög skuldsett
og full ástæða sé til að hafa miklar
áhyggjur af stöðunni.
Gjaldþrota í vissum skilningi
Gylfi Magnússon, dósent við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla Ís-
lands, segir að ef fyrirtæki, sem eru
með eignir í krónum og stóran hluta
skulda í erlendri mynt, væru gerð
upp núna og það skilaði neikvæðu
eigin fé hjá þeim þá væru þau
„gjaldþrota í ákveðnum skilningi“.
Það myndi þó ekki endilega þýða
endalok þessara sömu fyrirtækja. „Í
fyrsta lagi gæti gengið lagast og þá
gætu fyrirtækin staðið undir skuld-
bindingum sínum á hagstæðara
gengi,“ segir Gylfi.
Hann nefnir samt að í einhverjum
tilfellum sé ekki hægt að halda
rekstri áfram nema með því að af-
skrifa einhvern hluta skulda, eins og
gert sé í t.d neyðarsamningum.
Sumir hafa áhyggjur af stöðu nýju
bankanna þegar rekstur marga fyr-
irtækja, sem eru stórir lántakendur
hjá bönkunum, er í hættu. Bent hef-
ur verið á að ef ákveðinn hluti fyr-
irtækja greiddi ekki afborganir af
skuldum sínum næsta mánuðinn
væri eigið fé nýju bankanna í upp-
námi og þar með fyrirgreiðsla við
allt atvinnulífið einnig.
„Það er alveg rétt að nýju bank-
arnir tóku við lánasöfnum gömlu
bankanna og í mörgum tilvikum er
ekki víst að öll lán verði endurgreidd
að fullu. Það verður að taka tillit til
þess að þegar eignir gömlu bank-
anna voru færðar yfir þá varð að
færa þær með einhverjum afföllum,“
segir Gylfi.
Hann segir að ekki sé hægt að
gera þá kröfu til nýju bankanna að
þeir greiði fullt verð fyrir lánasöfnin.
Hann segir styrk nýju bankanna
ráðast af því hversu mikil afföll verði
af þessum sömu söfnum. „Þó að
skuldunautar bankanna lendi í vand-
ræðum með afborganir í einn eða tvo
mánuði þá er það ekki óviðráðanlegt
vandamál,“ segir Gylfi.
Mörg fyrirtæki eru
tæknilega gjaldþrota
Eigið fé brennur og skuldir hafa vaxið gríðarlega
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir Hægt hefur á hjólum atvinnulífsins og framkvæmdir hafa
stöðvast í kreppunni. Forystumenn í atvinnulífinu eru svartsýnir.
Í HNOTSKURN
»Bent hefur verið á að nán-ast ómögulegt sé að taka
upp evru án aðildar að ESB.
»Viðskiptaráð Íslands ogSamtök atvinnulífsins sjá
aðeins tvo kosti í stöðunni, að
halda krónunni eða sækja um
aðild að ESB.