Morgunblaðið - 10.11.2008, Blaðsíða 8
Morgunblaðið/Júlíus
Austurvöllur Fjöldi manna mætti á friðsamlegan mótmælafund og gerði skýlausa kröfu um breytingar. Eftir fundinn hitnaði í kolunum og Alþingishúsið var grýtt með eggjum, jógúrt og tómötum.
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
UM þrjú þúsund manns mættu á mót-
mælafund á Austurvelli á laugardag, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglu. Þó hefur
komið fram á bloggsíðum að mun fleiri hafi
tekið þátt. Yfirskrift fundarins var Breið-
fylking gegn ástandinu og Hörður Torfa-
son tónlistarmaður stjórnaði umræðum.
Fjórir fluttu ræðu; Sigurbjörg Árnadóttir,
fyrrverandi fréttaritari Rúv í Finnlandi,
Arndís Björnsdóttir kennari, Ragnheiður
Gestsdóttir rithöfundur og Einar Már Guð-
mundsson rithöfundur.
Mótmælafundir hafa verið haldnir viku-
lega frá 11. október og hefur mótmæl-
endum fjölgað stig af stigi með hverju
skiptinu. Fundurinn á laugardag, sem var
sá langsamlega fjölmennasti til þessa, stóð
yfir í tæpa klukkustund og fór friðsamlega
fram. Góður rómur var gerður að máli
ræðumanna og mikil fagnaðarlæti brutust
út þegar Ragnheiður Gestsdóttir vék í máli
sínu að fjárhagsaðstoð Færeyinga.
Að fundinum loknum tók hins vegar að
hitna í kolunum. Hópur manna safnaðist
saman fyrir framan Alþingishúsið og ungir
og aldnir grýttu það með eggjum, tómötum
og jógúrt. Lögreglan, sem var heldur fá-
menn á Austurvelli, mátti hafa sig alla við
að hafa stjórn á ástandinu.
Einn mótmælandi sá sig knúinn til að
sýna hug sinn í verki. Hann lagði stiga að
Alþingishúsinu í garðinum við innganginn
að pöllunum, hljóp upp á þak og dró þar
fána Bónus-verslunarkeðjunnar að húni.
Er lögreglan hugðist fjarlægja fánann og
manninn safnaðist mikill fjöldi manna sam-
an í portinu og var þar aðsúgur gerður að
lögreglu. Engin átök brutust út en einn var
færður í fangageymslur.
Hörður Torfason, skipuleggjandi mót-
mælafundanna, sagði fundinn á laugardag
hafa gengið vel og farið friðsamlega fram.
Hann lagði mikla áherslu á að það sem á
eftir fór hafi ekki verið í neinum tengslum
við mótmælafundinn og til þess fallið að
grafa undan málstaðnum.
Morgunblaðið/Júlíus
Garðurinn Fáliðuð lögregla átti í vök að verjast í garði Alþingishússins, við innganginn að pöllunum.
Margmenni
við mótmæli á
Austurvelli
Fjölmennasti mótmælafundurinn til þessa
Alþingishúsið grýtt eggjum
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
„Ástandið var mun alvarlegra í portinu en
fjölmiðlar hafa sagt frá. Lögreglumenn
voru þar í hættu; þeir kallaðir öllum illum
nöfnum og margsinnis hótað lífláti,“ segir
Daníel Sigurbjörnsson. Hann lagði leið sína
á mótmælin til að taka þar myndir fyrir
einkasafn sitt.
„Ég fór inn í portið þegar maðurinn birt-
ist uppi á þaki með Bónusfánann. Þegar
einn lögreglumaðurinn ætlaði upp stigann
gerði maður í portinu sig líklegan til að
kippa honum aftur niður og það hefði vald-
ið stórslysi. Mér tókst einhvern veginn að hindra manninn og
var kallaður öllum illum nöfnum fyrir vikið og grýttur með
eggjum, jógúrt og tómötum. Ástandið var mun alvarlegra en
menn gera sér grein fyrir. Mér fannst öryggi mínu ógnað
þrátt fyrir að hafa aðeins ætlað að taka þarna nokkrar mynd-
ir fyrir sjálfan mig.“
Daníel
Sigurbjörnsson
„Lögreglumenn í
hættu við störf sín“
Ingvar Á. Þórisson kvikmyndagerð-
armaður var viðstaddur mótmælin.
„Sá sem strengdi upp Bónus-fánann upp-
skar mikið lof fyrir og í kjölfarið safnaðist
fólk saman inni í portinu þar sem stiginn
var. Þar voru aðeins þrír lögreglumenn.
Maður heyrði seinna meir að það voru ein-
hverjir tuddar þarna tilbúnir í slagsmál við
lögregluna en ég held nú að það hafi verið
lítil hætta á því að þau yrðu. Ég tel að það
sé langt í að hér sjóði eitthvað upp úr,“ seg-
ir Ingvar. Hann telur lögregluna hafa brugðist vel við mót-
mælunum. „Ég var þarna fremst og fannst lögreglan bregðast
hárrétt við. Þeir voru ekki með neinar brynsveitir og létu
ekki æsa sig upp í neitt.“
Ingvar telur mikilvægt að svona mótmæli fari fram en þau
verði að vera friðsamleg. „Eitthvað verður að gera. Það þarf
fyrst og fremst að skipta um menn í brúnni.“
,,Þarf að skipta
um menn í brúnni“
Ingvar Þórisson
„Það sem gerist fyrir fundinn og eftir er
ekki á mínum vegum. Mótmælin eru frið-
samleg og boðskapurinn skýr. Við viljum
breytt ástand. Hins vegar eru alltaf ein-
hverjir trúðar sem eingöngu virðast hafa
það að markmiði sínu að skemma eða
vekja athygli á sér,“ segir Hörður Torfa-
son, skipuleggjandi mótmælafundarins á
Austurvelli. Hann segir fundinn hafa geng-
ið vel og farið friðsamlega fram.
Hann leggur jafnframt áherslu á að
markmiðið með mótmælafundunum sé að krefjast breytinga
með friðsamlegum hætti og efla til vitrænnar umræðu. „Það
sem gerðist þarna eftir fundinn var ekkert tengt honum.
Fólk verður að gera sér grein fyrir alvöru málsins. Ef þessi
mótmæli fara úr böndunum, hvað eigum við þá eftir? Ef við
missum þessi mótmæli frá okkur verður erfitt að efna til
nýrra.“
Friðsamleg krafa
um breytingar
Hörður Torfason
Leitað var eftir við-
brögðum hjá Stefáni
Eiríkssyni, lög-
reglustjóra á höf-
uðborgarsvæðinu, í
kjölfar mótmælanna á
laugardag en hann
vildi lítið tjá sig um
málið. Geir Jón Þór-
isson yfirlög-
regluþjónn sagði í
samtali við mbl.is á laugardag að lítið
hefði mátt út af bregða á mótmælunum
ef ekki „ætti allt að sjóða upp úr í mið-
borginni“. Hann sagði jafnframt mikinn
hita vera í fólki en ekki hafi þótt sérstök
ástæða til að kalla út aukalið lögreglu.
Lítið mátti út af
bregða á mótmælum
Geir Jón
Þórisson