Morgunblaðið - 10.11.2008, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Kasmírpeysa í gjafaöskju
er falleg jólagjöf
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
k
a
2
0
0
8
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
TEPPI Á STIGAGANGINN
Ný sending af
bolum, peysum
og jökkum frá
Skeifan 11d
108 Reykjavík
sími 517 6460
www.belladonna.is
Stærðir 42-60
Eftir Ómar Garðarsson
„ÞAÐ er mjög gaman að sjá lítið
verkefni verða að stórum atburði
sem nær til Suðurlands alls,“ sagði
Kristín Jóhannsdóttir, kynningar-
og menningarfulltrúi Vestmanna-
eyjabæjar, um Safnahelgi á Suður-
landi sem lauk í gær. Matur og
menning var yfirskrift dagskrár
Safnahelgar á Suðurlandi þar sem,
auk sögu og menningar, var minnt á
gamlar og nýjar hefðir í matargerð-
arlist.
„Þetta byrjaði fyrir fimm árum
með því sem við kölluðum Safnanótt
í Eyjum þar sem í boði voru list- og
menningarviðburðir af ýmsu tagi.
Núna er þessi Safnanótt okkar hér í
Eyjum orðin að Safnahelgi á Suður-
landi þar sem flest söfn á svæðinu
bjóða upp á einhverja dagskrá.
Einnig eru veitingastaðir með til-
breytingu í mat og drykk,“ bætti
Kristín við.
Margt í boði
Mjög margt var í boði á Safnahelgi í
Eyjum sem byrjaði í Stafkirkjunni á
föstudaginn. Eftir það rak hver við-
burðurinn annan þar sem heimamenn
og listamenn af fastalandinu komu við
sögu.
Það var magnað að heyra Hallgrím
Helgason og Einar Kárason lesa upp
úr bókum sínum í Herjólfsbæ sem
reistur var fyrir nokkrum árum og á
að minna á landnámsbæ Herjólfs sem
fyrstur nam land í Vestmannaeyjum.
Átti það ekki síst við sögu Einars,
Ofsa, sem byggist á Sturlungu þar
sem Flugumýrarbrenna er í miðdepli.
„Þetta gekk allt upp hjá okkur,
þátttaka var góð og fólk mjög ánægt.
Það á ekki bara við hér í Eyjum því
það sama á við á fastalandinu. Þetta
samstarf á eftir að efla söfnin og
skjóta frekari stoðum undir menning-
artengda ferðamennsku,“ sagði Krist-
ín.
Góð þátttaka var í Safnahelgi sem fram fór um allt Suðurland með mat og menningu í öndvegi
Lítið verkefni verður að stórum atburði
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sjómannasögur Gestir í Sjóminjasafni Þórðar Rafns skemmtu sér vel við sögur Snorra Jónssonar.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„ÞETTA er þróunarverkefni sem
vonandi endar með því að við bú-
um til nýja skólastefnu á Íslandi,“
segir Anna S.
Árnadóttir
framhaldsskóla-
kennari. Hún
fer fyrir hópi
fólks sem stend-
ur að þróun-
arverkefninu
HUX, lista- og
tungumála-
miðstöð á Eyr-
arbakka. Þar verður börnum veitt
ýmis fræðsla á erlendum tungu-
málum, í þeim tilgangi að þau læri
tungumálin og öðlist skilning á
menningu mismunandi þjóða.
Hugmyndin byggir á rann-
sóknum á máltöku barna, þar sem
fram kemur að þau eiga auðvelt
með að læra fleiri en eitt tungu-
mál. Ásta nefnir tvítyngd börn sem
dæmi um þetta. „Upp að átta ára
aldri geta þau búið til nýjar mál-
stöðvar í heilanum og tungumálið
festist betur,“ segir Anna.
Í HUX, lista- og tungumála-
miðstöð, er hugmyndin að kenna
ýmsar greinar á erlendum tungu-
málum og slá þannig tvær flugur í
einu höggi. „Ég ætla að kenna
krökkunum heimilisfræði og um-
hverfisvernd og nota spænskuna við
það,“ segir Anna en hún kennir
spænsku og fleiri fög við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands á Selfossi.
Annar kennari mun kenna mynd-
list, á frönsku. Þannig verða fjögur
tungumál notuð við fræðsluna.
„Þetta verður ekki eins og venjulegt
tungumálanám, heldur eins og að
taka málið á eðlilegan hátt,“ segir
Anna.
„Megintilgangurinn er að kenna
tungumál. Við trúum því að með því
að læra tungumál læri nemandinn
heilmikið um menningu viðkomandi
þjóðar og verði umburðarlyndari,“
segir hún einnig.
Byrjað í janúar
HUX verður með aðstöðu í Gón-
hóli á Eyrarbakka og börn úr Ár-
borg geta komið þangað fjórum
sinnum í viku, eftir skóla. Reiknað
er með að hópnum verði skipt í
tvennt, í þeim yngri verða börn á
aldrinum fimm til níu ára og í þeim
eldri upp í þrettán ára aldur. Þegar
er byrjað að taka við skráningum.
„Við erum á fullu að undirbúa
þetta og miðum við að hefja kennslu
í janúar,“ segir Anna. Reiknað er
með því að HUX verði þróunarverk-
efni í tvö til þrjú ár.
HUX-verkefnið fékk hæsta styrk
við úthlutun menningarstyrkja
Menningarráðs Suðurlands nú fyrir
helgina, 700 þúsund krónur. Anna
segir að sótt hafi verið um styrki
víðar, auk þess sem mikið sé unnið í
sjálfboðavinnu. Einhver þátt-
tökugjöld þurfi að innheimta.
Anna og samstarfsfólk hennar
vonast til að starfsemin hafi áhrif
inn í skólastarfið í landinu og að-
ferðirnar leiði til þess að áhugi
barna á námi glæðist. „Það er eins
og áhuginn á náminu deyi fljótlega
og sá brennandi áhugi sem er í byrj-
un skólanáms helst ekki. Þessu er
hægt að breyta með því að kenna
börnunum það sem þeim finnst
skemmtilegt,“ segir Anna S. Árna-
dóttir.
Notar spænsku við
matreiðslukennsluna
Listamiðstöð fræðir börnin á erlendum tungumálum
Anna S. Árnadóttir
ALLS fengu 36 verkefni styrki að fjárhæð samtals um
ellefu miljónir kr. hjá menningarráði Suðurlands, við
úthlutun sem greint var frá við opnun Safnahelgar á
Suðurlandi.
Hæstu styrkirnir, 700 þúsund krónur, fengu Alvar-
lega félagið ehf. fyrir myndlistarverkefnið „Ferju-
staði“ við Ölfusá og Anna S. Árnadóttir vegna stofn-
unar HUX, lista- og tungumálamiðstöðvar.
Ungmennahús sveitarfélagsins Árborgar fékk 500
þúsund kr. til að halda menningarhátíð unga fólksins á
Suðurlandi, „Drepstokk 2009“. Sömu fjárhæð fékk
Byggðasafn Árnesinga fyrir verkefni sem nefnist
„Hvar varst þú 29. maí 2008?“ og Unglingakór Selfoss-
kirkju vegna tónleikanna „Íslenskir söngdansar“.
Önnur verkefni fengu styrki á bilinu 100 til 400 þús-
und kr.
Góð veiði Styrkir Menningarráðs Suðurlands voru afhendir við athöfn í Veiðisafninu á Stokkseyri.
36 verkefni fengu menningarstyrki