Morgunblaðið - 10.11.2008, Síða 13
GREIÐSLUSTOFA Vinnu-
málastofnunar á Skagaströnd leit-
ar að starfsfólki vegna aukinnar
umsýslu með atvinnuleysistrygg-
ingar. Fram kemur á vef sveitarfé-
lagsins að um sé að ræða tíma-
bundin störf í 4-6 mánuði við
bakvinnslu umsókna, almenn skrif-
stofustörf, símsvörun og upplýs-
ingagjöf.
Hlutverk Greiðslustofunnar er
að sjá um greiðslur atvinnuleys-
istrygginga fyrir allt landið. Hjá
stofnuninni starfa nú 15 manns.
Athygli er vakin á því að þar sem
um tímabundin störf er að ræða
og hafa þarf hraðar hendur við
ráðningar verður ekki fylgt form-
legu umsóknarferli heldur valið úr
þeim umsækjendum sem setja sig í
samband og skila inn umsókn með
ferilskrá.
Störf í boði á
Skagaströnd
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
FRAMKVÆMDIR við jarðgerð-
arstöð sem Molta ehf. er að reisa á
Þverá í Eyjafjarðarsveit hafa gengið
vel. Samkvæmt upplýsingum for-
ráðamanna Preseco Oy, finnsks
framleiðanda vélbúnaðarins, verður
jarðgerðarstöð Moltu sú stærsta í
Evrópu með þessari tækni við jarð-
gerð.
Verið er að ljúka við að steypa upp
grunn hússins, sem verður límtrés-
hús. Tæknimenn frá Preseco Oy
hafa undanfarið stjórnað uppsetn-
ingu vélbúnaðarins, en hluta hans
þarf að koma fyrir áður en húsið
verður reist. Sex stórar jarðgerð-
artromlur voru á dögunum fluttar á
Þverá og þeim komið fyrir á sínum
stað. Hver tromla er 16 m löng, veg-
ur rúm 20 tonn og rúmar 125 rúm-
metra.
Reiknað er með að verksmiðju-
húsið verði fokhelt fyrir áramót og
verkáætlun gerir ráð fyrir að verk-
miðjan geti hafið störf í febrúar
2008.
Strax frá upphafi mun jarðgerð-
arstöðin taka við öllum slátur- og
fiskúrgangi sem til fellur á Eyja-
fjarðarsvæðinu og jafnvel víðar.
Léttir mjög á urðun í Glerárdal
Frá sama tíma verður jarðgerð í
Glerárdal hætt og léttir það veru-
lega á urðunarstaðnum og umhverf-
isáhrifum frá honum. Urðun í Gler-
árdal náði hámarki árið 2002 og var
þá 21.500 tonn en hefur farið minnk-
andi frá þeim tíma. Munar þar mest
um jarðgerð slátur- og fiskúrgangs.
Áætlað er að í ár verði urðuð um
17.000 tonn af úrgangi en 4.500 tonn
fari til jarðgerðar.
Bygging jarðgerðarstöðvarinnar
er samvinnuverkefni atvinnulífs og
sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu.
Stærstu hluthafar í Moltu ehf. eru
Flokkun ehf., Gámaþjónustan hf.,
Kjarnafæði hf., Norðlenska mat-
borðið ehf., Preseco Oy, Sagaplast
ehf., Tækifæri hf. og Þverá Golf ehf.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Molta Smiðir unnu við það af fullum krafti í vikunni að byggja hús undir moltugerðarverksmiðjuna í landi bæjarins Þverár í Eyjafjarðarsveit.
Stærsta stöð Evrópu
Allur lífrænn úrgangur í Eyjafirði verður jarðgerður í nýrri stöð á Þverá
BÆJARFULLTRÚAR Hveragerð-
isbæjar hafa ákveðið að taka
höndum saman og vinna í samein-
ingu að fjárhagsáætlunargerð
bæjarins fyrir næsta ár.
Allir bæjarfulltrúar hvar í
flokki sem þeir standa eru sam-
mála um að efnahagslegt um-
hverfi sveitarfélaga og þjóð-
arinnar allrar sé með þeim hætti
að brýna nauðsyn beri til að ráða-
menn slíðri hin pólitísku sverð og
einbeiti sér að þeim verkefnum
sem framundan eru, segir í frétt
á vef bæjarins.
Á fundi bæjarstjórnar 9. októ-
ber var einróma samþykkt yf-
irlýsing þar sem meðal annars
kom fram „að reynt yrði að
tryggja rekstur sveitarfélagins og
þá grunnþjónustu sem það veitir
með öllum tiltækum ráðum. Að
þessu markmiði munu nú allir
fulltrúar í bæjarstjórn Hvera-
gerðis stefna.“
Slíðra sverð
í Hveragerði
Eftir Birnu G. Konráðsdóttur
Vesturland | Nýverið var svokölluð Vest-
urlandsstofa formlega stofnuð. Jónas Guð-
mundsson, nýráðinn framkvæmdastjóri, segir
hlutverk Vesturlandsstofu að samræma og
samþætta markaðs- og kynningarstarf á Vest-
urlandi, þannig að markaðssetning landshlut-
ans verði unnin á einum stað. Það verði gert í
samstarfi ferðþjónustufólks, sveitarfélaga og
samtaka innan svæðisins. Vesturlandsstofa
verður rekin sem einkahlutafélag, að mestu í
eigu ferðaþjónustufólks og á forsendum einka-
reksturs. Einnig mun stofan yfirtaka starf-
semi upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar sem
starfrækt hefur verið í Borgarnesi.
Kraftmiklir einstaklingar
í frábærri náttúru
Gísli Ólafsson í Grundarfirði, stjórn-
arformaður Vesturlandsstofu sagði í ávarpi
þegar stofan var formlega opnuð að á engan
væri hallað þó að nefnt væri að Torfi Jóhann-
esson, verkefnisstjóri vaxtasamnings Vest-
urlands, og Hansína B. Einarsdóttir, hót-
elstjóri á Glym, hefðu lyft grettistaki í
undirbúningi að stofnun stofunnar. Hann sagði
jafnframt að þessi starfsemi ætti eftir að verða
Vestlendingum öflugt tæki til sóknar á öllum
sviðum.
Í ávarpi sínu sagði Ólöf Ýrr Atladóttir ferða-
málastjóri að gott væri fyrir ferðaþjónustuna
að vera tilbúin til nýrra afreka þegar um
hægðist á ný. Landshlutinn byði upp á mý-
mörg tækifæri og hún hlakkaði til samstarfs-
ins við hina nýju Vesturlandsstofu.
Það búa kraftmiklir einstaklingar í þessum
landshluta við frábæra náttúru og einstaka
sögu,“ sagði Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri
Borgarbyggðar, sem jafnframt er formaður
samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Að mati
Páls þarf að byggja upp sterka ímynd fyrir
Vesturland sem ákveðið landsvæði. Hann
sagðist hafa orðið var við að fólk ruglaði saman
Vesturlandi og Vestfjörðum og því þyrfti að
breyta. Markaðsstarfið yrði að vera í lykilhlut-
verki til að kynna Vesturlands sem ákjósan-
legan stað til að heimsækja, búa á og til að
starfrækja fyrirtæki.
Bjarni Guðmundsson, prófessor við Land-
búnaðarháskólann, hefur meðal annarra verið
ötull við að koma upp Búvélasafni á Hvann-
eyri. Hann sagði að einkum þyrfti að hafa í
huga fimm atriði þegar kæmi að ferðaþjónustu
og sagði dæmisögur máli sínu til stuðnings.
Nefndi hann að ferðaþjónustufólk yrði að
verða uppátækjasamt á öllum sviðum og frum-
legt í markaðssetningu. Því til sönnunar dró
hann úr pússi sínu gítar og fékk alla viðstadda
til að syngja saman nokkur lög sem voru tákn-
ræn fyrir hvern hluta Vesturlands fyrir sig.
Meðal annars afar fornan texta sem talinn er
eftir Egil Skalla-Grímsson á Borg, „Það mælti
mín móðir“.
Í samræmi við hlutverk sitt mun Vest-
urlandsstofa halda utan um gagnagrunn um
ferðaþjónustu á Vesturlandi. Verður hann not-
aður til að kynna framboð á ferðaþjónustu
landshlutans á vefsíðunni www.west.is.
Binda vonir við Vesturlandsstofu
Ákjósanlegt verði að
heimsækja, búa og
starfa á Vesturlandi
Morgunblaðið/Birna
Söngur Bjarni Guðmundsson fékk Ólöfu Ýri Atladóttur ferðamálastjóra og ferðaþjónustuað-
ila á Vesturlandi til að syngja „Það mælti mín móðir“ eftir Egil Skalla-Grímsson á Borg.
Í HNOTSKURN
»Kynna þarf Vesturland vel fyrir Ís-lendingum sem líklega munu ferðast
meira innanlands á næstunni, í ljósi að-
stæðna.
»Vesturland býður upp á allt hiðbesta fyrir ferðamanninn. Ríka
söguhefð, fagra náttúru og gott mannlíf.
Hvað er jarðgerð?
Jarðgerð er niðurbrot lífræns úr-
gangs við loftháðar aðstæður, þar
sem hitakærar örverur melta úr-
ganginn þannig að úr verður mold-
arkenndur massi, svokölluð molta.
Moltuna er síðan hægt að nýta sem
jarðvegsbæti, til landfyllinga eða
jafnvel sem áburð.
Hvað verður um bakteríur?
Í stöð Moltu ehf. fer hiti í jarðgerð-
arblöndunni yfir 70°C sem gerir það
að verkum að skaðlegar bakteríur
sem kunna að vera í úrganginum
drepast.
Hvað er notað í moltugerðina?
Jarðgerðarstöðin mun geta unnið úr
fimm til sex þúsund tonnum af slát-
ur- og fiskúrgangi á ári, sem þýðir að
að meðtöldum stoðefnum til vinnsl-
unnar, s.s. garðaúrgangi, timb-
urkurli, hrossataði og pappír, er af-
kastageta verksmiðjunnar ellefu til
þrettán þúsund tonn á ári.
S&S