Morgunblaðið - 10.11.2008, Qupperneq 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
FYRRUM upplýsingafulltrúi
danska flugfélagsins Sterling segir,
að stjórnendur félagsins hafi beitt
kerfisbundnum blekkingum í að-
draganda gjaldþrots félagsins og
fullyrt, að allt væri í lagi með rekst-
urinn.
Rulle Westergaard var ráðin upp-
lýsingafulltrúi Sterling fyrir hálfu
ári. Hún en segir við vefinn komm-
unikationsforum.dk, að henni hafi
verið vikið tímabundið frá störfum
hálfum mánuði áður en félagið varð
gjaldþrota vegna þess að hún hafi
viljað gefa réttar upplýsingar um
stöðu mála.
„Við áttum auðvitað ekki að segja
við umheiminn, að það væru engin
vandamál og allt gengi vel. Það segir
sig næstum sjálft. Því slíkt hefði ver-
ið ósatt. En það völdu æðstu stjórn-
endurnir að gera. Þeir vildu að fjöl-
miðlar fengju jákvæðar upplýsingar
um að starfsemin væri í góðu
standi,“ segir hún. Westergaard seg-
ist hafa neitað að taka þátt í slíku og
reynt að útskýra hvaða áhrif stefna
af þessu tagi gæti haft á trúverðug-
leika félagsins í framtíðinni ef allt
færi á versta veg. „Og þá var mér
vikið tímabundið frá störfum,“ segir
Rulle Grabow Westergaard.
Sterling er í eigu Fons, félags í
eigu þeirra Pálma Haraldssonar og
Jóhannesar Kristinssonar. Með
gjaldþroti Sterling lögðust af 137
flugtök lágfargjaldaflugfélagsins frá
Kaupmannahöfn í viku hverri, en
gjaldþrot félagsins mun væntanlega
leiða til aukinnar samkeppni á flug-
leiðum til og frá Kastrup-flugvelli.
guna@mbl.is
Sakar stjórnendur
Sterling um blekkingar
Upplýsingafulltrúi Sterling vildi ekki ljúga og var sagt upp
öðrum verkefnum, sinntu nú þróun
EVE Online.
Um þrjú hundruð manns á Ís-
landi, í Bandaríkjunum og Kína
vinna nú að þróun og rekstri EVE
Online, en alls starfa um 400
manns hjá fyrirtækinu. Í nóvember
í ár og í mars árið 2009 munu
koma út stórar viðbætur við leik-
inn. Meðal annars á að gera nýjum
spilurum auðveldara að fóta sig í
leiknum og keppa við þá sem leng-
ur hafa spilað.
Þá hefur tæknideild fyrirtækisins
unnið hörðum höndum að því að
uppfæra vefþjónaklasana, sem leik-
urinn er keyrður á. Eru uppfærsl-
urnar þegar hafnar, en aðferðir of-
urtölvutækni verða nýttar við
betrumbætur á hug- og vélbúnaði.
Hefur CCP starfað náið með
Microsoft og fleiri alþjóðlegum fyr-
irtækjum við þessa vinnu. Mark-
miðið er tvíþætt. Annars vegar að
gera upplifun spilara enn betri, en
leikurinn hefur átt það til að hökta
töluvert þegar margir spilarar eru
á sama svæði í leiknum. Þá munu
vefþjónarnir leyfa fleiri leik-
mönnum að spila leikinn á sama
tíma.
Efnahagshremmingar
Áætlað er að þessar uppfærslur
verði langt á veg komnar í mars
2009 og er því ekki undarlegt að sá
tími sé valinn til að koma EVE
leikjaboxum í verslanir á ný. Gera
stjórnendur fyrirtækisins sér vonir
um að nýtt dreifingarátak muni
leiða til þess að spilurum fjölgi og
þarf að ganga úr skugga um að
vél- og hugbúnaður EVE geti stað-
ið undir slíkri fjölgun.
Yfirstandandi hremmingar í ís-
lensku efnahagslífi hafa ekki snert
CCP jafn harkalega og mörg önnur
fyrirtæki. Tekjur CCP eru nær all-
ar í erlendri mynt og þá hefur
starfsemin verið endurskipulögð
með það í huga að draga úr áhrif-
um gengissveiflna á afkomu.
Hins vegar verður ekki fram hjá
því litið að útlitið er ekki bjart í
hagkerfi heimsins. Því kemur það
ekki á óvart að CCP skuli nú
leggja meiri áherslu á gamalreynda
vöru eins og EVE og slá öðrum
verkefnum á frest. Allt frá því að
CCP sameinaðist bandaríska fyr-
irtækinu White Wolf hefur farið
fram vinna að tölvuleik byggðum á
World of Darkness heiminum.
Er sá heimur byggður vampýr-
um og varúlfum og er vel þekktur
meðal hlutverkaspilara um heim
allan. Vinna við tölvuleikinn hefur
ekki verið stöðvuð, en gera má ráð
fyrir að færri starfsmenn vinni nú
að þróun hans en gerðu áður.
CCP hefur aldrei fetað troðnar
slóðir, hvort heldur í leikjaþróun
eða markaðssetningu og hefur mik-
ill metnaður alltaf einkennt starf-
semi fyrirtækisins. Sést það á nýj-
ustu viðbótinni, sem kynnt var á
hátíðinni um helgina. Munu spil-
arar í fyrsta sinn geta gengið um
geimstöðvar, rekið verslanir og
veitingahús, en hingað til hafa spil-
arar aðeins flogið um í geim-
skipum. Miðað við þá reynsluútgáfu
sem kynnt var á föstudag jafnast
myndgæðin á við það besta í hlut-
verkaleikjum almennt og verður
ekki séð að nokkur annar fjölnot-
endatölvuleikur muni geta keppt
við EVE á því sviði.
Aukin áhersla lögð á EVE Online
CCP hefur gert dreifingarsamning við Atari og mun EVE Online fást í verslunum um heim allan
Vefþjónar leiksins verða uppfærðir og aðferðir ofurtölvutækni nýttir til að bæta tölvuleikinn
Morgunblaðið/Ómar
Leikjahátíð Gera má ráð fyrir því að gestir á leikjahátíð CCP hafi verið hátt í þúsund talsins að þessu sinni. Hátíðin
var nú haldin í fimmta sinn og fer áhugi á henni sífellt vaxandi, en tugir erlendra blaðamanna sóttu hátíðina í ár.
Hilmar sagði hins vegar að reynsla
framleiðenda annarra fjölnot-
endatölvuleikja hefði sýnt fram á
að hægt væri að sækja töluverðar
tekjur með sölu leikjanna úr versl-
unum.
Þá verður ekki hjá því litið að
varan verður mun sýnilegri þegar
leikjaáhugamenn sjá EVE-kassa í
búðarhillum. Auðveldara verður að
ná til þeirra, sem aldrei hafa heyrt
á leikinn minnst.
Vefþjónarnir uppfærðir
Hilmar sagði jafnframt að hrist
hefði verið upp í starfsemi fyr-
irtækisins og meiri áhersla væri nú
lögð á þróun EVE Online en gert
hefði verið undanfarin misseri.
Starfsmenn, sem unnið hefðu að
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
CCP HEFUR náð samkomulagi
við tölvuleikjarisann Atari um
dreifingu á EVE Online-tölvu-
leiknum. Dreifingarnet Atari nær
yfir tugi þúsunda verslana um heim
allan og verður því hægt að kaupa
EVE í verslunum, líkt og á við um
flesta aðra tölvuleiki. Munu fyrstu
boxin fást í verslunum 12. mars
næstkomandi.
Forstjóri CCP, Hilmar Veigar
Pétursson, greindi frá sam-
komulaginu við Atari í lokaávarpi
sínu á leikjahátíð CCP á laug-
ardaginn.
Allt frá 2003 hefur CCP farið þá
óvenjulegu leið við dreifingu á
tölvuleiknum EVE Online að láta
hana fara alfarið fram á netinu.
Reyndar gerði CCP dreifing-
arsamning við útgáfufyrirtækið
Simon & Schuster þegar EVE kom
fyrst út um mitt ár 2003. Samvinna
fyrirtækjanna þótt hins vegar ekki
nógu góð og fór svo að CCP keypti
aftur dreifingarréttinn af S&S og
hefur sinnt dreifingarmálum sjálft.
CCP hefur lært af samningnum
við S&S og samkomulagið við Atari
gerir ráð fyrir að öll markaðsvinna
fari fram hjá CCP. Boxið, sem leik-
urinn verður seldur í, verður hann-
aður af CCP og hlutverk Atari
verður eingöngu að dreifa leiknum
í verslanir um allan heim.
Dreifing yfir netið hefur gefist
vel fyrir CCP, enda hefur spilurum
EVE Online fjölgað ár frá ári.
GJALDÞROTA bönkum í Bandaríkjunum fjölg-
aði um tvo í lok síðustu viku. Hafa nú nítján bank-
ar komist í þrot vestanhafs það sem af er þessu
ári. CNN-fréttastofan greinir frá þessu.
Tryggingasjóður innlána í Bandaríkjunum
(Federal Deposit Insurance Corporation, FDIC)
tilkynnti síðastliðið föstudagskvöld að sjóðurinn
hefði lokað Franklin-bankanum, sem er með höf-
uðstöðvar í Houston í Texas, og Security Pacific-
bankanum í Los Angeles.
Heildareignir Franklin-bankans í lok septem-
ber síðastliðins námu um 5,1 milljarði dollara en
bankinn var með samtals 46 afgreiðslustaði.
Heildarinnlán voru þá um 3,7 milljarðar dollara.
Security Pacific-bankinn var nokkuð minni, eða
með heildareignir upp á um 560 milljónir dollara
og fjóra afgreiðslustaði og samtals um 450 millj-
óna dollara innlán. Viðskiptavinir bankanna eiga
ekki að verða fyrir skaða, samkvæmt yfirlýsingu
frá FDIC, þar sem aðrir bankar hafa yfirtekið inn-
lán þeirra og aðrar skuldbindingar. Þá mun vera
unnið að því að selja eignir þeirra.
Frá því í ágústmánuði síðastliðnum hafa 12
bankar í Bandaríkjunum farið í þrot en fram að því
höfðu 7 bankar orðið gjaldþrota á árinu. Áður en
fjármálakreppan, sem nú ríður yfir heiminn, hófst
á síðasta ári, með hruni húsnæðislánakerfisins í
Bandaríkjunum, höfðu bankar þar í landi síðast
orðið fyrir verulegum skakkaföllum á árinu 2002.
Það ár urðu 11 bankar gjaldþrota. gretar@mbl.is
Nítján bankar í þrot
Bönkum sem verða gjaldþrota í Bandaríkjunum
heldur áfram að fjölga Tveir í þrot í síðustu viku
Reuters
Þrot Washington Mutual var lokað í september
og síðan þá hefur framhald orðið á bankaþrotum.
● LOFTLEIÐIR Icelandic, dótturfélag
Icelandair Group, hefur að und-
anförnu samið um flugvélaleigu við
fjóra samstarfsaðila félagsins í jafn-
mörgum heimsálfum. Heild-
arverðmæti samninganna nemur um
125 milljónum dollara, eða um 16
milljörðum íslenskra króna miðað við
núverandi gengisskráningu. Um er
að ræða leigu á samtals sex þotum
og er gildistími samninganna frá sex
mánuðum til sex ára.
Í tilkynningu segir að Loftleiðir hafi
í lok síðustu viku undirritað samning
við Yakutia Air Company í sjálfstjórn-
arlýðveldinu Sakha í Síberíu í Rúss-
landi um leigu á þriðju Boeing 757-
200-farþegaþotunni til Yakutia. Kem-
ur þotan úr flota Icelandair, sem
hefur dregið úr flugi.
gretar@mbl.is
Flugvélaleiga fyrir
16 milljarða króna
FYRRVERANDI stjórnendur
Landsbankans segja í yfirlýsingu
sem þeir sendu frá sér í gær að ekk-
ert sé hæft í því sem Sigurður Ein-
arsson, fyrrverandi stjórn-
arformaður Kaupþings, sagði í
Markaðnum á Stöð 2 á laugardag-
inn um að Landsbankinn hafi ekki
átt eignir til þess að setja á móti
Icesave-innstæðum.
Uppgjör bankans staðfesti að
staðan hafi verið traust og eignir
vel umfram skuldir, enda eigið fé
og víkjandi lán bankans um 350
milljarðar samkvæmt síðasta birta
uppgjöri hans. Segir í yfirlýsing-
unni að ef farið hefði verið að kröf-
um breskra yfirvalda um að færa
útlánasafn yfir í dótturfélag í einu
lagi hefði það verið brot út á lána-
samningum bankans og öll fjár-
mögnun hans þar með í uppnámi.
Þar segir jafnframt að umræður
um að Icesave-kröfur lendi á þjóð-
arbúinu séu á misskilningi byggðar,
eignir bankans séu nægar til að
mæta forgangskröfum. Hægt er að
lesa yfirlýsinguna í heild sinni á
mbl.is
thorbjorn@mbl.is
Landsbankamenn
verja Icesave
Hafna staðhæfingum Sigurðar Einarssonar