Morgunblaðið - 10.11.2008, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Krossgáta
Lárétt | 1 svipuð, 4 lófa-
tak, 7 úthlaup, 8 þurrk-
uð út, 9 kvendýr, 11
dauft ljós, 13 ókeypis, 14
lina, 15 þurrð, 17 skran,
20 óhræsi, 22 losar allt
úr, 23 afturelding, 24 sér
eftir, 25 nam.
Lóðrétt | 1 mánuður, 2
hlífir, 3 úrræði, 4 út-
ungun, 5 sár, 6 erfiðar,
10 tákn, 12 umdæmi, 13
skip, 15 dramb, 16 snák-
ur, 18 ótti, 19 kjarni, 20
ókyrr, 21 baldin.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hrekkvísi, 8 afber, 9 lævís, 10 píp, 11 skima, 13
afræð, 15 stekk, 18 stæra, 21 agn, 22 stirð, 23 álkan, 24
ástleitni.
Lóðrétt: 2 rebbi, 3 karpa, 4 vilpa, 5 Sævar, 6 haus, 7
ósið, 12 mók, 14 fát, 15 sess, 16 efins, 17 kaðal, 18 snáði,
19 æskan, 20 asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
10. nóvember 1913
Farþegar voru fluttir með
járnbrautarlest í fyrsta og
eina skipti hér á landi. Verk-
takar við Reykjavíkurhöfn
breyttu flutningavögnum til
að geta flutt blaðamenn og
fleiri frá höfninni að Öskju-
hlíð. „Tók sú ferð 10 mínútur,“
sagði Morgunblaðið.
10. nóvember 1944
Þýskur kafbátur sökkti flutn-
ingaskipinu Goðafossi út af
Garðskaga en skipið var að
koma frá Bandaríkjunum með
viðkomu í Skotlandi. Tuttugu
og fimm fórust en nítján var
bjargað. Einnig fórust átján
skipbrotsmenn af breska olíu-
skipinu Shirvan, sem bjargað
hafði verið skömmu áður um
borð í Goðafoss.
10. nóvember 1967
Strákagöng við Siglufjörð
voru formlega tekin í notkun.
Þau voru þá lengstu veggöng-
in, um 800 metrar. Þar með
komst bærinn í vegasamband
allt árið. „Einangrun Siglu-
fjarðar rofin,“ sagði Morg-
unblaðið.
10. nóvember 1984
Suðurlína var tekin í notkun
og lauk með því hringteng-
ingu raforkukerfis landsins.
Framkvæmdir við svonefndar
byggðalínur stóðu í tólf ár.
10. nóvember 1994
Eiður Smári Guðjohnsen gerði
samning við PSV Eindhoven í
Hollandi og varð þar með
yngsti íslenski atvinnumað-
urinn í knattspyrnu, rúmlega
16 ára.
10. nóvember 1999
Hiti mældist 22,7 stig á Dala-
tanga við Mjóafjörð. Þá var
slegið hitamet á landinu í þess-
um mánuði frá sama degi og
sama stað árið 1971.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Sudoku
Frumstig
8 2 9 7
3 1 7 8
6 5 4 8
2 7 3 8 5
3 9
5 3 6 2 7
4 2 3 1
2 5 4 6
6 1 2 5
5 2
7 2 4 6
4 6 3
5 4 1
8 9 1 2 5 7
1 7 2
5 3 2
2 1 9 5
8 1
9 4 5
4 7
4 6 2 9
8 3 1
2 9 3 5
3 1 7
8 5 9 3
3 2
5 4 7
3 9 2 5 6 7 4 8 1
1 5 4 3 8 9 6 7 2
6 8 7 1 2 4 3 9 5
7 4 8 9 5 6 2 1 3
2 6 1 7 3 8 9 5 4
5 3 9 4 1 2 7 6 8
8 7 3 6 4 5 1 2 9
9 1 5 2 7 3 8 4 6
4 2 6 8 9 1 5 3 7
9 3 4 7 6 2 5 1 8
1 8 6 5 9 4 7 2 3
7 5 2 8 3 1 9 6 4
5 6 9 1 7 3 8 4 2
8 2 3 4 5 9 6 7 1
4 7 1 6 2 8 3 5 9
3 9 5 2 1 7 4 8 6
2 4 7 9 8 6 1 3 5
6 1 8 3 4 5 2 9 7
6 5 2 4 9 1 8 7 3
9 4 8 7 3 5 6 1 2
3 1 7 6 2 8 5 4 9
8 3 1 2 5 6 4 9 7
2 6 4 3 7 9 1 8 5
7 9 5 1 8 4 3 2 6
5 7 9 8 1 3 2 6 4
4 8 3 9 6 2 7 5 1
1 2 6 5 4 7 9 3 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
dagbók
Í dag er mánudagur 10. nóvember,
315. dagur ársins 2008
Víkverja eru strætómál hugleikinog er hann eindregið þeirrar
skoðunar að góðar almennings-
samgöngur séu flestra meina bót.
Þær eigi, sé rétt að málum staðið, að
auðvelda borgarbúum lífið og draga
úr útgjöldum heimilanna.
x x x
Víkverja þykir þó ósanngjarnt aðgrunnskólanemar séu und-
anskildir því að fá frítt í strætó. Há-
skóla- og framhaldsskólanemendur
njóta nú þessara réttinda en ekki
grunnskólanemar. Það sýnir ekki
mikinn stuðning við barnafjölskyldur
og hvetur ekki foreldra til að hætta
að skutla börnum sínum fram og til
baka og kenna þeim frekar á strætó.
x x x
Elsta barn Víkverja telst nú ung-menni samkvæmt
aldursflokkunarkerfi Strætó þar sem
það er orðið 12 ára. Sextán miða kort
kostar því 1.600 krónur nú miðað við
750 krónur fyrir 20 miða kort áður,
sem er veruleg hækkun. Kortið dugir
ekki nema í tæpar tvær vikur og
nálgast strætóútgjöldin því 4.000
krónur á mánuði.
x x x
Víkverji reynir að forðast tal umkreppu og fjárhagsvanda þegar
börnin heyra til. Hann hefur þó reynt
að ræða kreppumálin við börnin en
það er ekki auðvelt og þau eiga oft
erfitt með að skilja markaðslögmál og
af hverju þarf yfirleitt að borga fyrir
að geta lifað. En kreppan fer ekki
framhjá vökulum barnseyrum og
þegar lottópotturinn var sem stærst-
ur um daginn vildi 8 ára sonur Vík-
verja ólmur kaupa miða. Það var gert
og sonurinn lýsti því yfir að hann ósk-
aði þess að miklir peningar fengjust
út á miðann. „Og er það svo við getum
kannski farið til útlanda og gert eitt-
hvað skemmtilegt saman?“ spurði
Víkverji soninn. „Nei, bara svo við
getum örugglega keypt brauð og svo-
leiðis,“ var svarið. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7 6. d3 b5 7. Bb3 d6 8. a4 Bd7
9. c3 0-0 10. Rbd2 Ra5 11. Ba2 c5 12.
He1 h6 13. Rh4 Kh7 14. Rf5 Bxf5 15.
exf5 Rc6 16. g4 Kg8 17. h4 Rh7 18. Bd5
Hc8 19. axb5 axb5 20. Df3 Rb8 21. g5
hxg5 22. Re4 Rd7 23. hxg5 Rxg5 24.
Bxg5 Bxg5 25. Ha6 De7 26. Ha7 Hfd8
27. Dh5 Bh6 28. Kh1 Kh8 29. Hg1 Rf6
Á rússneska meistaramótinu urðu
þrír stórmeistarar jafnir og efstir svo
að heyja þurfti aukakeppni um meist-
aratitilinn. Staðan kom upp í auka-
keppninni á milli sigurvegara mótsins,
Peter Svidler (2.738), hvítt, og Dmitry
Jakovenko (2.709). 30. Rxf6! Dxa7 31.
Rg4 Kh7 32. Rxh6 gxh6 33. f6 Hg8 34.
Be4+ Hg6 35. Hxg6 og svartur gafst
upp enda stutt í að hann verði mát.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Leit að innkomu.
Norður
♠D106
♥8542
♦ÁD
♣KD73
Vestur Austur
♠852 ♠Á
♥ÁKG6 ♥103
♦K7 ♦1086542
♣G864 ♣10952
Suður
♠KG9743
♥D97
♦G93
♣Á
Suður spilar 4♠.
Vörnin er hér í aðalhlutverki. Eftir
♥Á út, verður vestur að skipta yfir í
tromp í öðrum slag og fá hjarta til
baka. Það er eina leiðin í fjóra slagi. En
þetta er erfitt við borðið, því einhvern
veginn leita menn síður að innkomu
makkers í trompi. Annað til: Ef austur
sýnir tvílit í hjarta (kallar), gæti vestur
freistast til að taka á ♥K og spila þriðja
hjartanu – með afar neyðarlegum af-
leiðingum.
Ábyrgðin er öll vestanmegin. Hvort
sem austur kallar eða vísar frá í fyrsta
slag, ætti vestur að leita logandi ljósi
að fjórða slagnum hjá makker sínum.
Austur hreinlega verður að eiga svart-
an ás og vestur ætti að gefa sér það.
Ekkert liggur á að spila laufi þótt aust-
ur sé með ♣Á, en það gæti þurft að
finna innkomuna á ♠Á strax. Sem sagt:
Tromp í öðrum slag.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Taktu þátt í gleðskap innan fyr-
irtækisins því hann mun reynast
skemmtilegri en þú áttir von á. Forðastu
ákvarðanir í stórum málum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Láttu allar spekúlasjónir í fjár-
málum bíða. Hæfileikarnir duga ekki ein-
ir til, þú verður að sjá þér farborða.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Notaðu tækifærið til þess að
rækta spunahæfileika þína á meðan engin
leið er að átta sig á því hvað er fram-
undan.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert önnum kafinn við smá verk
og stór bæði innanhúss og utan. Umhverfi
þitt hefur mikil áhrif á þig og þér mun því
líða betur þegar allt er í röð og reglu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Óvænt atvinnutilboð eða aðferðir til
þess að auka tekjur þínar gætu borist þér
í dag. Búðu þig undir að þurfa að fresta
hlutunum og jafnvel að afskrifa þá.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Farðu varlega þegar þú hjólar, ek-
ur eða gengur í dag. Betra er að kanna
málin sjálfur og vita hvað raunverulega er
á ferðinni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það getur reynst dýrt spaug að gera
mistök þegar ríður á að hlutirnir klárist
sem fyrst. Kurteisleg neitun á að koma
öðrum í skilning um sjálfstæði þitt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft ekki að hlusta á þá
sem sýna þér yfirgang. Reyndu að sætta
þig við það sem þú færð ekki breytt og
njóta svo lífsins.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú verður þú að setjast niður
og skrifa lista yfir þau verkefni sem þú
hefur látið hrúgast upp að undanförnu.
Jafnvel hlutir sem þér þykja hversdags-
legir geta þarfnast fullkomnunar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú munt fá spennandi tækifæri
til ferðalaga og framhaldsmenntunar á
næstu fjórum til sex vikum. Gakktu
skipulega til verks.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Bjartsýni er til margra hluta
nytsamleg og eiginlega dásamlegt fyr-
irbæri. Nú er spuni meira virði en rann-
sókn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur lagt hart að þér og nú er
komið að því að þú getir sýnt öðrum ár-
angur erfiðis þíns. Farðu þó ekki of hratt
af stað heldur gefðu fjölskyldunni tæki-
færi til að melta hugmyndir þínar.
Stjörnuspá
„ÉG ætla að mæta í vinnuna og það verður engin
breyting þótt ég eigi afmæli,“ segir Örn Kjærne-
sted, framkvæmdastjóri byggingafélagsins
Bakka, um afmælisdaginn sinn. Hann ætlar þó að
gera sér smá dagamun. „Börnin mín og barnabörn
koma í kvöldmat og það verður haldið upp á þetta
með smá afmælisveislu fyrir fjölskylduna,“ segir
hann en Örn á þrjú börn og fimm barnabörn.
Spurður hvaða afmæli sé eftirminnilegast nefn-
ir Örn fimmtugsafmælið sitt. Hann ætlaði sér ekki
að halda upp á það en konan hans ákvað að koma
honum á óvart. „Hún bauð mér í bíltúr í bæinn og
kl. 12 sagði hún að við ættum að fara heim en hún þyrfti fyrst að koma
við í Hlégarði til að ræða við kokkinn,“ en Hlégarður er veislusalur í
Mosfellsbæ. Þegar þangað var komið biðu um 100 manns eftir Erni og
héldu upp á afmælið með honum yfir ljúffengum hádegisverði. „Ég
hafði ekki hugmynd um þetta. Það var rosalega gaman,“ segir hann.
Aðspurður segir Örn áhugamálin fyrst og fremst vera skíði. Síð-
ustu 10 árin hefur hann eytt 2-3 mánuðum árlega á Ítalíu sem far-
arstjóri. Þá fer hann líka í gönguferðir í Ölpunum auk þess að ganga í
það minnsta vikulega upp á Esjuna. ylfa@mbl.is
Örn Kjærnested framkvæmdastjóri 60 ára
Gerir sér smá dagamun
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is