Morgunblaðið - 10.11.2008, Page 29
29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
Aflagrandi 40 | Dagblaðalestur kl. 9,
vinnustofa kl. 9-16.30, boccia kl. 10, út-
skurður kl. 13 og félagsvist kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30, fé-
lagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Leikfimi, bútasaum-
ur, handavinna, dagblöð, fótaaðgerð.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13, kaffitár með ívafi kl. 13.30, línu-
danskennsla kl. 18, samkvæmisdans
byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20,
kennari er Sigvaldi.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.20, leiðbeinandi í handavinnu til há-
degis, gler- og postulínsmálun kl. 9.30
og 13, alkort kl. 13, kanasta kl. 13.15,
kóræfing kl. 17 og skapandi skrif kl. 20.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Postu-
línshópur kl. 9, ganga kl. 10, brids og
handavinna kl. 13, félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8 og 9, kvennaleikfimi
kl. 9, 9.45 og 10.30, bókband kl. 10,
gönguhópur kl. 11, biblíulestur kl. 14.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, m.a. tréútskurður,
fjölbreytt leikfimi kl. 9 (frítt) o.fl. í ÍR-
heimilinu v/Skógarsel, vatnsleikfimi í
Breiðholtslaug kl. 9.50. Frá hádegi er
spilasalur opinn. Gunnar Eyjólfsson leik-
ari kemur í heimsókn kl. 13.30 og fjallar
m.a. um ,,Hart í bak“. Kóræfing kl. 16.
Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga og pútt kl.
10, Gaflarakórinn kl. 10.30, glerbræðsla
og félagsvist kl. 13.30, tréskurður,
Hjallabraut og gamla Lækjarskóla kl. 14,
biljard- og púttstofa í kjallara opin kl. 9-
16.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9 og 10, Sig-
urlaug. Spilað kl. 13.
Hæðargarður 31 | Skapandi skrif kl. 16,
félagsvist kl. 13.30, tölvuleiðbeiningar kl.
13.15, gáfumannkaffi kl. 15. Fastir liðir
eins og venjulega. Uppl. í síma 411-2790.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi alla
þriðjudaga og föstudaga í Grafarvogs-
sundlaug kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall og æfingar kl. 10.30, hand-
verks- og bókastofa kl. 11.30, prjóna-
klúbbur kl. 13, söng- og samverustund
kl. 15. Fótaaðgerðast., s. 552-7522.
Norðurbrún 1 | Handavinna hjá Halldóru
frá kl. 9-12 og 13-16, boccia kl. 10. Opið
smíðaverkstæði, útskurður.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9, boccia
kl. 11, leikfimi kl. 11.30, leshópur kl. 13,
kóræfing kl. 13.30 og tölvukennsla kl.
14.30. Hárgreiðslustofa opin kl. 9-16 og
fótaaðgerðir kl. 9.15-15.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Fyrir hádegi
er smiðja, bókband, postulínsmálun,
morgunstund, boccia og hárgreiðslu- og
fótaaðgerðarstofur opnar. Eftir hádegi
handavinnustofan opin, upplestur, spilað
og stóladans. Uppl. í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Leikfimi kl. 9.15,
boccia kl. 10.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
FINNST ÞÉR EKKI HRÆÐILEGT
AÐ BÚA Á GÖTUNNI, ELÍN?
BÝRÐ ÞÚ EKKI Í SAMA
HÚSI OG HUNDUR?
MIKIÐ ER
FALLEGT Í KVÖLD
HVAÐ?
ÉG ÆTLA
HEIM AÐ
SPILA
HVAÐ? ÉG HEF MEIRIÁHUGA Á
BEETHOVEN EN
HAFNABOLTA
HVAÐ?
ÉG ER
HÆTTUR. ÉG ÆTLA
HEIM AÐ SPILA Á
PÍANÓIÐ MITT
HVAÐ?
KALLI, AF
HVERJU SEGIR
ÞÚ ALLTAF ÞAÐ
SAMA?
BLESS, BLESS!
...OG KALVIN
JÁ?
ÉG ÆTLA
BARA AÐ
SITJA HÉR
OG STARA Á
VEGGINN Í
KVÖLD
ÞAÐ ER
GOTT AÐ
HEYRA
GGKKHHK!
Í SÍÐUSTU VIKU SAGÐI
ÉG HELGU AÐ ÉG VILDI
AÐ LÍFIÐ MITT VÆRI
EINFALDARA
ÞAU ERU EKKI
MEÐ NEINA
FÆTUR... MEGA ÞAU
FARA UM BORÐ Á
UNDAN HINUM?
ÞARNA ER
RÚNAR! SÆLL,
RÚNAR!
HÆ, LALLI!
HÆ, ADDA!
HVERNIG
HEFUR KONAN
ÞÍN ÞAÐ
ANNARS?
ÖRUGG-
LEGA
ÁGÆTT
FYRIR
HVAÐ VAR
ÞETTA?
KONAN
HANS FÓR
FRÁ HONUM
UM DAGINN
ÉG GERI
ALLTAF
RÁÐ FYRIR
ÖLLU
DRAGÐU
OKKUR UPP!
ÉG GET ENNÞÁ
NOTAÐ HANDLEGGINN
OG ÉG GET
ENNÞÁ NOTAÐ
VEFINN
Velvakandi
Í BERGSTAÐASTRÆTI er fjöldi fallegra húsa, mörg þeirra þarfnast and-
litslyftingar og mega muna sinn fífil fegri eins og þetta sem sést á mynd-
inni og verið er að gera við um þessar mundir.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Húsaviðgerðir í miðbænum
Okur
ÉG og kærastinn minn
búum í Bjarkavöllum í
Hafnarfirði sem er í
eigu Byggingarfélags
námsmanna. Við feng-
um tvo lykla við afhend-
ingu íbúðarinnar en ég
tapaði öðrum þeirra. Ég
fór í Smáralindina til að
gera nýjan en þar átti
hún ekki lykilinn sem
vantaði og ég var send á
Laugaveginn. Þar
höfðu þau ekki leyfi til
að gera þennan lykil,
svo ég var send í Skútu-
voginn og þaðan á
Bíldshöfða því þeir væru þeir einu
með leyfi til að gera þennan lykil. Ég
fór þangað og bað um tvo lykla, af-
greiðslumaðurinn byrjaði að gera
lykilinn og stoppaði svo og spurði mig
hvort þessi lykill væri frá BN. Þá
sagði hann mér að hann þyrfti leyfi
frá þeim til að gera nýjan lykil og
sagði mér að það væri nóg fyrir hann
ef ég hringdi til þeirra og hann fengi
að tala við einhvern frá BN. Þegar ég
hafði samband við þau tjáði kona mér
að ég þyrfti að panta lykilinn hjá
henni og hún mundi sjá um að panta
hann fyrir mig og rukkaði 1200 kr.
fyrir einn lykil (þegar hann kostaði
600 kr. hjá smiðnum) Ég sagði henni
þá að ég væri á staðnum og hvort hún
gæti ekki bara gefið leyfi í gegnum
símann, en það var ekki hægt. Ég
pantaði lykilinn í gegnum síma og
hún ætlar að rukka mig tvöfalt fyrir
hann. Ég var þá búin að eyða helm-
ingnum af bensíntanknum í að fara á
fjóra staði. Svo sagði hún mér að ég
mætti sækja lykilinn upp á skrifstofu
til þeirra (sem er aðeins opin milli kl.
13-16) og ég er í skólanum alla daga
til kl. 17:45. Svo ég spyr: Af hverju er
verið að okra svona mikið á einum
lykli? Og hvenær á ég að geta sótt
hann? Ég verð læst úti
það sem eftir er af önn-
inni.
Þórkatla Eva
Víkingsdóttir.
Spilling
ÉG held að Björn
Bjarnason dóms-
málaráðherra sé nú
endanlega firrtur allri
heilbrigðri skynsemi.
Að skipa endurskoð-
endur þess óskapnaðar
sem hér hefur átt sér
stað í málefnum þjóð-
arinnar er með ólík-
indum. Að láta Valtý
Sigurðsson rannsaka fjárglæfra og
fjármálaspillingu í Exista, Kaupþingi,
VÍS, Lýsingu og fleiri fyrirtækjum,
sem sonur hans er í beinum tengslum
við og forsvari fyrir, er forkastanlegt.
Og að láta hinn ríkissaksóknarann,
Boga Níelsson, rannsaka samskonar
spillingu fjárglæfra sonar hans hjá
Glitni, Stoðum og fleiri, er hámark
siðblindu. Einnig má minna á grein
Örnólfs Árnasonar um framkomu
ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneyt-
isins, spilafélaga Davíðs og jarðir
sona sinna, einkavin og ráðgjafa Árna
Matt., þegar hann seldi allt sitt í
Landsbanka rétt áður en allt hrundi.
Ef þetta sýnir ekki þá miklu spillingu
innan ákveðinnar valdaklíku í Sjálf-
stæðisflokknum þá veit ég ekki hvað
þarf til að koma þessari valdaklíku á
kné. Forsætisráðherra verndar
seðlabankastjóra. Dómsmálaráð-
herra skipar ríkissaksóknara til að
rannsaka gjörðir sona sinna og þjóðin
horfir orðlaus á. Hversu lengi ætlar
þjóðin að láta þetta líðast?
Hafsteinn Sigurbjörnsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara