Morgunblaðið - 10.11.2008, Blaðsíða 30
NORRÆNA
bókasafnsvikan
hefst í dag. Hún
verður haldin á
sama tíma í rúm-
lega 2.600 bóka-
söfnum og skól-
um á Norður-
löndunum og í
Eystrasaltsríkjunum.
Stærsti upplestrarviðburðurinn verður í dag
kl. 9 fyrir börn og kl. 19 fyrir fullorðna í öllum
löndunum á sama tíma. Tugþúsundir Norð-
urlanda- og Eystrasaltsbúa munu taka þátt í
viðburðum sem boðið verður upp á. Bóka-
safnsvikan er einnig haldin utan Evrópu í nor-
rænum skólum og stofnunum um heim allan.
Bókmenntir
Norræn bóka-
safnsvika að byrja
Borgarbókasafn
30 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
ANNAÐ kvöld verða
haldnir í Söngskóla Reykja-
víkur aðrir tónleikarnir í
tónleikaröð helgaðri Jóni
Ásgeirssyni áttræðum.
Fyrir tónleikana, á milli
kl. 13 og 16, verður Jón með
kennslustund fyrir söngv-
ara í skólanum og er tíminn
opinn áheyrendum.
Sama kvöld kl. 20 verða
síðan sönglög Jóns flutt við undirleik Kristins
Arnar Kristinssonar. Gestasöngvarar á tón-
leikunum eru Kvennakór úr Háskóla Íslands.
Hvorutveggja fer fram í Snorrabúð, Tónleika-
sal Söngskólans í Reykjavík, Snorrabraut 54.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Tónlist
Sönglög á afmæli
tónskáldsins
Jón Ásgeirsson
SÓLVEIG Aðalsteinsdóttir
myndlistarmaður heldur
hádegisfyrirlestur í
Listaháskóla Íslands í dag
klukkan 12:30 í húsnæði
myndlistardeildar LHÍ við
Lauganesveg í stofu 024.
Í fyrirlestrinum mun
Sólveig fjalla um myndlist-
arverk sín, stikla á stóru
framan af en aðallega fjalla
um verk síðustu 10 ára.
Umfjöllunarefni sýninga hennar hafa verið
umhverfi og taktur hins hversdagslega lífs.
Hún hefur kannað samhengi myndlistar, efn-
isins og daglegra athafna.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Myndlist
Taktur hins
hversdagslega lífs
Tuggur eftir
Sólveigu.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„ÉG veit varla hvernig það kom til
að ég er þarna,“ segir Ragnar Ax-
elsson ljósmyndari hógvær um bók-
ina The Photographer – Time and
Instant, sem kemur út í París í
fimmtudaginn. Um leið opnar sýn-
ing í Palais Tokyo-sýningarhöllinni
þar í borg með verkum ljósmynd-
aranna 23, sem eru kynntir sem
helstu „lifandi meistarar“ ljósmynd-
unarinnar.
Ragnar, sem lesendur Morg-
unblaðsins í áratugi þekkja margir
betur sem RAX, verður þar í fé-
lagsskap margra helstu goðsagna
ljósmyndunar í dag, eins og Se-
bastiao Salgado, sem hefur á liðn-
um áratugum meðal annars skrá-
sett líf verkamanna víða um heim;
James Nachtwey, sem er kunnasti
og virtasti stríðsljósmyndari síð-
ustu áratuga; japönsku meist-
aranna Hosoe og Araki, og Íslands-
vinarins Mary Ellen Mark sem
hefur verið valin áhrifamesti kven-
ljósmyndari samtímans.
Stjórnendur Baume & Mercier-
úraverksmiðjunnar standa á bakvið
verkefnið, en þeir hafa stutt rausn-
arlega við sýningar og vinnu ljós-
myndara.
Í bókinni eru myndir eftir alla
ljósmyndarana, viðtöl við þá og
hugleiðingar um verk þeirra og
myndheiminn. „Það var hringt í
mig frá Frakklandi og ég hélt að
einhver væri að gera at,“ segir
Ragnar og hlær. „Ég fékk svo
tölvupóst þar sem þetta var allt út-
skýrt fyrir mér. Höfundarnir,
Rancinan og Gaudriault, komu síð-
an hingað fyrir ári og voru með
mér í þrjá daga. Þau höfðu séð bók-
ina mína, Andlit norðursins, ein-
hvers staðar, og sjónvarpsþætti
sem þýska sjónvarpið gerði með
mér og voru sýndir víða um heim.
Svo sáu þau myndir eftir mig hjá
Mary Ellen Mark í New York. Mig
grunar að hún beri einhverja
ábyrgð á því að ég er með í verk-
inu.
Þau sögðu mér lauslega frá verk-
efninu og ég fékk að vita um
nokkra sem eru þarna með mér,
eins og Mary Ellen, Nachtwey, Sal-
gado, Elliott Erwitt, Ribaud og
Burnett.“
„Litli titturinn í hópnum“
– Hvernig leist þér á að vera
kominn í þennan félagsskap?
„Ég var auðvitað ægilega glaður.
Þetta eru margir mínir eftirlæt-
isljósmyndarar gegnum árin. Þetta
eru bestu ljósmyndarar í heimi,
eins og Mary Ellen og Nachtwey.
Og þarna eru margir bestu frétta-
menn samtímans, en þeir eru iðu-
lega ljósmyndarar; við erum fólkið
á staðnum þegar atburðirnir ger-
ast.
Og þarna eru allskyns ljósmynd-
arar. Ron Galella er einn frægasti
„paparazzi“ allra tíma og svo eru
þarna tískumeistarar á borð við
Demarcelier og Watson.
Ég er litli titturinn í hópnum,“
segir Ragnar og brosir breitt.
Hefur sótt í kuldann
Rancinan og Gaudriault hrifust
af þeirri persónulegu heimilda-
ljósmyndun sem er helsta ástríða
Ragnars í ljósmyndun. Myndir
hans á sýningunni eru frá Græn-
landi og Íslandi.
„Þau höfðu mikinn áhuga á heim-
ildaverkefnunum sem ég hef unnið
að hér í Norður-Atlantshafinu. Þau
fjalla í textanum um það sem ég hef
verið að gera í kulda og vondum
veðrum. Þar liggur líklega að ein-
hverju leyti mín sérstaða; ég sótti í
kuldann hér á meðan aðrir ljós-
myndarar fóru til Afríku að mynda.
Maður þarf að horfa í aðra átt en
aðrir.“
Svarthvítar heimildaljósmyndir
Ragnars eru afar persónulegar og
hann segir áhuga sinn á frekari
verkefnum gríðarlegan.
„Mér finnst ég ekki geta unnið að
þessum verkefnum jafnmikið og ég
kysi. Umhverfið styður ekki sérlega
vel við svona ljósmyndun. Vitaskuld
þarf að skrásetja raunverulegt líf í
myndum, en iðulega er eins og fólk
vilji frekar sjá einhverja vitleysu en
raunveruleikann. Þar er ábyrgð
fjölmiðla mikil. Ég ætla að vona að
í þessari kreppu styrkist heimilda-
ljósmyndun og umfjöllun um raun-
veruleg málefni. Fólk líður víða
skort, eða lifir sérstöku og áhuga-
verðu lífi, en fjölmiðlar sýna ekki
hvernig lífið er; þeir kjósa frekar að
sýna Paris Hilton á fylliríi. Það er
til skammar og hefur skaðað vit-
ræna heimildaljósmyndun gríð-
arlega. Nú er fólk að vinna í þessu
af ástríðu, hver fyrir sig víða um
heim, en utan fjölmiðlanna.
Notkun á myndum hefur breyst
gríðarlega í blöðum og tímaritum.
Hún hefur versnað. En ég er bjart-
sýnn og trúi að það muni breytast
aftur til hins betra: Við lifum á
myndaöld. Það er búið að skrifa
Biblíuna og það er búið að skrifa
Njálu. Heldurðu, ef höfundarnir
hefðu átt myndavélar, að þeir hefðu
ekki birt myndir af Jesú og Njáli?
Prentmiðlar hafa elt útlit netsins,
hafa minnkað myndir og dregið úr
afrétti. „Sögumaðurinn hefur elst
um 20 ár frá fyrstu myndinni til
þeirrar nýjustu. Þetta er hluti af
sögu landsins, sem ég tel að verði
sífellt merkilegri með tímanum,“
segir hann.
Ragnar verður í París á fimmtu-
daginn þegar sýningin opnar.
„Mér skilst að sýningin sé flenn-
istórar síðurnar úr bókinni. Það er
eins og maður gangi inn í bókina.
Hvert okkar er með nokkrar
opnur.“
Hann er vitaskuld spenntur að
sjá útkomuna.
„Þetta er ekki besti tíminn til að
fara út, en mér er boðið og það
verður gaman að hitta hinna ljós-
myndarana.
Þetta er eins og að hitta Bítlana
og Rolling Stones – og vera boðið
að spila með þeim!“
vægi þeirra, og það er ein af ástæð-
um vandans sem þeir standa
frammi fyrir. Þeir áttu að fara í
hina áttina.“
Vinnur að fjórum bókum
Á liðnum árum hefur Ragnar
sýnt reglulega í Evrópu. Myndir
hans hafa til að mynda verið sýndar
á hátíðum í Vannes og Perpignan í
Frakklandi, í Mílanó, á Paris Photo
og í Altonaer-safninu í Hamborg.
Þá hefur hann í tvígang sýnt í Gal-
erie Argus fotokunst í Berlín.
Hann vinnur um þessar mundir
að fjórum bókum. Fyrirhugað er að
Last Days of the Arctic komi út í
fjölþjóðlegri útgáfu á næsta ári.
Þar eru myndir af mannlífi og nátt-
úru á norðurhjara. Önnur bók sem
hann er að raða saman sýnir 20 ára
sögu smalamennsku á Landmanna-
Eins og að vera
boðið að spila
með Bítlunum
Ragnar Axelsson er meðal þeirra sem
eru kynntir í nýrri bók sem helstu „lif-
andi meistarar“ samtímaljósmyndunar
Honum er skipað á bekk með heims-
kunnum kollegum, eins og Salgado,
Nachtwey, Araki, Parr og Mark
David LaChapelle
Patrick Demarchelier
Elliott Erwitt
Roman Opalka
Albert Watson
Ron Galella
Malick Sidibé
Mimmo Jodice
Oliviero Toscani
David Burnett
Ragnar Axelsson
James Nachtway
Pierre & Gilles
Nobuyoshi Araki
Rankin
Antonin Kratochvil
Martin Parr
Eihoh Hosoe
Reza
Mary Ellen Mark
Sebastiao Salgado
Marc Riboud
Ljósmyndararnir
Morgunblaðið/Kristinn
Heimildaljósmyndari „Vitaskuld þarf að skrásetja raunverulegt líf í myndum,“ segir Ragnar.
The Photographer – Time and In-
stant er heiti bókar sem kemur út í
París á fimmtudag. Um leið opnar
þar sýning á verkum þeirra 23 ljós-
myndara sem fjallað er um.
Verkefnið er hugarsmíð franska
ljósmyndarans Gérard Rancinan og
fréttamannsins og rithöfundarins
Caroline Gaudriault. Hinir kunnu
svissnesku úraframleiðendur
Baume & Mercier standa að baki
verkinu og hefur ekkert verið til
sparað við að gera það sem glæsileg-
ast. Höfundarnir hittu alla ljósmynd-
arana á sínum heimaslóðum, hvort
sem það var í Japan, Nígeríu eða á
flakki með Ragnari um Suðurlandið.
Baume & Mercier hafa styrkt ljós-
myndasýningar margra virtra safna
á liðnum árum, auk þess að styðja
við ljósmyndara í metnaðarfullum
verkefnum.
„Við viljum ekki bara horfa á
heldur taka virkan þátt í ljós-
myndaheiminum. Þess vegna tókum
við höndum saman með Rancinan og
Gaudriault á ferð þeirra um sam-
tímaljósmyndunina, þar sem við
hittum fyrir helstu núlifandi meist-
ara samtímaljósmyndunar,“ segir
forstjórinn, Michel Nieto.
Sýningin verður í Palais Tokyo
næstu vikurnar og mun flakka um
heiminn næstu tvö árin.
Upplýsingar um The Photograph-
er – Time and Instant má finna á
vefsíðunni: http://www.baume-and-
mercier.com
„Helstu meistarar
samtímaljósmyndunar“
FYRSTI fyr-
irlestur vetrarins
í fyrirlestraröð
Mannfræðifélags
Íslands: Vett-
vangur, nálgun,
siðferði, verður
haldinn á morg-
un í húsakynnum
Reykjavíkurakademíunnar og hefst kl. 20.
Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, lektor við
menntavísindasvið Háskóla Íslands, flytur fyr-
irlesturinn „Áskoranir, samvinna og siðgæði í
lífssögurannsókn“ sem byggist á doktorsrann-
sókn hennar. Þar leitaðist hún m.a. við að
bregða ljósi á hina duldu sögu fólks með þroska-
hömlun og skapa rými fyrir raddir þess sjálfs.
Fræði
Í Reykjavíkurakademíunni.
Guðrún Valgerður
ríður á vaðið