Morgunblaðið - 10.11.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2008
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi!
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Sýnd kl. 6 og 8
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA!
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
“HROTTALEG MYND EN
SPENNANDI, ÓGNVEKJANDI
OG ÓVÆNT”
- S.V., MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
BESTA MYNDIN - BESTI LEIKSTJÓRI - BESTI LEIKARI
TILNEFNINGAR
TIL EDDUVERÐLAUNA!10
Ver
ð a
ðei
ns
650
kr.
M Y N D O G H L J Ó Ð
POWERSÝNING
KL 10:15 Á STÆRSTA
TJALDI LANDSINS MEÐ
DIGITAL MYND OG HLJÓÐI
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 10:15
Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 5, 8 og 10 POWERSÝNING
Sýnd kl. 6 (650 kr.) m/ íslensku tali
James Bond... 4-5:30-6:30-8-9-10:30-11:20 B.i. 12 ára
James Bond... kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Quarantine kl. 10:10 B.i. 16 ára
My Best Friend´s Girl kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 B.i. 14 ára
Skjaldbakan og Hérinn kl. 3:45 650 kr. fullorðnir - 550 kr. börn LEYFÐ
Lukku Láki kl. 3:45 650 kr. fullorðnir - 550 kr. börn LEYFÐ
OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
OG HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
“BESTA SPENNUMYND
ÁRSINS HINGAÐTIL.”
- D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM
“…MEÐ BETRI SPENNU-
MYNDUM ÁRSINS!”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
,,FRÁBÆR VIÐBÓT VIÐ LENGSTU
KVIKMYNDASERÍU ALLRATÍMA OG
GEFUR NÝLEGUM HASARMYNDUM
EKKERT EFTIR.”
- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL
“STANSLAUS KEYRSLA
FRÁ UPPHAFITIL ENDA”
-S.V., MBL
“FYRSTA FLOKKS
BOND-MYND”
- Þ.Þ., DV
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÞEGAR fólk hugsar um tölvuleiki
kemur enn upp í hugum flestra
mynd af manneskju, oftast ungum
karlmanni, sem situr einn við tölvu-
skjáinn og keppir við tölvuna án
samskipta við aðrar mannverur.
Lengst af átti þessi steríótýpa stoð
í raunveruleikanum og vissulega
eru flestir tölvuleikir enn það sem
kallað má á vondri íslensku
einspilaraleikir.
Þegar saga leikja í mannkyns-
sögunni er skoðuð eru slíkir leikir
hins vegar mjög afbrigðilegir.
Leikir hafa alltaf verið félagslegir.
Leikir barna hafa verið eins konar
undirbúningur og æfingar fyrir líf
þeirra sem fullorðið fólk. Þá hafa
fornir leikir eins og kotra og skák
alltaf verið félagslegar athafnir.
Því má færa fyrir því rök að fjöl-
notendatölvuleikir eins og EVE
Online, sem framleiddur er og rek-
inn af CCP Games, eigi meira sam-
eiginlegt með fornum leikjum en
áðurnefndir einspilaraleikir.
Samfélag spilara
Erfitt er fyrir þá, sem ekki hafa
spilað fjölnotendaleiki, að trúa því
að sambönd, sem myndast milli
spilara í fjölnotendaleikjum séu
„raunveruleg“. Að vinátta geti
myndast yfir netið í leik, þar sem
spilarar fljúga í ímynduðum geim-
skipum og berjast um yfirráð yfir
ímynduðum stjörnukerfum.
Leikjahátíð CCP, sem haldin var
í fimmta sinn nú um helgina, ætti
hins vegar að sýna fram á að slík
sambönd fólks í millum eru ekkert
frábrugðin vináttu og félagsskap
sem skapast með öðrum hætti.
Forstjóri CCP, Hilmar Veigar
Pétursson, hefur margoft sagt að
EVE sé ekki bara tölvuleikur, held-
ur samfélag fólksins sem spilar
leikinn. Þegar undirritaður gekk
um Laugardalshöllina og fylgdist
með gestum sá hann enga ástæðu
til að draga þessa fullyrðingu Hilm-
ars í efa.
Vissulega ættu óinnvígðir erfitt
með að skilja samræður spilaranna.
Rökræður um hvort orrustuskipið
sé betra, Hyperion eða Rokh, eða
hvort innrás spilarabandalagsins
GBC inn í norðurhéruðin væri á
enda runnin, hljóma í eyru ut-
anaðkomandi eins og forngríska.
Það breytir því hins vegar ekki
að áhugi spilaranna sjálfra og ást
þeirra á leiknum er bersýnileg.
Sama á við um vináttuna, sem
skapast hefur milli fólks. EVE er
líka sérstakur leikur að því leyti að
allir EVE-spilarar spila í sama
heimi og á sama vefþjónaklasa.
Þetta þýðir að hver einasti spilari
getur haft áhrif á samfélagið í heild
sinni og á alla aðra spilara.
Vottar fyrir vænisýki
EVE-heimurinn hefur í sam-
félagi tölvuleikjaunnenda orð á sér
fyrir að vera hættulegur og harka-
legur. Tapir þú í orrustu við aðra
spilara tapar þú geimskipinu sem
þú flýgur og getur orðið fyrir raun-
verulegu fjárhagslegu tjóni – þótt
aðeins sé um ímyndaða peninga að
ræða. Þetta hefur áhrif á það
hvernig spilarar nálgast leikinn.
Það borgar sig að vera varkár og
má segja að hjá sumum votti fyrir
ákveðinni vænisýki. Menn þagna
þegar spilari úr fjandsamlegu
bandalagi gengur hjá og menn
horfa í kringum sig áður en sam-
ræðurnar halda áfram.
Þá er EVE líklega eini tölvuleik-
urinn þar sem menn hafa texta-
greint færslur á spjallborðum til að
ganga úr skugga um að höfundur
færslunnar sé raunverulega sá sem
hann segist vera.
Vissulega er EVE ekki fyrir
hvern sem er, en þeir sem skemmta
sér í þessu villta vestri himingeims-
ins eiga erfitt með að finna sömu
gleði í öðrum leikjum.
Tölvuleikir sem félagsleg dægradvöl
Grafík Þrátt fyrir að EVE hafi fengið fjölda verðlauna fyrir grafík sína þegar leikurinn kom út árið 2003 var
grafíkvélin komin nokkuð til ára sinna. Fyrir um ári var hún því uppfærð og heldur sú vinna áfram innan CCP.
Morgunblaðið/Ómar
Keppni Á leikjahátíðinni fór fram útsláttarmót þar sem hópar spilara öttu kappi hver við annan. Vegleg verðlaun
voru í boði auk þess sem orðspor sigurvegaranna jókst til muna við sigurinn.